Morgunblaðið - 17.04.1924, Page 4

Morgunblaðið - 17.04.1924, Page 4
MORGUNBLAÐIÐ að leggja hjer í land síld til sölt unar.Enda er það auðsjeð á norsk um blöðum t. d. „Fiskets Gang“ að þessi iög hafa Norðmenn altaf verið hræddir við, enda gert íyrir spurnir árlega til stjórnarráða ís lands, gegnum konsúl sinn, hvort þau lög mundu verða notuð, enda kemur það beint fram frá Norð manna hálfu að þá yrðu þeir að hætta þegar þau lög verða notuð Jafnframt þarí að breyta síldar matslögunum, þannig að lögskipað væri, að mála á efri botn hverrar tunnu stórt lögskipað merki, sem sýndi tegund og flokk síldarinn- ar, nokkuð Hkt og nú er á kjöti Annað merki minna ætti líka að mála innan á háls hverrar tunnu, til að útiloka að hægt væri að taka botn úr matinni tunnu og setja á ómetna. Söltun á hafinu. J?að eru svo margir hræddir um að Norðmenn muni auka svo veið- ina fyrir utan landhelgina, að við komumst í vandræði með að selja okkar síld, en þetta er sá mesti misskilningur, sem stafar af ó- kunnugleika á verkunaraðferðinni, enda. hefir þessi söltun fyrir utan línuna, stöðugt farið þverrandi hin síðari árin. Geta allir skilið að það er dýrara, að halda dýrum skipum í gangi á hafinu til að salta í síld, heldur en í stöð á landi, þar sem landrými er nægi- legt, enda verður vinnan ódrjúg og ilt aðstöðu í misjöfnu veðri á hafi, ef landhelgin er varin nokk- urn veginn. En þó er aðalatriðið, að sxldin verður verri. pví annaðhvort er síldin „rundsöltuð“, eða bara mokað niður í tunnurnar og svo kverkuð þegar heim kemur, eða þá að síldin er fullkverkuð, en þá verður eins og í hinu tilfellinu að koma fullum tunnum frá, og verð- ur því að láta þær niður. Bætist þá stöðugt ofan á þær, þangað til skipið er fult, en með þessu móti er ekki hægt að halda við pækli á síld'nni, nema að litlu leyti. pessi síld er því ekki samkepnis fær við síld verkaða í landi. En þrátt fyrir það hefir henni verið blandað saman við íslenska síld metna og verkaða í landi, af því að tegundin er sú sama, en tunn- urnar ómerktar. ‘ I Sögulok. J?að er eins og hlakki í herra Helga Valtýssyni yfir-því, að á- stand útgerðarinnar sje verra en hr. Ólafur Thors segir, og má hunn gleðjast yfir því ef, hann vill, en jafnan mun herra ólafur Thors verða talinn betri íslend- ingur í þessu máli en hr. Helgi Valtýsson, enda munu hagsmun- irnir harla ólíkir, og vinningurinn eða vonirnar um þá misjafnar. En það má hr. H. V. og Norð- menn vita, að þó illa láti í ári hjá okkur, þá er þó svo mikil seigja til í íslensku þjóðinni, að töluvert mun að sverfa, fyr en undan verður látið, ef samtök elcki skorta, sem jeg veit að ekki mnn vera, enda væri sá stjórn- málaflokkur dauðadæmdur, svo langt sem vötn falla til sjávar á landi voru, sem hikaði nú við að halda fram fylstu kröfum okkar, eða ljeti nokkurn bilbug á sjer finna. Og ekki munu land- vættir íslands heldur sofandi eða útdauðir, og munu þeir nú sem til fcrna verja okkur fyrir ágangi austan að, þó þeir ljetu fæðing- arrjett hr. Helga Valtýssonar giepja dómgreind sína þegar hann kom úr sinni síðustu utanlands- för. — Kristján Bergsson. Drjef tii Alþingis. o (Borgarstjóri hefir sent alsherj- arnefnd neðri deildar brjef það er hjer fer á eft'r og jafnframt beðið Morgunblaðið fyrir það til birt- ingar. Snertir það svo mjög al- mennan hag bæjarbúa, og í því er svo mikill fróðlelkur, að það vildi ekki meina því rúm. En á hinn bóginn er Morgunbl. þeirrar skoðunar, að Eimskipafjelagið sje ails góðs maklegt, og að aJlir landsmenn eigi að mætast í því starfi að sjá 'því farborða með einhverjum ráðum á erfiðum ár- um þess.) Háttvirt allsherjarnefnd hefir sent mier til umsagnar frumvarp til laga uro skattfrelsi fyrir h.f. Eimskipa- fjelag Islands. Frumvarp þetta er einn liður í þeirri keðju laga sem á undanfar- andi og yfirstandandi þingum hafa verið sett og veri'ð ér að setja og miða að því að kippa tekjustofnum burt úr Reykjavíkurbæ, en velta gjaldabyrðum yfir á bæjarfjelagið, sumpart alveg nýjum og sumpaxt öðrum, sem áður hafa hvílt á rikis- sjóði eða öðrum sveitarfjelögum. Skal jeg sem dæmi benda á að lögin frá 1021 um skattfrelsi samvinnufjelaga sviftu bæinn tekjum, er námu 30—40 þús. krónum á ári og logum frá 1023 um skemtanaskatt og pjóðleikhús tóku frá bænum um 40 þús. króna tekjur á ári. Útsvör tóbaks- og steinolíuversl- ana voru áðnr 60—70 þús. krónur á ári, en 40 þús. króna útsvar hefir verið lagt á Landsverslunina og frum varp liggur nú frammi fyrir þinginu um skattfrelsi að mestu leyti fyrir verslanir ríkisins, svo að tekjurýrnun bæjarins mun verða 50—60 þúsund krónur á ári af iþessum ráðstöfun- um. Útsvari áfengisverslunar á einn- g að svifta bæjarsjóði að mestu levti, með því að ríkið hefir sjálft á hendi smásölu áfengis hjer í bænum, en annarstaðar á landinu er smásalan í höndum einstaklinga. Ef svo væri einnig hjeT, er óhætt að telja, að bæj- artjóður hefði 20—30 þús. kr. meiri útsvarstekjur af áfengisversluninni, en nú mun verða. Er ofan á þetta á nú að bæta skattfrelsi Eimskipafjelagsins, sem 4 undanfarin ár hefir að meðaltali greitt 55 þúsund krónur í útsvar, ?á hefir Alþingi síðan árið 1021 svift bæjarsjóði t.ekjustofnum, er samsvara um 210 þúsund króna árstekjum. Bæjarsjóður tapar þess utan árlega talsverðu af útsvörum og verður fyrir miklu vaxtatapi vegna þess, að að- stoð sú, sem ríkisvaldið á að veita við innheimtu útsvara með lögtök- um. er skorinn svo við neglur, að logtök hafa ekki fengist framkvæmd á tilhlýðilegum fresti. þar sem bæj- arfógetinn hefir ekki haft nægum starfsmönnum á að skipa. Nýir tekjustofnar hafa ekki fengist stað þeirra, sem afnumdir hafa ver- ið, heldur hefir Alþingi hingað til staðið á móti því, að lagfæring feng- ist á úreltri skattalöggjöf bæjarins, ?angað að t. d. þó nokkrir menn, sem hafa miklar tekjur af atvinnu í Reykjavík, komast hjá að greiða hjer útsvar með því að taka sjer bústað 5 mínútna gang fyrir utan fógsagn- arumdæmi bæjarins, en þó styttri leið frá miðbænum en að öðrum tak- mörkum umdæmisins, og njóta samt yrir aðgerðir þingsins sömu hlunn- inda og bæjarbúar af stórvirkjum bæjarins til vatnsveitu og rafmagns- veitu. Bankastjóri Eggert Claessen borgaði t. d. árið 1923, 6000 króna útsvar til bæjarins, en af því að alls- herjarnefnd neðri deildar Afþingis svæfði í fyrra lagafrumvarp um bæj- argjöld í Reykjavík, fær bæjarsjóður Reykjavíkur árið 1924 ekkert útsvar frá þessum launahæsta horgara, með því að hann hefir sjeð sjer hag í að flytja bústað sinn í Seltjarnarnes- hrepp. Hinn nýi tekjustofn sem farið er fram á að fá með frumvarpi til laga um bæjargjöld í Reykjavík, sem nú liggur fyrir Alþingi hefir háttvirt els- herjarnefnd lagt til að lækki um 50% eða jafnvel 60% frá því, sem fnrið var fram á, enda þótt aðrir kaupstaðir og jafnvel hreppsfjelög hafi áður orðalaust fengið lagaheim- ild til að leggja sama gjald á lóðir, sem bæjarstjórn Reykjavíkur hefir nú fsrið fram á með tjeðu frumvarpi, og meiri hluti allsherjarnefndar hefir með tillögu um tvo gjalddaga á út- svörum gert sitt til að auka kostnað bæjarsjóðs við innheimtuna og tap vegna vanskila, en bæði ríkið og önn- ur sveitafjelög hafa að eins einn gjaJddaga á skattgreiðslum. Hinsvegar hafa bæjarsjóði aukist talsvert útgjöld vegna aðgerða Al- þingis. Berklavarnalögin hafa aukið útgjöldin um sjálfsagt 30-þús. krónqr á ári og þaraf eru um 10 þúsund kr. greiðslur fyrir fólk, sem ekki á hjer framfærslusveit, en áður tók dval- arsveit engan þátt í kostnaði við Heilsuhælisvist iþurfalinga annara sveita. pessari byrði hefir verið ljett af sveitunujn og lögð á Reykjavík. Breytingin 'á 77. gr. fátækralaganna veldur að miklum auknum kostuaði til sjúkrahúsvistar efnalítils fólks, sem áður kleif iþrítugan hamarinn til að þurfa ekki að fá fátækrastyrk tii spítalavistar. Býst jeg við að þessi auknu útgjöld sje ein 15—20 þúsund krónur á ári. Með lögum um fasteignaskatt var Iagður á 15 þús. kr. skattur til rík- issjóðs á allar eignir bæjarins, arð- berandi og óarðberandi, t. d. 6300 kr. á ónotuð holtin og mýrarnar umhverf- is bæinn og nú er verið að samþykkja á Alþingi lög, er færa 30—35 þústmd krónur af launum barnakennara frá ríkissjóði yfir á bœjarsjóð. Fleira mætti telja, svo sem lögin um afstöðu foreldra til óskilgetinna barna og styttingu sveitfestistímans, sem hvorttveggja valda bæjarsjóði miklum auknum útgj. en aðeins þessar nefndu aðgerðir þingsins hafa síðan árið 1921 aukið útgjöld bæjarsjóðs um nálega 100 þúsund krónur á ári. Alls hefir þinginu þannig þóknast með löggjöf sinni á einnm f jórum ár- iim að auka skattabyrði borgara R.- víkur um rúmlega einn fjórða miljón króna á ári, eða rúmlega 20% af öllum útsvörum. Ef nú hjer við bætist skattfrelsi Eimskipafjelagsins, verður sk.attaaukningin um 310 þúsund kr., eða fjórði partur af útsvörunum, mið- að við síðastliðið ár og virðist þetta langt farið. Auk alls þessa hefir bæjarbúum á þfcssum sömu árum verið íþjmgt með fasteignaskatti og tekjuskatti til rík- issjóðs, sem nemur mörg hundruð þúsund krónum á ári, en gjaldþolið •til bæjarsjóðs hefir rýrnað að saina skapi. Hvað sjálft frumvarpið snertir, um skattfrelsi Eimskipafjelagsins, skal jeg láta í ljós þá skoðun mína, að ekki sjeu til nein frambærileg rök fyrir því, að fjelagið sje undanþegið útsvari til bæjarsjöðs. Pað nýtur hjer alíra sömu hlunninda og önnur fyrir- tæki, sem starfrækt eru í hænum, og hlýtur að taka þátt í kostnaði þeim, sem bæjarfjelagið hefir til að geta veitt þau, í hlutfalli við getu sína á móts við aðra borgara og fvrirtæki. Útsvar hefir og ávalt verið lagt á fjelagið mismunandi eftir því, sem arður þess hefir verið. Arið 1919 vnr arðuriim kr. 121133«,48+96574,55 “*= kr. 1307913,03 og útsvarið 1920 kr. 85000, c. 6,5%; árið 1920 var arðurinn kr. 533806,65-f-151668,00= kr. 685474,65 og útsvarið 1921 krónur 50000,00, c. 7,3%; árið 1921 var arð urinn kr. 485278,91+112805,50= kr. 598084.41 og útsvarið 1922 krónur 40000,00 c. 5,7%; árið 1922 var arð- rrinn kr. 203891,74+111456,13= kr. 598094.41 og útsvarið 1922 krónur 45000,00 c. 14,2%. Útsvör fjelagsins þessi 4 ár hafa þannig verið að með- alt. c. 8,7% af arði þess árið áður og er þetta talsvert lægra útsvar en lagt hefir verið sömu ár á tekjur annara atvinnufyrirtækja og á einstaklinga, sem hafa haft miklar tekjur. pað er því ekki hægt að rjettlæta framkomu hjer umrædds frumvarps með því, að Eimskipafjelaginu hafi undanfárið verið íþyngt með tiltölu- lega háum útsvörum, og það er vissu- legan engin hætta á því, að svo verði gert .framvegis, heldur mun útsvarið lækka með lækkandi verði. pað kann satt að vera, að Eimskapa- fjelagið eigi nokkuð erfiða aðstöðu í hili, vegna gengislækkunar krónunn- ar, en það er ekki sjerstakt fyrir þetta fjelag, heldur tekur það til allra, sem skulda fje í útlöndum, ekki síst til bæjarfjelagsins sjálfs, sem skuldar ca. 4% miljón króna í út- löndum, en útlendar skuldir Eim- skipafjelagsins eru í reikningunum fyrir árið 1922 taldar alls tæplega 1 miljón. Eimskipafjelagið stendur og það betur að vígi en flestir aðrir, að flutningsgjöld fyxir vörur frá út- löndum eru að mestu leyti greidu í erlendri mynt, dönskum krónum og sterlingspundum. Jeg þykist hafa sýnt fram á, að þaf er rangt gagnvart Reykjavíkur- bæ, að lögleiða útsvarsfrelsi fyrir Eimskipafjelag íslands og engin þörf fyrir fjelagið. Væntanlega getur það og ekki komið til mála að Alþingi follist á það, en ef ástæða þykir til að vernda fjelagið fyrir ofþungum sköttum, sem þá einnig er þarflaust og að mínu áliti óviðeigandi, gæti í frekasta lagi komið til mála að ákveða hámark útsvars t. d. 12% af arði fjelagsins undanfarandi ár. Læt jeg svo úttalað um þetta mál og vænti að háttvirt allsherjarueínd vilji líta sanngirnisaugum á afstöðu Reykjavíkurhæjar til þess og þeirra annara méla, sem fyrir Alþingi liggja og snerta svo mjög hagsmuni hæj- arins. — Virðingarfyllst , K. Zimsen. Aðalfundargerð íþróttasambands íslands 1923. Niðurl. pá kom frarn tillaga frá Sambands- stjórrjinni, um íþróttablað, svo hljóð- anai: „Sambandsstjórnin gerir það að tiilögu sinni, að íþróttasambandið gefi út íþróttablað, sem komi út fyrst um sinn einu sinni í mánuði.“ Forseti gat þess í sambandi við tillöguna, að stjórn í. S. í. hefði farið þess á Ieit vjð blöðin Skinfaxa, prótt og Skóla- blaðið, að vera í sambandi um útgáfu íþróttablaðs, en úr því hefði ekki get- að orðið. Til máls tóku, auk forseta, Magnús Stefánsson, Erlendur Pjeturs- sojj, Eyjólfur Jóhannesson og Ben. G. Waage og mæltu allir með tillögunni, en Haraldur Jóhannessen kvað þetta verða til þess að drepa áðurnefnd biöð, eða að minsta kosti gera þeim miklu erfiðara uppdráttar. Fleiri tóku elki til máls, og var tillaga- stjórnar- iunar boriu undir atkv. og snmþykt rr.eð 26 atkv. gegn 4. pá kom fram tillaga frá Steindóri Björnssyni og Eyjólfi Jóhannssyni, svohljóðandi: „Aðalfundur í. S. í. s&mþykkir að skora á útgefendur þcirra blaða, sem nú eru eða hafa vcrið starfandi að kenslu í íþrótta- og ungmennafjelagsmálefnum að ganga í samband við væntanlegt blað í. S. í., með þeim skilyrðum, að þau velji sinn manninn hvert í ritnefnd blaðsins og að ritstjóri þess verði maður, sem hefir fullan hug og þekk- ingu é öllum þessum málum.“ Ennfremur kom fraih tillaga frá Guðmundi Sigurjónssyni, svo hljóð- andi: „Fundurinn heimilar stjórn í- S. í. að sameina hið væntanlega blað Sambandsins við blöðin Templar og Skinfaxa, með hverju því fyrirkoinu- lagi, er hún (stjórnin) telur viðun- ar.di.“ Ymsir tóku til máls um tillögurnar, og kom tillaga fram í umræðunumi að varla mundi gerlegt að gefa blað- ið út í sambandi við Templar og Skólablaðið. Tillaga Steindórs Björnssonar og Ej'jólfs Jóhannsson var feld með 12 atbv. gegn 10. pá lýsti tillögumaður yfir, að hann tæki hana aftur. pá kom fram tillaga frá stjórn Sambandsins: „Fundurinn samþykkir ao taka með þökkum við gjöf U. M- F. Iðunnar, hluta fjelagsins í íþrótta- vellmum í Rvík, með þeiin ábyrgðunii er á þeim hluta hvílir.“ Tillagan var samþ. og vottuðu fundarmenn U. M- F. Iðunni þakkir með því að standa upp. Pá kom svohljóðandi tillaga frá fulltrúum knattsp.fjel. „Yíkings," Helga Eiríkssyni, Óskari Norðmann, Axel Andrjessyni og pórði Alberts- syni: „Fundurinn samþykkir, að í- S. í. endurgreiði Knattspyrnufjclag- ini „Víkingi“ sekt þá, er það hefú greitt samkvæmt dómi stjórnar L S. í.“ Frummælandi var Axel And- rjesson, er krafðist, að tillagan væri samþykt. Forseti las upp úrskurði í S. í. Ýmsir fleiri tóku til máls uffl tillöguna. pá kom svohljóðandi rök- studd dagskrá frá Guðmundi Sigur- jónssyni: „Með því að fundurinn lítur svo á, að þetta mál heyri ekki undii’ haim, tekur hann fyrir næsta mál ú dagskrá/ ‘ Dagskráin samþykt. Pá tók Steindór Björnsson til raáls viðvíkjandi reikningsskilum Olympiu- uefndar knattspyrnumanna; þótti ræðumanni óþarflega. mikið í kostnað borið. Erlendur Pjetursson og Pjetur Sigurðsson mótmæltu frummælanda og sögðu kostnaðinn varla geta verið minni. Fleiri tóku til máls og í saina atrenginn. pá var lesið upp brjef frá stjóru Sambands U. M. F. Kjalarnessþings, þar sem það býður stjórn í. S. ásamt fulltrúum þeim, er aðalfurM sitja, á samfund þess, er haldínn verður að Gufunesi 24. þ. m. og hefsi kl. 11 f. h. Forseti þakkaði fyrir hönd Sambandsins. Ben. G. Waage stóð upp og þakkaði stjórn U. M. F. R. fyrir lán á fund- arhúsi ókeypis. Fundargerð lesin upp og samþyki' Fundi slitið. Egill Guttormsson, (fundarstj.) Páll Jónsson (ritari.) Se!ar fala i iilflgsll!n. í sænska stórblaðinu Götaborg Handels Söf. Tid. stóð nýlfcg3 grein uminnflutningshöftin oFkar- pegar búið er að segja frá hvaða vörutegundir við útilokujn er e irfarandi málsgrein: „pegar birgðirnar af skófaf15' aðinum eru uppseldar, verða lendingar að taka upp gottd11 seiskinnsskóna, og þungu b01IIia urrnu vaðmálsfötin,. og lífið teklir alt sama blæ og á tímum VövS^ liðinna forfeðra. pegar fjárflia landsins eru komin í betra bo verður innflutningur leyfður a * ur; og er óskandi að eigi ver þess langt að bíða, bæði vegöa íslendinga sjálfra og þeirra seíl selja þeim vörur.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.