Morgunblaðið - 03.12.1922, Page 2
MOBÖUNBLAÐIÐ
Konungl. hirðsali.
Vallarstræti 4. — Sími 153 (tvær línur).
FARIÐ ALDREI
?
I
BÍO
án konfekts úr Björnsbakarii.
Bestu jólagjafimar
eru ísaumaðir öúkar úr
Verslun Augustu Svendsen.
6 v. ,Bofnia‘
fer 5. janúar frá Kaupmannahöfn til Leith, Vest-
mannaeyja og Reykjavikur.
C. Zimsen.
Nvkomiö! Nýkomiö!
KVEN SAMKVÆMIS- og DANSSKÓR
lakk, brocade, satin og chavcroux.
KVEN GÖTUSKÓR og STÍGVJEL
chaveroux og boxcalf, mjög vönduð.
KARLMANNA STÍGVJEL
með og án táhettu úr chaveroux og boxcalf.
INNISKÓR KARLA, KVENNA og BARNA
margar og góðar tegundir.
Alt fyrsta flokks vörur með sanngjörnu verði.
1!
5kábú9in“ UEltusundi 3,
ia stjðpniii f lialiif.
London 11. nóv.
Sjaldan mun nokkurri stjóm
hafa verið veitt eins mikil at-
hygli um hoim allan, og stjórn
þeirri er nú er komin til valda
í Italíu. Bæði er það, að forsæt-
iaráðherrann nýji á sjer einkenni-
lega sögu, alt frá eldrauðum
æskuárum kommúnistans til svæsn
ustu andstöðu, eigi aðeins við
kommúnista heldur einnig við í-
haldssömustu jafnaðarmensku. Og
svo er hitt, að stjórn þessi komst
til valda með þeim hætti, að bylt-
ingu gekk næst, þvert ofan í allar
þingræðisreglur og venjur þær
er gilda um stjórnarmyndun í
lýðfrjálsu landi.
Paseistarnir ítölsku hafa ekki
haft sem best orð á sjer undan-
farin ár. Þejr hafa farið sínu
fram með frekju og ofstopa og
bardagaaðferðin verið lík því, sem
gerist hjá kommúnistum. Þeir hafa
ráðist með vopnum á mótstöðu-
menn sína og drepið þá, brent
hús og rænt, sem hver annar ó-
aldalýður. Almenningur í ítalíu
var hræddur við þá. Og víst hefði
mátt við því búast, að keimur
af fyrra háttalagi þeirra mundi
sjást í aðgerðum stjórnarinnar
nýju. En þetta virðist eigi ætla
að fara svo. Þvert á móti hefir
stjórnin farið fram með mestu
harðneskju gagnvart þeim Pas-
cistum, sem gert hafa sig Seka í
líku athæfi síðan skiftin urðu,
erns og áður voru daglegt brauð
hjá þeim, og sett þá unnvörpum
í fangelsi. Nú er kjörorð Musso-
lini þetta: Þjóðin hefir trúað okk-
ur fyrir að halda uppi lögum og
rjetti í landinu og við gerum það.
Ef stjórnin getur ekki látið hlýða
sjer, þá er hún óstjórn. Það er
mælikvarðinn.
Það er bersýnilegt, að óvenju-
lega sterk hönd hefir tekið við
stjórnartaumum Tt.alíu, l>æði inn
á við og út á við, og að mikill
framkvæmda- og umbótahugur er
í stjórninni. Út á við hefir það
komið fram, að' stjórnin vill láta
t. ka meira tillit til ítala en áður
htfir verið gert og kemur þar
fram hin ríka þjóðernistilfínning
Pascistanna. Og inn á við ætlar
stjórnin að hafa endaskifti á öll-
um þeim venjum, sem verið hafa
ráðandi undanfarandi ár.
Ítalía er engin hornreka.
Það kom til mála fyrir nokkr-
um dögum, að forsætisráðherrar
Prakka og Breta hefðu fund með
s.jer til rmdirbúnings friðarfund-
inum í Lausanne. Ritaði Mussolini
þeim þá brjef, og sagðist mundi
telja það óvirðingu við ítali, ef
þessi tvö stórveldi ræddu mál,
sem varðaði ítalíu, án þess að
stjórn hennar væri boðið að taka
þátt í umræðunum. Og á ríkis-
ráðsfundi, sem ræddi þetta mál
sagði hann, að Italir kærðu s'g
ekki um að lifa á molunum, sem
fjellu af ráðstefnuborðum Frakka
og Breta. Kemur þar fram sú
stefna, að ítalir sætti sig ekki við
að vera settir á óæðra bekk, held-
ur vera algerlega jafnfæt:s hin-
rm stórveldunum í öllum alþjóða-
málum. ítalska þjóðin er 40 milj-
ónir og ítalski forsætisráðherr-
ann er framgjarn maður. Hann
vill sýna, að ítalir hafi engu minni
rjett til að gera iit um deilu-
mál Grikkja og Tyrkja eða hverra
þjóða annara er vera skal, heldur
en Prakkar og Bretar. En liins veg-
ar vill hann liaga milliríkjasaiin-
ingum alt öðruvísi en þessar þjóðir
eru vanar að gera og fylgja öllu
fram af ofurkappi. En sú aðferð
vekur óhug hjá eldri stjórnmála-
mönnum.
Faseistaráðherrarnir virðast
framgjamir menn og athafnamikl-
ir, enda eru þeir flestir ungir.
Mussolini sjálfur er tæplega fer-
tugur, aðstoðarráðherra hans í
: n nanríkismálum 35 ára og flestir
hinir ráðherrarnir líka milli þrí-
tugs og fertugs.
*• , i
Frjáls þjóð.
Búist var við því, að Fascista-
stjórnin mundi verða ær:ð hörð
í horn að taka og að hinir gömlu
mótstöðumenn Pascistanna, eink-
um kommúnistar og jafnaðarmenn,
mundu ekki eiga upp á háborðið er
hún væri tekin við völdum. Kom-
únistar hafa ekkert látið á sjer
bæra, nema rjett fyrstu dagana
eftir stjórnarskiftin, af hræðslu
við dauðadóm eða æfilangt fang-
elsi. Nú bregður svo við, að Fas-
c'star eru hinir óáreitnustu og
stjórnin lýsir yfir því, að hún
telji skyldu sína aí láta hver :
borgara í þjóðfjelaginu njóta
frelsis og rjettar. „ítalir skulu
lifa sem frjáls þjóð undir stjórn
Pascista" segir Mussolini. „Hún
hefir ekki notið frelsis síðan 1915;
nú skal liún njóta þess. Við höf-
um framkvæmd laganna með
höndum og þau heimila öllum
frelsi sem hlýða þeim. Við sjá-
um um að lögunum sje hlýtt og
munum hlýða þeim sjálfir“.
Viðreisn arst a rfið.
1 innanríkismálum eru það eink-
um fjármálin, sem þurfa bráða
bóta við, enda telur stjómin það
fyrsta verk sitt að koma lagi
á þau. Eru það eigi smávægileg
skref, sem stjómin ætlar að stíga
þar.
Pyrst var búist við því, að ^
Mussölini mundi gera það sem
honum gott þætti í þeim málum
án þess að syrja þingið. En stjórn-
in hefir þó ekki gert þetta, enda
væri það í litlu samræmi við alt
talið um löghlýðnina. Stjórnin
SjóYát ytf tngarfjelag Islands h.f
Eimskipsfjelagshösinn. * Reykjavík.
Slmar: 54 2 (skrifstofan), 309 (framkv.sijórí).
Sfmnefnt: „Insnrance".
Allskonar sjó- og stnðsvátryggingar.
Alislenski sjóvátryggingarfjelag,
fiuergi betrl ag árEiðanlEgri uiflskifti.
ætlar að fara aðra leið: hún ætl-
ar að leggja fyrir þingið frum-
varp sem gefur stjórninni fast
að því eínræðisvald til, allra fram-
kvæmda er lúta að umbótum á
fjárhagsmálum ríkisins.. Hefir
stjórnin látið í ljósi að nokkru
leyti, hverjar breytingar hún
tdji sjálfsagðastar til batnaðar og
em þær ærið nýstárlegar á þess-
um síðustu tímum ríkisreksturs og
einokunar.
Svo fjarri er því, að stjórnin
telji ríkið hæfara til að annast
atvinnurekstur en emstaklinga,
að hún vill afnema ríkisrekstur
í þeim greinum sem sjálfsagð-
ast hefir þótt að ríkið hefði
með höndum, og mörg ríki, þar
á meðal Ítalía hafa haft um langt
skeið. Stjórnin hefir lýst yf'r, að
hún múni, ef umboð þingsins fæst,
losa ríkið við öll þau fyrirtæki,
sem hafi reksturshalla og bjóða
hlutafjelögum að taka v:ð þeim.
Eru þar fyrst og fremst símarnir,
S( m kostað hafa ríkið óhemju
fjár síðustu ár. Þeir eiga að verða
einstaklingafyrirtæki.Þá eru járn-
brautimar. Þær ætlar stjórnin að
bjóða út, skifta þe'm í flokka
og láta stofna fjögur hlutafje-
lög til að taka við þeim.
hefir jafnvel beyrst, að stjórnin
vilji láta einstaklinga taka við
póstmálunum og halda uppi póst-
göngum gegn ákveðnu gjaldi í
ríkissjóð. Hefir stjórnin þegar
látið byrja rannsókn á þessum
málum. Ekki hefir hún skipnð
nefndir til þess e:ns og venju-
legt er, heldvtr falið einum manni
að gera tillögur um hverja grein
þessara mála og fengið honum
aðstoðarmenn eftir þörfum.
Friður i lamdi.
Enginn andmælir aðgcrðum
stjórnar'nnar. Menn horfa forviða
á þessa nýju menn, sem komnir
eru til valda, og hafa ekki enn
áttað sig á því, hvaS er aö gerast.
Stjórniu á sjer mikið fylgi í
landinu, fyrst og fremst flokk
sinn, sem telur fjórar miljómr
manna og svo einnig í halds-
flokkinn. Mótstöðumennirnir
hreyfa ekki andmælum.
Þjóðin hefir sætt sig við nýju
stjórnina og finst hún rjettlát og
mikils af henni von. Það er engin
hálfvelgja í gerðum hennar og
hún liefir hlotið aðdáun mótstöðu-
flokkanna fyrir það, hve rögg-
samleg hún sje og óhlutdræg,
Það þykir vel af sjer vikið, að
hún ljet setja í fangelsi um 100
Pascista, sení gerðu sig seka í
uppivöðslum eftir að hún kom til
valda. En þó eru það mestu verð-
leikar stjórnarinnar í augum þjóð-
arinnar, að hún hefir friðað land-
ið. ftalir voru orðnir þreyttir á
hinum sífeldu óeirðum Pascista
og Kómmúnista Og þráðu frið-
ii.u hvaðan sem hann kæmi. Nú
er hann korninn — frá ribböld-
unum sjálfum. En það er ómögu-
ltg't að segja hvort hann verður
nema stundar friður, því þjóðin
ei hvikul í lund og örgeðja. En
það er ýmislegt sem bendir á að
hann muni verða langgæður og
að stjórninni nýju takist, að
bjarga landinu úr þeim ögöng-
um sem það var komið í. Pari
s\ o verður Mussolini skipað á
bckk með þjóðarbjargvættinum
Garibaldi í sögu komandi ára.
Erl. símtrriniir
frá frjettaritara Morgunblaðrins.
Khöfn 2. des.
Grikkjakonungur fyrir herrjetti.
London: Búist er við, að Grikkja
konungur og bróðir hans verði
kallaðir fyrir herrjettinn. Páfinn
hefir blandað sjer í málið, og bið-
ur Grikki að forðast fleiri líflát.
Árás á Lloyd George.
París: Blaðið ,,Matin“ hefir
birt mörg leynileg skeyti frá ár-
inu 1920 til Venizelosar frá Lloyd
George, þar sem hann hvetur
Grikki til hernaðarins. „Matin“
fullyrðir, að þeir sem sekir sjeu
í laun og veru sjeu þeir Llovd
George og Venizelos.
Frá pýskalandi.
Berlín: Forugj íhaldsmanna,
Ehrhard kapteinn, hefir verið tek-
inn fastur og fluttur til Leipzig
(tg stefnt þar fyrir ríkisrjettinn.
Timarit
lögfræðinga og hagfræðinga.
Nýkomið cr út. fvrsta hefti uf
tímariti, sem svo heitir. Er til þcss
ætlast, að það komi út einusinni í
hverjum ársfjóröungi, 2y2 örk í
livert skifti, og kostar á ári 20 krv
Það er gefið út af fjelagi, sem
í cru flestir lagamenn og hagfreó-
ingar í Itvík, og ætlun þess er að
ræöa lögfræðileg og hagfræöilcg
cfni. ASallega á það að flytja fruin-
samdar fræöigreinir, ritdóma og
fagnýungar frá útlöndum, en líka
aö taka þátt í umræðum um mikils-
varðandi löggjafarefni og lagafram-
þvæmdir, cftir því sem atvik renna
til. 1000 kr. styrk hefir fjelagiö
fengið úr Sáttmálasjóöi til litgáf-
unnár.
T stjórn fjelagsins eru prófessor-
arnir Lárus H. Bjarnason og Ólaf-
ur Lárusson, og Þorsteinn Þorsteins
son hagstofustjóri.
AðalritgerÖin í þessu 1. hefti er
um hlutafjelög á Tslandi, eftir Ólaf
Lárusson prófessor.