Morgunblaðið - 20.03.1919, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 20.03.1919, Blaðsíða 3
MORGUN BLAÐIÐ Md. Tatlien Söknm þess að tnynd þessi i ;ið sendast tneð Botníu, verð- ur hún sýnd í kvöftí I síðasta sínn. Frá Suöiir-Jótlandi í öndverðum þessum mánuði fóru fram bæjarstjórnarkosnmgar í ýmsum borgum í Suður-Jótlandi, og skiftust íbfiarnir alls staðar í tvo aðalflokka, Dáni og Þjóðverja. Af kosningum þessum má því nokk- uð marka, hvernig þjóðernisskift- iugin er. í Aabenraa fengu Danir 1648 atkvæði og komu að 12 full- trúum, en Þjóðverjar fengull98 at- kyæði og komu að 8 fulltrúum. 1 Haderslev fengu Danir 2699 at- kvæði og komu að 9 fulltrúum, en Þjóðverjar 1596 atkvæði og komu að 9 fulltrúum. 1 Sönderborg fengu Danir 1438 atkvæði og Þjóðverjar 1382. En í Tönder fengu Danir ekki meira en 391 átkvæði og Þjóðverjar 1304. í Norðborg komu Danir áð 7 full- trúuin, en Þjóðverjar 5. I Lögun- Kloster 6 danskir fulltrúar og 4 þýzkir. í Augustenborg' 3 danskir og 3 þýzkir. í Rödding 11 danskir og 6 þýzkir. 1 Skærbæk 8 danskir og 1 þýzkur. 1 Lojt 7 danskir og 1 þýzkur. Eins og fyr hefir verið getið hér í blaðinu hefir friðarfundurinn viðurkent kröfur Dana til Slésvík- ur. Á atkvæðagreiðslan að fara fram í tvennu lagi. Verður þess skamt að bíða, að atkvæðagreiðsla fari fram í Norður-Slésvík, en í Mið-Slésvík og Fleíisborg fer at- kvæðagreiðslan ekki fram fyr en síðar, eða þá fyrst, er prússneskra yfirráða gætir þar eigi lengur. Um það, hvernig atkvæðagreiðsl- unni skuli hagað, segir franska blaðið „Le Temps“ : — Suður-Jótlandi verður skift í f jögur umdæmi. í þeim hlutanum, sem næstur er Danmörk, getur at- kvæðagreiðslan farið frarn innan skams. 1 Mið-Slésvík og Flensborg verða-atkvæði greidd síðar og sér- staklega í hverri sveit. Þriðja um- <Iæmið ætla bandamenn að leggja Undir sig fyrst um sinn. En fjórða hmdæmið, sem nær suður að Kíl- •Áurði, er viðúrkent þýzkt land, bandamenn leggja ekki undir s'g. Báðskona óskast á gott heimili í Keflavík, helzt strax. Upplýsingar á Vestur- götu 15 uppi. Karlmanns-slifsnál úr gulli með rúbinsteini, hefir tspsst í austurbæn- um. Finnaudi vinsamlega beðinn að skila henni á Laugaveg ^ gegn góðum fundarlaunum. Síldartunnur nýjar og gamiar eru keyptar : : háu verði í verzlun : : Jóns Z o 0 g a, Bnkutræti 14. Grlmubúniúgur fyrir kvenmann og lítið sjal tii söiu á Óðinsgötu 8 a. Stúika ótkast í vist frá næstu mánaðamótum, daginn. R. v. á. hálfan eða allan Kartöf lur danskar, mjög góðai, í heildsölu hjá O Benjamínssyni H.f. Eafmagnsfélagið Hiti & Ljós Sími 176 B Vonarstr. 8 hefir ávalt miklar birgðir af alls konar Rafmagnsvörum og Ljósa- krónum. Gerir alla rafruagnsvinnu. Einhleypur maður óskar eftir stóru herbergi með húsgögnum. Tilboð merkt 54, leggist á afgr. Morgunbi. Keisarinn biðor m peninga. Vilhjálmur keisari hefir nýiega snúið sér til nýju stjórnarinnar í Þýzkalandi og beðið hana um þen- inga, því að hann gæti ekki níðst á gestrisni þess manns, sem skotið hefir yfir hann skjólsliúsi. Segir hann í bréfinu, að hann hafi þegar fengið 20,000 gyllini að láni í Hol- landi og biður því um að fá citt- hvað af því fé, sem hanu á með réttu í Þýzkalandi. Stjórnin hefir nú látið fara fram rannsókn á því, hve miklar muni eigur keisarans, og komst að þeirri niðurstöðu, að liann mundi með réttu geta gert kröfur til 75 miljóna marka. En eigi vildi Iiún þó láta hann fá meira en 600 þús. mörk til þess að byrja með. Af þessu sézt, að fregnir þær, sem bornar voru út um það, að keisar- anum hefði verið sendir margir pokar fullir af gulli, rétt eftir að hann varð landflótta, eiga eigi við nein rök að styðjast. Drensur getur fengið atv nnu strax A. v. á. TUvituw við fiskverkun, geta nokkrar stúikur fengið á Kirkjusandi hjá c%fi. cT/iorshinsson. Silkikegur á 8)51. og slifsi, uýkomið í verzluniua Gullfoss. ATVINNA. Stúlka um tvitugt, vel npplýst og vönduð, getur fengið atvinnu fri 14. maí n. k. i lyfjabúð utan Reykjavíkur. R. v. á. Tveir hásetar óskast á seglskipið »Freyja« sem hér liggur. Upplýsingar í dag kl. 5—6 á skrifstofu Emil Strand. Krystalsápa fæst hjá Daníel Halldórssyni. Verzlunin ,Framtiðin‘, Hérmeð tilkynnist heiðruðum bæjarbúum að eg hefi opnað nýja verzlun undir nafninu »Framtiðin«, á Bergstaðastræti 19, og hefi þar á boðstólnm ýmsar nauðsynjavörur, er seljast með lægsta verði. Virðingarfylst. Hjörleifur J ó u s s o n.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.