Morgunblaðið - 20.03.1923, Síða 4

Morgunblaðið - 20.03.1923, Síða 4
MORGUNBLAÐIÐ fiuErs uegna ei „Smára* ‘ -smjörlíkið betra en alt annað smjörlíki til viSbits og bökunar? Aí því að það er gert úrfjrrsta flokks jurtafeiti. — Húsfreyjur, dæmið sjálfar um gæðin. Hugl. dagbuk Hreinar ljereftstuskur kaupir ísa- foldarprentsmiðja bæsta verði. Divanar, allar gerðir, bestir og ó- dýrastin, rEúsgagn averslun Beykja- víkur, Laugaveg 3. Postulínsbollar 55 aura, Vatnsglös 30 aura, Tauvindur, Taurullur, Mjólk- urkönnur, Færslubrúsar, Hitaflöskur. Ódýrt. — Hannes Jónsson, Laugav. 28 14 ára drengur getur fengiö atvinnu utan-bæjar frá 1. maí til september- loka. Upppl. í pingholtsstræti 11, (norSurdyr), kl. 1—2. Grammófónplötur fyrirliggjandi: — Söngvarar: Caruso, Titta, Ruffo, Her- old, Cornelius, Schjaljapin, Dargoni, Forsell, Ralf & Borgström („Glunt- hrne“), Geraldine Farrar, Karin Od- erwald-Lander,, Eggert Stefánsson, Pjetur Jónsson o. m. f). Fiðlusólóist- ar: Jaseha Heifetz, M. Michai'loff, Kubelik, Marjorie Haywood o. fl. — Pianosóló: Paderewski o. fl. Harmon- íkusóló: Pietro Deiro, GTÍgorij Matu- sewitsch o. fl. Balalajka-, Komet-, flygel'horn-, okkarina-, Hawaiian-guit- ar-plötur. Orkester, kór, kvartett, dú- ett. Nú eru síðustu forvöð að kaupa Caruso-plötur. Hljóðfærahúsið. Nikkelering á a!ls konar reiðhjóla- og mótorhjóla-hlutum, er ódýrast í FÁLKANUM. Hjólhestar eru teknir til víðgerðar í Fálkanum. Kjallarapláss til leigu í húsi í mið- bænum. Hentugt fyrir vörugeymslu, verkstæði eða iþess háttar. Upplýsing- ar i síma 444. Eftir Halldór frá Laxnesi. (Bögesö, apr. 1920. Til frk. Oh.) 1- Svo lítill er bærinn, að jafn- vel hvert barnið meðal íbúa hans þekkir Seif, hund skáldsins. Þeir komu báðir frá útlöndum fyrir einu ári og skáldið hefir getið sjer frægð fyrir skáldspeki sína, en Seifur aflað sjer vinsælda vegna herra síns. Híbýli þeirra eru í fyrstu hæð húss nokkurs í Aðalstræti. Skáldið situr þar oft og þungur 4 svip, því mörg er raunin í hugheimum. En á gæruskimii frammi við dyrn- ar sefur hundur hans, öruggur í trygð sinni. Stundum ganga þeir um á strætum úti; ménn lyfta hattinum fj'rir skáldinu. En konur og böm gæla hundinum og hann diliar rófunni og brosir svo innilega sem hundar einir geta brosað. Seifur er skotskur að kyni: feldurinn síðhárr og stríkend loðn an, Og svipurinn fullur af vin- áttu svo alla langar til að strjúka honum um langa trýnið. Þrifinn er Seifur, kurteis og inndæll eins og góður Breti og ber á sjer að- alsmerki í hundahópi. Þegar skáldið er boðið til gilda, hefir hann Seif jafnan í fylgd með sjer, hvort það er gagnstætt mannasiðum eða ekki. Því allir taka vel við Seifi. Hann tyllir sjer niður og heilsar með hægri löppinni og með hægri löppinni þakkar hann allan beina; glappa- skot verða honum aldrei á. Að skilnaði kveður hann með hægri löppinni. Að þetta sje gert í kurteisisskyni eða þakklætis, kem- ur Seifi ekki við, en hitt veit hann, að það var vilji herra hans. En í' því er gleði Seifs fólgin, að gera vilja herra síns. Sjest hefir Seifur undir borðum með fógetanum og hjeraðslækn- inum og ýmsu heldra fólki bæj- arins. Hann var alvarlegur og kurteis, gjálfraði ekki nje kjams- aði, en tók þakklátur við bita og bita frá gestunum og át græðgis- laust. Á stundum gaut hann aug- unum til herra síns eins og til að spyrja, hvort hann hefði nokkuð út á hann að setja. Að loknum málsverði gekk hann fyrir hús- ráðendur og þakkaði fyrir sig raeð hægri löppinni. — Fátt tek- ur fram góðum hundi, segja ýms- ir, án þess þó að hugleiða, hve satt þeir mæli. Trauðla fellur meiri hamingja í hlutskifti hunds en sú, sem Seif- ur á við að búa: Hann er herra sínum huggun í ámanum, börn gæla honum, kvenfólk hefir mæt- ur á honum, jafnvel dóttir bæj- arfógetans hefir strokið Seifi. — Og þó er engin ungra kvenna svo stolt sem hún; það kvað vera satt, að hún þoli ekki karlmann í minna en þriggja álna fjarlægð. Lækniábörnin hafa faðmað Seif og kyst, þó þau ekki megi leika sjer með nágrannabörnunum. En nágrannabörnin eiga eyrarkarl að föður og þar að auki eru þau látin veltast í svaðinu með botnlausa stígvjelagarma á fótunum og nef- in ýmist rauð eða blá af eilífum kulda og óhirðu og vesaldómi. 2. Einu sinni vissu menn til, að Seifi hefði fatast kurteisin. Það var í óhemju ríkmannlegu veitsl- unni stóra heildsalans, þar sem hvert glas var mölvað að síðustu skálinni tæmdri. Þegar glasa- bramlið stóð sem hæst tók hann að gelta og æða eins og villidýr i skógi eða eins og hann hjeldi að ihjer væru allir af göflum gengn- ir, og sjer væri því leyfilegt að henda dálítið skop að þeim öllum saman. En einmitt í þessari veitslu varð Seifur vitni þess, að herra hans, ör af hinum þekku vínum, kysti dóttur heildsalans á hvíta hönd- ina. Þetta skeði á þann veg, að þau mærin og skáldið sátu bak við pálmana og töluðust við meðan hljóðfærin voru slegin. En Seifur lá á gólfinu við fætur herra síns og hvíldi trýnið á útrjettum fram löppunum. Tveir mjúkir fingur struku um hnakka hans, og þeg- ar hann leit upp, mætti honum vingjamlegt augnaráð, það var meyjarinnar. Seifur dillaði róf- unni og brost.i, ,en mærin sagði við skáldið-: Fallegur er hundurinn yðar, Arinbjörn, tígulegt dýr, jeg get næstum borið virðingu fyrir honum. Fje er jafnan fóstra líkt, — jeg held að hann hafj lært sitt- hvað af yður. — Seifur er besti vinur minn. Og þótt við ekki tölum sama mál- ið, þá skiljum við hvor annan eins og 'daufdumbir tvíburar. Jeg gæti sagt yður margt af okkur Seifi. — En fólki leiðast altaf sögur af hundum. — Nei, þvert á móti: jeg hefi einmitt svo dæmalaust gaman af hundum, já, jeg blátt áfram elska hnnda, einkanlega rottuhunda. Jú, þjer ættuð að segja mjer ein- hverja sögu af hundinum yðar. — Ja, hverja ætti jeg að tína til! Hundurinn sá arna er helm- ingurinn af sjálfum mjer! Framh. -------Q----- Leikhúsið. Víkingarnir á Hálogalandi Leikfjelagið hefir nú tekið sjer fyrir hendur að sýna merkilegan leik, þar sem eru Víkingarnir á Hálogalandi eftir Hinrik Ibsen. Þeir voru fyrst sýndir hjer fyrir rúmum 30 árum, nálægt 1890, en þar næst, að sögn, fyrir eitthvað 20 árum, skömmu eftir aldamót- in. Fæstir hjer hafa því sjeð leik- inn áður. Hann er frá yngri ár- um Ibsens og er saminn upp úr íslenskum fornsögum. Viðburðir eru teknir þar úr Eddukvæðunum, Egils sögu, Laxdælu o. s. frv. og tvinnaðir saman í nýja heild, af líst og með skáldkyngi, svo sem vænta má af höfundinum. Leigfjelagið hefir vandað til sýningarinnar, fengið ný og falleg leiktjöld og búninga, sem eiga að nálgast sem mest þann klæða- burð, sem tíðkaðist á víkindaöld- inni. Meðferð leikenda á efninu er öll sæmileg, og sum hlutverkin eru vel leikin, svo sem Ornólfur bóndi, Dagný og einnig Hjördís að mörgu leyti o. fl. Leikur þessi ætti að verða vel sóttur. Hann er viðburðaríkur og stórfengilegur. Og þótt hann fari fram í Noregi, á hann við forn- öld íslands engu síður en fornöld Noregs. ------o----- Dagbók; □ Edda 59233207—1 A C. Pöstuguðsþjónusta í fríkirkjunni í Hafnarfirði ó morgun kl. 7% síðd.; sjera Ólafur Ólafsson. Gullfoss fór hjeðan í gær síðdegis suður um land til Austfjarða, áleiðis til Noregs og Danmerkur. Farþegar voru til Khafnar: E. Nielsen fram- kvæmdarstj. og frú hans og barn, Goos stórkaupm., Oddur Rafnar og Guðm. Vilhjálmsson framkvæmdar- stjórar, Guðm. Jensson, B. H. Bjarna- son kaupm., Ó. G. Eyjólfsson fyrv. kaupm., fröken Hansen, Páll Stein- grímsson rithöf., frú Kristjana Gunn- arsson, ungfrú Laufey Gunnarsson, Gífli Jónsson. Til Bergen fóru: Thor Jensen stórkaupm. og dóttir hans, Eristín, Jónatan porsteinsson kaupm., Stefán Thorarensen og frú hans, ung- frú Elín Hafstein, Möller verkfræðing vr, Halldór Hallgrímsson klæðskeri, Haraldur Jónsson, Joel Lundberg og skipshöfnin af „Ynnur“, sem strand- aði í Vestmannaeyjum. Til Austfj.: Guðm. Loftsson útibússtjóri og frú huns, Friðgeir Hallgrímsson kaupm., Einar Metúsalemsson kaupm., Guð- mundur og Davíð Jóhannessynir kaup menn, Marteinn porsteinsson kaupm., Merk/ö "EJdabuska (Kokkepig'e) oö p<3ö ep óaýpasta oó hreJnasta feJt/ fdýrtfðinni. IHir kauifjElags iniA verður haldinu í kvikmyndahúainu hjer í bænum föatudaginn 23 þ. m. og hefst kl. 7 síðdegis. Dagskrá samkvæmt fjelagslögunum. Hafnarflrði, 13. mars 1923. St j ó r n i n. P. QJ. Qacobsen B Sön Timburverslna. Stefnað 1834 Kanpmannahöfn C, Símnefni: Granfuru. Carl-Lundsgade. New Zebra Code. Selur timbur í ítærri og irnœm sendingum fr& Khöfn. Eik tfi skipasmíða. Einnig heila skipsfarma fr& Svíþjóð. Biðjið tílboð. A® eins heildsala. Magnús Bl. Jónsson prestur og P. V. Jensen. Trúlofun sína opinberuðu nýlega Sigrún Konráðsdóttir og Eyjólfur Eðvaldsson loftskeytamaður. Lagarfoss fór hjeðan kl. 8 í gær- kveldi til Englands og Danmerkur.— Earþegi var Eggert Claessen banka- stióri. - Villemoes fer hjeðan í dag vestur og norður um land til útlanda. Belgaum kom frá Englandi í Sær- Mun það vera síðasti togarinn, sem til Englands fór með fisk- Maí kom af veiðum í gær. -------o—----- Oýraverndun. Af því að undanfarna daga hef- ir verið minst á í blöðunum hluta- veltu þá, sem Dýraverndunarfje- lagið boðaði til, og menu eggjaðir á að -láta eittbváð lítið af hendi rakna, þessu góða málefni til stuðnings, hefir mjer dottið í hu'g, hvort það mundi vera svo fjarn sanni, að dagblöðin birtu við og við góðar dýrasögur. Mætti það teljast mikill ávinningur, ef hægt væri — meðal annars a þann veg — að opna augu almennings fyr- ir því, að maðurinn sje í raun og veru ekki sú eina skynsemigædd vera; og meira að segja, að hjá mörgum þessara mállausu syst- kina okkar, koma greinilega í ljós þeir kostir, er hjá manninum eru taldir vera æðra eðlis. Enginn hörgull ætti að verða á því, að slíkar sögur bærust til blaðanna, því að skynsamt alþýðnfólk get- ur oft sagt vel sögur, sem það hefir einhverntíma heyrt, og jafn- vel stungið niðnr penna, þegar eitthvað liggur við. Ef þetta yrði til þess að vekja áhuga hjá fólki, getur verið, að fleiri gerðust þá líka kaupendur að „Dýraverndaranum“. Dýravinur. -------o—------ 800 börn frá Ruhr til Danmerkur. Á styrjaldarárunum fluttust, eins og kunnugt er, fjölda mörg börn frá Þýskalandi til Danmerk- ur, um stundarsakir, vegna þeirr- ar neyðar, sem þá átti sjer stað víða um Þýskaland. Voru það einkum danski þingmaðurinn I. P. Nielsen og guðfræðingurinn Alfred Jörgensen, sem fyrir þessu gengust þá. Enn hafa Danir sýnt það misk- unnarverk, að útvega 800 þýskum hörnum, frá Ruhrhjeraðinu, sama- stað í Danmörku víðsvegar. Komu börnin þaugað í fyrra mánuði. Er svo sagt af þeim, sem fyrir þessu gangast og kunnugir eru ástand- inu í Ruhr, að það sje hið hörmu- legasta, og liggi ekkert annað en hungurdauði fyrir mörg hundruð börnum, sje þeim ekki bjálpað.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.