Morgunblaðið - 13.02.1920, Side 2
MORGUNBLAÐIÐ
Atok jte.X jmt-.it*. jte.jto.ju*. ja*
MORGUNBLAÐIÐ
Ritstjóri: Vilh. Finsen.
Afgreiösla í Lækjargötu 2
Sími 500. — Prentsmfðjusími 48.
Ritstjórnarsímar 498 og 499.
Kemur út alla daga vikunnar, aS
mánudögum undanteknum.
Ritstjómarskrifstofan opin:
Virka ðaga kl. 10—12.
Helgidaga kl. 1—3.
AfgreiSslan opin:
Virka daga kl. 8—5.
Helgidaga kl. 8—12.
Auglýsingum sé skilað annaShvort
á afgreiSsluna eða í ísafoldarprent-
smiðju fyrir kl. 5 daginn fyrir útkomu
þess blaðs, sem þær eiga aS birtast í.
Auglýsingar, sem koma fyrir kl. 12, fá
aS öllum jafnaSi betri staS í blaSinu
(á lesmálssíSum), en þær sem síSar
koma.
AuglýsingaverS: Á fremstu síSu kr.
3.00 hver cm. dálksbreiddar; á öSrum
síSnm kr. 1.50 cm.
VerS blaSsins er kr. 1.50 á mánuSi.
*P'"*t*
son, sagði að Reykvíkingum hefði
verið rekinn löðrungur með þess-
um dómi þingsins. Og kvaðst vona
að allir þeir, sem þarna væru inn-
an þeesara veggja, vissu hvernig
þeir ættu að svara þeim löðrung.
„Auðvitað setjum við Jakob Möl'ler
mn. Auðvitað setjum við hann inn.
Höldum á okkur hita þessa daga
til kosningar með því að vinna að
kosningu Möllers. Rinhversstaðar
verðum við að fá hitann frá, því
ekki kvað vera til mikils að leita
til fósturs landstjórnarinnar: lands
verzlunarinnar.1 ‘
Að lokum samþykti fundurinn
í einu hljóði áskorun til þings og
stjórnar, frá Bjarna frá Vogi, þess
efnis að láta kosningu fara fram
hér í Reykjavík ekki seinua en 17.
b. m. Og skyldi hinn eini þingmað-
ur Reykvíkinga, sem nú er, leggja
hana fyrir þingið þegar í ‘stað.
Pleiri töluðu á fundinum, þ. á m.
Pétur Þórðarson alþm.
Erl. símfregnir,
(Frá (réttaritara Morgunblatains).
Spának i veikin.
Khöfn 11. febr.
Spanska veikin breiðist enn út
og margir sýkjast. Eru það nú til-
lölulega margir sem deyja úr henni
Tilfinnanlegur skortur á hjúkrunar
liði.
Talsímaverkfallið heldur enn á-
íram, en út úr neyð hefir verið
komið á símasambandi við lækna,
sjúkrahúsin og lögregluna.
Fram8al8krjfan.
Vilhjálmur ríkiserfingi gengur
sjálfviljugur fyrir dóm
Bandamanna.
Khöfn 11. febr.
Frá Berlín er símað að Vilhjálm-
ur fyrverandi ríkiserfingi gangi
sjálfviljugur fyrir dóm banda-
manna.
Búist er við að bandamenn muni
heirnta 2000 menn enn framselda.
Forsikringsaktieselskabet
TREKRONER
Brunatryggingar.
Aðalumbosmaður:
Gunnar Egilson,
Hafnarstræti 15.
Talsími 608 og 479 (heima).
Húsnæði vantarj.
1—2 herbergi og eldhús óskast
r,il leigu strax eða seinna í mánuðin-
um handa fámennri f jölskyldu.
Há leigaborguð.
Tilboð merkt „Húsnæði“ leggist
inn á afgreiðslu Morgunblaðsins.
Prá París er símað, að Frakkar
muni alls eigi falla frá framsals-
kröfunni, nema þeir fái Rínhéruðin
sem þókmm fyrir það.
Spitzbergen,
Norðmönnum fengið landið
til eignar.
Khöfn 11. febr.
Samningurinn um Spitzbergen
hefir nú verið undirskrifaður og
hefir Millerand afhent sendiherra
i\orðmanna landið.
Snðurjótland og Danmörk.
Danir fagna úrslitum atkvæða-
greiðslunnar.
Khöfn 11. febr.
Úrslit atkvæðagreiðsliuinar í Suð
ur-Jótlandi eru ekki fullknnn enn-
þá, en búist við að þau gangi Dön-
um mjög í vil. í sveitunum hafa at-
kvæði þegar verið talin og hafa
84861 orðið með Ðönum en 26081
með Þjóðverjum.
Á ríkisráðsfundi, sem haldinn
var í morgun, lét Zah'le í ljós á-
nægju sína út af atkvæðagreiðsl-
nnni og konungur bauð hina fyrstu
afturheimtu lauda velkomna.
„Berlingske Tidende' ‘ segja:
„Sigur sá. sem unninn var í gær
gefur forvígismönnum hins danska
málefnis hvöt og trú til þess að
halda áfram barátunni og vonandi
gefur hann þeim þá líka þrek til
þess, að færa heim sigur að lokum,
brátt fyrir harða baráttu.“
„Politiken“ segir: „í gær kom
hin danska Norður-Slésvík heim
aftur. í þessari setningn felst sá
raunveruleiki, sem framtíð Dan-
merkur verður að byggjast á. \'ér
vissum að landar vorir varðveittu
hið danska þjóðerni sitt með frá-
munalegri dygð og þrautseigju. Og
í gær sýndu þeir öllum heimi fram á
það. Tölurnar verða eigi hrektar og
þær bera vott um hinn góða ogrétta
málstað vom. 1 gær lauk útlegð
Norðurslésvíkur og 56 ára kúgun.
Ilin danska fold er aftur dönsk“.
„Köbenhavn“ hyllir hina rösku
og djörfu dönsku sigurvegara.
„Danmörk þakkar hjartanlega 56
ára trygð. Úrslitin í gær gefa fyrir-
heit um aðra stórsigra“.
„Flensborg Socialdemokraten"
segir: „Vér heimtum rétt vorn. í
réttlætis og sáttfýsisanda tryggjum
vér heitið, sem gefið var í gær“.
„Nationaltidende' ‘ segja: „Sig-
„rinn í gær er óhrekjandi vottur
þoss, að mestur hluti Suðurjótlands
var, he'fir verið og er danskur- Hjá
öllum brann sú eina ós'k, að fá að
sameinast Danmörk aftur“. Enn-
iremur flytja ,,Nationáltidende“
fagnaðarkveðjur frá ýmsum máls-
metandi mönnum frá öðrum Norð-
urlöndum, svo sem Finni Jónssýni
og Bog.a Meisted.
--------o--------
Frá Alþingi.
--0--
Fundir hófust í báðum deildum
í gær einni stundu eftir bádegi.
Lagði stjórnin fyrst fram frumvörp
þau, sem getið hefir verið áður hér
i blaðinu, en síðan var gengið til
nefndakosninga.
NEFNDIR f NEÐRI DEILD.
1. Fjárhagsnefnd:
Magnús Guðmundsson, Þorleifur
Guðmundsson, Þórarinn Jónssou,
Hákon Kristófersson, Jón Auð-
unn Jónsson.
2. Fjárveitinganefnd:
Magnús Pétursson, Þorieifur
Jónsson, Pétur Jónsson, Bjarni
Jónsson frá Vogi, Olafur Proppé,
Stefán Stefánsson, Gunnar Sig-
urðsson.
3. Samgöngumálanefnd:
Gísli Sveinsson, Þórarinn Jóns-
son, Þorsteiun M. Jóusson. Pét-
ur Þórðarson, Einar Þorgilssou,
Björn Hallsson, Sveinn Olafsson.
4. Landbúna'ðarnefnd:
Magnús Guðmundsson, Jón Sig-
urðsson, Hákon Kristófersson,
Stefán Stefánsson, Magnús Pét-
ursson.
5. Sjávarútvegsnefnd:
Einar Þorgilsson, Þorleifur Guð-
mundssön, Pétur Ottesen, Magn-
ús Kristjánsson, Ólafur Proppé.
6. Mentamálanefnd:
Gísli Sveinsson, Eiríkur Einars-
son, Pétur Þórðarson, Sveinn
Bjömsson.
7. Allsherjamefnd:
Sveinn Björnsson, Þorst. M. Jóns
son, Pétur Ottesen, Björn Hálls-
son, Sigurður Stefánsson.
NEFNDIR f EFRI DEILD.
Fjárhagsnefnd:
Björn Kristjánsson, Guðjón Gnð-
langsson, Guðm. Ólafsson.
Fjárveitinganefnd:
Jóh. Jóhannesson, Hjörtur
Snorrason, Einar Arnason, Karl
Einarsson, Sig. H. Kvaran.
Samgöngumálanefnd:
Guðjón Gnðlaugsson, Hjörtur
Snorrason, Sigurjón Friðjóns-
son, Halldór Steinsson, Guðm.
Guðfinnsson.
Landbúnaðarnefnd:
Snorrason, Guðm. Ólafsson.
Sjávarútvegsnefnd:
Björn Kristjánsson, Sig. H.
Kvaran, Karl Einarsson.
Mentamálanefnd:
Einar Árnason, Guðm. Guðfinns-
son, Sig. H. Kvaran.
Allsherjarnefnd:
Jóh. Jóh annesson, Halidór Steins
son, Sigurjón Friðjónsson.
DAGSKRÁR f DAG.
Fundir hefjast í dag kl. 1. í neðri
deild er á dagskrá: Stjórnarskrá-
in; fjölgun þingmanna í Reykjavík,
breýting á kosningalögum til al-
oingisj gullmál Islandsbanka, éftir-
lit mgð útlendingum oghreppstjóra-
launin.
í efri deild: Frv. ti! laga um
stofnun og slit hjúskapar, afstÖðn
foreldra til óskilgetinna barna, og
aistöðu foreldi’a til skilgetinna
barna.
STARFSMENN ALÞINGIS.
Á skrifstofu:
Jón Sigurðsson frá Kaldaðarnesi,
Arni Sigurðsson cand. theol.,
Pétur Lárusson söngfræðingur
(prófarkalesari) og Kristján
Kristjánsson kennari (skjalavörð
nr og afgrejðslumaður).
Skrifarar í efri deild:
Páll Eggert Óiason dr phil., Vil-
hjálrnur Þorsteinssor. Sigurður
Thoroddsen, Dýrieif Árnadóttir.
Skrifarar í neðri deild:
Sigurður Guðmundsson, Jón
Skúlason Thoroddsen, DaVíð
Stefánsson, Þorbergur Þórðarson,
Vilhelm Jakobsson, Sigurður
Jónsson. Tveir hinir síðastnefndu
taka ekki til starfa fyr en þörf
þykir.
Á lestrarsal:
Ólafía Einarsdóttir og Petrína
Jónsdóttir, hálfan daginn hvor.
Símvarzla:
Gunnar G. Björnsson og Þór.
Oddsson, hálfan daginn hvor.
Þingmenn hafa áfnot síma eins
og að undanförnu.
Verðir:
Magnús Gunnarsson, Þoriákur
Davíðsson og Björn Vigfússon.
Þingsveinar:
Axel Blöndal, Halldór Sigur-
bjarnarson, Þorst. Þorsteinsson,
Stefán Bjarnason, Bjöm Hjalte-
sted, Eggert Waage.
Kosningin í Reykjavík.
Að lokinni dagskrá í neðri deild
tók Bjarni frá Vogi til máls og
skýrði frá því, að á 'kjósendafundi
í fyrrakvöld hefði verið samþykt
áskorun til þings og stjórnar um
það, að flýta sem mest fyrir þing-
inannsikosningu hér í Reykjavík?.
Vildi hann nú, að þetta mál kæmi
t'yrir deildina. Forseti kvað það
ekki meiga nema með afbrigðum
trá þingsköpum og til þess þyrfti
leyfi forsætisráðherra og deildar-
innar. Forsætisráðherra gaf þegar
ieyfið fyrir sitt leyti, en deildin
feldi ])að að veita afbrigði. Þarf %
hluta atkvæða til ]>ess að afbrigði
frá ]>ingsköpum sé veitt, en 12
menn greiddu því atkvæði, en 10
> oru á móti. Þrír greiddu ekki at-
kvæði og báru það fyrir, að þeim
fyndist þetta mál ekkivarða 1>ingið.
Fundur
verður haldinn í sameinuðu þingi
í dag kl. 5, fyrir luktum dyrum.
<z dagbók Z>
I. O. (). F. 1012138%. _ III.
Suðurjótland. Danskir menn, sem bú-
settir eru hér í bænum, hafa í hyggju að
halda fagnaðarveizlu, þegar Suðurjót-
lutid sameinast Danmörk aftur. Enn-
fremur hefir biskup boðið aö halda
þakkarguðsþjónustur í ölluin íslenzkum
kirkjum í tilefni af sameiningu Dan-
merkur og Suðurjótlands.
La /Crovence, botnvörpungur fra Fé-
catnp í Frakklandi, hefir legið her um
hríð kolalaus. En nú hefir hann fengið
loforð um kol tii heimferðar og tekur
héðan blautfisk til útflutnings.
Karl Einarsson alþingismaður kom
til bæjarins í gær með norska skipinu
Persival Wilson.
Kvöldskemtun verzlunarmannafélags
lieykjavíkur er í kvöld. Verður þar
margt manna og mun skemtun verða
l'.in bezta.
Indalselven, þýzká flutningaskipið, er
á förum héðan. Tekur það lýsi til iit-
flutnings.
Lagarfoss fer héðan á sunnudaginn
norður um land til útlanda. Ef veður
leyfir og kol endast, kemur skipið við
á Húnaflóahöfnunum, en annars eigi
nema á ísafirði, Akureyri og Seyðis-
firði.
Síldsemþióöarfæöa
—o--
Eins'Og margir munu vita, fram-
lciða Bandaríkin í Ameríku ósköp-
in öll af mais. Og þar í landi er sú
Lornvörutegund mikið notuð tiT
mamieldrs, þótt hún sé með öðrum
þjóðum yenjulegast talin iskepnu-
fóður.
Bandar ík j amönnum blöskraði
það, að Evrópuþjóðirnar, sem
þurítu á svo geypimi'klu aðfluttu:
hveiti að halda, skyldi ekki nota
maisinn til manneldis, þar sem hann
var hæði miklu ódýrari en hveiti^
næringarmeiri og hollari. Og til
þess að reyna að kenna Evrópu-
þjóðunum átið á mais og um leið
skapa mai'kað fyrir franileiðsln
sína, gerðu Bandaríkin út stóran
ieiðangur til Evrópu fyrir nokkr-
um árum. 1 leiðangri þessum voru
hinir færustu matreiðslumenn, sem
kunnu upp á sína tíu fingur að
raatreiða mais í allskonar' myndum
og gera úr honum hinar lostætustu
kræsingar og fínustu brauð.
Hvort leiðangur þessi hefir bor-
ið tilætlaðan árangur, vitum vér-
eigi, en hugmyndin var góð, og oás.
virðist, að með því að taka hanai
upp dálítið breytta, mundi hægt að
kenua Islendingum að eta síld, en
]>ess þurfa þeir nauðsyulega. ÞaS
nuuidi margborga sig fýrir landið,
að serida stórau hóp kvenna og-
karJa til Svíþjóðar, til þess að læra
matreiðslu og meðferð síldar, og-
láta svo sendimenn þá, er þeir eru
heim komnir, kenua síldarmat-
rciðslu í hverju bygðarlagi á land-
inu. Þó þetta kostaði marga tugi
j úsunda, eins og það eflaust mundi
gera, borgaði það sig samt á miklu
skemri tíma heidur en nokkur mað-
iii' mun geta gert sér í hugariund.
Með því að kenna íslendmgum
að eta síldina, er óteljandi margt
unnið. Yér skulum aðeins benda á
þetta: Þá skapaðist vsíldarmarkað-
ur hér í landinu. Fiskinn, sem er
miklu tryggari verzlunarvara, gæt-
um við þá sparað við okkur og eins
kjöt. En báðar þessar vörur, fiskur
og kjöt, hafa altaf verið í miklu
hærra verði en s'íldin, -samanborið
við næringargildi. Þjóðinni mundi
]/á sparast mikil matvörukanp frá
útlöndum og er við það margfald-
or hagur. Hún mundi þá geta flutt
út meira en nú er gert, af kjöti og*
fiski, og á þann hátt bætt verzlun-
arviðskiftí sín við útlönd. Fæðis-
kostnaður mundi minka að miklum
muu og er það augsýnn gróðaveg-
ur fyrir alt landið.Og isíðast -en ekki
sízt mundi þetta verða hin bezta
lyftistöng fyrir íslenzka síldarút-
veginn, enda þótt íslenzka þjóðin
tæki ekki nema 'svo sem Vs af sild-
inni til eigin notkunar eða ekki svo
mikið.