Morgunblaðið - 17.05.1921, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ
3
lýst því yfir, að þeir muih taka
þátt í ráðstefnu þeirri, er dauska
Rauðakrossdeildin hefir boðað t'il
í Kaupmannahöfn 20—25 maí, um
baráttu gegn kynferðissjúkdóm-
Uni: yfirlæknir Dr. Kr. Grön frá
Noregi, próf. Sigurd Ribbing frá
Svíþjóð og einnig dr. K. Marcús,
yfirlæknir L. W. Harrison her-
deildarforingi, og dr. W. Stoek-
niann frá Bnglandi, próf. Fincus
°g próf. Galewsky frá Þýzkalandi,
Próf. Kaolemaus Beynen og dr.
^7- F. Yeldhuijzen frá Hollandi;
ank þess mæta þessir meðlimir
Kauðakross-bandalagsms í Genf:
herforhigi David Henderson, próf.
C. A. Henslow, herdeildarforingi
Mr. W. Clarke, Mr. K. Staumann
og dr W. S. Snow.
2. Endurskoðun borgunartaxt-
anna fyrir biðdaga í höfnum.
■'). Lækkun kaupgjalds á þeim
grundvélli er gerir Ameríku-
mönnum kieift að keppa við aðrar
þjóðir í siglingum.
Samkvæmt síðast gildandi samn-
ingum höfðu sjómenn þetta auka-
kaup fyrir fæði og húsnæði þá er
þeir biðu í höfnum inni: S'kip-
stjórar 7 dollara,, Stýrimenn, vél-
stjórar og brytar 5V2 dollajr og há-
setar og kyndarar 3 dollara.
pað var talið líklegt, að félög
llðlli MllÍSll
1 lok marsmánaðar síðastliðins
var, samkvæmt siglingaskýrslum,
lagt up]> 325 skipum í Bandiríkj
höum og bá.ru þau samtals 2 mii-
Jónir smálesta. Var þá búist við, að
®hklu fleiri kæmi á eftir.
Ástæðurnar til þess., eru þær,
farmgjÖldin liafa nú iækkað
svo mjög síðustu mánuðina, að
Ameríkumenn sjá sér eklr: fært
að keppa við Evrópumeim á mörg
um siglingaleiðum, þar sem þeir
höfðu lagt vöruflutninga undir sig
á stríðsárunum. En útgerðarkostn-
aður er enn hár og það tekst illa
að lækka hann. — Meðan á ófriðn-
um stóð og fyrstu tvö árin eftir
stríðið, meðan farmgjöldin veru
há og lítið um skip, fénuðust skipa
smíðastöðvar Ameríkumanna og
skipaeigendnr mjög. A stríðsárun-
Um þurftu skipasmíðastöðvarnar
ekki að spyrja nm hvað efni og
vinna kostaði, efnið var keypt
hversu dýrt sem það var og menn
voru ráðnir til vinnunnar, hvað
mikið sem þeir settu upp — og
smíðarnai' borguðu sig samt,. Þá
reið að 'eins á einu, og það var að
smíða sklpin nógu fljótt. Árangur-
inn af þessu varð sá, að Ameríku-
menn eignuðust á örstuttum tíma
svo mikinn verslunarflota, að þar
standa þeir að eins Englendingum
að baki. En hins vegar liggur
meira fé í flota Ameríkumanna en
Breta, Hinn eiginlegi floti Banda-
ríkjamanna, að undanteknum skip
Um þeim, sem ganga á vötnum og
íljótum í landiuu, mun bera ná-
lægt 10 miljónir smálesta, og er
talinn að hafa kostað þjóðina 3
búsund miljónir dollara.
Nú er svo komið, að vegna farm-
gjaldalækkunarinnar hafa skipa-
Ggendur séð að útgerðinni verður
’öigi haldið áfram nema allur út-
haldskostnaður verði færður niður
að miklum mun. Annars getur ekki
orðið um neina samkeppni að ræða
af hálfu Ameríkumanna, þessa
'Samkepni sem fyrir einu ári var
talin munu koma beimsversluu
öfeta á kaldan klaka. Til þess að
k°ttiast að niðurstöðu í málinu
j sjómanna muni fallast á þessar
! tillögur vegna vandræða þeirra, er
I atvinnuleysið hefir þegar bakað
| stétt þeirra, vandræða, sem allar
horfur eru á að aukist enn til
muna ef ekki breytist til batnað-
ar með siglingarnar. Sjómannafé-
lögin liöfðu tjáð sig fús til þess að
semja við útgerðarmenn um nýja
samþykt er gildi til 1. maí 1922.
Síðustu samningar runnu út 1.
maí síðastliðinn og átti samninga-
gerð að vera lokið þá. En sam-
kvæmt, símskeytum sem liingað
liafa borist hefir ekki orðið að von-
um um samkomulag heldur hófst
allsherjar sjómannaverkfall í Band
aríkjunum út af þessura samning-
um og hefir ekki frést enn hvort
því er lokið eða hvemig því muni
ljúka.
Herbergi
óskast fyrir einhleypan mann nú
þegar. Uppl gefur Bernh. B.
Arnar í síma 498 eða 699.
Vfa
að
útgerðarmenn sett nefnd til
athuga málið í sambandi við
Slglingaráðuneyti ríkjanna. Hefir
n<lin kQmið fram með eftir-
araiidí‘ atriði, sem talið var óhjá-
kvæ:
æmilegt ag sjómenn gengju að:
1- Afná
fyrir eftirvinnu.
w allrar aukaborgunar
Fyrir nokkru hófust ti'lraunir
milli Ameríku og Rússlands um
að koma á verslunarsambandi milli
ríkjanna.
Utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, Httghes, hefir nýlega svarað
þeim málaleitúnum á þá leið, að
éins og nú væri háttað stjórnarfari
í Rvisslandi, gæti ekki komið til
nokkurra mála, að gagnkvæm versl
unarviðskifti tækjust. En hitt væri
öllum Ijóst, að það mundi, vera
báðum löndum til mikils góðs, að
•slíkir samningar tækjust, þegar
Rússlandi væri fært að gera þá.
Lét hann þá von í ljósi, að Rúss-
bmdi t.vkist að reisa svo við at-
vinnu- og verslunarlíf sitt, að það
gæti skipað það rúm í framleiðslu
þjóðanna, er það hefir áður haft.
En meðan núverandi stjórn sæti
þar að völdum og hefði sömu
stefnu, gæti það aldrei orðið.
Um þessar mundir er japanski
krónprinsinn, Hirohiti, á leið til
Evrópu á lierskipi einu, og er annað
japanskt í fylgd með honum. Mun
krónprinsinn fyrst fara til Englands
og er lionum spáð hátíðlegum við-
tökum þar, ekki einungis fyrir þær
sakir, að Japan og Bretland eru í
bandalagi, heldur vegna þess, að
þetta er í fyrsta skifti, sem konung-
borinn maður japanskur kemur til
Evrópu. Þetta kva ð ekki vera í
fyrsta skifti, sem hann haggar göml-
um siðvenjum lands síns. Það gerði
hann líka með trúlofun sinni. Var
það siður samfeld 2000 síðustu ár-
in, að krónprinsarnir japönsku
kvonguðust dætrum ákveðinna ættá.
En hann hirti ekkert um það og
festi sér herforingjadóttir. Hann
er nú 20 ára gamall. En er talinn 21
árs samkvæmt japönskum tímareikn-
ingi, því þar eru börn talin eins árs
er þau fæðast. Ferð hans mun heitið,
auk Englands til Frakklands og
Ameríku og jafnvel Norðurlanda.
Þegar heim kemur, kvað hann ætla
að halda brúðkaup sitt.
Myndin sýnir krónprinsinn efst til
vinstri, og tilvonandi drotning Jap-
ana sömuleiðis. Hinir eru foringjar
herskipanna, sem flytja prinsinn til
Evrópu, og sjást þau á myndinni.
Bygginyarlóð
eða húseign við höfnina óskast
keypt Tilboð merkt »111« legg-
ist inn á skrifstofu Morgunblaðs-
ins.
Dugleg stúlka
óskast á gott heimili í Borgar-
firði. Upplýsíhgar í
Haitabúðinni Laufásveg 5
Bjarna Sæmundssonar úr 2000 nið-
ur í 1500. Samþ. með 19 : 6 atkv.
Till. um kenslustyrk til Þórdísar
Ólafsdóttur frá Fellsenda kr. 50®
samþ. með 14 : 6 atkv.
Till. um að hækka styrkinn til
björguuarskipsins Þór úr 30 þÚB.
upp í 40 þús. samþ. með 13 :10
atkv.
Till. frá M. Kr. um að hækka
styrkinn til ekkju Matth. Joch. úr
1200 kr. upp í 2000 kr. samþ. mbð
15 :8 atkv.
Till. frá J. Baldvinssyni um at
fella burtu liðinn um heimild fyrir
landsstjórnina til að ábyrgjast 200
þús. kr. lán fyrir klæðaverksmiðj-
una Álafoss var feld með 14:6 atkv.
Till. frá samvinnunefnd peninga-
mála um heimild fyrir stjórnina til
að taka ábyrgð á skuldum er *-
lenskir botnvörpungaeigendur hafa
komist í á Englandi, vegna skipa-
kaupanna, alt að 200,000 kr. fyrir
hvert skip, samþ. með 15 :10 atkv.
Fná Alþingi.
Neffri deild.
Frumvarpið um útflutningsgjald
af síld var samþykt með 15 shlj.
atkv. og afgr. sem lög frá alþingi.
Fnunvarp til laga um breytingu
á fátækralögum var samþ. með breyt
ingum Ed. og afgr. sem lög frá al-
þingi.
Frumvarp til laga um einkasölu
a áfengi var samþ. með 12 atkv. og
afgr. sem lög frá alþingi.
Frumvarp til laga um heimild fyr-
ir landsstjórnina til framkvæmda á
rannsóknum til undirbúnings virkj-
un Sogsfossanna var samþ. með 18
: 6 atkv. og afgr. til Ed. 2 breytinga-
tillögur höfðu komið fram en voru
:báðar feldar.
I
; Frumvarp til laga um breyting á
sveitastjórnarlögum var samþykt ó-
brevtt og afgr. til Ed.
Frnmvarp til laga um bæjarstjórn
í Vestmannaeyjum var samþ. og vís-
að til 3. umr. með 19 shlj. atkv.
Tillaga til þingsályktunar um
rannsókn á sölu íslenzkra landbún-
aðarafuþða var samþyjkt með 22
shlj. atkv.
Frumvarp til laga um afsals og
veðmálabækur Mýra- og Borgar-
fjarðarsýslu var vísað til 2. umræðu
með 15 slilj. atkv.
Frumvarp til laga um lieimild
lianda stjórninni til að taka gjald-
| eyrislán var samþ. og vísað til 3.
umr. með 15 shlj. atkv.
pá var tekið að ræða um banka-
málafrumvarp efri deildar og hélt
þeim umræðum áfram í gær eftir-
miðdag.
Efri deild.
Tvenn lög voru afgreidd frá efri
deild í gær, um eignarnám á land-
! spildn á Bolungavíkurmölum og um
'stofnun Ríkisveðbanka íslands. Frv.
I
til laga um útfliitningsgjald var vís-
að til 3. umræðu eftir nokkrar um-
ra'ður.
Síldveiðafrumvarpinu var vísað
j til 2. umræðu og sett í sjávariitvegs-
i nefnd.
j Síðan var leynifundur.
I Nokkrar breytingar voru gerðar á
j f járlögunum í Ed. og voru þau aft-
ur til umræðu í neðri deild á laugar-
daginn.
Fjárhagsnefnd Nd. kom fram með
með nokkrar breytingartill. viðvíkj-
andi tekjuhlið frv. Þar á meðal var
áfengistollurinn áætlaður 50000 kr.
hærri, tóbakstollurmn 100000, vöru-
tollurinn 200000 og símatekjurnar
200000 kr. hærri. Tekjur af tóbaks-
einasölunni voru áætlaðar 150000kr.
Allar þessar brejúingatillögur fjár-
hagsnefndar voru samþykta.r
Af öðrum breytingatill. er fram
komu við þessa umræðu voru þessar
helztar:
Styrkur til Axafjarðar-, Fjalla-
og Presthólahreppa til að vitja lækn-
is (flutt af fjárv.nefnd) samþ. með
19 shlj. atkv.
Til væntanlegs berklavarnarfélags
kr. 5000 (flutt af fjárv.nefnd)samþ.
með 14 :11 atkv.
Til Hróarstunguvegar kr. 15000
(flm. B. H.) samþ. með 13 :1 atkv.
Frá f járveitinganefnd komu einn-
ig þessar breytingatillögur:
Tillaga um lækkun styrksins til
strandferða úr 300000 niðurí 200000
samþ. með 15 :8 atkv.
Tillaga um að lækka vexti af lán-
um til húsabóta á prestssetrum úr
6% niður í 4%. Samþ. með 16 :4
atkv.
Tillaga um að unglingaskólar í
kaupstöðum og minni sjávarþorpum
skyldu fá minni styrk en sveitaskól-
ar, samþ. með 16 : 3 atkv.
Tillaga um að hækka styrkinn til
kaupa á listaverkum úr 3000 upp í
4000, samþ. með 15 :11 atkv.
Tillaga um að lækka styrkinn til
Náttúrufræðisfélagsins úr 2500 kr.
niður í 2000, samþ. með 16 : 3 atkv.
Tillaga um að fella niður styrkj
til Þorb. Þórðarsonar. Feld með 161
: 8 atkv.
Till. um að lækka styrkiun til
DAGBOK
I. O. O. F. 10351881/2 — m.
Blandaða kórið. Samæfing í bveld
kl. 8.
Hjónaefni. Jóhanna Lúðvígsdóttir
og Jón pórðarson prentari opinber-
uðn trúlofun sína laugardaginn fjTÍr
hvítasunnu.
Á hvítasunnudag opinberuðu trú-
lofun sína ungfrú Rósa Lárusdóttir
prests á Breiðabólsstað og Þórarnm
Árnason verslunarmaður.
Trúlofun sína birtu á hvitasunnudag
ungfrú Lilja Sveinbjörnsdóttir og
Júlíus Schopka. Schopka er eimkatla-
smiður og hefir dvalið hér í nokknr
ár. 1 ófriðnum var hann á þýskum
kafbát en tókst að komast þaðan og
hvarf þá hingað til íslands.
Botnia kom hingað á mánudagsnétt
ina. Meðal farþega voru Jón Laxdal
stórkaupmaður, Mr. Bookless útgerð-
armaður, Ól. Thors framkvstj. og frú
hans, Þórður Jónsson úrsmiður, Felir
Guðmundsson verkstjóri, Jón Alberts,
Jón Amason lasknir, Árni Einarsson
klæðskeri, Lambertsen kaupm., Guidto
Bernhöft. og Ólafur Haukur skrifstofo
menn, frú Tofte, frú Flygenring, frú
Frederiksen (slátrara), ungfrú Annie
Helgason (biskups), ungfrú Emilía
Indriðadóttir, frú Sen, Marcher end-
urskoðunarmaður, Hertz forstjóri ofl.
Danskir kanpamenn. Með Gullfossi
síðast komn til Akureyrar 14 bænda-
synir danskir. Eru þeir ráðnir á ýms
heimili norðanlands í sumar. Er það