Morgunblaðið - 25.01.1919, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
rQf*'
0 pagbok I
Messur á • mo'rgun í Fríkirkjunni í
Keykjavík: Kl. 2, síra Ól. Ólafsson;
kl. 5, síra Har. Níelsson.
Messur á morgun í Dómkirkjunni:
KI. 11, síra Jók. Þorkelsson; kl. 5, síra
Bjarni Jónsson.
Messað í þjóSkirkjunni í Hafnar-
firði á morgun kl. 12 á hád.
Alþýðufræðsla Stúdentafélagsins.
Hallgrímur Hallgrímsson sagnfræð-
ingur flvtur fyrirlestur í Iðnó á morg-
nn um uppruna hins brezka heims-
veldis.
Veðurskeyti. Sunnudaginn milli jóla
og nýárs voru fyrst send veðurskeyti
liéðan af landi til Kaupmannahafnar,
eftir 4^/2 árs bann. Veðurfræðin varð
ófriðarþjóðunum að miklu liði, eins
og kunnugt er, og þá lögðu Bretar
bann við því, að veðurskeyti yrðu
send héðan til Danmerkur, því að þá
hefðu Þjóðverjar getað fært sér þau í
nyt.
Jörundur Brynjólfsson alþingismað-
ur kvað ætla að flytja alfarinn héðan
úr bænum í vor og reisa bú að Múla
í Biskupstungum.
Seðlaútgáfuréttur. Samkvæmt þings-
ályktunartillögu frá fjárhagsnefnd al-
þingis 1917 um • það að stjórnin leiti
samninga við íslandsbanka um að
liann láti af hendi seðlaútgáfurétt sinn
allan, gegn ákveðnu gjaldi, eða þá að
liann láti af hendi rétt sinn txl að
hindra seðlaútgáfu fram vfir 2l/2 mil-
jón auk seðla Landsbankans —1 hefir
stjórnin nú skipað þá Magnús Guð-
mundsson skrifstofustjóra, Þorstein
Þorsteinsson hagstofustjóra og Pétur
Ólafsson konsúl í nefnd til þess að
rannsaka þetta mál og láta uppi álit
sitt um það. A nefndin að koma fram
með tillögur sínar fyrir lok marzmán-
aðar.
Vélbáta vantar. Síðan í rokinu á
þriðjudaginn vantar enn þrjá vélbáta,
sem þá réru, „HersP" og „Kára“ frá
Sandgerði og „Þorbjörn“ úr Kefla-
vík. Eru þetta alt stórir bátar og
góðir og því ekki ástæða til þess, að
svo komnu, að óttast um þá. — í gær
fór björgunarskipið „Geir“ suðixr til
þess að leita þeirra.
Hjálparsjóðurinn. í hann hafa safn-
ast alls kr. 70237.60. Verður gerð skila-
grein fyrir fjársöfnuninni hér í blað-
inu bráðlega.
Botníu er von hingað í dag.
Sóttvarnarhúsið. Allir leigjendurn-
ir í Sóttvamarhúsinu — 8 f jölskyldur
— hafa nú verið fluttir þaðan og suð-
ur í Suðurpól. Ætlaði það ekki að
ganga greitt að fá suma þeirra í bnrtu,
því að þeir neituðu blátt áfram að
að fara og lá við sjálft að það þyrfti
að bera þá út. — Hefir nú verið unnið
=
Wirma
Dugleg og þrifin stúlka getur feng-
ið vist frá 14. febrúar. R. v. á.
$ ÆaupsRaput $
Nýr primus til sölu með tæki-
færisverði, til sýnist í Sölúturninum.
Skinnjakki til sölu með tækifær-
isverði. Uppl. Njálsg. 23 uppi kl.
7—9 e. m.
Kex (2 teg.) 2.25 pr. % kg’.
Laukur 0.75 pr. y2 kg.
Sódi 0.65 pr. y2 kg.
Ameríkskt ÖI
fæst í verzlun
MARKÚSAR EINARSSONAR,
Grettisgötu 26.
að því síðan að ræsta húsið og koma
þar öllu í lag svo að það geti tekið
á móti sjúklingum.
Sextugsafmæli á Sighvatur BjarnU-
son bankastjóri í dag. Hann er nú er-
lendis og býr á Hótel Cosmopolite í
Kaupmannahöfn.
Laust presakall. Helgafell í Snæfells-
nessprófastsdæmi er auglýst laust og
veitist frá næstu fardögum. Umsóknar-
frestur til 20. marz.
Báturinn af Akranesi, sem ekki kom
fram á þriðjudaginn, hafði náð landi
í Melasveit, heilu og höldnu.
25 ára læknisafmæfc
átti Ólafur Finsen læknir á Akra-
nesi hinn 15. þessa mánaðar.
í tilefni af því hafa héraðsbúar
sýnt honum viðurkenningu og vin-
semdarvott á margan hátt, encla er
liann ákaflega vinsæll maður. Með-
al annars var honum færð dýrmæt
minningargjöf — gullúr með gull-
festi og göngustafur úr íbenliolt,
útskorinn af Stefáni Eiríkssyni, og'
gullbúinn, og áletrað: „Héraðs-
lætnir Ólafur Finsen. 25 ára minn-
ing frá héraðsbúum.“ Sama áletr-
un var og á úriny. Auk þess var
honum færð álitleg peningagjöf í
gulii.
Heiliaóskir bárust honum marg-
ar, þar á meðal frá Sumarliða Hall-
dórssyni:
Heiður og þökk fyrir handtök mörg
og þörf!
Heiður og þökk fyrir aldarfjórð-
ungs störf!
Heiður og þökk fyrir dugnað þinn
og dáð!
drengskap og kærleik og ágæt
læknisráð!
Annað kvæði barst honum og frá
Þórunni Richarðsdóttur í Höfn.
Það var og í ráði, að þeim lækn-
ishjónunum yrði lxaldið veglegt
samsæti, en þau afþökkuðu það.
Tltjj'i Bíó <3
?sss
LEYNDARDÓMUR
Gistihússins,
Sjónleikur i 3 þáttum, tekinn af Svenska Biografteatern.
Aðalhlutv. leika:
Nic. Johannsen og Frú Erastoff,
hin sama sem lék Höllu i Fjalla Eyvindi.
Fer hér saman góður útbúnaður, ágætir leikendur og fall-
eg og spennandi ástarsaga.
Bátur tiS sölu,
Stór, ný skekta, mjög vönduð, fjórróin, með seglum og árum o. R.r
alt vandað og vel útbúið, fæst keypt ódýrt, af því eigandinn ætlar burt,
Afgr. vísar á.
Chocolade
Handsápnr
Pvottasápa
Sódi
Salt
Ostar
K æfa
í veizl.
„Skögafoss“
Aðalstræti 8.
Hásefafélagið
heldur fund i Bárunni, sunnudaginn
26. þ. m. kl. 2.
Áiíðandi mál á dagskrál
S t j ó r n i n.
Bezta
rottueitrið.
Isl. smjörlíki
i verzl.
Aðalstræti 8.
Prögram
fyrir hljóml, í Hjálpræðisherimm
í kvöld kl. 8V2.
1. Cardiff, sænskt, blásturshljóðfæri
2. Det fjærne Fædreneland
danskr, solo.
3. Komdu og skoðaðu,
orkestermúsik,
4. Potpourii, ísleuzkt
með guiterundirspili.
5. Reykjavikurmarcb,
blástnrshjóðfæri,
6. A sigurpálma,
íranskt, orkestermusik
7. Home sweet home, guiter-solo.
8. Difilermarcb, norskt,
orkestermusik,
9. Potouni, mandolin-duet.
10. Sjá þann hinn mikla flokk,
kvaitet.
Leikið verður á guitara, mandolin,
fiðlur og blásturshljóðfæri (12 með-
limir).
Ný lög, nýir söngvar,
Drotni til dýrðar,
Komiðl Inng. 35 aurar.
€%ilRynnincj.
Þeir Hásetafélagsmenn, sem skulda
fyrir lengri eða skemmri tíma, ern
alvarlega ámintir um að borga gjöld
sin. Gjaldkerinn býr í Hildibrands-
húsi við Garðastræti, heima kl. 7—9
siðdegis.
Steinolía
bezta tegund (sólarljós) i verzl.
,Skógafoss‘
Aðalstræti 8.
Lifur
gamla og nýja, kaupir hæsta verðí
Agúst Guðjónsson,
fisktorginu.
Bibliufypirlestur
verður haldinn í Salem í Hafnar-
firði 26. þ. m. kl. 7 siðd.
Efnið verður auglýst á götunnm.
Alilr velkomnir
O. J. Olsen.