Morgunblaðið - 25.11.1918, Blaðsíða 4
4
MÖKGUN3LAÐJB
Framíjalds-
regíur
og
íeiðbeinmgar um sðiu og úí-
fíuíning á fishi.
(Tilkynning nr. io, írá
Til þess aS gera eigendum eftir-
stöðvanna af þessa árs fi'skfram-
Itiðsln, sem umfram er söluna til
fulltriia Bandamanna, jöfnuð á
móts við þá seljendur, sem þegar
liafa fengið greiðslu, og til þess
jafnframt að þurfa eigi að flýta
söln þessara eftirstöðva um of,
hefir Útflutningsnefndin leitast
við'að fá peningalán, með fulltingi
landsstjórnarinnar, til þess að geta
greitt framleiðendum fiskverðið á
sama kátt og áður. Þetta er nú loks
komiö í það horf, að nefndin set
ur eftirfylgjandi framhaldsreglur:
1. gr.
Fiskurinn verður reikningsfærð-
ur með sama verði og sá íiskur,
er fór til Bandamanna, í>ar af
greiðir nefndin, með samsvarandi
fresti, 70% eftir því sem hankarn-
ir hafa peningaráð til.
2. gr.
Hinn hluta fiskverðsins ,eða
30%, geta þeir seljendur, er þess
ð_ka, fengið jafnframt á þann
hí tt, að þeir gefi út víxla fyrir
upphæðinni, er Útflutningsnefnd-
ín samþykkir og greiðir iorvexti
af, en hankarnir síðan væntanlega
kaupa. Yerði fiskurinn eigi seldur,
eð.-. nægilega mikið af honum, til
þec:s að andvirðið hrökkvi til
gieiðslu þessum víxlum á gjald-
daga, er titgefendum þeirra skylt
að gefa út framlengingarvíxla eft-
ir þörfum, með sama fyrirkomu-
lagi og hina, enda gengur hið
fyrsta, er nefndin fær inn af and-
-vlvði fiskjarins, til lúkningar þess-
um hluta fiskverðsins.
3. gr.
Það sem nefndin þar næst fær
inn fyrir fiskinn, gengur til lúkn
ingar þeim lánum, sem nefndin,
með fulltingi landsstjórnarinnar,
hefir tekið samkvæmt 1. gr.
4. gr.
Seljist fiskurinn hærra verði
til jafnaðar en reikningsfært
er, samkvæmt 1. grein, fer
um þann afgang svo sem íyrir er
mælt í tilkynningu nr. 5., 11. gr.
Fari svo ólíklega ,að fiskurinn nái
eigi því verði til jafnaðar, fer um
J»að eftir fyrirmælum sömu greinar.
Útflutningsnefndinni).
5. gr.
Útflutningsnefndin veitir fiskin-
um móttöku á þessum höfnum:
Reykjavík,
Hafnarfirði,
Patreksfirði,
Bíldudal,
Þingeyri við Dýrafjörð,
ísafjarðarkaupstað,
Akureyri,
Seyðisfirði,
Norðfirði,
Eskifirði,
Fáskrúðsfirði,
Vestmannaey jum.
Eftir samkoníulagi við nefndina
getur komið til greina um fleiri
hafnir, ef þar er svo mikill fiskur,
og aðrar kringumstæður leyfa, að
nefndin geti komið til leiðar ferm-
ingu þar heint til iitlanda.
Sé þar á móti á einhverri af of-
antöldum höfnum svo lítið fisk-
magn, eða aðrar ástæður valda því
að ferming þaðan til útlanda get-
ur eigi átt sér stað, áskilur nefnd-
in, að seljendur annist flutning á
fiskinum til annara hafnar, er
nefndin þá til tekur.
6. gr.
Um geymslu fiskjarins og vá-
tryggingu, um pökkun hans og
flutning.í skip, svo og um opinber
gjöld af fiskinum, gilda allar sömu
reglur sem um fiskinn til Banda-
manna, shr. tilkyimingar nr. 1 og
nr. 5.
7. gr.
Þeir, sem þegar hafa gert framboð
til útflutningsnefndar um fisk
sinn, eiga aðgang að fiskverðinu,
samkvæmt framansögðu, jafnóðum
og sá frestur er útrunninn, sem áð-
ur hefir gilt, frá því að mats- og
vigtarvottorð eru komin til nefnd-
arinnar.
8. gr.
Til þess að útflutningsnefndin
hafi sem fyrst glögt yfirlit yfir
fiskeftirstöðvarnar, er nauðsyn-
legt að henni sé tafarlaust send
íramboð á öllum fiski, sem til er
af þessa árs framleiðslu, og eigi
er þegar framboðinn, og sé fiskur-
inn tilgreindur eftir ásigkomulagi,
þannig:
a. Fullverkaður fiskur.
h. Fiskur, sem kominn er talsvert
áleiðís til fullverkunar, en eigi
er lokið verkun á. Fylgi hverri
tilkynningu um hann vottorð
matsmanna um það, á hverju
verkunarstigi liann er. Fer þá
um móttöku á honum og
greiðslu verðs eftir samkomu-
lagi við nefndina.
c. Fiskur í salti, sem legið hefir 28
daga eða lengur.
d. Fiskur í salti, sem legið hefir
skemri tíma.
Þann fisk, sem síðar aflast fram
til ársloka, skal tilkynna nefndinni
um í síðasta lagi 15. janúar næst-
komandi.
Jafnskjótt og fiskurinn er hæfur
til mats, skal hann þegar metinn
og hin ákveðnu skjöl um vigt og
mat sendast nefndinni. Fer þá ujn.
greiðslu fiskverðsins svo sem að
framan er mælt, shr. einnig til-
kvnningu nefndarinnar, nr. 1. og
nr. 5.
Reykjavík, 20. nóvember 1918.
cT/ior clcnsan, <3jjeíur cJónsson, .
@. Gfíenjaménsson.
/ dag opna eg aftur brauðsöiubúð mina.
Danwí Bzrnfjöff.
Hanzkabúðin
Austursb'æti 5
Miklsr birgðir af allskonar skinnhönzkum nýkomnarj^ Fóðraðir Og ÓfÓðr-
aðir karlmannahanzkar. Kvenhanzkar af öllum tegundum. Barnahanzkar.
Bílhanzkar.
Hvergi meira úrval.
Uátnjggið eigur yðar.
Tfje Britisí) Dominions Gensrat insurance Compamj.
Ldf„
tekur sérstakle g'a að sér vátrygging á
inubuam, vörum og öðru lausafé. — Iðgjöld hvergl lægrl.
Sími G81. Aðalumboðsmaður
Ga: ða? Gislason.
Eeykjavíkur
heldur fund mánudag 25. nóv.-kl. 8T/a síðd. í Báruhúsinu (uppi).
Alvarlega áríðandi að félagsmenn mæti.
S t j ó r n i n.
Kartoflur komnar í vcizlun
Elíasa LyngdaL Sími 664
tSiezí aó augíýsa i tMorgurSíaóinu.
Skrifstofustörf.
Maður með veizlunarskólapróti frá Verzlunarháskólanum i Atósum,
óskar eftir atvinnu við skrifstofustörf. Góð meðmæli til sýnis. Tilboð
merkt 555 sendist afgr. þessa blaðs sem fyrst, ásamt launstilboði.