Morgunblaðið - 16.01.1919, Page 1
Firatu&ag
fan. 1919
0R6DNBLADID
6. argapgr
64
tðlnblaO
Ritstjórnarsími nr. 500
Ritstjóri: Yilhjálmnr Fmsen
ísafoldarprentsmiðja
Afgreiðslnsími nr. 500
Fisksaían
Þegar Bretar höfðu keypt hér
allan þann saltfisk, er þeir kærðu
sig um, kom það til álita, hvað gera
ætti við þann fisk, sem eftir var.
Mr. Geo. Gopland gerði tilboð í
fiskinn, kr. 265.00 hvert skippund
hér á staðnum. En fiskeigendur
voru í nokkrum vafa um það, hvort
þeir ættu að taka því tilböði. Vildu
sumir beldur senda fiskinn á eigin
ábyrgð til Spánar og ítalíu og
freista þess, hvort ekki fengist fyr-
ir hann hærra verð. Varð það þá
úr, að þeir kusu þrjá menn í ráð-
gjafarnefnd í þessu máli. Þá nefnd
skipa þeir P. A. Ólafsson konsúll,
Garðar Gíslason stórkauþmaður og
Þorsteinn Jónsson kaupmaður.
Þessir fulltrúar fiskeigenda áttu
fund með útflutningsnefnd í gær,
en eigi mun nein ákvörðun hafa
verið tekin í málinu.
Þá höfum vér og frétt, að það
hafi komið til orða, að skip land-
stjórnarinnar verði send með fisk-
inn til Spánar og ítalíu, ef það
verður ofan á, að fiskeigendur
sendi hann til markaðs á síua á-
byrgð.
Spanska veikin.
Berst hún hingað aftur?
Síðan á öndverðu sumri hefir
spanska veikin legið í landi í Kaup-
mannahöfn. Stnndum hefir lítið
borið á henni, en aðra tíma hefir
hún gosið upp og verður æ magn-
aðri eítir því sem lengur líður.
Þegar Botnía fór frá Kaup-
mannahöfn síðast, var sagt að veik-
in hefði verið með versta móti. Og
nú kemur skeyti um það, að enn sé
veikin að magnast.
Það mun sönnu næst, að læknar
þekki enn eigi eðli þessarar pest-
ar, þrátt fyrir það, þótt hún hafi
nú geisað um heiminn í tvö missiri
og banað miklu fleiri mönnum held-
ur en ófriðurinn mikli. En sé það
nú rétt, að menn geti fengið veik-
ina aftur og aftur á þriggja vikna
eða mánaðarfresti, þá megum við
eiga von á hexmi með Botníu næst.
Og hvað verður þá gert?
Og hvað hefir verið gert til þess
að fá glögt yfirlit um það, hvernig
veikin hefir hagað sér hér á landi?
Ekkert ? Það hefði þó verið mjög
þýðingarmikið að fylgjast með
gangi hennar til þess að sjá hvernig
hún hagaði sér á hverjum stað,
hvernig hægt var að verjast henni
og hvað sóttnæmið reyndist mikið
eða lítið. Hefir nokkurra upplýs-
inga verið aflað um það, livort. veik-
in er nú útdauð hér á landi, eða
hvort hún er enn á ferli og þá hvar?
Vér efumst mjög um það. Þetta
hefði þó eigi litla þýðingu þegar
þar að kemur að við verðum að
taka í móti pestinni öðru sinni
Gunnar Gunnarsson
skáld.
Hjá Gyldendal er nýkomih út ný
skáldsaga eftir Gunnar Gutmars-
son. Heitir hún „Edbrödre“ (Fóst-
bræðnr) og er efni hennar tekið
úr landnámssögu íslands og aðal-
söguhetjurnar þeir Ingólfur Arn-
arson og Hjörleifur Hróðmarsson.
Bókin er nær 350 blaðsíður í stóru
broti. Mun hennar verða nánar
minst hér í blaðinu síðar.
Steinoliuverð.
Eins og allir vita, er verð á stein-
olíu afskaplega hátt hér. Muxi það
vera 300% hærra heldur en árið
1914. En nú er einmitt notað ákaf-
lega mikið af olíu hér í bæ til elds-
neytis vegna þess hvað gasið er
dýrt og kolin dýr. Mundi því öllum
almenningi draga mjög mikið um
það, ef eitthvað lækkaði olíuverðið.
Og menn höfðu einmitt vænzt
þess að það mundi lækka nú þegar
„Fredericia“ kom. Dag eftir dag
hafa menn beðið eftir tilkynningu
um það, en húu hefir ekki komið.
Hvernig stendur á þessu? Það er
þó vitanlegt, að vátryggingargjöld
hafa lækkað síðan stríðinu lauk.
Nú fer vertíð líka að byrja og
fjöldi vélbáta' mun ganga á fisk-
veiðar í vetur. Fyrir þá mundi verð-
lækkun á steinolín — hversu lítil
sem hún væri — hafa ákaflega
mikla þýðingu.
Því trúir enginn, fyr en hann tek-
ur á, að olían, sem kom síðast þurfi
að kosta eins mikið og sú, sem fyr-
ir var. En hvenær lækkar verðið?
6uðm. Jónsson.
-------. «. , -----
OAGBOK I
Sterling fór frá Seyðisfirði í gær
áleiðis til útlanda.
Borg var enn á Seyðisfirði í gær og
fer líklega þaðan í dag til Húsavíkur
og Sauðárkróks og þaðan til útlanda.
Samverjinn. Matgjafir hans hófust
í fyrradag og komu þá þegar 160 gest-
ir. í gær voru þeir rúmlega 200, og
nær eingöngu börn. Ef Samverjinn sér
sér fært, mun hann gefa sjúklingum
mjólk, eins og í fyrra, en féð er naumt
og alt dýrt, sem kaupa þarf. — For-
stöðumönnunum þætti vænt um það, ef
styrktarmenn Samverjans vildu heim-
sækja hann, t. d. í dag, og líta yfir
hópinn og fyrirkomulagið.
Snorri Sturluson kom hingað í gær
frá Englandi.
Sigurjón hefir nú sýningu mikla í
skemmunni hjá Haraldi, á þeim vörum,
sem menn þarfnast nú helzt til ver-
tíðarinnar og hann selur þessa dag-
ana með niðursettu verði.
Lúörafélagið „HARPA“
óskar eftir ungum, áhugasömum
mönnum til að blása á Clarinett
(í Es), Flautu (Piccolo) og Baryton,
Menn smii sér til
Reyois öíslasonar.
Alúðarþakkir fyrir auðsýnda
hluttekningu við fráfall og jarðar-
för Elíínar Jónsdóttur, Hverfis-
götu 82.
Börn og tengdabörn hinnar látnu.
»
Arnbjörn G-unnlaugsson, sem verið
hefir skipstjóri á botnvörpungnum
„Ráu“, er stundað hefir veiðar við
New Foundland að undanförnu, kom
hingað í gær með „Snorra Sturlusyni' ‘.
Tekjuskatfskráin
(Framhald.)
Hafstein Hannes 10500 297.50
Hákon jarl, h.f. 22800* 1352
Halberg J. G„ eign 10000 850
Halld. Gunnlaugsson
kaupm. 8000 175
Halld.Sigurðss. úrsm. 15000 595
Halld. Þorst. skipstj. 30000 2320
Hallgr. Benediktsson 60000 6820
Hallgr. Kristinsson 7000 135
Hannes Hafliðason 0000 100
Hansen Halldór 6000 100
Hansen H. J. bakari 8000 175
Hanson H. S. 8000 175
Haraldur Árnason 50000 5320
Haraldur Böðvarsson 6250 108.75
Haraldur Níelsson 6000 100
Havsteen Jakob 8000* 175
Heiðdal Jón 5000* 70
Helgi Helgas. smiður 5000 70
Helgi Helgas. verzlm. 7000 135
Helgi Magnússon 8000 175
Henningsen Sv. Juel 5000 70
Hið ísl. steinolíufél. 80600 9910
Hjálmtýr Sigurðsson 8000 175
Hjaltested P. úrsm. 8000 175
Hjalti Jónss. skipstj. 14000 520
Hobbs Clifford 100000 11820
Hólm Elías 5000 70
Höepfner C„ h.f. 48600* 5110
íshúsfélagið 10050* 272.75
ísbjörninn 12000 385
Jaeobsen E. 60000 6820
Jensen Thor 300000 41820
Jessen M. E. 10000 270
Jóh. Ögm. Oddsson 8000 175
Jóh. Ólafsson & Co. 8000 175
Jóhannes M. Bjarnason
skipstj. 12000 1 385
Johnson Ingibjörg 6000 100
Johnson Ólafur 150000 19320
Jón Bjarnas. kaupm. 8000 175
Jón Björnss. kaupm. 35000 3070
Jón Björnsson & Co. 10000 270
Jón Brynjólfsson 9350 237.50
Jón Gunnarsson 5000 70
Jón Halldórss. & Co. 10000 270
Jón Hallgrímsson 6000 100
Jón Helgas. kaupm. 10000 270
Jón Helgas. biskup 5000 70
Jón Herm.s. lögr.stj. 6000 100
Jón Hjartars. kaupm. 12000 385
Jón Jóhanness.skipstj. 13000 450
Jón Jónss. frá Vaðnesi 40000 3820
Jón Kristjáns. próf. 8000 175
Jón Kristóf.s. skipstj. 5000 70
Jón Magnúss. forsæt-
isráðh. 11900* 379
Jón Ólafss. frkv.stj. 14000* 520
Jón Pálss. gjaldk. 5000 70
Jón Sigurðss. skipstj. 7000 135
Jón Sigurðss. verzlm. 5000 70
Jón Hj. Sig. héraðsl. 6000 100
Jón Stefánss. skósm. 8000 175
Jón Þórðars. verzlun 12000 385
Jón Þorkelss. skjalav. 5000 70
Jón Þorlákss. verkfr. 18000 850
Jónatan Þorsteinss. 12500* 417
Kaaber L. E. 150000 19320
Kjartan Gunnlaugss. 8000 175
Kl. Jónsson 8000 175
Knudsen Vilh. 5000 70
Kol og Salt 49700* 5275
Kolb. Þorst. skistj. 13000 450
Krabbe Th. 5200* 76
Kristín Þorvaldsd. 12000 385
Kristinn Brynjúlfss. 6000 100
Kristj. Jónss. dómstj. 6000* 100
Lárus G. Lúðvígsson 50000 5320
Laxdal Jón 80000 9820
Leví R. P. 20000 1045
Loftur Loftsson 80000 9820
M. Kristjánss. forstj. 15000 595
M. Magnúss. frkv.stj. 7450 153
M.. Sigurðss. bankastj. 8000 175
Malmberg O. J. 8000 176
Marteinn Einarsson 25000 1620
Matth. Ein. laeknir 15000 595
Meinholt A. M. 6000 100
Metúsalem Jóhanness. 5000 70
Muller L. H. 10000 270
Nathan & Olsen 100000 11820
Niðursuðuverksmiðj. 6000 100
Nielsen Emil 11000* 327