Morgunblaðið - 11.01.1921, Side 1
MOBGUHBUBD
8 árXx 58 t^l
Þriðjudag 11. janúar «»21
ísafoldarprentsmiðja h.f.
Gamla Bíó.
5yndafallið.
Sjónleikur í 5 þáttum um
örlög ungrar konu,
mynöin leikin af ágætum
þýskum leikurum og aðal-
hlutverkið leikur
íSenny PortEn.
Börn fá ekki aðgang.
Ný söiubúð
skrifBtofa og vörugeymsluhús I
Hafnarfirði er til leigu nú þegar.
Lega ágæt, i miðjum kaupstaðn-
*m. Fyrirtaks framtíðarataður
fyrir verzlun. R. v. á.
Ræða
Jóns Þorlákssonar
á kjósendafundinum 9. þ. m.
Okkur frambjóðendum A-listans hef-
íj þótt ástœða til að gera greiu fyrir
afetöðu okkar í nokkrum landsmálum,
sem við teljum að eigi að koma til
greina við kosningar þær til alþingis,
sem nú faxa í hönd í þessu kjördæmi.
Við höfum komið okkur saman um að
skifta framsöguuni á milli okkar,
þannig að hver okkar þriggja gerir
grein fyrir afetöðu okkar allra í til-
teknum málum, og hefir verkaskifting-
in orðið sú að eg geri á þessum fundi
grein fyrir afetöðu okkar til járnbraut-
armálsins og fossamálanna. Einar H.
Ivvaran skýrir frá afetöðu okkar til
þingflokka, stjórnar og stétta í land-
inu, bannmálsins og húsnæðismála
Keykjavíkur. Ólafur Thors skýrir frá
afetöðu okkar tii Landsverzlunarinnar
og viðskiftahaftanna og verzlunarmála
alment.
.Áa. '
Eg ætla þá aö minnast á járnbraut-
armálið. p>að var komið framarlega á
landsmáladagskrá þjóðarinnar síðustu
árin fyrir stríðið, en fyrir rás viðburð-
anna hefir það legið að mestu í íþagn-
argildi síðan. pað var orðið tímabært
mál árið 1913, framkvæmd þeas hefði
þá ekki verið kröftum þjóðarinnar of-
vaxin, en síðan hafa orðið svo miklar
*,reytingar á öllu verðlagi, að ekki hef-
lr verið hugsandi til slíkra fram-
kvæmda, og ennþá er ástandið svo, að
tixni til framkvæmda í þessu máli er
ekki kominn. Okkur iþykir þess vegna
serstök ástæða til að gera grein fyrir
þvi, vegna hvers við samt sem áður
tökum þetta mál upp á stefnuskrá okk-
ar.
flytur ritstjóri Helge We’lejus
í kvölö kl 81/* í I ð n ó
Aðgöngum. fyrir fullorðna á kr. 1,75 og 1.25 (stæði) og börn
1,00 fást í bókaverzl Sigf eymunðssonar, Bókaverzlun ísafolðar
og við innganginn.
Jiió eina sanna
Ttngan-fe
er Aitken Melrose te.
Fæst í flestum bestu búðum landsins.
Aðalumboðsmaður fyrir
Tlifken JTlelrose & Co. Lfd.
London & Edinburgf)
^DiKr^
dleyfyavifí
Sími 8 (tvær línur)
Símnefni: Geysir.
Innilegustu þakkir ryrir auðsýnða samúð og hluttekn-
ingu við fráfall og jarðarför konunnar minnar, Lilju
Bernhöft.
Vilhelm 0. Bernhöft.
Stjórnmálastarfsemi okkar íslend-
inga og annara hlutlausra þjóða hefir
á stríösárunurn beinst svo að segja að
því einu, aö verja þjó'ðfélagið áföllum
af því ölduróti viðskiftalífsins, sem
stríðið orsakaði. pjóðfélaginu hefir far-
ið líkt og hafskipi á ferð, sem neyðist
um stundarsakir til þess að leggja til
reks og reyna að verjast skiptjóni, en
getur ekki haldið leiðar sinnar á meðan.
Á venjulegum tímum eru það hugsjón-
irnar og framtíðarmálin, sem marka
stefnur í stjómmálunum og skipa mönn
um í flokka. En nú á styrjaldarárunum
hafa stjórnmálamennimir ekki getað
gefið sér svigrúm til þess að halda hug-
sjónunum á lofti eða sinna framtíðar-
málunum. Dægurmálin haf a útheimt alla
krafta þeirra og dregið til sín alla at-
hygli kjósendanna. En af þessu hefir
leitt það, að engri stefnu hefir verið
allir flokkar hafa riðlast, og al-
menn lítilsvirðing á stjómmálaflokkum,
landsmálastefnum og stjómarstarfsemi
hefir smeygt sér inn í huga fjölda
manna, svo að segja alls almennings.
Nú er ófriðmun slotað að mestu, og
þótt eftirköst hans hafi enn í för með
sér mikla óró og öldurót, einkum á sviði
viðskiftalífsins, þá þykir þó fyrirsjáan-
legt, að úr þessu fari að stilla til. Yið
sjáum vel, að enn er ekki kominn tími
tii að draga upp seglin og stýra beina
stefnu til hafna hugsjónanna eða að
löndum framtíðarvonanna. Yið álítum
með öðrum orðum að ekki sé enn þá
kominn tími til framkvæmda í stóm
stefnumálunum. En eins og skipið þarf
að búa sig til ferðar eftir óveðrið, eins
álítum við að nú sé kominn tími til að
undirbúa þau framfaramál, sem þjóð-
inni er brýnust þörf að framkvæma
jafnskjótt og færi gefst. Petta er nauð-
synlegt bæði vegna málanna sjálfra, til
þess að unt verði að koma þeim í fram-
kvæmd á sem haganlegastan hátt þegar
ástandið batnar, svo að færi gefst til
þess. Og það er líka nauðsynlegt að taka
stefnumálin og hugsjónamálin upp aft-
ur spm allra fyrst til þess að komast
út úr stefnuleysi því, tvístringi, áhuga-
leysi og óbeit á landsmálastarfsemi, sein
fyllir hugi allra þeirra, sem neyðast til
að sinna hugsjónasnauðum dægurmál-
um eingöngu til lengdar.
Yið biðjum ykknr nú, háttvirtn kjós-
endur, að líta með okkur fyrst um sinn
á járnbrautarmálið sem hugsjónamál og
framtíðarmál. Og þá er að gera sér
grein fyrir því, hvaða hugsjón það er,
sem felst í þessu máli. Hún er þessi.
Hór situr fámennasta menningarþjóð
heimsins í stóru og torfæru landi, og .
háir erfiðari baráttu við óblíðu náttúr- j
unnar og andstæð öfl hennar en flestar |
aðrar þjóðir. Tvent þarf til þess að bera
sigur af hóbni í þessum bardaga eins |
og: hverjuni öðrum. Annars vegar þarf ;
kjark og þrautsegju stríðsmannanna. j
Hins vegar þarf nóg og góð vopn. —
i Kjark og þrautsegju held eg að barátt-
i an sjálf í 10 aldir hafi aiið upp í ís-
) lenzku þjóðinni, til jafns við aðrar þjóð
ir eða vel það. En vopnin og verjumar,
sem stríðsmenn okkar hafa til sóknar
og varnar í baráttunni við náttúmöfl-
in, þau eru því miður á sumum sviðum !
svo ófullkomin og langt á eftir tíman-
um, að líkast er sem bjá okkur sæki
fram bændalið með heykvíslar og ljái
að vopnum gegn hinum ferlegustu tröll-
um náttúrunnar, ísi, eldi og illviðmm,
en annara þjóða stríðsmenn fari fram
við hlið þeirra í brynreiðum vopnaðir
vélbyssum og sprengjum gegn vesælu
og veigalitlu mótstöðuliði. Mestu munar
á samgöngutækjunum á landi, hve þau
eru ófullkomnari hér en annarstaðar,
en fullkomin samgöngutæki era undir-
staða undir allar verklegar framfarir.
í Og bugsjón járnbrautarmálsins er þessi,
: að við viljum reyna að leggja eftirkom-
í endum okkar eins góð vopn upp í hend-
umar í baráttunni við náttúruna, eins j
| og aðrir hafa. Landbúnaðurinn er elsti;
j og að minsta kosti fram á þessa öld
helsti atvinnuvegur þjóðarinnar. pað
er sá atvinnuvegurinn, sem fyrst og
, fremst hefir viðhaldið íslenzkri menn-
ingu. Við viljum ekki þurfa að ala þá
hugsun í brjósti, að sá atvinnuvegur
veslist upp vegna kyrstöðu í verkleg-
um efnum. Víðsýnustu áhugamönnum
þjóðarinnar, svo sem herra pórhalli
heitnum Bjamarsyni, var það fyrir
löngu ljóst, að ef landbúnaður hér á
að geta þrifist og dafnað í samkepni
við laudbúnað annara landa, þá verðum
við að leggja honum til fullkomnustu
flutningatækin, þau sem aðrir hafa, en
það eru jámbrautir. Hann var svo trú-
aður á framtíð þjóðar sinnar, að árið
1907 lét hann í ljósi, fullvissu sína um
að járnbraut milli Reykjavíkur og Suð-
urláglendis yrði komin innan 10 ára.
Sú von brást, en það hefir áunist, að
nú er það vitað og viðurkent af öllum
forkólfum landbúnaðarins, sem einung-
is hinir víðsýnustu sáu þá, að fullkomin
samgöngntæki, sem verða starfrækt alt
árið, svo sem járnbrautir, era óhjá-
kvæmilegt gmndvallarskilyrði fyrir þrif
um íslenzks landbúnaðar í framtíðinni.
pegar við tölum um járnbrautarmál-
ið, þá eigum við að svo stöddu einungis
við járnbraut milli Reykjavíkur og ann-
ara fiskivera við Faxaflóa annarsvegar,
og Suðursýslnanna hins vegar. Annars
vegar er höfuðstaðurinn, hins vegar
langstærsta landbúnaðarsvæði þessa
lands. pótt járnbrautin sé sérstaklega
lífsskilyrði fyrir búskapinn í þessum
sveitum, þá þykjumst við líka vel mega
biðja um stuðning ykkar, háttvirtu bæj
arbúar, til þess að taka það upp sem
stefnumál. Við biðjum verzlunarmann-
r=^j [C
Fyrri hluti sýnöur 2var
í kvölö kl. 6V* og 81/*.
u Aðgm. selðir í Nýja
I” Bíó frá kl 12 og frá
sama tíma tekiö á móti
„J pöntunum í síma 344.
EE".
2 kápur, ein möttulspör og
darisskór (no. otí) til sölu í Mjó-
stræti 6 (uppi).
inn að íhuga hver áhrif það hefði á verzl
un bæjarins, ef fullkomið samband feng
ist við þetta eðlilega upplendi bæjar-
ins, sem nú þegar er bygt af 10—12
þús. inanns, og jafnframt mundi eflast
mjög að viðskiftaþörf, kaupgetu og
fólksf jölda, einmitt vegna brautarinnar-
Við biðjurn iðnaðamianninn að íhuga
hve mjög.mundi vaxa markaðurinn fyr-
ir iðnaðarafurðir hans þegar æðaslög
verklegra framkvæmda og velmegunar
færu að ná til hvers einasta býlis á þessu
stóra upplendi. Við biðjum verkamann-
inn að íbuga hvort honum mundi ekki
henta vel að kröftugur og framtaks-
samur landbúnaður á svæði þessu fal-
aðist eftir vinnukrafti til jarðabóta og
húsabóta á voram og haustum og upp-
skerustarfa á summm. Við biðjum út-
gerðarmanninn að íhuga, hvort ekki
mundi nokkur trygging og efling fyrir
atvinnugrein hans, ef fáanleg væri hér
í bænum næg mjólk austan úr sveitum,
svo að unt væri að matreiða, sjóða nið-
ur og senda þannig á erlendan og inn-
lendan markað nokkuð af þeim sívax-
andi fiskafla, sem hann færir á land
hér og flytur á takmarkaðan saltfisk-
markað Norðurálfunnar. Við biðjum
útgerðarmanninn líka að íhuga hvort
honum mundi vera það nokkuð ógeð-
felt, að fleiri eða færri af þeim sj6-
mönnum og verkamönnum, sem hann
þarf sérstaklega að hafa í sinni þjón
Ustu á vertíðinni, gætu átt sér landskika
og heimili í nánd við brautarstöð aust-
ur í sveit, þriggja eða fjögra stunda
ferð frá bænum, látið þar konu og böm
lifa og stunda lítinn búskap, og hverfa
sjálfur að þessu heimili sínu þann tíma
ársins, sem útgerðin fækkar við sig
fólkinu. Og síðast en ekki síst biðjum
við allar mæður í Reykjavík að hugsa
með okkur til þess sífjölgandi bama-
hóps, sem elst hér npp án þess að geta
fengið þá einu fæðu, sem bömunum er
nauðsynleg, nýmjólkina. Við þurfum
ekki að biðja ykkur að hugsa um heilsu-
tjónið og kyrkinginn í komandi kynslóð-
inni, sem yfir vofir ef ekki verður bætt
úr mjólkurleysinu, því að móðurum-
hyggjan minnir ykkur á þetta. En við
biðjum ykkur að muna eftir því, að
einasta úrræffið til þess að bæta úr ný-
mjólkurleysinu í Reykjavík er jámbraut
in. Og þess vegna hikum við ekki við
að biðja um atkvæði yðar til stuðnings
því máli á kjördegi 5. febrúar. Og þótt
framkvæmdimar knnni að dragast