Morgunblaðið - 06.04.1923, Side 4

Morgunblaðið - 06.04.1923, Side 4
MORGUNBLAÐIÐ Muníð að Mjólkurfjelag Reykjavíkur sendir yður daglega heim mjólk rjóma, skyr og smjör yður að kostnaðarlausu. Pantið í sima 1387. Fæst l heildsölu hjá Bjarni Olafsson & Co. Akranesi og A. J. Bertelsen. Austurstræti 17, Reykjavík Sími 834. Hugl. dagbók Broncelakk gerir gamla skó sem rvýja. pórður Pjetursson & Co. Divanar, allar gerðir, bestir og ó- dýrastin, Húsgagnaverslun Reykja- víkur, Laugaveg 3. Góður matarfiskur til sölu. Sími 994. • Neftóbak skorið. Dósin full með tóbaki, alt fyrir aðeins 0,75 og 1,00 í Lucana. Steinolía, sólarljós á 32 aura lít- irinn í verslun Guðm. Guðjónssonar, Skólavörðustíg 22. Sími 689. Fæði fæst á Grundarstíg 12. Vatnsglös 30 aura, Bollapör 50 aura, Blómsturpottar, Rafmagnsstrau járn 11 kr. Ódýrar aluminiumvörur. Hannes Jónsson, Laugaveg 28. Herbergi óskast til leigu. Upplýs- ingar á Skjaldbreið nr. 3. Hver er orsökin? Mig rekur minni til, að hafa lesið einhverstaðar eftir Gnðmund Hannesson „læknislistamann", — eins og Guðmundur á Sandi kemst að orði um nafna sinn — ihvað brýn þörf það sje fyrir þjóðina, að fundnar verði orsakir að meinsemdum manna, og að læknum beri að starfa hjeraðengu siður en að því að lækna. Verð jeg að telja víst að þessi skoðun iæknisins samrýmist vel skoðun- um .annara lækna landsins og fjöldans, og að hann og aðrir læknar starfi hjer að og hirti á- rangurinn í hinum víðlesnu blöð- um með þjóðinni. En orsökin til þess að jeg sting niður penna um þetta mál ei sú, að áminst hugvekja lækn- isins bljoðar, eins og allir sjá um mjög þarft efni, en óalgengt tiltölulega — með þessari þjóð. Og svo er það líka, að jeg fæ ekki betur sjeð, en að svo nefnd iiðagigt í öllum sínum myndum, hryggskekkja m. m., sje að verða hreinasta landplága vor á meðal. Þess væri því full þörf, að iæknar reyndu að finua orsökina tii sjúkdómsins og birtu niður- stöðu sína. Það er án öfga þó sagt sje, að 4. hver ung stúlka í sumum bygðarlögum landsins hafi að- Icenningu af þessum sjúkleik og á mismunandi háu stigi. Kemur sjúkdómurinn einkum í ljós á aldrinum 16—26 ára. Nokkuð gerir hann einnig vart við sig hjá piltum, en mun minna, enn sem komið er. Sjúkdómurinn er mönnum al- vöruefni, því þess eru því miður nokkur dæmi,' að hann hefir ger- samlega eyðilagt framtíö efnilegra meyja og gert þær að örkumla aumingjum, þrátt fyrir mikinn tilköstnað til hjálpar þeim. Það virðist og heldur enginn vafi, að sjúkdómurinn fer hröð- um fetum í vöxt. Slær því óhug yfir þjóðina. Fyrir 15—20 árum bar lítið eða ekkert á þessum kvilla. Er því ekki furða, þó mönnum verði á að geta þess til, aö sjúkdóm- urinn standi í sambandi við hreytt lífsskilyrði, frá því sem áður fyr var, hvað snertir fæði og klæðnað með meiru. Nú er miklum mun minna en áður lifað á því, sem landið gefur af sjer. Það er sam- eiginleg með fæði og klæönað, að inest er nú notað útlent. Vinnulag er einnig mikið breytt. Börn og unglingar vinna mikið minna en fyr og virðast að öllu nú mun betur með farin, enda allar kröfur til vellíðanar mikið hærri. Er það þá bætt líðan líkamans, sem skapar veik- bygðari æskn og þrekminni þroskaþjóð? Meira andlegt erfiði leggnr nútíðin á æskuna en liðna tíðin gerði, sem fylgja kyrsetur og sjerstakar líkamsstellingar. — Hvað líður heilbrigðinni fyrir þessa breytingu? Læknar þurfa að rannsaka þetta. Þeir þurfa að finna or- sakir til afleiðinga. Orsakir fyrir liðagigt og öðrum nýjum sjúk- dómum með þjóðinni. Þeir þurfa að skrifa um þetta helst á þeim stað, að margir megi lesa. 1. dag Einmánaðar 1923. B. F. Magnússon. -------o-------- Það hygg jeg, að fleirum en mjer hafi brugðið kynlega við, er þeir sáu úthlutun stjórnarráðs- ins á styrk til skálda og lista- manna á þessu ári. Jeg játa það að mjer er ekki fullkunnugt, eftir hverjn «r farið, þegar fje þessu er skift, en mjer skilst að fara beri eftir tvennu: listfengi njót- enda og svo þörf. Og meðan nefnd sjerfræðinga rjeð mestu um meðferð fjár þessa, ætla jeg að á þetta tvent hafi verið litið eink- um, var og þá lítt fundið að veitingunni og ekki opinber- lega, svo jeg muni. En nú tók alþingi í fyrra nefnd þessa af og fól alt stjórninni. Það, sem bneykslar mig mest er, að þeim Hjálmari Lárussyni: útskurðarmanni og Jakob Thor- arensen skáldi skuli hafa verið neitað um styrlcinn. Þeir hafa báðir notið hans undanfarin ár, og gátu vissul. búist við að halda honum ekki síður en aðrir. Um hæfileika þessara manna er óþarft að fjölyrða. Jakob er fyrir ali- löngu viðurkendur sjerkennileg- asta og slyngasta skáld hinna yngri manna, munu allmörg kvæði hans lifa á alþýðuvörum, en það rná telja víst mark á um sannan skáldskap, að hann sje fljótt num- inn, en seinn að gleymast. Jakoh mun ekki vera fjesterkur maður, en hefir allþnngt heimili og þó það sje vitanlegt að hann mnni sjá því borgið meðan honnm end- ist heilindi, með því að vinna „hörðum höndum“, þá er það víst að mörgum mundi leitt þykja, ef hann yrði að leggja kveðskap sinn niður fyrir óðal vegna strits og slits. Er hann enn á hesta þroskaskeiði og mætti enn mikils áf' honum vænta, ef hann fengi sín að njóta. Um Hjálmar Lárusson er það að segja, að hann má óhætt telja rneð bestu listamönnnm þjóðar- innar. Er hann dverghagur á liönd, en verk hans flest má engu síður t'elja ágætasta skáldskap en listasmíð að hagleik til. Var stjórninni vorkunnarlaust að vita þetta, því um Hjálmar og verk hans hefir verið allmikið ritað, og hafa þaS gert fnllgildir menn, svo sem Sigurðnr prófessor Nor- dal o. fl. Gripir þeir, er Hjálmar hefir gert eru í ýmsra manna höndum hjer í bæ og víðar, og ætla jeg að eigendum þeirra þyki ekki aðrir gripir betri. Það hefði og stjórnin mátt vita að Hjálmar var nú í vetur fenginn til að gera kjörgrip er nemendur Höffdings prófessors og heimskekings hins danska, sendn lionum að afmælisgjöf. Ætla jeg að þeir, er gáfu, hafi viljað vanda sem best grip þann, og því feng- ið Hjálmar til að gera gripinn, að þeir hafi álitið hann öðrum hæfari til þeirra hlnta. Höff- aing' prófessor er nú frægastur mauðr á Norðurlöndum einhver,og tel jeg Hjálmar hafa unnið landi sínu sæmd, með því að gera grip þann, er boðlegur var þeim manni. Hjálmar er fjelítill maður, hefir mikinn þunga ómegðar og heilsulitla konu. Má því telja, — þegar á alt er litið — að unnið hafi verið níðingsverk á honnm með því að svifta hann styrkn- um. — Jeg sje ekki annað en þing það er nú situr verði- að hæta úr þessum mistökum stjórnarinnar. A irðist mjer að það ætti að telja, sjér það bæði ljúft og skylt. Á það óbeinlínis sök á þessn með því af fá stjórninni einræði um þessa hluti. Er jeg vís þess að það mundi mælast vel fyrir, ef þeim Jakob og Hjálmari væri nú veittur á aukafjárlögum all- ríflegur styrkur, og á næstu fjár- lögum einnig; en það er ekki til neins að skera styrk til þessara manna svo við neglur sjer, að hann dragi þá ekkert á götu. Jeg trúi ekki fyr en jeg tek á, að alþingi íslendinga vilji eiga þátt í því, heinan eða óbeinan, að Hjálmari Lárussyni verði búin ellikjör og æfilok nafna hans og afa frá Bólu, en til hans mun Hjálmar sækja listfengi sitt og líkjast honnm um marga hluti. 23. mars 1923. Egill. Sieuejön Jónssan B 6 k a - o g pilfangaverslun Laugaveg 19. Sími 50íi. Þar eru best bókakaup. — ódýrust allskonar ritföng. Heildsala. Smásala. SkiftafunÖur í þrotabúum kaupmannanna Sigurjóns og Einars Pjeturssona, sem rekið hafa sem ábyrgir fjelagar verslun hjer í bænum með firma- nafninn „Sigurjón Pjetursson & Co.“, svo og klæðaverksmiðjuna á Álafossi, verður haldinn í bæjarþingstofunni þriðjudaginn 10. þ. m. kl. 10 árd. Verða þar teknar akvarðanir um meðferð eigna og útistandandi skulda búanna o. fl., Bæjarfógetinn í Reykjavík, 3. apríl 1923. Jóh. Jóhannesson. Dagbófc. I. O. O. F. 104468%. — I. e. Guðspekifjelagið: Septímufundur í kvöld kl. 8y2- Efni: Skapgerðarlist (IV. kafli). Smávegis missögn hafði slæðst inn í þingtíðindin í gær, þar sem sagt var frá umr. um frv. um rjett og skyldur hjónabands og sagt að frk. I. H. Bjarnason hefði verið fram- sögumaður, en það var Jón Magnús- son, en I. H. B. talaði þar á eftir, og er þetta hjer leiðrjett eftir ósk hennar. Hjónaefni. Ungfrú Ása Briem, dóttir Sigurðar póstmeistara og Jón Kjartansson full.trúi, hafa nýver- ið opinberað trúlofun sína. » Af gjöfum þeim, er Morgunblaðið veitti móttöku í f. m. til fátæku hjónanna hjer í bænum, liefir gleymst að geta um kr. 28.15 frá Dýravermd- unarfjelagi Islands. Við áður auglýstar gjafir til fá- tæku hjónanna kr. 178.00 hefir bæst frá R. kr. 10,00' og frá K. L. G. kr. 10.00. Hljóðfæraskólinn. Kensla er nú aft- ur byrjuð í hljómskálanum við tjörnina. Nýir nemendur verða tekn- ir, og geta þeir snúið sjer annað- hvort til O Böttchers, sem er að hitta suður í skála á kvöldin, eða til Póls ísólfssonar, Kirkjustræti 4. Kaup Hæstakaupstaðarins á ísa- firði, sem frá var sagt hjer í blað- inu í gær, hafa verið deilumál 'þar í kaupstaðnum að undanförnu, með því oð borgaraflokkurinn þar telur það óráð, að bærinn ráðist í svo stórt fyrirtæki, sem þar er um að ræða, cn hann er nú í minnihluta í bæjar- stjórninni. Brjefritari sá, sem skýrt hefir frá þessu máli hjer í blaðinu, er sýnilega kaupunum fylgjandi, en Morgunilaðið málinu of ókunnugt til þess, að það geti nokkurn dóm á það lagt, eftir eigin þekkingu. Nú hefir það fengið. þær upplýsingar, að margir af bestu og nýtustu borgur- um ísafjarðar sjeu kaupunum and- vígir. Sá guðrækni í Alþ.bl. er enn á villigötum. Ef hann vildi líta í sögu Íslands frá árinu 1000, mundi hann geta sjéð, að einmitt það var þá gert með lagaboði, sem hann hyggur að ógerlegt sje. Líka mætti benda honum á það, að ummæli hans um óhelgi eignarjettarins eru ekki aðeins í ósamræmi við stjórnarskrána, held- ur líka í ósamræmi við „guðs lög“, þ. e. 7. boðorðið, sem hann þó vafa- lanst hefir lesið fyr á árum. — Taki hann nú pennann enn, heilla-karl- inn, og segi okkur, hvernig hann skilur 7. boðorðið. Signe Liljequist, söngkonau finska,. sem áður hefir verið getið hjer í blað inu, hefir nú afráðið að koma hingað í vor og halda hljómleika. Kemur hún hingað í byrjun maí. Hljómleikar próf. Sveinbj. Svein- bjömsson verða haldnir í Hafnar- firði annað kveld. Eiga Hafnfirð- ingar þar von góðrar skemtunar, er þeir munu fjölmenna á. Dagskrá Ed. í dag: 1- Frv. til 1. um rjettindi og skyldur hjóna; 3. umr. 2. Frv. til 1. um vita- byggingar; 3. umr. 3. Frv. til 1. um atvdnnu við vjelgæslu á ísl mótor- skipum; 3. umr. 4. Frv. til 1. um heim ild fyrir ríkisstjórnina til að banna dragnótaveiðar í landhelgi; 3. umr. 5. Frv. til 1. um viðauka við 1. nr. 33, 27. júní 1921, um lífeyrissjóð barnakennara og ekkna þeirra; 3. umr. 6. Frv. til 1. um takmörkun á húsaleigu í kaupstöðum landsins;, frh. 2. umr. Dagskrá Nd. í dag; 1. Till. til þál. um innlenda baðlyfja- gerð og útrýmingu fjárkláða; síðari umr. 2. Frv. til 1. um viðauka við lög um vegi, 22. nóv. 1907, nr. 57; 3. umr. 3. Frv. til stjórnarskipunarlaga um breyting á stjórnarskrá konungs- ríkisins íslands, frh. 2. umr. 4. Frv. til 1. um breytingu á samkomutíma reglulegs alþingis; 1. nmr. 5. Frv. til 1. um útsvarsskyldu vatnsnotenda; 1. umr. 6. Frv. til 1. um breyting á L ur. 41; 1. um. 7. Frv. til jarðræktar- laga; frh. 1. umr. 8. Frv. til hafnnr- laga fyrir Siglufjörð; 1. umr. (Ef deildin leyfir). 9. Frv, til !. um breyting á 1. nr. 43, um varnir gegn berklaveiki; 1. umr. (Ef deildin leyf- ir). 10. Frv. til 1. um breyting á 1. nr. 43, um varnir gegn berklaveiki; 1 umr. (Ef deildin leyfir).

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.