Morgunblaðið - 07.03.1920, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ
3
fóstnrjðrð vorri og íitvörðum þeim,
sem hana byggja, veit þú heila
þeirra vit til að hvgsa rétt, hjörtun- .
um hreinleik til aðelskaeinungisgott
og fagurt, viljanum þrek og stað-
festu í öllu góðu og hendinni mátt
til að vinna ósleitilega að því, sem
landi og þjóð er til sannrar farsæld-
ar.
Landið lifir, þótt vér biðjum ekki
en má eg biðja um nífalt „húrra“
fyrir landi voru, með þeirri ósk og
von, að það verði jafnan vel setið
af heiðarlegum og dugandi mönn-
um og isonum svo að land og þjóð
vaxi í náð hjá guði og í virðing
hjá mönnum.
Island lifi!
Síðustu fregnir
Khöfn, 29. febr.
Pólverjar.
Pólverjar hafa boðið Rússum að
semja frið.
Bolfievikkar.
Frá Þýzkalandi kemur sú fregn
að Bolsevikkasendlar séu um alt
landið til þess að æsa lýðinn og að
•þeir komi flestir frá miðstöð, sem
BoÍSevikkar hafi í Khöfn.
Frá Washington er símað að ut-
anríkisráðaneytið vilji ekki taka
friðarboði Bolsevikka.
Frá Barís er símað að stjórnin
hafi lagt liald á öll flutningatæki
og lýst því yfir að hún álíti verkfall
.járnbrautarmanna pólitískar æs.
ingar.
í Bretlandi hefir neðri málstofan
samþykt við aðra umræðu að rýmka
kosningarrétt kveima, þannig að
þær fái réttinn 21 árs gamlar. Munu
þá 5 miljónir kvenna öðlast kosn-
ingarrétt.
DA6BÓK
EDDA 5920396%—
Tekist hefir að ná upp aftur nokkr-
mn af vélbátum þeim, sem hér sukku á
höfnini um daginn. peir ern allir ó-
skemdir að heita má.
Nýr fiskur var seldur hér í gærmorg-
un. Kom vélbátur með hann úr Sand-
gerði. Haf'ði sá fengið nær 7 smálestir
í einum róðri, að sögn.
Bókasafn verzlunarmannafélagsins
Merkúr er opið í dag kl. 2—3.
Lagarfoss fór frá Seyðisfirði í fyrra-
dag áleiðis til Danmerkur.
Lestrarfélagsskemtunin í Iðnó í dag
byrjar stundvíslega kl hálf fimm. Að-
göngumiðar fást í Ignó frá kl. 2 og við
innganginn.
Skemtun Lestrarfelags kvenna verður
•endurtekin í dag kl.hálf finun.auk þess
sem áður var boðið flytur Árni Páls-
son erindi um Jóhann Sigurjónsson.
U. M. F. Reykvíkingwr heldur fund
aUuað kvöld í pingholtsstræti 28.
Dansskóli Sig. Guðmundssonar byrj-
ar nýtt námsskeið annað kvöld eins og
auglýst er á öðram stað hér í blaðinu.
Frá Suður-Jótlandi.
|1>;
„La MarseiUaise1 *. Franska herskipið sem fluttj franska setuliðið
til Suður-Jótlands. Fremst eru franskir sjóliðsmenn.
FARVEL*FOfe*£VIGT
DU*TyjKE*0RN
Skilnaðurinn. Götuávarp, notað í skilnaðarbaráttunni í Suður*
Jótlandi. '41
Til Aabenraa. Suður-Jótar, sem atkvæðisrétt hafa, leggja á stað
Setuliðinu fagnað. Enska setuliðinu fagnað er það kemur til
Flensborgar. Frú Christensen, kona Christensens ritstjóra „Flensborg
Avis“, réttir foringja setuliðsins blómvönd til merkis um fögnuð
ut af komu setuliðsins.
Vagn Jacobsen. Því hefir þega
r verið hreyft, að reisa beri veg-
legt minnismerki í Suður-Jótlandi
í tilefni af skilnaðinum við Þýzka-
land. Vagn Jacobsen forstjóri, sem
vér hér birtum mynd af, hefir gefið
10.000 krónur til þess að minnisme
rkið verði reist.
Að viku liðinni, eða á laugar
daginn kemur, á að fara fram at-
kvæðagreiðsla í öðru atkvæðagreiðs
luumdæmi. Sú atkvæðagreiðsla er
nokkuð á annan veg en hin fyrri,
því að þar verður farið eftir því,
hvernig atkvæði falla í héruðum, þ
annig, að það hérað, sem greiðir
atkvæði með Þýzkalandi, verður þ
ýzkt áfranx, en það hérað, sem
greiðir fleiri atkvæði með skilnaði,
verður danskt. 1 öðru umdæmi er
Flensborg, stærsta borgin í Suður-
Jótlandi.
írá Kaupmannahöfn þangað suður til þess að greiða atkvæði með skilo.
aðinum.
Suðurtorg í Haderslev. Kosningaskrifstofa Dana, merkt með X-
Aðalstarf hennar var að leiðbeina þeim, sem komu frá Danmörku
þangað suður til að neyta atkvæðisiéttar síus. Má geta þess, að 1500
menn búsettir í Danmörk, áttu atkæðisrétt í Haderslev, og um 10 þús.
í héraðinu þar umhverfis
Samkomu heldur O. J. Olsen í kvöld
kl. 7 í samkomuhúsi Adventista, Ing-
ólfsstræti 21 B.
Beskytteren kva'ð að sögn vera vænt-
anlegur hinga'ð innan skams frá Færeyj-
um.
Hilmir heitir botnvörpungur sem Jón
Árnason frá Heimaskaga o. fl. hafa
keypt í Bretlandi. Kom Jón hinga'ð með
skipið seint í fyrrakvöld. Kvað það
vera hið vandaðasta.
Islands Falk handsamaði brezka
botnvörpunginn Anzac við veiðar í land
helgi í fyrradag og fór með hann til
Yestma^nnaeyja. ;Var skipstjóri sekt-
aður um 60 sterlingspund en veiðar-
færi og afli gert upptækt.
Til Frakklands fóru héðau í gær á
frönskum botnvörpung þeir Fi’iðrik
Gunnarsson kaupmaður og Haraldur
Sigurðsson verzlunai-stjóri hjé Jes Zim-
sen. Ætla þeir að dvelja um hríð í
París.
ísland kom í gær til Seyðisfjarðar.