Morgunblaðið - 24.07.1919, Page 4
4
M0R6UNBLAÐIÐ
Alþingi.
Ný þingmannafrmnvöip.
Hvíldartími á botnvörpungum.
Frumvarp ber Jörundur Brynj-
ólfsson fram um hvíldartíma há-
seta á íslenzkum botnvörpuskip-
um og hljóðar 1. gr. svo:
„Skylt skal eigendum eða útgerð-
armönnum íslenzkra botnvörpu-
skipa að veita hásetum sínum minst
8 klukkustunda hvíldartíma í sól-
arhring hverjum, hvort sem þeir
eru á veiðum eða við annan
starfa.“
í greinargerð segir svo:
„Frumvarp þetta er ílutt eftir
ósk fjölmargra háseta á íslenzk-
um botnvörpuiskipum. Hafa þeir
undanfarin ár oft og einatt við
fiskveiðar orðið að vinna 3-5 dægur
í einu, án þess að þeir hafi notið
nokkurrar hvíldar. Og þannig hcf-
ir stundum verið haldið áfram svo
vikum og mánuðum skifti. Þess
gerist ekki þörf, að fjölyrða um
það, hver áhrif slík vinnubrögð sem
þessi hafa á líðan og heilsu þeirra,
er þeim sæta. Með slíkri vinnu er
starfsþoli hvers manns ofboðið.
Hraustustu menn á léttasta skeiði
endast varla meira en í 5—8 ár;
þá er mesti þróttur þeirra þrotinn,
og hæpið er að þeir séu óskemdir
eftir 2—3 ára starfstíma. Hvaða
vit er nú í slíkum vinnuháttum?
Binhverjum kann að virðast sem
útgerðarmönnum muni áskotnast
minni arður af útvegi sínum, ef far-
ið verður að stytta vinnutíma há-
setanna og tryggja þeim nokkra
hvíld, en ekki mun sú reyndin á
verða. Allir vita hversu mikið bet-
ur menn vinna, ef þeir njóta ætíð
nokkurrar hvíldar og vinna ekki
óslitið úr hófi fram. Með meiri
hvíld háseta en áður og reglulegri
vinnu mundi útvegsmönnum á-
skotnast jafnvel enn meiri arður
en fyr, auk þess, sem það skapar
hollari og vistlegri aðbúð fyrir há-
setana. v|||t
Rétt virðist, að útgerðarmenn og
liásetar komi sér ásamt um, hvernig
vinnu- og hvíldartíma á skipunum
verði fyrir komið, og að það sé
ákveðið með reglugerð, en komi
þeim ekki saman um einhver at-
riði, að stjórnarráðið meti þá mála-
vexti og skeri úr um það, er á
milli ber.“
Þingfnndir* í gær,
Efri deild.
Þar var stuttur fundur og við-
burðalítill í gær. Tvö mál, frv. um
breytingar á siglingalöguuum og
skrásetningarlögunum, voru af-
greidd til neðri deildar þegjandi
og hljóðalaust, frv. um framleng-
ingu ýmsra laga og um bráða-
birgðatoll af síldartunnum fór til 3.
umræðu og frv. um sölu á þjóð-
jörðunum Ogri og Sellóni var vísað
til landbúnaðarnefndar og 2. umr.
Neðri deild.
Þar vantaði báða skrifarana og
varamenn sátu á báða bóga for- j
setanum, og ekkert hljóð kom úr
horni einu, sem oft heyrist liljóð |
úr, því þar vantaði þá Bjarna frá
Vogi og Einar Arnórsson.
Hrossasölufrumvarp stjórnarinn-,
ar var afgreitt frá deildinni með
alvöru mikilli, en engu málæði, og
fylgdu því 13 atkvæði úr hlaði.
Breyting á póstlögunum fór til 3.
umr.
Um frv. til laga um bifreiðaskatt
urðu nokkrar umræður og hóf
Magnús Guðmundsson þær. Vildi
hann láta samþykkja frv. En eins '
og kunnugt er, eiga Árnesingar ;
þingmann nr. 1, gem ekki vill láta '
misbjóða kjósendum sínum. Hafði
hann komið frarn með breytingar-'
illögu þá við frv., að vörubifreið-
r væru undánþegnar skatti. Sýndi
':ann fram á það, að bifreiðarnar
væru orðin nauðsynleg samgöngu-
! æki. Margur einyrkinn ætti ó-
mögulegt með að komast í kaup-
stað, hestar væru orðnir dýrir og
ógjörningur að heita mætti að
koma með hesta til Reykjav,íkur,
vegna liagavandræða. Þess vegna
hefðu nokkrir hreppar í Árnessýslu
keýpt bifreiðar til að draga að
heimilunum, og sýndi flutnings-
gjaldið með þeim það bezt, hve
samgöngurnar væru orðnar dýrar.
Ef tollur væri lagður á bifreiðarn-
ar, mundi flutningsgjaldið hækka
enn meir og væri það misrétti, að
leggja skatt á samgöngurnar í
þessu héraði, samtímis því að ríkið
styrkti samgöngur við aðra lands-
hluta. Engin hætta á því, að vöru-
bifreiðar yrðu notaðar til fólks-
flutninga, þær væru seinskreiðar og
óþægilegar og því alls eigi notaðar
nema af efnalitlu fólki. Mætti líka
setja varnarákvæði við þessu með
reglugerð. — Jörundur Brynjólfs-
son vildi ganga lengra og hafa
skattinn á bifreiðum og bifhjólum
mjög lágan. Það væri á móti allri
skynsemi að leggja skatt á sam-
göngutækin. — Magnús Guðmunds-
son andmælti og' sag'ði m. a. að
skattur væri á hestum. Pétur Jóns-
son var á móti skattinum og taldi
hann geta orðið til þess að bifreiða-
akstur legðist niður, en það væri
afturför. Sig. Sig. tók aftur til rnáls
og benti á, að skatturinn kæmi alls
eigi niður á bifreiðaeigendum, held-
ur notendunum. Fór svo að lokum,
að till. hans var samþykt með 16
atkv. gegn 2 og málinu vísað til
3, umr. með 13 samhlj. atkv. Samþ.
var till. fjárhagsnefndar um að
bifreiðar hins opinbera skyldi vera
vera undanþegnar skattinum.
Næst kom fram frv. stjórnarinn-
ar um ríkisborgararétt. Talaði for-
sætisráðlierra fyrir frv., sem stend-
ur í nánu sambandi við sambands-
lögin. Var því vísað til stjórnar-
skrárnefndar og 2. umr.
Frv. um skoðun á síld var vísað
til sjávarútvegsnefndar og frv. um
stækkun verziunarlóðar á Norðfirði
til 2. umr., nefndarlaust.
Um breyting á vegalögunum var
allsherjarnefnd falið að fjalla.
Sama nefnd á einnig að athuga
breytingu á lögum um bæjarstjórn
Siglufjarðar, en fjárhagsnefnd að
segja álit sitt um breytingar á
hundaskatti.
Neðri deild sýnir refunuin mikla
ræktarsemi. I gær talaði Jón á
Hvanná lengi um málið og Sigurð-
ur ráðunautur vildi láta stjórnina
safna skýrslum um tjón það og
hermdarverk, er refir yunu í þessu
andi. Seint er stjórnarinnar of mik-
ið. Útrýma vildi hann öllum refum
íslands, en til þess þyrfti ineira en
að banna reíaeldi. Væri nauðsyn-
legt að ýta undir sýslunefndir að
leggja meiri stund á refadráp en
hingað til. Vildi hann láta vísa mál-
inu til allsherjarnefndar, því þar
væru margir vitrir mcnn, eu málið
umfangsmikið. Þyrfti að rannsaka
alla refalöggjöf o. s. frv. Málinu
var samt vísað til landbúnaðar-
nefndar.
Næst var rædd þingsályktunar-
tillaga uin rannsókn símaleiða í
efri hluta Árnessýslu og talaði Sig-
urður. Sírninn væri nú kominn í
flest kauptún á landinu og þá
stæðu beztu sveitirnar næst til þess
að fá síma. Grímsnes, Biskupstung-
ur og Hreppar væru símalausar
sveitir og þyrfti að rannsaka síma-
leiðir þar, þegar í sumar, og leggja
símann næsta vor. — Björn Stef-
ánsson vildi fresta máliriu og vísa
til samgöngumálanefndar og lofaði
því að hún skyldi/ekki sofa lengi
á því, en Sigurður vildi ekki láta
neina nefnd tef ja það. — Atvinnu-
málaráðherra upplýsti, að engin
rannsókn hefði verið gerð á þessu
svæði og landsímastjóri væri ekki í
Trá íandssímanum.
24. júlí 1919.
Frá degimun i dag etu úr gildi numin flestöll þru höft, er á stiíðs-
árunum hafa verið lögð á símaviðskifti við Stóra-Bietland og lönd þau
er standa undir yfirráðum eða vernd Breta. Sama er að segja um síma-
viðskifti við önnur lönd via England, og mun því frá sama tíma mega
nota t. d. Norðurlandamálin í símskeytnm til Norðnrlanda. En þar eð
þau lönd hafa ekki enn þá afturkallað ákvæði sín þaraðlútandi, er þó
viss.-st að nota hvorki símnefni né dulmál í símskeytum þangað fyrst
um sinn.
Órkilahestur, brúnn, 6—8 vetra,
mark tvö stig eða bitar aftan viustra
Eigandi vitji hestsins að Elliðakoti
og borgi áfallinn kostnað.
bænum. Væri mest hugsað um það
nú, að bæta við þráðum á aðallín-
urnar, því þær væru of lilaðnar, og
þýddi eigi að leggja hliðarálmur, ef
aðallínurnar önnuðu ekki sending-
unum. — Jörundur Brynjólfsson
efaðist um að landsímastjóri væri
fær um að dæina um, hvar síma
væri mest þörf. Lýsti hann andleg-
um og líkamlegum samgönguvand-
ræðum í Tungunum, þar væri eng-
inn vegarspotti, en fult af fenjum
og díkjum og dagleið á næstu síma-
stöð. Væri hann fær um að segja
rétt frá í málinu, því hann ætti
þarna heima sjálfur. Vildi láta sím-
ann ná alla leið til Geysis, því þang-
að væri ferðamannastraumur og
mundi síminn borga sig betur en
ella, ef stöð væri þar. — Björn
títefánsson kvað orð Jörundar
styðja skoðun sína um að málið
ætti að fara í samgöngumálanefnd,
því að ef landsímastjórann vant-
aði þekkingu á málinu, gæti hann
sótt hana til nefndarinnar. Hann
talaði og það varð: málið fór til
samgöngumálanefndar og þangað
fer Forberg náttúrlega líka.
Saltkjötsmatið fór til efri deild-
ar. Gerði Pétur í Hjörsey grein fyr-
ir því hvað feldist í orðinu „eðlis-
galli“, og voru margir fróðari eftir.
Samþykt var ein umræða um
þingsályktunartillögu um aðskiln-
að ríkis og kirkju.
Dagakrár i dag.
í neðri deild:
1. Frv. um aðflutningsgjald af
salti; 2. umr.
2. Frv. um breytiug á lögum um
stofnun brunabótafélags íslands;
1. umr.
3. Frv. uin breyting á lögum um
lögreglusamþyktir; l. umr.
4. Frv. um hvíldartíma háseta á
íslenzkum botnvörpuskipum; 1.
umr.
5. Till. til þingsál. um undirbún-
ing skilnaðar ríkis og kirkju; ein
umr.
í efri deild
er enginn fundur í dag.
Sfldveiðin nyrðra
Góður afli kominn.
Siglufirði, í gærmorgun.
Fyrsta snyrpinótarveiðin kom í
nótt. Vélbátarnir Grótta, Dröfn,
Hafliði, Geir goði, Valborg, Týr,
Faxi og einhverjir fleiri komu með
150—500 tunnur síldar liver. Sögðu
mikla síld á Skagafirði.
Mörg flciri síldarskip cru vænt-
anleg í dag. Veðrið ágætt sein
stendur. Enginn þorskafli.
Siglufirði, miðdegis.
Skipih halda áfram að koma inn,
,bæði innlend og útlend. í morgun
eru sjálfsagt kornuar hér á land
4—5000 tunnur af síld.
Rennara
vantar í Gerðaskólahérað næsta
kensluár. Laun samkvæmt fræðslu-
lögum.
Umsækjendur snúi sér til for-
manns fræðslunefndar fyrir 31. ág.
Fræðslunefndin i Gerðahreppi.
Kopfupressa óskast keypt.
Menn snú' sér í síma 21.
Fundinn mjólkurbrúsi á veginum
milli Arbæjar og Baldurshaga. Vitj-
ist að Þormóðsdal.
Gengi erlendrar myntar.
Kaupmannahöfn, 22. júlí:
Sterlingspund..........kr. 19.56
Dollar.................— 4.46
Mörk (100)...............— 29.25
Sænskar krónur (100) .. — 110.30
Norskar krónur (100) .. — 105.00
London, 22. júlí:
Danskar kr............kr. 19.50y2
100 Sterlingspund........$ 435.50
Kaupmannahöfn, 23. júlí:
Dollar.................kr. 4.40
Sænskar krónur (100) .. — 110.20
H_______PAGBOK 1
^^rmmán^mmtmmStSSSmSSSSSSSSSSBSmSSiSSl^tKtKKKHK^^
Veðrið í gær:
Reykjavík: Logn, hiti 9,8 st.
ísafjörður: Logn, hiti 9,6 st.
Akureyri: Logn, hiti 9,0 st.
Seyðisfjörður: Logn, hiti 10,6 st.
Grímsstaðir: Logn, hiti 9,0 st.
Vestmannaeyjar: SV. andv., hiti 9,8 st.
Þórshöfn, Færeyjar : S.kul, hiti 11,0 st.
„Sterling' ‘ kom hingað laust eftir
hádegi í gær, með 70—80 í'arþega. Þar
á meðal voru: Árni Johnsen kaupm. í
Vestmannaeyjum, á leið til útlanda,
Pétur Thoroddsen læknir og frú í
kynnisför hingað, Jón Stefánsson
bóndi, bróðir Páls stórkaupmanns, síra
Magnús í Vallanesi, Guðm. Jónsson
kaupm., frú Helga Ólafsson,frú Hjálm-
arsson, Bjarni Sighvatsson með frú
sinni og tengdamóður, o. m. fl.
Beitiskipið „Geysir“ kom hingað í
gær, og á að annast strandgæzluna á
meðan „Fálkinn“ er í Jan-Mayen-för-
inni. Skipið hafði meðferðis 4 póst-
poka, og voru tveir þeirra til stjórn-
arráðsins. Vegna þess að eigi voru
liðnir 5 dagar síðan skipið fór úr er-
lendri höfn, var það sett í sóttkví þang-
að til í dag. — í kveðjuskyni skaut
skipið 21 fallbyssuskoti þegar það
sigldi inn höfnina.
Hallgr. Hallgrímsson mag. art. fór
nýlegu til London og Oxford til sagn-
fræðarannsókna. Kemur aftur í haust.
Úr ræðu eins þingmannsins. í gær
var staddur á áheyrendapöllum mað-
ur, sem er að temja sér hraði'itun.
Er hér prentaður orðréttur einn kafl-
inn úr handriti hans og cr það sýnis-
horn af framsöguræðu: — Nefndin sá
ekki aniiað en að — að — að hún gæti
ekki betur séð en — og — að — að —
að hún gæti ekki betur séð en að — að
— að taka mætti þetta ákvæði burt
úr frumvarpinu — eða nema það burt.
Umbols- sg heildsaia
Sængurdúkur, 2 teg.
Svuntutau.
T visttau.
Verkmannablússuefni.
Léreft, hv.j
Flónel, margar teg.
Millifóðursstrigi, 2 teg.
Vasaefni.
Shirting, svaitur og misiitur.
Lasting, margar teg.
Drengjafataefni (Nankin).
Morgunkjólatau.
Kjólatau, margar teg.
Sokkar,
karla kvenna og barna.
Pluss.
Silki og Bómullarflauel
Silkiflauel (kápuefni).
Silki, svart.
Silki- og Flauelisbönd.
Möttulkantar.
Óryggisnælur.
Fatatölur.
Buxnatölur.
Vasaklútar, hvítir og mislitir.
Skóreimar.
Vb. Jón Arason, sem hér hefir legið
aðgerðalaus á annað ár, fór í gærkvöldi
norður á síldveiðar, rneð fólk og flutn-
ing.
Vb. Patrekur fór vestur í dag, hláð-
inn vörum.
Hrisíaísódi, Tíandsáda, Pvoiíasápa, Saumur sivaíur
Pakjárn, Zinkfjvila, B(ýf)vUa, Lóðaröefgir.
Sýnishorn fyrirliggjandi af ýmiskonar: Vefnaðarvörum, Fiskilinum,
Línutaumum, Fiskumbúðum, frá fyrsta flokks enskum verzlanarhúsum.
Vörurnar afgreiddar beint frá firmunum til kaupenda.
Laufásvegi 20.
Simi 175.
Piano
frá Herm. N. Peteisen & Sön, kgl. hirðsala i Khöfn, eru nú fyrirligg-
andi og seljasí með góðum borgunarskilmálum.
Tvimælalaust beztu hljóðfærin, sem hingað flytjast.
Ótakmörkuð ábyrgð I
. Finsen.
Vi(f).
Af sérstökum ástæðum höfum við enn fyrirliggjandi cokkrar tunnur
af sauða og dilkakjöti úr Borgárfjarðar- og Skaftafellssýslum.
Sláturfólag Suðurlands.
Fiskiskiptö Warden
trá Seyðisfirði, sem hór er nú> er til söln með
tækifærisverði.
*2/iásfíiffafélacjið.
Sími 701.
2 timburhús
tilheyrandi Stllfjallsnámunni fást keypt þar sem þau standa í Stálfjalli,
ef semur um vetð.
Nánari upplýsingar um stærð húsanna og fleira gefur
O Benjaminsson
(Hús Nathan & Olsens). S mi 166.
Hús úskasL
Fremur lítið hús óskast tii kaups. Borgun eftir
samkomulagi.
Jlfgr. visar á.
„SkjÖldur“ fór í ga:r til Borgar-
ness með 60—70 farþega. Þar á meðal
voru Ólafur Þorsteinsson læknir og
frú, séra Lárus Arnórsson aðstoðar-
prestur að Miklabæ, Sigurjón Jónsson
verzlunarstjóri og frú, Pétur Magnús-
son cand. jur, Þórður Geirsson lögrþj.
og Sigurður Þorsteinsson skrifari.
KomiS með i ■ j
AUGLÝSINGAR
timanlega.
Baðhúsið
er lokað til laugardags.