Morgunblaðið - 15.06.1919, Blaðsíða 1
Sunnudag
15
júní 1919
MOKGDNBLADID
6. árgangur
211
tölublaS
ísafoldftrprcntsmiDja
Affcrei8sln3Í>ai nr. 500
Ritstjórnarsími nr. 500
Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen
®. 8. I. I. S I.
ÚrslifakappÍQÍkur
um Knaílspijrnubikar Isíands, íjefsf sunnud. 15. júni 1919
kí. 3 á IþróffaveUinum. — Jieppendur:
Tram — Heukjavíkur
Að leikslokum verður blkarlnn ásamt 11 kelðurspeningum afhent sigurvegurunum.
Aðg.miðar: Sæti 1,50, Pallar 1,00, Alm. pláss 0,75, Börn 0,25.
TJfarspennandi. JJfarspennandi.
Úr loftinu.
London, 14. jóní.
Friðarsamningarnir.
Fjögra manna ráðið í París hefir
kosið nefnd, sem í er einn fulltrúi
frá hverri þjóð, til þess að íhuga
svör bandamanna við breytingartil-
lögum Þjóðverja. Svarið er nær
5000 orð. Undir eins og fulltrúum
Þjóðverja hefir verið birt svarið,
og það verður sennilega á mánu-
daginn, munu þeir fara frá Versail-
les til Weimar, til þess að bera ráð
Sín saman við stjórnina.
Samkvæmt símskeyti frá Zúrich,
er það álitið, að þýzka stjórnin
iiiuni telja tilslakanir bandamanna
úægilegar til þess, að Þjóðverjar
geti undirskrifað friðarsamninga
og að „eigi komi til mála, að hugsa
lengur um neitun“.
Á fundi þýzkra jafnaðarmaima í
■öerlín í gær, vakti' Berntein, for-
iligi óháðra jafnaðarmanna, all-
hiikla undrun, með því að lýsa yfir,
'tð friðarskilmálar bandamanna
^æri járnharðir, en níu tíundu hlut-
"þeirra væri réttlátir.
Atlanzhaf sflugið.
Símskeyti frá St. Johns á New-
^oundland, segir að Vickers Vinni
flugvélin muni leggja á stað í At-
Wzhafsflugið í kvöld.
Wilson forseti
úfir sent þjóðabandalaginu ávarp,
sem hann segir, að „núverandi
^kifæri eigi ekki sinn líka í ver-
^darsögunni. Friðinn er að eins
^gt að tryggja með stöðugri starf-
og einlægum áhuga réttlátra
Ú'ðlima bandalagsins, er ganga í
bað
af frjálsum vilja‘ ‘.
Bók Bethmaam Hollwegs.
! kók sinni, er nefnist „Um
j^'Ois.styrjöldina1 ‘, hefir Bethmann
° ^eg gefið svör við andmælum
Jarðarför mannsins mins sáluga, Ólafs Björnssonar ritstjóra,
fer fram frá dómkirkjunni miðvikudaginn 18. þ. m. Hefst með
húskveðju heima kl. i e. h.
Borghildur Björnsson.
þeim, er hann fékk, þá er hann tal-
aði um ranglæti það, sem framið
var við Belgíu, og gefur hann þar
þessa þýðingarmiklu viðurkenn-
ingu: „Enda þótt skjöl þau, er
fundust í belgiskum skjalasöfnum,
hefði ljóstað miklu meira upp um
bandamenn heldur en þau gerðu,
þá hefði þau að eins getað leyst
Þýzkaland frá tryggingum þeim, er
það gaf 1839 viðvíkjandi hlutleysi
Belgíu. En þrátt fyrir það hefðum
vér eigi haft neinn rétt til þess að
vaða með ófriði inn í Belgíu.“ Hann
minnist einnig á það, hvað Þjóð-
verjum hafi orðið lítið gagn að
skjölum þessum og segir: „Vér
birtum skjölin undir eins og vér
höfðum fundið þau í Brussei, en
eg hefi ckki tekið eftir því, að mál-
staður bandamanna biði neinn
halla við það.“
Berlín, í gær.
Eftir því sem „Berl. Tageblatt“
segir frá, er heimsending þýzkra
hermanna úr Póllandi hafin á ný.
Her Hallins yfirhershöfðingja er
talinn vera 70 þúsund og hefir hann
f jölda stórra fallbyssna, sem frakk-
neskir hermenn fara með eingöngu.
Hefir þeim her hingað til eigi ver-
ið teflt fram gegn Bolzhewifikum,
heldur gegn Ukraine-hernum, sem
berst við Bolschewikkana,
Afvopnun Austurríkis. Samkvæmt
friðarskilmálum þeim, er bandamenn
hafa sett Austurríkismönnum, á Aust-
urríki ekki að fá leyfi til þess að hafa
meira en tvser herdeildir framvegis.
Knattspyrnan.
Fram sigrar Víking með 2 :1.
íj'órði kappleikur mótsins fór fram
í fyrrakvöld. Þá kepti „Fram“ við
„Viking“ og sigraði með 2 :1. En
„Fram“-liðar tókn ekki hlut sinn á
þurru landi í þetta sinn, sigurinn varð
þeim torsóttur framan af, því mót-
stöðumennirnir voru alls ekki á því að
hugsa sér vísan ósigur. Víkingar eru
óefað skæðasti keppinautur Fram, og
eigi gott að vita, hversu langt þess
verður að bíða, að þeir beri sigur úr
býtum. Hin tvö félögin þurfa að endur-
fæðast og gera það líka á næstu árum,
því ungviði þeirra, sem var á velinum
í vor, er bezti efniviður.
Veðrið er býsna erfitt þessu kapp-
móti. I fyrrakvöld voru krapaskúrir og
hár vindur og svo var einnig kveldið
áður. Samt voru furðu margir áhorf-
endur, en engum heitt, nema þeim allra
áhugamestu. Þeir hrópuðu sér til hita
og spörkuðu ósjálfrátt af eintómum
áhuga.
Víkingar átti að sækja á móti hliðar-
vindi í fýrri hálfleik. Og þeir sóttu ó-
sleitilega á, — máske ósleitilegar en
holt var. Fram átti fult í fangi með
að verjast lengi framan af, og áhlaupin
eigi óhættulegri af hálfu Víkinga en
hinna. Enda fengu Víkingar mark, er
nokkuð var liðið á leikinn. Var það
hið eina mark fyrri lotunnar. Fram jók
að vísu sóknina og urðu margar harðar
skankarimmur fyrir framan Víkinga-
markið. En eigi varð annar árangur af
þeim en að kostur gafst á að sjá hversu
dýrðlegan markvörð Víkingar eiga þar
sem „Jabbi“ er.
Eftir fyrri lotuna höfðu Víkingar
þannig 1 : 0. Og Vílsing-sinnaðir áhorf-
endur voru eitt bros, en Fram-vinir
báru sig karlmannlega og sögðu, að
dag skyldi að kveldi lofa. Og það fór
svo, að síðari lotan færði Fram sigur-
inn. Þó ekki nema tvö mörk. Og Vík-
ingar mistu þó „Palla“ í síðarí lot-
unni. \
Kappleikurinn í gær var einkar-
skemtilegur og spilti þó veðrið miklu.
Viðskiftin voru svo greið að furðu
sætti, og leikhraðinn afarmikill, ein-
kanlega í byrjun. Samleikurinn hjá
Fram var ekki eins góður og þegar
jþeir keptu við Val, og hefir veðrið
átt mestan þátt í því. „Ibsen“ og bak-
verðirnir létu meir til sín taka en síð-
ast (B. K.: að eins einar brækur, en
„Alli“ rómverska skikkju eða ferða-
brekán í hvíldunum).
Víkingar eiga mörg hraustmenni og
kafna ekki undir nafni. I fyrrakveld
bar mest á Helga Eiríkssyni og Hall-
dóri — að ógleymdum auðvitað erki-
víkingnum Óskari Norðmann. Þórður
Albertsson var ekki nógu ásækinn, og
notaði ekki til enda mörg góð færi, sem
hann var duglegur að skapa sér.
„Palli“ var betri en síðast, en þó eigi
fyllilega sjálfum sér líkur.
| DAGBOI ^
„ísland“ fór héðan áleiðis til Kaup-
mannahafnar um Leith laust eftir há-
degi í gær, með 50—60 farþega. Meðal
þeirra voru Kr. Ó. Skagfjörð stórkaup-
maður, Vilh. Knudsen prokuristi, Stef-
án Stefánsson kennari, ungfrú Hólmfr.
Sigurðardóttir (ráðh. Jónssonar) og
Þórður Flygenring. Þetta fólk ætlaði
alt af skipinu í Leith. Til Kaupmanna-
hafnar fóru: Jensen Bjerg kaupm. og
frú hans, Carlo Pedersen lyfsali, Jón
Jóhannsson skipstjóri, Guðlaug Ara-
sen kenslukona, Carlquist kaupm., J6n
Heiðberg kaupm., Sæm. Halldórsson
og Óskar Clausen kaupmenn úr Stykk-
ishólmi, Frederiksen slátrari og frú
hans, frú Sehepzer, Þórður Jónsson
kaupmaður, frú H. Guðmundsson, frú
Framhald á 4. síðu.