Morgunblaðið - 21.08.1919, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 21.08.1919, Blaðsíða 4
4 MOR6UNBLAÐIÐ Bankaseðlarnir. Hr. ritstjóri! Grein sú um bankaseðlana, sem birtist í heiðruðu blaði yðar í dag, gefur mér tilefni til þessara at- hugasemda: Það er ekki rétt, eins og ástæður eru, að gefa bönkunum mikla sök á því, hve illa seðlarnir líta út. — Bönkunum, sérstaklega íslands- banká, sem að undanförnu hefir mestmegnis annast seðlaútgáfiuia, er það hið mesta mein, hve illa og sóðalega fólk yfirleitt fer með seðl- ana. Það, sem mátt hefði gera, er að taka meir úr umferð af óhreinum seðlum, en gert hefir verið. — En það, sem þessu hefir hamlað, er bæði seðlaskortur, örðugleikar þeir, sem á því hafa verið stríðsárin, að fá preutuð seðlaeyðublöð erlendis — því á þessu er hér enginn kost- ur —, en einkum og sér í lagi þó óvissa sú, sem verið hefir á með seðlaútgáfuréttinn undanfarin ár, síðan reynslan sýndi að seðlaút- gáfuréttur sá, sem íslandsbanki hefir samkvæmt lögum 10. nóvbr. 1905, er hvergi nærri nægur til að fullnægja viðskiftaþörfinni. Al- þingi hefir sem sé enn eigi fengist til að taka neina fullnaðarákvörðuu um þetta mál. — þess er hins veg- ar ekki að vænta, að bankar leggi hart á sig, eða leggi fram stórfé, máske svo hundruðum þúsurida króna skiftir, til að láta gera seðla, sem svo er engin vissa fyrir að þeir fái heimild til að gefa út eða setja í umferð. — Kostnaður við prent- un bankaseðla, svo vel gjörðra og vandaðra, að eftirlíking sé ómögu- leg, er sem sé nú orðinn svo afar mikill, sakir dýrtíðar á öllu, er þar að lýtur. Bezta ráðið til góðrar meðferðar á seðlunum og til að halda þeim hreinum er auðvitað það, að menn geri sér yfirleitt ljósa þá hættu, sem því g e t u r verið samfara, í heilbrigðislegu tilliti, að hafa rniili handa mjög óhreina seðla. Hitt er eigi riema sjálfgefið, aö sá banki, sem annast á um seðla- útgáfu, eftir því sem viðskiftaþörf- in krefur — en það lag þarf tafar- laust að komast á seðlaútgáfurétt- inn hér, eins og í öðrum siðuðum löndum, — telur sér skylt að taka úr umferð þá bankaseðla, sem svo jlla eru leiknir, þegar þeir berast honum, að eigi er vel sæmilegt að gefa þá út aftur. Og svo mun sjálf- sagt gert verða eftirleiðis. Það er eflaust vel valið ráð, að hafa sérstök seðlaveski til að geyma «eðla í, í stað þess að hnoða þeim lausum og samaubrotnum í vasana eða í smábuddur. Hina leiðiua, sem bent er á í heiðruðu blaði yðar: að láta þá menn, sem með óhreina seðla koma í bankann, sjálfa greiða endurnýj- unarkostnaðinn, tel eg með öllu ó- færa, enda myndi sú leið eigi heim- il, þó fær væri að öðru leyti. Keykjavík, 20. ágúst 1919. Bankamaður. ---------o———- Einnig voru glímumenn sendir til leikanna í Stokkhólmi og glímdi Sigurjón Pétursson þar grísk-róm- verska glímu og varð vel ágengt, og annar maður úr hópnum, Jón Halldórsson, tók þátt í 100 metra hlaupi. Þá urðu landar að koma fram fánalausir og fyrir náð fengu þeir að bera fyrir flokki sínum spjald, sem á var letrað- orðið „Is- land‘ ‘. Næsta ár fá þeir, sem vér send- um til leika, að koina fram undir íslenzkum fána í fyrsta skifti. Þar ganga fram synir íslenzku ]>jóðar- innar í fyrsta skifti eftir að hún var viðurkend frjáls og fullvalda og öllum óliáð. Þess vegna er skylt, að enn betur verði vandað til far- arinnar en verið hefir áður; að bæði séu sendir fleiri menn og að landinn geti kept í fleiri íþróttum en áður. í Morguublaðinu var fyrir nokkru birt grein um næstu Olym- píuleika og hluttöku íslendinga í þeim og komst greinarhöf. að þeirri uiðurstöðu að íslendingar’ ættu enga menn til að senda og að málið væri hégómi. Þarf eigi að svara slíkri fjarstæðu, því hún er ómerk og ber vott um, að höfundurinn veit ekkert um hvað íþrótt er og því síður hver tilgangur hennar er. — Þau tvö skiftin, sem íslendingar hafa komið til leikaniia, hafa þeir aukið veg landsins, þó í litlum mæli væri, og sýnt öllum þeim mörgu þjóðum, sem þar hafa kom- ið saman, að vér eigum íþrótt, sem að fegurð og almennu íþróttagildi stendur framarlega í ílokki. Og í grísku glímunni höfum við einnig sýnt að við eigum góða menn. ís- lenzkir hlauparar eru áreiðanlega ekki eftirbátar annara þjóða, eí þeir fá nauðsynlega æfing og tamn- ing. Enginn mun neita því, að íþróttir eru oss íslendingum nauðsynlegar, ekki síður en öðrum þjóðum. Hreyf- ingin, sein komst á í því máli hér á landi eftir aldamótin,má tvímæla- laust teljast með liollari og þarfari hreyfingum, sem þjóðin hefir af að segja. Bezta næringin, sem slík lireyfing getur haft, er óefað sú, að íþróttameiiuirnir okkar hafi kynni af íþróttamönnum annara þjóða og fái færi á að keppa við þá. Þá skapast metnaðurinn og tappið, sem frá alda öðli hefir verið sterkasti undirstraumurinn í í- þróttalífinu. Til þess eru kappmót- in, bæði þau stærri og smærri, og smáþjóðunum eru þau ekki sízt nauðsynleg. Það varðar því miklu, að sem bezt verði vandað til mótsins mikla næsta suinar, af okkar hálfu, og má hvorki til spara íyrirhöfn né fé. Og það væri hneixli og bein afturför, ef vér mættum ekki á leikunum með úrval beztu íþrótta- manna, sem vér höfum á að skipa. Því ef við hættum að senda menu til Olymp'íuleikanna, þá verður j>ess ekki langt að bíða, að íþrótta- áhuginn íslenzki visni upp og Itverfi úr sögunni. |j _DtOBOK j| isku leiKyií. Síðustu leikar fóru fram í Stok't- hólmi 1912, og voru hinir næstu þá ákveðnir í Berlín 1916, en fór- ust fyrir af skiljanlegum ástæðum. En nú hefir verið ákveðið-að j eir skuli háðir næsta sumar í Ant- jverpen. , Til leikanna í London 1908 fór lítill flokkur íslendinga og sýndi þar íslenzka glímu. En einn mað- ur úr flokkiium, Jóhannes Jósefs- son, kepti einnig í grísk-rómverskri glíiuu og gat sér góðaii orðstýr. Veðrið í gær! ííeykjavík: N. kaldi, hiti 6,5 st. ísafjorður: Logn, hiti 7,0 st, Akureyri; N. sn. vindur, hiti 4,7 st. Seyðisfjörður: NV. hvassv., hiti 5,11 Grímsstaðir: N. st. gola, hiti 2,0 st. Vestm.eyjar: N. sn. vindur, hiti 6,3 : t’órshöfn: VSV. st. gola, hiti 10,0 st. Lúðrasveitin „Harpa“ getur ekk spilað úti fyr en um miðja næstu vikt sökum sumarleyfa íelagsmanna. „Skjöldur“ fer aukaferð tíl Borga: ness á laugardaginn kemur. Vélfræðingurinn brezki, sem hing kom með Faber flugmanni, ligg veikur. Hefir hann ígerð í faetinum i Yfirþinghúsíð prússneska. Mynd þessi er af húsi efri deild- ar prússneska þingsins. Þar sátu aðalsmeiin og stóreignamenn og réðu lögum og lofum í landinu, áð- ur eu alþýðan tók að gerast eins kröfufrek og nú er orðið. Nú er Prússland að koma á hjá sér nýrri og betri stjórnarskipun og má nærri geta að ,j,unkararnir“ í „landdeginum“ verða stirðir í vöf- um er þeir eiga að sleppa réttind- um sínum við almúgann. Myndin sýnir þá hlið húss-ius er snýr að Leipzigerstrazze. Meðal hátíðisdaga kristinna manna í Jerúsalem, er pálmasunnu- dagurinn einna merkilegastur. Þá gengur lýðurinn með pálmagreinar i höndum að hliðum kirkju Jesú Krists og staðuæmist þar. Er mynd- in tekin af slíkri athöfn. Þrátt fyrir* alla útlenda kúgun og illa meðferð, sem kristnir íbúar borgarinnar helgu hafa sætt um aldaraðir, haldast gamlar helgi- venjur furðanlega við lýði og þeim • er gegnt samkvæmt trúar- brögðunum. --------J3BSIÝE35Í. er óvíst að hann verði starfsfær þcgar flugvélin kemur. Villemoés mun sennilega hafa farið frá Leith í fyrradag; Mun geta komið hingað síðdegis annað kvöld. Beint samband Undirritaður óskar saixbanda til að versla með viðurkendar ostategundii: Emmenthaler, Rcchefort og rjóma- mysnost. Mouritz Rasmussen, Bernstoffsgade 25. Geværer Ammunition Cykler Leverancer Omgaaende fra Lager. H. Platou & Co. AS. Bergen. Telegr.adr.: Platogri * (Bas) Hentugt og gott dömuskriiborð til sölu mjög ódýrt. Laugaveg 20 B uppi A. V. Carlqvist. hðlEFTBTUSIUB hr«inar og þurrar, kaupir UaloldturprantffniSJIa Kona getur strax fengið fasta atvinnu við að þvo flöskur í nýju lyfjabiiðinni Langaveg 18 a. HERBERGI fyrir einn mann, eitt eða tvö, með eða án húsgagna, óskast til leigu nú þegar. Bifreið er til Eyrarbakka á föstudaginn fyrir miðdag. Sími 367. Steindór Einarsson. SLITOFHASÁBllISUl •C 9ÖBULKLÆÐI keypt háu veríl. S. v, á. KomiS me5 AU&LÝðlNÖAÍ timanlega- Leeið MOBQUNBLAÐIÐ. farðirför Lárusar Pálssonar prakt læknis fer fram föstudaginn 22. þ. m. f á Frikiik unni Hefst með húskveðju frá heimili hius lltra, Spítal st'g 6, kl. 11 f. h. — Það var ósk hins látna, að eigi yrðu látnir kranzir á kistura. Börn og tengdabörn. Undirritaðir óska að fl keypta 1 eða 2 liði af nýlegri stokkakeðju, hæfilega gildri fyrir stóran kútter eða botnvörpuskip. G Kr. Guðmundsson & Co. skipamiGlarar. Sími 744. Skemtun þeirrl er angfýst var á Eyrarbakka þ. 24. þ. m. til ágóða fyrir spitala á Eyrarbakka er frestað. Nánar auglýst síðar. I Brtílís 1 Berpj. Agentur Commission As urance Iansætter fordelagtigst alle slags islandske produkter. Besörger billigst indkjöp av: tomtðnder, salt, trælast, hermetik m. m. — Kontraherer og förer tilsyn med nybygning av fiske — fangst-fartöier — saavel damp som motor — ved fagmand paa omraadet. NB. Enhver henvendelse besvares omgaaende. — Greit og hurtig opgjör I Telegramadr : W. Briekhus, Bergen. Dugl. drengur getur fengið atvinnu við að bera Morgunbl. út um bæinn. / fjarv. minni gegnir herra prófessor Ó.afur Lárusson borgarstjórastöðunni. Borgarstjórinn í Reykjavík 18. ágúst 1919. 7i. Zimsen, Det kgl. oktr. Söassurance -- Kompagni tekur að sér allskonar sjóvátrygglngaF. Aðalumboðsmaður fyrir Island: Eggert Glaessen, yfirréttarmálaflntningsmaður. Vátryggingarfjelögin Skandinavia - Baltica - National Hlutafje samtals 43 millíónir króna. íslands-deildin Trolle & Bothe h.f., Reykjavíb. Allskonar s|Ó« og striðsvátryggingar á skipum og vörnm gegn lægstu iðgjöldum. Ofannefnd fjelög hafa afhent Islandsbanka i Reykjavik til geymsla hálfa millión krónur, sem tryggingarfje fyrir skaðabótagreiðslum. Fljót og góð skaðabótagreiðsla. Oll tjón verða gerð upp hjer á staðnum og fjelög þessi hafa varnarþing hjer. BANKAMEÐMÆLI: Islandsbanki. Sjó¥átryggingarfélag íslands h.f. Austurstræti 16 Revkiavik Pósthólf S74. Talsími S42 Símnefni: Insurance ALLIKORAl BJé- OQ BTS1Ð8VÁTMTOOIX Oili Skrifstofutími 9—4 síðd., laugardögum 9—2 aíðd.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.