Morgunblaðið - 24.12.1921, Side 3

Morgunblaðið - 24.12.1921, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ 3 ÖLEQILES ’]ÓL! „Svo elskaði gnð heiminn, að hann gaf sinn eingetinn son, ■ til þess að hver; sem á hann trúir glatast ekki, heldur hafi eilift líf“. (Jóli. 3, 16.). Betri jólatexta en þennan þekki eg engan, svo vel á hann við jólin sem hjálpræðishátíð guSs barna. Þau fela í sér í fáum orðum alt meginmál fagnaðarerindisins, er þau benda oss á grundvöll hjálpræSis vors, kærleika vors himneska íööur, frömuð hjálpræöis vors, guSs ein- getinn son, og síðasta takmark hjálpræðis vors: hið eilífa líf í guði ug náð hans. Fæðingarhátíð frelsara voi’s setur •oss fyrir sjónir hinh eilífa grund- völl hjálprœðis vors: „Svo elskáði guö heiminn1 ‘. Frumtónn allrar op- inberunar guðs er: kærleikur guðs, — elska guðs til þín og mín, sem hann skóp í sinni eigin mynd, til eilífs samfélags við sig. Og hvergi hljómar þessi tónn skærar og yndis- legar en yfir jötunni í Betlehem eða réttara yfir því lífi, sem byrjaði þar og lauk rximum 30 árum síðar úti á öolgata. Trúir þú á guðs kærleika — trúir þú á guðs kærleika þcr til handa? Menn tala einatt svo sem þaö ætti þó að vera auðveldast allra hluta að t.rúa á guðs kærleika, bæði al- ment, sem kærleika til allra manna, ■og sérstaklega sem kœrleika til vor hvers einasta eins. En þetta er alls okki eins auðvelt og í fljótu bragði gæti virtst. Það er engan veginn svo auðvelt að trúa á kœrleika guðs alment, eins •og heimurinn er. Oftar sluddi mað- ur ætla það sönnu nær, að guð hat- aði heiminn, eins og hann veltist í hinu vonda. Hugsum aðeins til und- anfarinna 6—7 ára! Væri ekki frem- ur ástæða til að ætla, að guð hataði heiminn, eins og hann hefir sýnt sig þessi voðalegu ár, — þar sem vonska mannanna hefir birtst á jafn liáu stigi? En þótt vér strikuðum vfir þessi voðalegu ár, þá er samt nóg, sem gæti gert oss erfitt að trúa því, að guð elski þennan lieim. Lít- urp aðeins á eitt atriði: Iiinn gífur- lega misnmn á kjörum manna. \7;eir nú svo vel, að vér gœtum sagt, að mismunur kjaranna stæði í réttu * hlutfalli við mannkosti einstakling- anna, svo að það vœru ávalt bestu og' vönduðustu mennirnir, sem sætu sólarmegin í tífinu. En því er ekki að heilsa. Er eiginíega að furða,, þótt skammsýnum mönnum komi slíkt undarlega fyrir sjónir, og að þeir spyrji: Getur sá guð verið réttlátur, sem slíkt lætur viðgang- Á hjálpræðishátíð guðs barna Jólahugleiðing eftir Dr. Jón Helgason, biskup. ast? og ef hann er ekki réttlátur, getur hann þá verið kærleiksríkur ? En sé erfitt að trúa á guðs kær- leika alment, þá er það ekki síður er vér lítum til sjálfra vor sérstak- lega. Hvað er eg í augum heilags guðs? Óhreinn jarðarmaðkúr, atað- ur í synd, í óhlýðni við guðs viljá, og í hverskonar mótþróa. Hann á að elska mig og vilja gera mig hólpinn -— en eg vinn sjálfur á móti af öllu megni? Er mögulegt annað en að guð hafi beina andstygð á mér? Er hugsanlegt, aö guð geti litið með velþóknun niður til mín? Og þó er okkert sem vér þráiun heitar en að mega trúa fagnaðar- erindinu um kærleika guðs, og geta hvílst öruggir í því, eins og börn í móðurfaðmi, sannfæi'ðir um koer- leiksþel guðs gagnvart oss. Því að vér finnum, að án þessa yrði lífið oss hin mesta kvöl og byrði, og til- gangur þess óskiljanlegur með öllu. En alt þetta veit guð ! Þess vegna hefir hann aldrei látið sig án vitnis- burðar — aldrei látið af tilraunum sínum til þess að rótfesta hjá mönn- um þá trú, að hann elskaði þá, eins og faðir elskar börnin sín. Um þetta hefir hann létið spámenn sína tala oftsinnis og með mörgu móti. En aldrei gerir hann það þó jafnkröft- uglega og fyrir sinn eingetinn son, er hann lætur fæðast, lifa og deyja til þess að birta heiminum þennan óumrœðilega dýrðlega sannleika, og gerir hann með því að frömuði hjálpræðis vors öllum öðriun frem- ur. Og svo sem frömuð hjálpræðis vors setur fæðingarhátíð frelsarans oss einmitt Jesúm fyrir sjónir: ,,Svo elskaði guð heiminn að hann gaf sinn eingetinn son“. Vév hneigjum honum í dag, sem reifuðu barni, enda þót.t hjálpræði vort sé ekki svo mjög bundið við barnið sjálft sem við líf og starf þess fulltíða manns, sem þar og með þeim hætti byrjar sitt blessunarríka jarðlíf. Vér sjáum þar upphaf þess jarðlífs sem dásam- legast hefir verið lifað á þessari jörðu, jarðlíf, sem var ein óslitin dýrleg ópinberun kœrleika guðs. Trúir þú á guðs kærleika í Jesá Kristi ? Sjáir þú hanu ekki þar. þá fær þú hvei'gi komið augum á hann! I Jesú Kristi hefir kærleiki guðs í- klœðst lvoldi og blóði. í Jesú Kristi hefir guð sjálfur stigið n'iður til vor og búið á meðal vor til þess að vér mættum höndla hann í kærleika lians! Og hvílíkur var þessi kærleik- ur guðs opinberaður í Jesn Kristi. Ekki kærleikur til engla í manns- mynd eða heilagra manna heldhr 1 iI fallinna, særðra. sekra manna. Slík- um boðaði Jesú kœrleika föðursins. Slíka menn huggaði hann með fyrir- gefandi kærleika guðs. Slíka menn revndi hann að reisa á fætnr og styðja til heilags vaxtar í fullkomn- un guðs barna! Og eins og orð hans voru.svo voru og öll hans verk opin- berun guðs kærleika. Það sýndi öll framkoma hans við beygða og bág-! stadda, mœdda og særða og sjfdca. \ í fáum orðum: alt líf hans til orða. og verka var lifandi áskorun til manna um að þiggja kærleika guðsv að gefa sig lionum á vald, í trúnni á miskunnandi föðurþel hans. Og að síðustu tæmir hanu í botn bikar kvala og dauða til þess að setja mönnunum þennan sannleika svo fyrir sjónir, að aldrei gæti gleymst þeim. Frá krossinum — einnig frá krossimun — hljómar sterkum rómi út, yfir veriild alla: Svo elskaði guð heiminn, að hann gaf sinn eingetinn son! Skilur þú nú, krisinn maður hvert óumræðilegt fagnaðarefni fœðing Jesú er oss mönnum. Fæðing hans áttu það að þakka, að þú veitst nú hvað þér er óhætt að gera þegar samvitska þín ésakar þig um illa, not aðan æfidag og um óhlýðni við guðs vilja. Þú veitst nú, að sá guð sem þii hefir móðgað hann elskar þig þrátt fvrir alt, alveg eins og' Jesú elskaði tollheimtumenn og bersynduga, sera til hans leituðu. Þú veitst, að guð elskar þig, þú veitst, að þú átt fyrir gefning vísa hvenau’ sem þú snýr þjer til hans, játar syndir þínar, fullur iðrunar og biður hann fyrir- gefningar. Og af því a ð þii veitst, að hann elskar þig getur þú farið til hans með alt, játað fvrir honum alt og fengið fyrirgefningu í því öllu. Trúir þú á kœrleika guðs eins og' Jesús hefir opinberað oss hann? Ef svo er þá ertu í sannleika sæil og þá hefir þú öllum fremur ástæðu til að gleðjast með guðs börnum á þessari lofgerðarhátíð þeirra. Mætti þá lof- gerðin líka fylla hjarta þitt og gleð- in yfir guðs kærleika altaka sálu þína og sinni, svo að náð guðs yrði liéðan í frá sá heimur, sem þú lifir, ert og hrærist í. Og sértu í hóp þess- ara gœfumaima, sem hafa liöndlað kærleika guðs eða guð í kærleika lians, þá skilur þú líka að vonum, hve dýrlegt og háleitt það takmark er, sem guð hefir sett þér með hjálp- ra:ði sínu, — en einmitt hjálprœðis- takmark vort á fæðingarhátíð frels- arans að setja oss fyrir sjónir. „Til þess að hver sem á hann trú- ir glatist, ekki, heldur ha.fi eilíft Uf“ — þar sjáum vér hið háleita tak- mark hjálpræðis vors. „Til þess að hver sem á hann trú- ir“ — hér er trúin á Jesúm sett sem skilyrði. Hvað merkir það að trúa á Jesúm? Að trúa á Jesúm merkir ekki, að trúa eða samsinna öllu því, sem menn hafa um hann sagt í því skyúi að útskýra hið leyndar- dómsfulla við persónu hans. Að trúa á Jesúm merkir á máli Jóh. guð- spjallamanns að trúa eða treystá opinberum guðs kærleika í honum, svo að vér höndlum þennan kær- leika, gerum hann að undirstöðu imdirstöðu lífs vors og hvílumst í honum í lífi og dauða. Um þann sem þetta gerir segir guðspjallamaður- inn „hann glatast ekki, heldur hefir eilíft líf“. Guð vill ekki að nokkur einasti maður glatist, heldur vill hann að hver einasti maður snúi sér og lifi, — öðlist eilíft líf. — Að trúa á kærleika guðs, að veita kœr- leika guðs viðtöku í lifandi, öruggu og barnslegu tausti, það er að veita guði sjálfum viðtöku, svo að hann lifi í oss og vér í honum. Þetta gerði Jesús. Og það var leyndardómurinn í öllu lífi Jesú og þess vegna gat það orðið jafn guðdómlegt, fagurt og heilagt og það varð. En þetta er þá líka takmark vors eigin lífs. Jes- ús hefir sjálfur sagt það. Jesús fædd ist í þennan heim beint til að koma okkur í skilning um þennan mikla og háleita sannleika. Þér kann að blöskra, hve háleitt þetta takmark er, en það er takmarkið engu að síð- ur: Guð í þér og þú í guði. Þetta er eilífa lífið. Guð í óss og vér í guði, þetta er eilífa lífið — hvorki meira né minna! Og þetta er hjál'præðið í fyllingu sinni — og hvílík sœla, hví- lík dýrð má það véra að ná því tak- marki! En það næst ekki fyrirhafn- arlaust af vorri hálfu. Ætlum ekM að það náist að oss sjálfum sofandi og aðgerðarlausum. Svefn leiðir al- drei til sigurs. Aðgerðarleysið verð- ur hér vagga dauða og glötunar. Tökum því það áform nú á jólun- um, að leggja héðan í frá alla vorn krafta fram til að ná þessu takmarki voru. Biðjum guð að blessa oss og styrkja oss til þess. Látum hans heilaga anda leiða oss að hvetja til þess. Þá skal takmarkinu verða náð svo sannarlega sem guð vor himn- eski faðir er sannorður og trúr. O hjálpa þú. oss til þess, faðir vor á himnum. Lát þessa lofgerðar- hátíð guðs barna verða til þess að festa hjá oss hin bestu áform í þessu tilliti og með þetta eilífa takmark kærleika þíns biðjum vér þig öll: Gef oss gleðilega bátíð í Jesú nafni. Amen. <xo Flóttinn til Egyptalands. Helgisaga eftir Selmu Lagerlöf. Langt inni í eyðimörk einni í Austurlöndum óx í fomöld pálmi einn mikill — nii orðinn æfa-gamall og afar-hávaxinn, er þessi saga > gerist. Enginn fór þar um, svo að ekki næmi staöar, til að virða fyrir sér pálmann mikla. Hann var sem sé miklu ha*rri en aðrir pálmar, enda hafði því verið um hann spáð, að hann ætti að verða hærri en brodd- súlur og pýramýdar Egyptalands. Það bar til eitt siim, er pálminn mikli stóð að vanda og skimaði út um eyðimörkina, að fyrir liann bar sýn, er lionum brá svo við, að titr- ingur fór um limið alt á stofninum háa: Ytst, út við sjóndeildarhringiun sá liami tvo menn koma ga.ngandi. Þeir voru enn í fjarlœgð svo mik- illi, að úlfaldi sýndist á stœrö við inaur. En víst var það eigi að síður, að þetta voru menn — karl og kona, og ókiuinug þar um slóðir; því að vel þekti pálminn þá menn alla, er þar fóru um að jafnaði. Þetta var maður og kona, er hvorki höföu með sér föruneyti né klyfjadýr, tjald né vatnslegil. — Sem eg er lifandi, mælti pálm- imi við sjálfan sig, þá eru þessi hjú hingað komin til þess eins, að deyja. — Furðar mig það stórum, að ljónin skuli ekki vera komin á kreik eftir bráð þessari. En ekkert. þeirra. hreyfir sig. Og ekki sé eg heldur neiun stigamanninn á ferli. — En þeirra. verður víst. ekki lengi að bíða. Sjöföldum dauða ganga þau í greipar, hugsaði pálminu með sér: Ljónin gleypa þau, höggormarnir bíta þau, þorstinn sálgar þeim, stigamennirnir myrða þau, sólin brennir þau og lirœðslan yfir- bugar þa.u. — Og hann reyndi að beina huganum að einhverju öðru, því hann viknaði við að hugsa um væntanleg forlög þeirra. — manns- ins og konmmar. En á takmarkalausu flatneskj- mmi umhverfis pálmann, var ekki nokkur sá hlutur til, er hann þekti ekki áður og hafði virt fyrir sér um þúsundir ára. Ekkert fekk lað- að að sér athygli hans, svo að hug- r.rinn varð ósjálfrátt að hverfa aft- ur til ferðamannanna. -— Þnrkur og vindur! andvarp- aði pálminn — hann mintist þann veg tveggja hinna. skæðustu óvina lífsins á eyðimörkinni —: Hvað er það, se.m konan ber á handlegg sér ? Eg fæ ekki betur séð, en að þau séu með barn — heimskingjarnir þeir arna! Pálminn var glÖggsýnn, eins og títt er um öldunga ; og homim skjátl- aði' ekki. — Konan bar á handlegn- um barn. sem ballaði höfði að brjósti hennar og svaf. — Baruið er ekki einusinni nægi- lega klæðum búið, mælti pálminn ennfremur. Eg sé að konan hefir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.