Morgunblaðið - 10.03.1922, Blaðsíða 2
MORQUNBLAÐIB
Þessar þrjár háskóladeildir, er jeg
nú hefi nefnt, eru og verða aðallega
eða eingöngu embættismannaskólar.
Hið sama veröur ekki sagt um
fjórðu deildina, heimspekisdeildina.
Hún býr menn eiginlega ekki undir
neitt víst starf í þjóðf jelaginu, nema
ef vera skyldi kennara í íslenskum
fræðum (málfræði og sögu) og get-
ur þó ekki gefið þeim í þeim efnum
jafnvíðtæka þekkingu og þeir geta
aflað sjer á öðrum norrænum liáskól-
um. Því til þess að fá vísindalega
þekkingu í þeim fræðum er ekki nóg
að stunda bara íslenska tungu og
íslenska sögu, heldur líka almenna
málfræði og skyld mál og svo hjálp-
arvísindi sagnfræðinnar. Hjer ligg-
ur þó aðallega hin vísindalega starf-
semi háskólans og spurningin verð-
ur, hvernig hann fái komið því sem
best í verk og með sem minstum
kostnaði — því að sparsemi og f jár-
hygli verður að hafa hjer sem ann-
arsstaðar. Eins og stendur er fyrir-
komulagið hjer varla viðunandi svo
að háskólinn geti náð sínu takmarki
á þessu sviði.
Það hefir oft verið tekið fram, að
háskólinn íslenski gæti ekki haft
neina vísindalega þýöingu í heimin-
um nema í þeim fræðum, sem snerta
ísland sjerstaklega, svo sem málið,
söguna og náttúru landsins, og hann
mun eiga fult í fangi með það, ekki
síst hvað náttúruna snertir, því að
náttúruvísindin er dýrt aö fást við
nú á dögum, þar sem þau útheimta
rannsóknarstofúr með nákvæmum
og dýrum áhöldum. Hægra er fyrir
hann að vinna í þónustu íslenskrar
tungu, bókmenta og sagnfræði, og
þar ætti hann að geta afrekað nokk-
uð, sem kveður að. Einn af prófes-
sorum hefir sagt: „Vjer eigum að
kosta kapps um, að Háskóli íslands
verði hVervetna talinn æðsti dóm-
stóll í íslenskum fræðuin og viður-
kenning lians hæstur heiður í þeim
efnum' ‘. Með þetta fyrir augum var
stofnuð gráðan doctor litterarum
i: landicarum. Þetta er fallegt tak-
mark og viðnrkvæmilegt. En það
verður að vera meira en orðin ein.
Til þess að ná því takmarki að vera
álitinn æösti dómstóll í þessum efn-
um, verður háskólinn að geta sjer
nafn með afrekum í þeim; hann
verður með öðrum orðum að beita
sjer fyrir einhverju eða láta eitt-
hvað frá sjer fara, sem tvímælalaust
sýni, að hann verkskuldi þessa dóm-
arastöðu. Og hann getur gert það. |
ef vilji og alvara fylgast að. Nóg eru!
verkefni fyrir hendi. Aðallega ættij
liáskólinn að gefa sig að því ný-ís- j
lenska, því að þar er enn ,þá mest að >
vinna. Þar vantar orðabók, bók-
nientasögu og almenna sögu landsins,
svo að jeg nefni það helsta. Og orða-
bókarmálið liggur háskólanum ef til
vill næst. Slík verk eru erlendis
venjulega undir umsjón vísindafje-
laga eða vísindalegra stofnana. Má
þannig nefna orðabækurnar, sem
danska vísindafjelagið, sænska aka-
demíið, franska akademíið, Acade-
mia della Crusca (ítalskt), og Ox-
ford háskóli hafa gefið út. Slík fyr-
irtæki geta ekki verið einstakra eða
fárra manna verk; að þeim verða
margar hendur að vinna undir fastri
umsjón. Nú er ekkert vísindafjelag
á íslandi og því ætti háskólinn að
annast þetta þar. Það er alveg þýð-
ingarlaust að vera við og viS að
styrkja einn eða annan mann til þess
að fást við slíkt orðabókarstarf,
eins og gert hefir verið. Það er bara
að kasta fje á glæ og jafnframt
hindra það að þetta verk komist á
framgang á annan hátt. Háskólinn
á að taka það að sjer, stjórna því
og koma því í framkvæmd meS að-
stoð manna víðsvegar um land, og
þannig vinna þarft verk og geta
sjálfum sjer nafn.
Sem stendur er nú við háskólann
einn próíessor í íslenskri málfræði
og bókmentum, en auk þess kennir
og dósent nokkuð íslenska málfræði.
Þetta munu víst nægilegir kenslu-
kraftar, því að stúdentar eru varla
margir. En það mundi víst tiltæki-
legt að sameina dósentsembættið við
aðstoðarbókavarðarstöðu við Lands-
bókasafnið.
Þegar háskólinn var stofnaður var
svo ráðstafað að þar skyldi vera dó-
sent í íslenskri sagnfræði; síðan var
þeirri stöðu breytt í reglulegt pró-
*fessorsat. Það mun ekki hafa verið
. mikið um stúdenta í þeirri grein, og
jeg hygg, að fyrirkomulag þeirrar
stöSu og þeir fyrirlestrar, sem haldn-
| ir hafa verið, muni varla hafa mikla
þýðingu. Skólagengnir menn læra á-
grip af íslandssögu undir skóla eSa
í barnaskólum; svo lesa þeir annað
stærra ágrip í Mentaskólanum, og
loks eiga þeir að fá þriðja ágripið
landsins mætti jafnframt fela lieim-
spekisprófessornum; þó þori jeg
ekkert um það að fullyrða, þar sem
mjer er ekki nógu kunnugt um, hve
mikið starf eftirlitið útheimtir.
Fyrir nokkru var stofnað sjer-
stakt prófessorat í hagnýtri sálar-
fræði, ekki sem reglulegt embætti,
heldur beinlínis handa einstökum
manni. ÞaS er æði athugavert, að
stofna embætti, sem ekki eru beint
nauðsynleg, því að ef það kemst
upp í vana hjá þinginu og stjórn-
inni, er ekki að vita hvað langt það
getur gengiS. I þessu tilfelli er það
þó afsakanlegt, því að maður sá, sem
embættið var stofnað handa, hefir
sýnt að hann liefir bæði vilja og
hæfileika til þess að vinna í þarfir
bókmenta og vísinda og mun verða
liáskólanum til sóma.
En hið sama verður ekki sagt um
annað embætti, sem stofnað var fyr-
ir átta árum, sem sje dósentsembætt-
ið í latínu og grísku. Þar var hvorki
þörfin nje maSurinn fyrir hendi;
embættið yar einungis búið til handa
sjerstökum manni, sem virðist
hvorki hafa getu nje tilhneigingu til
vísindalegrar starfsemi. Það er með
öðrum orSum pólitískur bitlingur,
og sýnir það ljóslega, er jeg sagði
áður, live varasamt það er að stofna
á Háskólanum. Að vísu mundi þetta j óþörf embætti, því aS það verður í
síðasta nokkuS auka þekkingu þeirra höndum þingsins einatt einskonar
á sögu landsins, en það gerir þá ekki
að sagnfræðingum. Það sem Háskól-
inn ætti að veita stúdentum er ekki
einungis ofurlítiS víðtækari þekking
pólitiskur sveitarstyrkur; landið
borgar brúsann, en gagnið verður
ekkert. Síst ætti að gera þetta við
æðstu stofnun landsins, ekki einung-
á þessu sviði, því að hennar gætu!ífi kostnaSarins vegna heldur vegna
þeir auðveldlega aflað sjer á annan
hátt; heldur á hann að kenna þeim
vísindaleg sagnfræðisstörf. Tfann a
aS kenna þeim vísindalega aðferð og
u.ndirstöðuatriði sagnfræðinnar og
hjálparvísindi Jiennar; kenna þehn
sögulega gagnrýni, meðferð sögu-
legra heimilda, hvort sem það eru
.skjöl eSa aðrar heitnildir, o. s. frv.
Og við þá kenslu ætti að nota söfn
þau, sem fyrir hendi' eru, Lands-
hinna siðspillandi áhrifa, sem það
hefir á mentalíf þjóðarinnar; ef
pólitískir æfintýramenn setja þar á
stóli, annaðhvort af því þeir geta
eSa vilja ekki gera neitt annað,
hindrar það vísindalegan þroska í
landinu og rýrir álit stofnanarinnar,
svo að hún loksins kynni að verða aS
athlægi inanlands og utan. Ef hins
vegar þörf er á grískukenslu handa
guðfræSingum, þá ætti einhverjum
bókasafnið, Ríkisskjalasafnið og! prófessoranna í guðfræði að vera
Þjóðmenjasafnið. Þess vegna finst í falin sú kensla.
mjer að sjerstakt prófessorat í ís-; Annars ætti það að verða föst
lenskri sögu sje í raun og veru ó- i regla, að ekkert embætti væri stofn-
þarft, þegar um svo fáa stúdenta er ; ag við háskólann nema e'ftir tillögum
að ræða. Miklu betra fyrirkomulag; háskólaráðsins. Ef háskólinn á að
væri það, eftir mínum dómi, að sagn-1 ná takmarki sínu, á hann að vera
fræðiskenslan væri falin skjalvörð- ejns konar ríki í ríkinu, þingið á ekk-
unum við ríkissbjalasafnið. Ætla má
aö þeir væru jafnaðarl. sagnfræð-
iíigar og gætu leiðbeint ungum
mönnum og látið þá fást við viss
efni á skjalasafninu. Við það hygg
jeg líka að áhugi manna ykist fyrir
þeim f jársjóðum, sem þar eru geymd
ir; það yrði unnið meira iir því efni,
sem þar er fyrirliggjandi, og svo
fengju ungir menn þar þekking á
safninu og stjórn þess, og gætu svo
svo orðið eftirmenn skjalavarðanna,
þegar þeir fjellu frá. Það mætti gera
skjalaverðina dósenta í sögu við há-
skólann með aukaþóknun fyrir það
starf þeirra. Á líkan hátt gæti og
Þjóðmenjavörðurinn leiðheint stúd-
entum á því sviði, sem undir hann
ert að blanda sjer í mál hans nema
veita honum það fje, sem hann þarf
og það telur sig geta látið af mörk-
um við hann. Embættafjölgun er yf-
ir iröfuð varhugaverð alstaðar, en
hún er nú einu sinni eríðasynd
þingræðisins; Íslendingar hafa ekki
ráð til að syndga á þann hátt. Þeir
eiga að hafa fáa embættismenn og
launa þá vel; en þá á líka að ganga
ríkt eftir því, að þeir ræki starf sitt
vel og gæti skyldu sinnar.
Það er ekki fyrirsjáanlegt, að
heimspekisdeildin verði nokkurn
tíma embættismannaskóli eins og hin
ar deildirnar. Það er svo lítil eftir-
spurnin eftir embættismönnum af
því tagi á íslandi, að landið getur ó-
heyrir. ; mögulega ráðist í þann kostnað að
Þar sem kensla og próf í forspjalla J launa kenslukrafta til þess að undir
vísindum eða undirstöðuatriðum búa þá fáu stúdenta, sem vildu
heimspekinnar er heimtuð við nor-
ræna háskóla, verður háskólinn ís-
lenski og að gera það, og því prófes-
sorat í þeirri grein nauðsynlegt. En
hvort ekki mætti sameina það starf
viS eitthvað annað, gæti komið til
greina. Jeg hefði hugsað að t. d.
eftirlit með kenslumálum og skólum
leggja stund á þœr greinar. Þeir
verða framvegis að leita til útlendra
háskóla, enda er það líklega best,
því að hitt mundi leiða til andlegrar
éinangrunar. Þess vegna er ráðleg-
ast að landið kosti ekki neitt til
kenslu nýrri málanna, því að það
yrði varla annað en kák, en bjóðist
sendikennarar, þá ætti að taka þeim.
þar sem þeir mundu hafa örfandi á-
hrif og ef til vill leiða nýja strauma
inn. Meistarapróf og doktorspróf í
íslenskum fræðum er það eitt sem
heimspekisdeildin getur fengist við,
og það væri jafnvel æskilegt að stúd-
entar dveldu eitt ár eSa svo við er-
lenda háskóla áður þeir lykju meist-
araprófi í þeim greinum, svo að
sjóndeildarhringur þeirra víkkaði.
Kennararnir ættu ætið að vera menn
sem hafa stundað nám aS meira eða
minna leyti erlendis, svo að þeir
jafnan fylgdust með heimsmentun-
inni; það þarf ekki a.ð gera þá ó-
þjóðlega; þvert á móti, þeir mnndu
uota þekkinguna er þeir hafa aflaS
sjer, til þess að fara með það þjóð-
lega, rækta það, vernda og víkka á
þann hátt að það geti borið betri
ávöxt. Og það er þetta sem mjer virð
ist, að heimspekiskennarar háskól-
ans hafi haft fyrir augum og gert
mætavel. En deildin er fáliða og
þarf því að nota alla þá krafta, sem
til eru í landinu og sjerstaklega i
liöfuöstaðnum, til að aðstoða sig í
starfinu. Þess vegna er það áríðandi,
að það sje náin samvinna milli há-
skólans og safnanna, Landsbóka-
safnsins, Ríkisskjalasafnsins og Þjóð
menjasafnsins. Verðir þessara safna
eiga aS vera uátengdir háskólanum
og vinna með lionum. Háskólakenn-
ararnir og þeir eig'a að mynda það
sem svarar til vísindafjelaga annar-
staðar, vinna að þeim vísindalegu
verkefnum, sem fyrir hendi eru, og
sjá um útgáfu vísindalegra rita.
Vegna fámennis og strjálbýlis hefir
samvinna ætíð veriS hin veika Idið
fslendinga, en úr því verður nú að
bæta eftir mætti. Háskólinn og söfn-
in eiga að verða sá miðpunktur, sem
vísindin safnist um, og þar á skipu-
leg samvinna aS myndast, sem hefði
örfandi og f jörgandi áhrif á andlegt
Jíf í landinu. Það iná aldrei gleym-
ast, að margar hendur vinna ljett
verk, og þegar Util efni eru fyrir
hendi, verða menn að leggjast á eitt
og hjálpast aS.
Jeg er smeikur um að sjálfstæSið
liafi stígið íslendingum til höfuðs-
ins. Þeir fengu það skyndilega og' án
nokkurrar verulegrar baráttu. Ekki
vantaði lýðskrumara, sem skjölluðti
þjóðina og töldu henni trú um, að
hún væri fær í flestan sjó; þeir voru
eins og oft vill verða. menn, er
kunnu ekki að fara meS efni sjálfs
sín hvað þá Jieldur þjóðarinnar, og
það lætur að líkindum, að eySslu-
semin og gróðalirallið, sem hefir
komið landinu nálega á höfuSið, eigi
að nokkru leyti rætur sínar að rek.ia
til kenninga þessara manna. Stor-
menskudraumarnir komu og tram i
bókmentunum. Það er eftirtektar-
vert, að mörg skáldrit frá síðustu
árum gofa íburSarmiklar og ýkiu-
fullar myndir af lífinu og ástandinu
á íslandi; það er eins og höfundarn-
jr vilji telja lesendunum trú um, a0
alt sje þar líkt og í stóru löndunum.
Jeg veit ekki Jivort þeir gera þetta
viljandi eða þeim verði það ósjáli'-
rátt; líklega eru það óskir þeirra og
draumár sem þeir vilja gera aS
virkileik að minsta kosti á pappírn-
um. En þjóðin má ekki láta villa
sjer sjónir með þessu. Framtíð henu-
ár og sjálfsta*ði er komið undir því
aS hún fylgi heilræðinu, sem jeg
nefndi í upphafi greinar minnar og
skal enda með — að sníða sjer stakk
eftir vexti.
Frá Danmörku.
Trúlofun krónprinsins.
lílöðin í Kaupmanuahöfn eru
mjög ána*gð yfir trúlofun Friðriks
krónprins og Olgu prinsessu af
Grikklandi.
í einkaskeyti til „Berlingske Ti-
dende“ frá Cannes, segir, aS ti'ú-
lofuniuni hafi verið fagnað þar með
v.eislu hjá frænda prinsessunnar,
Christophorusi prins.og konu hans.
iilcoal gesíanna voru Anastasia stór-
hertogaekkja af Mecklenburg, kona
NikuJásar Grikkjaprins, Kyrill stóv-
fuL'.sti af Rússlandi og kona hans,
Alfóns og Beatrice af Spáni, René
prins af Bourbon og Elísabet prin-
sessa af Grikklandi. — Eigi hefir
rnn verið ákveðið hvenær Jnmðkaup-
ið fari fram. Bmst er við, að hjóna-
efnin verði annaölivort í A.þenu-
borg eða Kaupmannahöfn um pásk-
ana.
Krónprinsinn fór frá Cannes um
París og Berlín 7. þ. m. áJeiðis til
Kaupmaniiahafnar, og er búist við
að hann komi þangað á föstudags-
morgúninn. Olga priusossa verður
ekki kynt dönsku liirðinni fyr en
síðar.
Dönsk blöð um nýju stjórnina.
Kaupmannahafnarblöðin skrifa
margt um nýu stjórnina íslensku. 1
viðtali við „Politiken“ segir Arup
pi'ófessor lífsferil nýju ráðherranna,
og ..Berf. Tid.“ flytja ritstjómar-
grein um stjórnmálahorfurnar á Is-
landi.
Atvinnudeil urnar.
\ miðvikudaginn hófst nýr fund-
ur milli sáttasemjaranna og aðal-
fidltrúa verkamannasambandsins og
vinnuveitenda, til þess að reyna að
f'inna nýjan samningsgrundvöll. i
hafarvinnudeilunni hefir verið sam-
hafnarvinnudeilunni hefir verið sam
fengið verður báðum aðilum til
álita.
Dóm5málafrjEttir.
Ásgeir Sigurðsson gegu
Sveini Bjömasyni f. h.
Damkjær Petersen.
Með skipsleigúsamningi, dags. 12.
júlí 1917, tók áfrýjandi á leig'i
skipíð „Ellen”, eign stefnda D.
P. til þess að sækja salt til Ibiza
og flytja til Hafuarfjarðar eða
Reykjiavikur. 1 samningnum er
það tekið fram, að skipið beri
440 tonns Dw. og var farmgjald-
ið ákveðið .„in a lump sum" 70000
kvónur fyrir ferðina. I byrjuu
október 1917 fermdi skipið saltið
í Ibiza en samkvæmt farmskír-
teininu og sölureikningi var farín-
urinn aðcins 410 tonn og 6 dög-
um eftir fermingu skipsins greiddi
leigutaki faimgjaldið með lcrónum
04348,81. en neitaði að greiða
meira vegna þess að skipið hefði
ekki tekið 440 tonn. Lagði skipið
ekki af stað frá Ibiza fyr en í
janúar 1918, en fórst á leiðinni
hingað á tundurdufli. Árið 1920
höíðaði skipsei-gandi mál gegn
leigutaka fyrir sjódómi Reykja-
víknr til greiðslu á mismuninum á
hinni umsömdu og hinni greiddu
leigu kr. 5651.19 og lauk málinu