Morgunblaðið - 19.11.1921, Síða 4

Morgunblaðið - 19.11.1921, Síða 4
MORGUNBLAIII Gummisólar r hasbr fást e ■: settir undir samstuudis hjá HVANNBERGSBRÆÐRUM sJ3É.1K3fl®2-. Bt*éf frá Italðu, Eftir Sigfús Blöndal Eg sá gott dærni þess í Santa Margherita. Meðal gestanna þar sém eg bjó var ungur Austur- ríkismaður, brjóstveikur. Hann hafði verið í stríðinu í hálft þriðja ár, barist þar með herdeild sinni uppi í Alpafjöllum á landamær- unum. Italskur maður, sem þar var líka, hafði einmitt verið á sama tíma á sömu vígstöðvum, og þegar þessir tveir menn fóru að bera sig saman, kom það 1 ljós, að herdeildir þeirra liöfðu einmitt staðið hvor á móti annari þennan tíma, skotist á því nær daglega, og oft barist í návígi. Báðir þessir menn höfðu borist á banaspjótum og ef til vill drepið eða sært góðkunningja eða landa hins. En nú fór svo að þeir urðu mestu mátar. Austurríkismaðurinn var annars hugljúfi flestra «em þar voru, enda var hann lipur og skemtilegur maður, og mesta prúð menni. En einn maður var þar, sem ekki vildi vera með honum, og altaf prédikaði okkur hinum hatur gegn Austurríki og Þýzka- iandi. Það var ríkur ítalskur kaup- maður. Eg tók eftir því, að gestir þess manns voru eitthvað undar- legir, og litu ekki út fyrir að vera af besta tagi. Og einn dag fekk eg að heyra sögu hans hjá ítölsk- um herforingja þar. Þessi maður hafði í stríðsbyrjun til þess að komast hjá því að fara í ófrið- inn, strokið úr landi til Amerrku og grætt þar stórfé. Nú kom liann aftur og gat komið því svo fyrir að hann slapp við lagahegningu. En í ættborg hans var honum hegnt á annan hátt. Enginn al- mennilegur maður vildi þar við hann tala eða hafa nokkra um- gengni við liann. Hann varð að vera með umferðaloddurum og þess konar fólki þrátt fyrir auð- æfin. Nú bjó hann á hótelinu og reyndi að koma sér í mjúkinn hjá lítlendingum þar, — eins og liefja sig á því. Og auðvitað var hann nú ítalskur föðurlandsvinur, æst- ur — í munninum. Osviknu ítölsku föðurlandsvinirnir, sem höfðu barist fyrir land sitt og fengið sár og örkuml, þeir gátu verið vinir Austurríkismannsins og talað með virðingu um Þjóð- verja — gull-laxinn, sem skarst úr leik þegar hætta knúði að dyr- um, hann gat hatað og fyrirlitið. XVIII. Loks kom skllnaðarstundiu. Okkar litla klíka þarna á hótel- inu, Svíar, Svissar, Italir og eg — var nú að smádreifast. — Eitt kvöldið var það eg «em kvaddi inna; það var dýrðlegt tunglskins- kvöld og í garðinum var ilmur af blómum, appelsínutrjám og rós- um. Yið drukkum fararskálina í freyðandi Asti-víni (líkt kampa- víni á bragðið) og svo gengurn við fram með sjónum og eg drakk í mig fegurðina síðasta kvöldið í djúpum teigum. Og aldrei mun eg gleyma Santa Marghrita Ligure og vist minni þar. Morguninn eft- ir í býti fór eg svo til Genova, var þar og skoðaði borgina tals- vert, ásamt Gunnari Egilson, og fór svo um kvöldið til Rómaborg- ar í svefnvagni. Eg hafði heyrt rnargar sögur um rán á ítalíu, sérstaklega árás- ir á svefnvagna, og danskur kunn- ingi minn, bóksali frá Khöfn, hafði einmitt nýlega orðið fyrir því, að hann var þannig rændur um nótt og tekið af honum og öðrum farþegum alt fémætt. En eg var nú orðinn svo þreyttur eftir alt randið í Genova, að eg sofnaði strax og eg kom í rúm- ið og vaknaði ekki fyr en um sex- leytið- næsta morgun — þá dró eg gluggatjaldið frá og sá að það var glaðasólskin og' flýtti mér á fætur. — Við eigum tvo tíma eftir til Rómaborgar, sagði vagnstjórinn. Og nú fór eg að hugsa til lýs- ingar Sigurðar Breiðfjörð á Róm í Númarímum. En ekki sá eg neitt til hinna sjö himinháu fjalla, sem Sigurður getur um. Þau eru orðin að smáhæðum. Landið fyrir norðan borgina er heldur tilbreytingalítið, flatt, mest graslendi, slægjur og beitilönd, rnikil kvikfjárrækt, en þykir rak- lent og óholt á sumrum. Það minti mig helst á sum héruð í Dan- mörku að útliti. Annars hefir á síðasta mannsaldri verið gert af- ar mikið til að bæta þetta hérað og rækta betur, — og er enginn vafi á, að smámsaman mun tak- ast að gera það eins blómlegt og það var á gullaldartíma Róma- veldis. Loks sást borgin. Turnhvelfing Péturskirkjunnar út í Vatikaninu, garðarnir og kirkjumar á Monte Pincio — Tíberfljótið, gult á lit- inn — „flavus Tiberis“, sem vin- ur minn sálugi Quintus Horatius Flaeeus einhverstaðar hefir kall- að það, og loks var maður kom- inn.-----„Siamo arrivati (við er- um komnir) Roma — Rom—a—a!“ var kallað úti. „A sjö fjöllum háurn hún til himins lyftir veggjum.“ Bara að Sigurður hefði nú átt kost á að vera hér, tautaði eg méð sjálfum mér um leið og eg stökk út úr vagninum. Eg þóttist eiga vissan samastað- í dönsku gistihúsi rétt hjá járn- brautarstöðinni, hjá frú Dinesen, sem margir ítalíufarar munu kann ast við. En 'þar var alt fult, og frú Dinesen hafði ekki getað útvegað mér neitt. Eg var nú við öllu bú- inn, því eg vissi að í mars og apríl er afar erfitt að fá samastað í Rómaborg, vegna ferðamanna- fjöldans. Einkum um páskaleytið er altaf troðfult af aðkomumönn- um, og í vor hafði aðsóknin verið meiri en í manna minnum. Hópar danskra ferðamanna höfðu stund- um orðið að hýrast á stólum fyrstu nóttina í konsúlsíbúðinni — og danskan prest hitti eg, sem hafði orðið að ganga um göturnar alla fyrstu nóttina, og fyrst gat fengið inni eftir langa leit daginn eftir. Það lá nú nærri að líkt færi fyrir mér. Eg reyndi fyrir mér á 17 gistihúsum, og var þar alstaðar fult, — loks á 18. staðnum var mér sagt að ef eg vildi gera mér að góðu ruslakompuna, gæti eg fcngið að sofa þar í bedda þangað til herbergi losnaði. Eg varð guðs- feginn. Það var á litlu hóteli við Piazza Barberini, norðantil í bænum. Eg lét nú flytja dót mitt þangað, fór svo og tilkynti lög- reglunni komu mína, — og þegar eg «vo var btíinn að útfylla ósköp- ir. öll áf skjölum og fá „permesso di soggiorno“ (dvalarleyfi) til júníloka, fór eg nú að athuga borgina og skila kynnisbréfum sem eg hafði meðferðis. Það kom síðar í ljós að hótelið var allgott, og vandað og lipurt fólk; eg fekk brúklegt herbergi eftir nokkra daga, og dvaldi þar svo úr því allan þann tíma, eem eg var í Róm, fjórar vikur alls. Mér dettur í hug saga um Thor- valdsen, frá þeim tíma, sem hann bjó í Rómaborg. Danskur ferða- maður, kunningi hans nýkominn þangað, heimsótti hann og spyr hann, sem kunnugan mann um ýmislegt. Meðal annars spyr hann Thorvaldsen: „Hvað langan tíma þarf maður eiginlega til að skoða Róm f ‘ — „Það veit eg svei mér ekki“, sagði Thorvaldsen ,,eg er bara búinn að vera hér í tuttugu ár!“ Og Tliorvaldsen er ekki sá eini, sem hefir fundið til þess hvað Rómaborg er ótæmanleg. Þar er líklega fleira merkilegt að sjá og skoða en í nokkurri annari borg í heiminum, þó stærri séu. Og þess vegna er eg nú altaf að velta 'fyrir mér spurninigunni: Á eg að vera að segja nokkuð frá Róma- borg?. Eg veit það varla. Því fyrir þá sem hafa séð „borgina eilífu“ getur ekki verið neitt á lýsingu minni að græða. Og þeir, sem ekki hafa átt því láni að fagna geta ef til vill haft gam- an af því, en dvöl mín í Róm var svo stutt að eg treysti mér alls ekki til að gefa neina ítarlega lýsingu á borginni og allri hennar dýrð. Eins mánaðar dvöl í slíkri birg er ekki mikið. Eg ætla samt að revna að skrifa eitthvað — máske verður það meira hugleiðingar út af því sem eg sá en lýsingar á því. Hvort lesendurnir græða á því veit eg ekki með vissu. Þeir um það —- eg skrifa. =016861=- „Sanitas" Ijúffenga Sítrón, fæst hjá ^ öllum betri kaupmönnum sem ** ,H • ■ versla með slíka vöru. " 1 Messur á morgun. I dóffikirkjunni kl. 11 síra Jóhann Þorkelsson, kl. 5 síra Bjarni Jónsson. í f'ríkirkjunni-kl. 2, próf. Haraldur Níelsson. f fríkirkjmmi í Hafnarfirði kl. 1 e. h. og í fríkirkjunni í Reykjavík kl. 5 síðd. síra Olafur Ólafsson. Landakotskirkja: Hámessa kl. 9 árd. Engin síðdegismessa. Fundur í „Stjörnufélaginu“ sunnu- daginn 20. þ. m„ kl. 3y2 síðd. — Engir gestir. Togarinn enski, sem tekinn var í landlielgi um daginn, fekk 4000 kr. sekt. Sannaðist ekki að liann hefði veitt í landhelgi. Bergmál heitir lítið en laglegt ljóða- kver, sem nýkomið er út eftir Magn- ús Gíslason. í iþví er m. a. þessi vísa: Jeg er hetja í sjálfs mín sögum, sólarbam á gæfudögum, E.s. fer héðan 26. nóv.br."til Leith og Kaupm.hafnar Skipið fer aftur frá Kaupm.höfn II. desember um Leith til Reykjavikur. Es. Ooðafoss fer frá Kaupm.höfn I. desember, um Leith tit austur og norðurlandsins og Reykjavíkur. kvíðastrá, ef kular, syrtir, kátur ungi þegar birtir. Kenslu í ensku og skjalaþýðingar af íslensku á ensku, auglýsir ungfrú Guðlaug Jónsdóttir hér í blaðinu í dag. Hefir hún dvalið í mörg ár í Englandi og starfað mjög mikið að þýðingum, m. a. á skrifstofum ensku stjómarinnar. Botnía fór héðan kl. 10 í gærmorg- un til Hafnarfjarðar áleiðis til út- Ianda. Parþegar voru meðal annara: Jón Magnússon forsætisráðherra og frú hans, P. O. Christensen lyfsali m-eö fjölskyldu, alfarinn til Khafnar, Jón Stefánsson listmálari, Einar Þor- gilsson alþm., Konráð St-efánsson frá Bjarnarhöfn, O. J. Havsteen og frú hans, Jón Oddsson skipstjóri, frúrn- ar Kristín Sigurðsson, Áista Ólafsson og Þorbjörg Ólafsson og ungfrn Þórh. Helgason. Glímufél. Ármann hefir útiæfingu í iýrramálið. Félagsmenn, mætið í Mentaskólaportinu Id. 9þú. „Borgir“ á sænsku. — „Borgir“ skáldsaga Jón Trausta er nýkomin út í vandaðri útgáfu, með mynd höf. framan við. Þýðingin er eftir Rolf Nordenstreng, sem hér er áður kunn- ir og hefir skrifað ýmislegt um ís- lonsk mál og íslenskar bókmentir. Hann dvaldi liér í Reykjavík einn vetur fyrir nál. 20 árum og er vel að sér í íslensku. Mun iþýðingin vera í besta lagi, og franian við bókina er ritgerð eftir þýðandann um rit- störf höf. Þýðandinn þakkar Finni Jónssyni prófessor í Khöfn fyrir að bafa litið yfir þýðinguna og gefið góðar leiðbeiningar. Einnig fylgb þerna frá þýðandanum stutt greinar- gerð fyrir íslenskum framburði. Út- gefandinn er C. W. K. Gleerups För- lag í Luudi. Titill sænsku útgáfunn- nr er: Guðmundur Magnússon: Borg- ar. Gammansaga frán Grundfjord. ()\ersátning Fráii islándskan av Rolf Nordenstreng. Gengi erl. myntar. Khöfn 18. nóv. Stex-lingspnnd..............21,58 Dollar.......................5,42 Mörk .. .....................2,15 Sænskar kr.................126,50 Norskar kr..................78,25 Fianskir frankar............39,25 Svissneskir frankar ■ • • • 101,50 Lírur.......................22,75 Pesetar.....................74,50 Gyllini....................190,25 Frá versltmarr. TilboB Hálf jöröin Jófríðarslaðir í Hafnarfirði ásamt húsum, er til sölu nú þegar og verður selð- hæstbjóðanða. Laus til ábúðar 15 maí. Tilboð senbist í lokuðu bréfi tii Henðriks Hansens Jófríðar- stöðum Hafnarfirði. Si Enska: Eg undirrituð kenni g ensku. Tek einnig að mér g Q þýðingar. glj 0 Guðlaug Jönsdóttip ^Amtmannstíg 5. Heiraa 1—2 e h. fiappdrætti styrktarsjóðs sjúklínga á Vifilstöðum. Núruerin sem upp komu í happ- drættinu voru þessi 1. vinningur nr. 20522 2. — — 24852 3. — — 12610 4. — — 9974 5. — — 6439 6 — — 25272 Tilkynning um þessa miða sé komið til styrktarsjóðsnefndar- innar fyrir 31. des. þ. á Styrktarsjóðsnefndin. |N.^Sögaard pianokennari er kominn heim. Heimili: Laugaveg 18 B. fyrsta lofti Samkoma verður halðin f Hafnarfirði næst- komanöi sunnuðag 20. nóv. kl. 4 e. h. í Bíóhúsinu- Nýjir sálmar sungnir. Páll Jónsson talar um kærleika og vakningu. IZ Allir velkomnir. Á i

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.