Alþýðublaðið - 18.05.1958, Page 5

Alþýðublaðið - 18.05.1958, Page 5
gjunnudagur 18. maí 1958. Alþýðublaðið 9 W, Randolph Burgess: í DAG nýtur fjöldi þjóða í íieíminum góðs af starfsemi hins umrædda en vanmetna bandalags, sem kallað er NATO ■— Norður-Atlantshafsbanda- lagið. ; Með tilveru sinni einni sam- an hefur Atlantshafsbandalag ið haldið uppi friði til handa þeim þjóðum, sem að því standa. Það hefur staðið vörð um frelsið og stöðvað upphlaup harðstjórna og hindrað þær í að sýna frekari ágengni. Því er oft haldið fram, að Atlantshafsbandalagið sé að- eins hernaðarbandalag, og oft hefur komið í ljós, að hernaðar toandalög eru breysk fyrirtæki. En Atlantshafsbandalagið hvílir á svo' tr-austum grund- velli, að það er langtum meira en hernaðarbandalag. Hvers yegna var það, að nokkrar þjóð ír á'káðu að koma upp sameig- ínlegum hervörnum. til þess að ibjóða heimsveldisógnunum kommúnista byrginn? Það var vegna þess að þessar 'þjóðir j voru andlega skyldar,. þær höfðu sömu hugmyndir um æðsta eðíi mannsins-. Enginn vafi er á; að þær leituðust við að vernda þjóðarein.kenni sín, ©g það hefur þeim heppnazt, en þær hafa. langtum ríkári þörf fyrir að vernda hinar sameigin legu grundvallarhugsjónir sín- ar. Þess vegna er það,. að ,,Sam. félag Atlantshafsþjóðanna“ er ekki landfræðiheiti, heldur er það heiti á andlegu bræðralagi. í>etta er hin raunverulega á- stæða fyrir því, að .aðildarríki bandalagsins eru tengd miklu traustari böndUm en frarn kem ur í sáttmála bandalagsins. Atlantshafsbandalagið lætur einnig margt fleira-til sín taka en sameiginlegar varnir aðild- arríkjanna. Það er reyndar' þáttur í starfi þess. sem það hefur leyst vel af hendi og með hverjum degi lærist því að gera því betri skií. En hinn raunverulegi vettva’ngur samn inga og samvinnu í stjórnmál- um færist' daglega meir inn á svið bandalagsins, og enda þótt sameiginlegar varnir gegn kommúnismanum séu ennþá helztu viðfangsefni þess, þú miðar samt sem áður að því, að það láti hin erfiðustu alþjóð legu vandamál til sín taka. Flestu af því, sem rætt er um í fastaráði bandalagsins, er haldið leyndu, vegna þess að það myndí koma aðildarríkjun um í miklar cgöngur, ef mál- efni, sem taka þarf fyrir á ný í ráðinu, er gert að umtalsefni í blöðum, og skoðanir. koma fram, sem eru ekki aðeins ólík ar innan hvers lands, heldpr og rfá einu landi til annars inn an bandalagsins. Atlantshafs- bandalagið verður að v-inna í kyrrþey í leit að þeirri stefnu, sem allir meðlimir þess geta aðhyllzt. En það er augljóst, að sífellt fjölgar umræðum um innan- landsmál, sem tekin eru fyrir innan vébanda Atlantshafs- bandalagsins. Er þess skemmst að minnast, svo að eitt dæmi sé tekið, að það var á fundum þess, sem að ildarríkin ræddu um bréfavið skipti sín við Sovétstjórnina. Undanfarna mánuði hafa ríkis stjórnir þessara landa fengið fjölda bi'éfa frá Sbvétleiðtog- um. ÖU þessi bréf hafa v.erið rædd þar. Aðalefni flestra bréf anna var, hvort halda skyldi fund æðstu manna. Niðurstaða Atlantshafsbandalagsins er sú, að við erum fúsir að halda stík an fund, en áður en komizt verði að samkomuiagi um, hvaða málefni æðstu menn rík isstjórnanna skuli rseða, þann- ig að búast megi við sanngjöra um árangri, þurfi mikinn undir búning og gagnkvæm skipti á orðsendingum við Sovétrikin. Bandalagið hefur tekið að sér það verkefni að hjálpa ríkis- stjórnum aðildarríkjanna að skiptast á upplýsingum og skoð unurn um öil þau málefni, sem komið getur til greina að ræða á slíkum fundi. Blöðih ræða öðru hvoru uni ólíkar skoðanir, sem koma fram maðal hinna ýmsu aðild- arríkja bandalagsins í þessum og öðrum málurn. Við sættum okkur ekki við lögboðna ein- ingu í öllum málum eins og tíðkast í Rússlandi og leppríkj urn þess. Eining okkar er byggð á heilbrigðari og traustari grundvellij og hún er meira lif andi. Henni er lýst vel af frönskum sagnfræðingi frá 19. öld, Jules Michelet að nafni: MÆÐRADAGURINN, hinn árlegi fjáröflunardagur Mæðra styrktarnefndar, er í dag. S'tarf nefndarinnar er öllum bæjar- búum svo vel kunnugt að ó- þarfi er að fjölyrða hér um það. Aðeins má minna á. að nefndinni hefur nú tekizt fyrst og fremst fvrir örlæti og stuðn ings almennings, að koma upp myndarlegu húsi að Hlaðgerð- arkoti í Mosfellssveit. Var það tekið í notkun síðastliðið sum- ar, og dvöldu þar þá tveir hóp- ar af mæðrum með börn sín, og síðar var það hvíldarvika fyrir mæður. Dvöl þessara gesta nefndar- innar var þsim algjörlega að kostnaðarlausu, því að nefndin lagði fram allt, er til þurfti. Húsið sjálft ásamt þeim bún- aði, sem þegar hefur verið afl- að. kostar nokkuð á aðra millj- jóna' króna. Sjá borgarbúar af ..Hugsjóni’n um einir.gu efl- ist að hættulausu fyrir mann- kynið, vegna þess að sérhver þjóð verður trúrri sjálfri sér við hvert það fótmál, sem fær ir hana nær samlyndi og sam komulagi við aðrar þjóðir. Ef svo ætti efti.r að fara af ein- hverjum óhugsanlegum ástæð- um, að eining þurrki burt alla margbreytni og sérkenni, þann ig að allar þióðir syngi sarca tóninn í kór, þá'væri konsertin. um lokið, vegna þess að sam hljómurinn yrði ekkert nema hávaði'. Heimi, sem hefði að- eins eina rödd, væri iafngott að tortímast, hann væri ósið menntaður ■— og engin eftir sjá væri í honum". því, að mörg blóm hefur nefpd- in þurft að selja til þess ',aið ná saman. þeirri upphæð, auk annars kostnaðar. Nú er nýtt sumar að byi\ja, og nýtt starf þarf að hefjast að sumarheimilinu. Vonast nefndin til að geta rekið heim- ilið með líku sniði og s.l. súm- ar. En hefur þó fullan hug á ,að auka það og bæta, afla hús - gagna og annars, sem þarf. tii þess að heimilið geti orðið sem vistlegast og þægilegast fvrir bá, sem, þess eiga að njóta. Þreyttar mæður og lítil börn. En hvernig bað tekst, ferf aö verulegu leyti eftir því, hvem— ig viðtökur mæðrablómið fær hjá bæjarbúum: 1 dag. Blómin eru að venju afhént í öllum barnaskólum bæjarins og á skrifstofu nefndarinpan að Laufásvegi 3. Foreldrai’, hvetjið börn vkkar til að selja mæðrablómið. Bæjárbúar, sam teinumst í dag um hið góða málefni.- V S. V La.ii:rí8iffar'þegi I rsiei Drcsttit- ' ingytiEil. DROTTNINGIN fór héða:n í fyrrakvöld áleiðis til Danmerk,. ur, sem vart er í frásögur fær- andi, en þagar skipið hafði sigíi; í nokkra klukkutíma, fannst laumufarþegi um borð. Var þaö kona nokkuð við aidur, murt hún hafa ætlað til Danmerkur. Skipinu var þegar snúið til Reykjavíkur aftur og konunni skilað tij sama lands. Tafðist Drottningin mikið við þetta. 24 'BARN AGAMAN RÓBIN SON - Eftir Kjeld Simonsen i Og nú gat Robinson Ibyrjað af alvöru að ílytja tré og setja þau niður fyrir framan hell- ismunann. Hann hlúði að trjárótunum með mold og snyddu. Og til þess að halda jörðinni rakri 1 &rin.gum trén, veitti hann. Vatni frá berginu að þeim. Hann bjó sér til stiga úr vafningsviðum. Hann ætlaði ekki að hafa neitt op á trjágirðingunni. — Sjálfur ætlaði hann að fara upp og niður gam- alt tré, sem var þarna nokkra metra í burtu. — Til þess ætlaði hann að nota stigann. Hann festi stiganum um tréð. Hann sá, að hon um hafði tekizt að byrgja vel hellismunnann. Eng- um mundi detta í.hug, að einasta leiðin inn til hans lægi upp og niður gamla tréð. ' Þegar Robinson hafði eignast sitt eigið heimili, langaði hann til bess að hafa það sem líkast æsku foeimili sínu. Og auðvitað varð hann að halda Bunnudaginn heilagan, eins og allir siðaðir menn gera. Hann þurfti því að finna upp eins konar dagatal. Ekki langt í burtu stóð gamla furutréð með sinn fallega, gljáandi, slátta stofn. Bezt var að noia það. Robinson þurfti eig- inlega að höggva ferns konar skorur í tréð — Fyrst þurfti hann merki fyrir hvern dag, annað, sem tákna skyldi vikurn ar þriðja fyrir mánuðirm pg fjórða . .. Æ, nei, guð minn góður, hugsaði Rob inson. Hann vonaði, að hann þyrfti aldrei á því að halda. Það fór nú að þrengjast í búinu hjá Robinson. — Allur skelfiskurinn var á þrotum, og seinustu kókoshnetuna hafði hann hrist niðúr úr pálmaviðar trénu daginn áður. ------ Ritstjóri : Vilbergur Júlíusson 4. tW. og gengur (Dýrasaga) Ég lá á jörðinni og teygaði loftið í löngum sogum. Mamma sleikti mig og sólin þurrkaði mig. Ég leit í kringum mig og sá há og tignar- leg fjöll og var snjór á efstu bungum'. Brattar, grösugar hlíðar teigðu sig i tungum upp á milli skriðanna, sem voru slikjugrænar af mosa. — Allt í kringum mig voru kindur á beit, sumar með lömb, aðrar belgsíð- ar. Þær voru komnar að burði. En nú vöknuðU skilningarvit mín að fullu. Ég skynjaði eitt- hvað, sem ég þurfti að fá, og ég komst á spena. Ég var nú búinn að lifa í viku og gat orðið hlaupið og leikið mér við hin lömbin. Lífio var svo skemmtilegt. Og sumarið leið, ég fór að bíta gras og varð stór og sterkur hrútur.'Og okk- ur Ieið svo vel. Ég vissi ekki þá, sem betur fer, um endalokin, enda heíði ég þá ekki verið svona glaður og áhyggju laus. En þetta tók brátt enda. Dýr, sem kölluð- ust menn, komu og sviptu okkur frelsinu. — Það var þó ekki lengi í þetta sinn. Mennirnir ráku okkur inn í eitt- hvað, sem fullorðnu kindurnar sögðu vera rétt. Það voru svo marg. ar kindur þarna, að við litlu lömbin týndum strax mömmumi okkai', þegar við komum inn í réttina. Þarna var tekiui af fullorðnu kindurLwra uliin. Svo, þegar reksty- inum var aftur sleppi, þekktum við varla mæð- ur okkar. Nú' leið' langur tími, •Við gátum leikið okkur og verið' frjáls. En svo kom haustið og þá koinu mennirnir aftur. —• Mamma sagði, að viil yrðum að reyna áð sleppa frá hundum og mö nnum. JVio reyndum, en þegar við héldum a'ð við værum sloppin, kom hundur, sem beit sVo Vor! Vor!

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.