Morgunblaðið - 12.10.1921, Blaðsíða 4
MOKGUNBLAÍIÍ
Hitt og þetta.
Chaplin
kvikmyndaleikari var nýlega á
ferð í London. Er hann ættaður
þaðan og eru níu ár síðan hann fór
vestur um haf og varð frægur
inaður. Chaplin ætlaði að fara ferð
]»essa sjer til hvíldar og skemtun-
ar, en þegar til London kom varð
honum hvergi vært, því allir eltu
hann á röndum. Varð hann að isitja
heima á daginn en fór á kreik á
kvöldin óg notaði nóttina til þess
að skoða borgina. Hefir hann kom-
iet að þeirri niðurstöðu, að það
sje miklu hægara að vinna frá
morgni til kvölds að kvikmynda-
leik en að vera í heimsókn í
London.
Flug til Norðurpólsins.
Nýlega hefir verið getið
um fyrirætlanir Ameríkumannsins
Naulthy um að fara í flugvél frá
Norður-Ameríku yfir Norðurpól-
inn til Asíu. Flestir eru þeirrar
skoðunar, að ferðin geti ekki tek-
ist. Aftur á móti er því haldið
fram, að flugvélar geti orðið
Amundsen að mik’lu gagni á ferð
hans norður í höf og hefir það
nú orðið að ráði, að hann fær
tvær flugvélar og tvo flugmenn
norska með sér í förina. Er eigi
afráðið hverjir það verða, en
margir hafa boðist. Shackleton
hafði flugvél með sér í suður-
förina, var það „Avro Baby“ vél,
lík vélinni sem hér var en nokkru
tninni. Til flugs í heimskautalönd-
unum þarf aðra tegund af benz-
íni og smumingsolíu en venju-
legt er, því venjulegar tegundir
storkna í frosti því sem þar er.
Elsti maður heimsins
heitir John Shell og er bóndi í
Kentucky í Ameríku. Varð hann
nýlega 133 ára gamall. Þrátt fyr-
ir þennan háa aldur hefir hann
Heimilis kennari
óskast, helst stúdent eða piltur
sem les utan skóla. Upplýsing-
ar í síma 5, Keflavík.
verið vel hress fram að þessu og
gengið á fjöll, sem ungur væri.
En nú er hann farinn að verða
lasburða.
Fyrsta konan
sem kosin hefir verið á ríkisþing
Svía, við kosningar þær, sem ný-
lega eru afstaðnar, heitir Kerstin
Hesselgreen. Hún hefir á hendi
eftirlit með verksmiðjum er konur
vinna í, og hefir tekið mikimi
þátt í réttindabaráttu sænsku
kvenþjóðarinnar.
Sendiherraskifti
hafa Bolshevikar haft í Berlín.
Vigdor Kopp, sem verið hefir
stjórnarfulltrúi þeirra í nokkur ár
fer frá, en við tekur í hans stað
Nicolai Kretinsky, sem fyrrum var
fjármálaráðherra í Rússlandi.
Maraþonhlaup
háðu dönsku íþróttafélögin í síð-
asta mánuði. Voru þátttakendur
16 að tölu og varð hlauparinn
Axel Jensen fyrstur á 2 tímum og
30 mín. og 25 sek., sem er nýtt
met í Danmörku í þessu hlaupi. Er
þetta í þriðja skifti sem hann
vinnur hlaupið.
Merkur fundur.
Skamt frá Egtved í Danmörku
fanst nýlega í jörðu kista úr eik
og í henni konulík; var lítið eftir
af því nema hárið, enda telja
fornfræðingar að það hafi legið
um 3000 ár í jörðu. Ýmsar forn-
menjar voru einnig í kistunni.
Þykir þetta hinn merkasti fundur
og hefir kistan nú verið flutt á
Þjóðmenjasafnið danska og vekur
mikla athygli.
Cement
getum við útvegað ódýrt og selt
i islenskum krónum ef
samið er við okkur nú þegar.
Þórður Sveinsson & Co.
Hafnarstræti 16.
Jóns Þorleifssonar í Good-Templ-
arabúsinu, opin frá kl. 10 til 5.
Aðgangur fyrir fullorðna 1 kr.
fyrir börn 50 aura.
En þá geta nokkrar stúlkur
fengið tilsögn i
v e f n aöi
Nánari upplýsingar á Amt-
mannsstíg 2.
Asta Sighvatsdóttir,
Sigriður Björnsdöttir
frá Kornsá.
BjálpræQisherinn.
Á hljómleikunum í kvöld kl. 8
(12 manna sveit) guitarar, mando-
lin, flðlur, flauta og blásturshljóð-
færi, verða leikin ýms ný lög,
danskir og íslenskir þjóðsöngvar.
Inngangur 50 aura.
NB. Lautinant Norling og H.
Guðjónsson frá Danmörku verða
boðin velkomin.
Fseði.
Á Klapparstíg 6 (nýja stein-
húsinu) geta ennþá 2—3 (karl-
menn eða kvenfólk), sem stunda
hreinleg störf, komist að matar-
borði. Sími 238.
Gæiuir
keyptar í Tryggvagötu 13. Fyrst um sirin mótteknar kl. 2—4 um
eftirmiðdága. Upplýsingar í síma 866.
tXMSKIP/WVe..
^ ÍSLANDS 0
E.s. Gullfoss
fer til Vestfjarða á fimtudag 13. okt. síðdegis. Héðan fef
skipið 18. október til útlanda um Bergen til Kaupmannfl*
hafnar.
Skipið tekur vörur til Leith um Kaupmannahöfn.
Hrútafjarðarkjöt.
Þeir, sem enn eiga ópantað kjöt, geri svo vel að gefa sig
fram sem fyrst, svo það geti komið með e.s. »Sterling« um^næstu
mánaðamót.
O. Benjamínsson.
Kennsla-
Undirrituð kennir að sníða Kjóla, Kápur, Dragtir, BlússiK
og Pils og taka mál, alt eftir nýjustu tísku, ódýr og fljót kensla-
Virðingarfylst
Herdís Brynjólfsdóttir, Skólavörðustig 38,
ss&
— 283 —
sönn málaralist, ágæt hljómlist, var ekki til í aug-
um Morsefjölskyldunnar og hennar lika. Og ennþá
meira en öll list var þó lífið sjálft, og um það hafði
þetta fólk ekki nokkra hugmynd. Það var tveimur
kynslóðum á eftir hinum nýju vísindum. Það hugs-
aði miðaldalega.
Þannig hugsaði Martin, og komst þá að aun
um, að allir þessir lögfræðingar, liðsforingjar, versl-
ttnarmenn og bankagjaldkerar, sem hann hafði hitt,
og þeir verkamenn, sem hann hafði kynst, stóðu á
svipuðu stigi, að undanteknu því, að það var mun-
ur á þeim mat, sem þeir borðuðu, og þeim fötum,
sem þeir gengu í, og þeim stöðum, sem þeir buggu
á. Það var áreiðanlegt, að þá skorti eitthvað, sem
hann þóttist finna hjá sjálfum sér og í bókunum.
Morse-fjölskyldan hafði sýnt honum það besta, sem
þannig gerðir menn hafa yfir að ráða, og hann var
ekki stórhrifinn af því. Hann sem sjálfur var blá-
snauður maður og þræll veðmangarans, hann vissi,
að hann hafði yfirburði yfir þetta fólk, sem hann
talaði við hjá Morse. Og þegar fötin haps voru
ekki hjá veðmangaranum, þá kom hann fram á
meðal þeirra einis og herra lífsins og með næma til-
finningu fyrir því að honum væri misboðið, þvilíkt
sem sá þjóðhöfðingi mundi finna til, sem dæmdur
væri til að lifa með geitahirðum.
„Þér hatið og óttist jafnaða,rmennina“, sagði
hann einu sinni við Morse við miðdegisborðið. „En
hvemig stendur í raun og veru á því, að þér gerið
— 284 —
það? Þér þekkið þá hvorki né grundvallarskoðan-
ir þeirra“.
Samræðan ha'fði tekið þessa stefnu við það, að
frú Morse hafði borið gífurlegt hrós á Charles Hap-
goods. En hann var stöðugur þyrnir í holdi Mar-
tins, svo hann varð því jafnan nokkuð stórorður,
þegar hann bar á góma.
„Já —“ hafði hann sagt, „Charles Hapgood
er ungur maður, sem mun ryðja sér glæsilega braut
— hefir mér verið sagt. Og það er sjálfsagt satt.
Hann verður líklega fylkisstjóri áður en hann
hrekkur upp af, og hver veit nema, hann verði öld-
ungaráðsmaður einhverntíma.
„Hvers vegna álítið þér það?“ hafði frii Morse
spurt. —
,,Eg hefi heyrt hann tala á kosningafundi. Og
ræða hans var svo hyggilega lymskuleg og ófram-
leg og jfnframt svo laus við allan sannfærandi
mátt, að leiðtogar flokksins geta ekki annað en
álitið hann fullkomlega áreiðanlegan mann, á með-
an meðalmenska hans samrýmist svo ágætlega með-
almensku kjósendanna£ 1.
„Eg held áreiðanlega, að þú sért hræddur um
mig fyrir Charles Hapgood", hafði þá Ruth skotið
inn í samræðuna.
„Guð forði mér frá því! svaraði Martin.
Þetta kom frú Morse til að halda samræðunni
áfram.
„Þér viljið þó líklega ekki halda því fram, að
— 285 —
Charles Hapgood sé heimskur V ‘ spurði hún kulda'
lega. —
„Ekki fremur en vanalegur lýðveldismaður“i
sagði Martin. Þeir eru allir saman heimskir, ef þelí
eru ekki refir, en það eru þeir miklu færri. Eio11
lýðveldismennirnir, sem eru með viti, það eru au<5'
mennirnir og hinir vísvitandi böðlar þeirra. Þeir
vita hvar þeirra gagns er að leita og hvers vegu8'
„Nú er jeg einn lýðveldismaðurinn", skaU*
Morse fram í hálfgerðu spaugi. „1 hvaða flok*
viljið þér skipa mér?“
„Þér eruð ósjálfráður böðull“.
„Böðull?“
„Já, auðvitað. Þér vinnið fyrir samsteypuauð'
inn. Þér vinnið ekki fyrir peningum yðar hjá verka'
marmastéttum þjóðfélagsins. Það eru ekki meuUi
sem misþyrma konunj sínum eða eru vasaþjófat'
isem þér hafið tekjur af. Þér vinnið fyrir brau®1
yðar hjá æðstu mönnum þjóðfélagsins, og sá seU1
gefur öðrum mat, er herra hans. Já, þér eruð bo®'
ull. Þér hafið áhuga á að styðja samstyepuauðiU11
og þeirri hugsjón vinnið þér að“.
Morse hafði tekið ofurlitlum litaskitum 1
andliti.
„Eg verð að játa, að þér talið eins og bölva-
ur jafnaðarmaður1 ‘.
Þá var það að Martin sagði:
„Þér hatið og hræðist jafnaðarmennina, 0,1