Morgunblaðið - 17.05.1921, Page 4
4
MOHGUNBLAÐIÐ
Uppboð.
Opinbert uppboð verður haldið í Bárunni fimtudaginn 19.
maí og næstu daga kl. 1 e. h. Verður þar seld allskonar álna-
vara og tilbúnir fatnaðir, fataefni svo sem blátt cheviot, reiðfata-
efni, alklæði, morgunkjólaefni, molskinn, flauel, millifóður, erma-
fóður, shirting, dragtaefni, kápuefni, flónel, nærfatnaður karla,
kvenna og barna, drengjaföt, kvenkápur, karlmannakápur, buxur,
ullartreflar, borðdúkar, rúmteppi, dúnteppi, ullarkambar og m. fl.
Þeir einir, sem þektir eru að skilvísi fá gjaldfrest.
Bæjarfógetinn í Reykjavík 14 mai 1921.
Jóh. Jóhannesson.
«6 tilhlutun Dansk-íslenzka félagsins,
og tilgangurinn sá að auka kynningu
Dana á búnaðarháttum hér heima. Er
tilætlunin að hið sama verði gert af
hálfu íslendinga, að þeir fari til Dan-
merkur og dvelji þar á sveitaheimil-
um. Dönsku kaupamennirnir eru
ráðnir fyrir 300—400 kr. fré miðjum
maí til 15. september. Búnaðarfélag
fslands og Ræktunarfélag Norðurlands
hafa ráðið mennina.
Kvillasamt nokkuð er í austanverð-
um Skagafirði nú, að því er skrifað
Cr nýlega þaðan. Hefir þar bólað á
taugaveiki og talið að hún hafi borist
héðan að snnnan með Sterling. Bama-
veiki hefir og gengið í Fljótum. Hafa
tvö börn dáið úr henni á sama bæ.
Barst veikin þangað úr Siglufirði.
Helgi Sveinsson bankastjóri hefir
dvalið á Akureyri að undanfömu og
haldið þar erindi um bindindismál.
Segja fregnir að norðan að hann muni
ætla að blása nýju lífi í dauðvona
stúkur þar. — En þó fullyrða kunn-
ugir að aðalerindi hans þangað hafi
verið að taka „Hótel Akureyri" upp í
dkuld við útibúið á fsafirði.
Lík fundu skipsmenn á „Fylla“ á
hvítasunnudag. Kom það upp við hlið
skipsins. Var það af Bergi Bárðar-
syni sem dmknaði í marsmánuði í
vetur. Bergur heitinn var á botn-
TÖrpungnum pórólfur, ættaður frá
Ytri-skógum undir Eyjafjöllum.
Geir Zoéga rektor varð skyndilega
veikur um hátíðina og liggur nú rúm-
fastur.
Botnia fer héðan að líkindum á
morgun.
Hjúskapur. Síðastliðinn laugardag
voru gefin saman í hjónaband af
síra Bjama Jónssyni, ungfrú Elín
Gísladóttir og Jón Guðnason trésm.
Helgi Helgason tónskáld, sem dvalið
hefir í Vestmannaeyjum undanfarin
ár og m. a. stjórnað þar lúðraflokki,
er kominn hingað fyrir skömmu og
liggur mjög veikur.
Skrúðgöngu höfðu Qoodtemplarar í
fyrradag. Lögðu þeir upp frá Templ-
arahúsinu og var síðan farin löng
hringferð um bæinn. Hafði hver stúka
sinn fána og embættismenn báru ein-
kenni sín. Barnastúkuraar tóku einn-
ig þátt í skrúðgöngunni. Að lokinni
skrúðgöngunni var haldið niður í
barnaskólaport og fundur haldinn. Töl
uðu þar porvarður porvarðsson prent-
smiðjustjóri, Ingólfur Jónsson blaða-
maður og Árni Jóhannsson bankarit-
ari. Samþykti fundurinn síðan áskor-
anir til stjórnarinnar um fullkomnun
bannlagagæslunnar, takmörkun lyfjaá-
fengis, bann gegn lausasölu lyfja-
blöndu sem áfengi er í, bann gegn
tilbúningi ilmvatna. 1 öðru lagi að
stjórnin sjái um að áfengi verði ekki
um hönd haft við konungskomuna í
sumar og ennfremur að lögreglu-
stjórar hafi nákvæmt eftirlit með lög-
unum.
m
E E
Ð P FærEysk. pEysur
h :<a P m fyrirliggjandi 1
Tage & F. C. Nöller H
ls &]
Stofa til leigu fyrir einhleyp
an mann. A. v. á.
Hér með vottum við undirrituð
okkar innilegustu þakkir Kven-
félaginu Freyja er færði okkur
að gjöf 200 kr á síðastliðnum
vetri. Og ennfremur Jóni lækni
Bjarnasyni og konu hans hjálp
og liðveislu í þungum sjúkdóms-
kringumstæðum oRkar, sömuleið-
is hinum mörgu öðrum er auð
sýndu okkur bjálp og hluttekn-
ingu. Við biðjum konung kær-
leikans að launa öllu þessu vel-
gerðafólki okkar
Keflavík 16 maí 1921.
Sigurborg Sigurðardóttir
Hannes Jónsson.
vil eg kaupa
Uilh. Finsen ritstjóri-
Eggert Stefánsson kom hingað með
Villemoes í fyrradag og ætlar að
dvelja hér um tíma. Hefir hann verið
búsettur í ítalíu í vetur og er kvænt-
ur ítalskri konu. Eggert söngvari hefir
ekki komið heim í mörg ár en gefið
sig allan að söngnámi og munu margir
vilja hlusta á söng þessa íslendings
sem notið hefir handleiðslu frægs
kennara í italíu.
Guðfræðispróf stendur nú yfir í Há-
skólanum og ganga undir það tveir
stúdentar, Friðrik Friðriksson og
Björn O. Björnsson.
Síldartunnur
fyrirliggjandi, er seljast með mjög sanngjörnu verði.
Uölundur.
Rakarastofa i Hafnarfirði
Linnet88tíg 1 (uppi).
liiels Pálsson.
Shólaslifirastaian
og tvær kennarastöður við barnaskólann í Bolungarvik, eru laui
ar til umsóknar. Umaóknir sendist formanni skólanefndarinna
fyrir 15. júlí næstkomandi.
Skólanefndin.
Vátryggingarfélögin
SKAJfDINAVlA — BALTICA — NATIONAL
Hlutaf j« samtala 43 miljónir krón*.
1SLAND8-DEILDIN
TKOLLE * IOTHE hf. Reykjavík.
AiUkoDtr ijó- og atrfSavátryggingar á akipum og vönnn.
gogn lœgstu iðgjöldum.
Ofannefnd félBg hiafa afhemt lalandsbank» í Reykjavík t& geymali
hálfa millión krónur,
aem tryggingarfé fyrir skaðabótagreiðalum. Fljót og góð skaðabót
greiðala. öll tjón ver&a gerð upp hér á staðnnm og félög þeeai hal
vamarþing hér. — BANKAMEÐMÆLI: ÍSLANDSBANKI
Det kgl. oktr. Söassurance-Kompagni
tekar að sér alls konar ajóvátryggingar.
Aðalumboðamaður fyrir íaðand
lOðllT OLAESSSN, hæstaréttarmáLaflntninxamaðnr.
— 102 — — 103 —- — 104 —
„Því gleymdi eg alveg!“ sagði hún hlæjandi. „Hvers
vegna voruð þér ekki fæddur með árstekjur eins og
með rithöfundar hæfileikum?“
„Eg vil heldur eiga góða heilsu og hugarflug“, svar-
aði hann. Það er ekki hægt að veita sér. En peninga
getur maður skrapað saman“.
„Segið þér ekki „skrapa saman“. Það er sjómanna-
mál og lætur illa í eyrum“.
Hann blóðroðnaði og stamaði fram þessum orðum:
„Það er rétt. Eg vildi óska, að þér ámintuð mig í hvert
skifti sem þess er þörf“.
,Það vil eg gera með ánægju“, sagði hún hikandi.
Það er svo mikið af mannsbrag í yður, að eg vil að þér
verðið enn meiri“.
Hann varð á augnabliki eins og leir, sem hún gat
mótað eftix vild. Og hann þráði jafn mikið, að hún
mótaði sig, eins og hún að skapa úr honnm meiri og
fulltomnari mann. Og þegar hún vakti athygli hans á
því, &ð nú væri einmitt tækifærið, vegna þess að inn-
tökupróf í framhaldsdeildina stæði nú yfir, þá bauð
hann óðara að láta ekki það ♦æbifæri ónotað
Síðan söng hún og lék á hljóðfæri fyrir hann, en
hann starði á hana með alla sína blossandi þrá augljósa
svipnum, lét rödd hennar seitla inn í sál sína. Og jafn-
framt nndraðist hann, að ekki skyldi sitja þama hundr-
að biðlar og hlusta og þrá eins og hann.
X. kapítuli.
Hann borðaði miðdegisverð í húsinu, og Ruth til
mikillar gleði leist föður hennar vel á hann. Þeir töl-
•iðu um siglingar, efni, sem Martin þekti út í æsar.
Svo hr. Morse gat þess síðar, að þessi ungi maður mxmdi
vera góðum gáfum gæddúr. Martin vildi nú forðast alt
i.'ómanns-orðalag og leitaði grandgæfilega að bestu orð-
um. Talaði hann þess vegna hægt, og gat því vegið hugs-
nnir sínar á gullvog. Hann var frjálsmannlegri í fram-
komu en fyrsta kvöldið, sem hann hafði borðað mið-
degisverð í húsi þessu. Gladdist móðir Ruth einnig af
þessari breytingu á honum til hins betra.
„Hann er fyrsti karlmaðurinn, sem haft hefir áhrif
á Ruth“, sagði hún síðar við mann sinn. „Hún hefir
verið svo dnl og óframfærin gagnvart karlmönnum, að
rnér hefir fallið það illa“.
Hr. Morse leit forvitnislega á konu sína.
,,Og nú viltu nota þennan unga sjómann til þess að
vekja hana?“ spurði hann.
„Eg vil ekki að hún deyi piparjómfrú, svo framar-
lega sem eg get haft þar nokkur áhrif, svaraði kona
hans. „Og ef þessi ungi maður gæti opnað augu hennar
fyrir karlmönnum yfir höfnð að tala, þá væri það ein-
ungis til góðs“.
„Mjög gott!“ svaraði Morse, „en setjum nú svo —
og stnndum verður maður að gera ráð fyrir því, kona
góð. Setjum nú svo, að hann hafi sjálfur of mikil áhrif
á hana“
„pað er óhngsanlegt!“ Frú Morse hló. „Hún er þrem-
nr árum eldri en hann, og þar að auki er það ómögn-
legt. Það kemur aldrei fyrir. Pað máttu vera viss um“-
pannig var hlutverk Martins ákveðið fyrir han
Eu meðan var hann önnum kafinn, örfaður af Arthi
cg Norman, að búa alt undir hjólreiðaferð upp til fja
inna næsta sunnudag. Hann hlakkaði auðvitað lítið 1
ferðarinnar, þangað til hann komst á snoðir um i
Ruth gat notað hjól og mundi því fara með. Sjálf
knnni hann ekki að fara með reiðhjól, en úr því Rn
l ynni það, ásetti hann sér að læra það í snatri. Á heii
leiðinni fór hann því inn í hjólhestaverslun og keyj
hjól fyrir 40 dollara. Það var meira en mánaðarlau
unnin með súrum sveita. Og þessi eyðsla rýrði til mu;
peningaforða hans. En þegar hann lagði saman þá 1
Jollara, sem hann bjóst við að fá frá „Examiner“
cinnig hina 420, sem hann mundi fá frá „Companion
fanst honum hann vera sæmilega birgur. Hann kæi
síg líka kollóttan, þótt hann eyðilegði nýju fötin s!
þegar hann fór að reyna að sitja hjólið. Hann síms
til skraddarans strax og bað um ný föt. Síðan bar ha:
hjólið upp í herbergi sitt. pegar hann var búinn
flytja rúmið dálítið frá þilinu, sá hann að það var
eins rúm fyrir hann og hjólhestinn í þessari litlu ho
Hann var búinn að ráðgera að nota sunnudaginn
að búa sig undir inntökuprófið í framhaldsskólann,
greinin um perlukafarann lokkaði hann frá því stai
Dagurinn leið án þess hann vissi af. Það var eins
hann hefði hitasótt, svo var ákafinn hóflaus að endi
skapa þá fegurð og þær sýnir, sem bjuggu í hug ha:
pað eyðiiagði heldur ekki gleði hans, að ekki kom gre
ín í ,,Examiner“ næsta morgun. Til þess var hann i
að segja of langt frá jörðinni. Svo niðursokkinn j
hann í starf sitt, að hann heyrði ekki, þótt tvisvar v«