Morgunblaðið - 04.02.1920, Qupperneq 2
2
jfc'
MORGUNBLAÐIÐ
GAMLA BIO
í eldhafi
istarinnar
AFrifamikilI sjón!. í 5 þáttum.
Aðalhl.v. leikur
Asta Nielsen
'af frábærri snild.
Það miin gleðja marga að sjá
þessa frægu leikkonu aftur.
Asta Nielsen er frægust allra
danskra leikkvenna, og frægð
hennar hefir flogið um allan
heim.
Sýuing í kvðld kl. 9
Þingið
Á morguri á Alþingi vort að.
koma saman að nýju, eftir rúmra
fjögra mánaða hlé. En nú þykir
iullséð að eigi fara þingfundir fram
■strax, því sárfáír þingmenn eru
enn komnir. Mun allur þorri þeirra
■ekki væntanlegur fyr en um næstu
helgi með „Sterling“.
Híð síðastá þing vár merkilegt að
ýmsu leyti. Það hafði mörg stórmál
til meðferðar, sem ekki varð ráðið
til lykta.
Það var mola- og brotaþing.
Fnginn flokkur var öðrum sterkari.
Það stóð í nærfelt þrjá mánuði,
án þess að geta myndað stjórn. Sú,
er baðst lausnar, varð að gegna
stjórnarstörfum áfram og gegnir
enn. Það er því eitt af hinum fyrstu
verkum þingsins að koma einhverj-
um í stjórnarsessinn. Hvemig það
'kann að takast, er engu spáandi
um. Það er ekki kunnugt um, að
'þeir kraftar, er þinginu hafa nú
bæzt með síðustu kosningum, séu
fcvo eindregnir, að hægt sé að marka
f jokkastyrk og flokkaskipun af því.
' Fossamálið verður vitanlega aðal
'línan, sem skiftir flokkum. En þar
jenna þó fleiri saman við og koma
til greina.
Alþingi voru hafa bæzt margir
nýir og efnilegir menn. Með þeim
kemur nýtt blóð í þingið. Það ætti
að vera metnaður þeirra, að standa
ekki að baki þeirra, sem rýmdu sæt-
ið fyrir þeim. Gangi þeir ekki feti
framar en fyrirrennarar þeirra, þá
eru umskiftin einskis nýt.
Það væri ekki vanþörf að leggja
Alþingi voru lífsreglur um eitt og
annað. Því að sumu leyti virðast
þær ekki vera til, eða þá gleymdar.
Og hvorttveggja er jafn háskalegt.
Yirðingin fyrir æðstu og helg-
ustu stofnun þjóðarinnar er helzt
til lítil. Þingmenn finna — sumir
hverjir — tæplega til þess, að á
'löggjafarsamkomu hennar má ekk-
eft og á ekkert óhreint að koma.
Sé það, er verið að leika sér að f jör-
eggi hennar. Og sá þingmaður, sem
ekki er sér þess meðvitandi, að
hann er að spinnaörlagaþræði lands
cg lýðs, hann á ekkert erindi á þing
/g ætti aidrei þangað að koma.
Og eút ættu þingmeun að mun.a.
Það er að leggja meiri stund á gildi
frumvarpa en fjölda þeirra. Inn á
síðasta þing dundi jafnt og þétt
skæðadrífa allskonar frumvarpa,
sem fæddust til þess eins að deyja,
og öllum var vitanlegt, að ekkert
líf áttu fyrir höndum. En þingmenn
virtust haldnir af þessum leiða sjúk
dómi.
En það er hægt ao vinna vel á
þingi, þó menn sáu ekki frumkvöðl- (
c.r margra írumvarpa, Það er hægt
Úfsalan í Hattabúðin
stendur aðeins yfir til 10. febr.
10—25% afsláttur á vetrarhðttum.
50% afsláttur af andlítsslöruœ.
Agætar skaut&húfur seljast á 4.00
og vetrarhuíur harida börnum trá kr. 1.50
Komið Btrsx meðan ú?vallð er nóg.
HATTABÚÐIN, LsufásvHgi 5.
Hið'nafnfræga amerfkska
Gerduft
Með því að nota það, geta húsmæður fljótt og auð-
veldlega bakað heima hjá sór ljúffengar og heilnæmar
kökur, kex o. s. frv.
Búið til úr Kremortartar,. framleiddu úr vínfaerjum.
Aðeins selt í dósum og heldur fullum
krafti og ferskleik til síðasta korns.
Selt í heildverzlun
Garðars Gíslasonar
og í flestum matvöruverzlunum
El
Drengja Matrósahúfur
og Kasketter
gríðarstóit úrval — nýkomið í
Brauns Verzlun,
Aðalstræti 9.
Skáhþing ísiendiit
hefst í Reykjavík 7. apríl næstkomandi. Þátt-takendnr gefi sig skrifl.
fram við hr. verzlunarm. Harald Signrðsson hjá Zimsen fyrir 3 apríl.
Þátt-tökugjald er 10 kr. sem greiðist er mótið hefst.
Reykjavík 3. efbrúar 1920
Stjóm Taflfélags Reykjavíkur.
Vegna útfarar
ólafs J. Ólafssonar konsúls, verða verzlanir okkar
lokaðar á morgun.
H P. Duus.
í.ð vernda réttindi þjóðarinnar, þó
þingmenn geri sér það ekki að
skyldu, að koma með nýtt frum-
varp á hverri viku. — •
Störf þingsins vaxa og verða
íjölbreyttari með hverjn ári sem
það kemur saman. Skaðvænlegir
flokkadrættir og stjórnmálaspill-
ing gæti því orðið enn meira eitur
nú en nokkru sinni áður.
Þingmenn verða því að vera á
v erði um friðhelgi og farsæld þing-
starfanna. Staða þeirra er einskon-
ar útvarðarjembætti. Þéir standa á
varðbergi. Bregðíst þeir í þeirri
stöðu, vinna þeir til óhelgi guðs og
manna.
Infliiepzíin
Símskeyti frá Kaupmannahöfn.
'Stjórnarráðinu hefir borist eftir-
farandi símskeyti frá Khöfn, dags.
2. febr. og var það svar við fyrir-
spurn fi'á Sóttvarnarnefnd nm hátt-
alag veikinnar:
„Leitað hefir verið nmsagnar
Guðm. Thoroddsens læknis og hann
aftur álits formanns dönsku heil-
brigðisstjórnarinnar. Að áliti þeirra
er inflúensan (á Norðurlöndum)
ótvíræð inflúenza og gengur vfir
sem faraldur. Hefir gosið upp
skyndiléga, breiðst hraðfara út og
ltgst einknm á þá, sem áður hafa
sloppið, en er ennþá hæði vægari
og minna mannskæð en hún var
síðast. Undirbúningstíminn má telj-
ast 1%—2 sólarhringar og formað-
nr, heilbrigðisstjórnarinnar telur
því 3 daga einangrun nægilega.“
Skömmu fyr hefir Björn Sijgj-
urðsson símað, að inflúenza hafi
gosið upp í Bandaríkjunnrn en þá
var hún ekki komin til Englands.
í Svíþjóð gengur hún talsvert og
í nokkrum hluta Noregs.
Eftir þessum fregnum að dæma
má búast við því, að veikin geti
fluzt hingað þegar minst vonum
varir, hvar sem aðkomuskip taka
höfn. Það er því nauðsynlegt að
læknar og sóttvarnarnefndir hafi
strangar gætur á veikinni (og öðr-
unii útj. farsóttum), að kaup'tún
búi sig undir að taka á móti henni,
en sveitahéruð athugi í tæka tíð
hvar og hvernig hentast væri að
■stöðva veikina ef þess yrði þörf.
Jafnframt er brýnt fyrir öllum
að fylgja samvizkusamlega þeim
sóttvarnarreglum sem gefnar hafa
verið.
Sóttvamarnefndin
Fisksalan
Morgunblaðið birtir í dag grein
um fisksöluna í Reykjavík, þess
eðlis, að það væri rangt að láta
henni ósvarað, bæði vegna bæjar-
túa og fisksalanna. Því þar eru und
antekningar gerðar að reglu og gef-
ið í skyn, a® fisksalar selji en bæj-
arbúar kaupi fiskinn langt yfir
sannvirði.
Víst er það satt, að fiskurinn er
orðinn dýr. En hvað er það, sem
ckki kostar meira nú en áður. Hef-
ir ekki úthaldskostnaður mótorbáta
aíikist ? Og 'samanburðurinn við salt
fisksverðið er ekki réttur. Því það
verður að athuga, að dýrara er að
afla nýs fiskjar hingað til bæjar-
ins, en í hinum eiginlegu verstöð-
nm og aðflntningur fiskjar hingað
t d. sunnan frá Sandgerði er dýr.
Enda mun sannleikurinn vera sá,
að það borgar sig alls ekki að flytja
fisk þaðan og hingað og séija hann
með því verði sem nú gerist hér,
uema því aðeins að bátarmr sem
flytja hafi hingað eitthvert annað
erindi, svo sem til viðgerðar eða
hafi vísan flutning til baka. Fisk-
salarnir reyna því eftir megni að
sfla fiskjar á bátum, sem gerðir eru
út héðan.
Annars ætti það að vera leiðbein-
ing í þessu máli, hversu tekist hefir
þegar bærinn hefir sjálfur reynt
að útvega ódýran fi'sk. Hefir það
NÝJA BÍÓ
Alþýðuvinur
Sjónl. i 5 þáttum
eftir
Ote Oísen og
Sophus Mlclxaelis.
Myndin er tekin undir eftirliti
Holger Madaens og sjálfur leik-
ur hann eitt aðalhlutverkið.
Önnur stærstu hlutverkin leika
þau
Gunnar Tolnæs,
Lilly Jacobssou og
Fr. Jacobsen.
Til marks um ágæti mynd-
ar þessarar er það, að lýðvalds-
stjórnin í Þýzkalandi fyrirskip-
aði að' sýna hana i öllum kvik-
myndahúsum landsins.
Sýning kl. 8%
Pantaðir aðg.miðar afhentir
í Nýja Bíó kl. 7—8, eftir þann
tlma seldir öðrum.
gengið misjafnlega. Og ekki hnð-
ust bænum þau kostakjör síðast er
hann leitaði fyrir sér um lán á skipi
til fisköflunar handa bænum. Enn-
fremur má benda á, að fisksalan er
sömu lögum háð og önnur verzlun
og þó gróði fisksalanna væri ekkí
r ema tíundi hluti þess, sem gremar-
höf. vill gera hann, væri það vel
émaksins vert að hann eða ein-
hverjir sem hann vildi ráða heflt,
reyndu að gera sér fisksöluna að
atvinnu. Reyndar hýst eg varla við
að honum mundi fénast mjög á því
eða fiskurinn falla í verði. En hann
mundi máske kynnast svo málavöxt
um, að ltann ritaði af meiri þekk-
ingu lan fisksölumálið næst þegar
liann færi á stúfana.
Reykjavík 3. febrúar 1920'
V. G.
Hr. ritstjóri! — Ut af grein í
Morgunblaðinu í dag um fisksöl-
una, skal eg leyfa mér að koma með
þessar athugasemdir til skýringar.
Það mim láta nærri, að verðið á
nýjum fiski, eins og það er nú, 60
aura kg., samsvari því, að væri fisk-
urinn saltaður og fullverkaður, þá
kostaði um 400 kr. skippundið,
eða kr. 2.50 hvert kg. Nú kostar
saltfiskur hér í 'bænum ekki nema
80 aura kg„ eins og tekið var fram
i greininni, og má þá sjá mismun-
inn.
Engum blandast samt hngur uffl
það, að betra er að kaupa nýjan
fisk heldur en kjöt. Þrátt fyrir
þetta háa verð, er hann eflaust
helmingi ódýrari. Verð á fiski hefir
„aðeins“ fimmfaldast hér (hæklcað
úr 6 aurum í 30 aura pundið), en
verð á kjöti hefir tífaldast síðan
fyrir stríðið. Eitt kg, af kjöti kost-
ar nú hér í bænum kr. 3.60—3.70.
Það mun láta nærri, að það sam-
svari því, að tunnan kosti um kr-
440.00, En á erlendum markaði fæst
áhi ekki meira en rúmar 200 krónui'
fyrir tunnuna. Ein tunna af síl^
mmi nú kosta hér um 90 krónuÞ
cg þegar þess ef gætt, að litlu muii'
ar á einni tunnu af síld og einii1 t
tunnu af kjöti um næringargildií
{)á sjá menn bezt muninn. Þess bef
og að gæta, að síldin „gefur,
sér“, en það gerir hvorki kjöt ne
fiskur.
Ó.