Morgunblaðið - 16.08.1924, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 16.08.1924, Qupperneq 2
nýkamiö: Kaffi — Rio, Rúgmjöl, „Best Baker“ Hveiti, Gerhveiti, Flórsykur, Apricots, Eplij — Ferskjur. Heilbrigöistíðinöi. Frjettir. , kynssjúkdóma. Lagði hann til, að Skarlatssótt. pess hefir verið áð- v-íer la^kna skoða hvern nr getið í heilbrigðistíðindum, að amerískir læknar muni hafa .fundið skarlatssóttarsýkilinn og að nota megi eiturefni, sem hann anyndar, til þess að' finna hverir eru næmir fyrir veikinni og hver- ir ,ekki. pað er nú talið vafalaust í Bandaríkjunum að þetta sje á- reiðanlegt með öllu. Eitur þetta má og nota til þess að bólusetja menn gegn skarlatssótt. pví má nú hæta við, að tekist hefir að húa til hlóðvatn, sem má nota til þess að greina skarlatssóttarútþot frá öðrum út- þotum. pví er dælt inn undir hör- undið þar sem útþotið er og hjaðnar það þá hringinn í kring- um stunguna, ef um skarlatssótt er að ræða. — pá hefir og hlóð- vatnið reynst að hafa heint lækn- andi áhrif á yeikina, ef það er gefið í tæka tíð. Hiti og útþot hverfur á stuttum tíma. mann, sem í land færi. Dungal læknir á þakkir skilið fyrir það, að hafa vakið athygli á hættunni, sem yfirleitt stafar af öllum út'lendingum, en tæpast munu amerísku hermennirnir 'hættulegri en aðrir aðkomumenn. Mjer er næst að halda, að þeir sjeu tiltölulega meinlitlir, því bæði er strangt lækniseftirlit með her- mönnunum og auk þess hefir hvergi verið jafnmikið starfað- að því, að fræða almenning um kyn- sjúkdóma og varnir gegn þeim, eins og í Bandaríkjunum. Kyn- sjúkdómar eru heldur ekki svo algengir þar eins og Dungal telur. Árið 1917 höfðu 12% ame- rískra hermanna einhvern kyn- sjúkdóm og auðvitað fæstir þeirra syfilis, en annars ber skýrslum um sjúkdóma þessa illa saman. petta skiftir þó minstu, því hætt- an af útlendingunum og yfirleitt „Að ári liðnu verður þetta mál j ^estum, sem ^ ra útlöndum koma, til 'lýkta leitt og vjer getum farið',|er síður auðsæ, því menn <að útrýma veikinni,“ segja þeir. sfreyma hingað frá útlöndum svo amerísku læknarnir. Er nú verið j hundruðum skiftir á mánuði að vinna að því, af kappi, að hverjum og um síldartíminn öll ’gera uppgötvun þessa nothæfa ógrynni, svo að Siglufjörður verð- fyrir lækna og almenning. Og mikil líkindi eru til þess, «ð- svo sje sem þeir góðu menn *egja. Mislingar. Nokkur líkindi eru til þess að mislingasýkillinn sje fundinn. pað er ítalskur læknir, sem þykist hafa unnið það þrek- virki, en full reynsla er ekki á þetta komin. Varnir gegn syfilis. Einn af frægustu læknum Frakka, C. Levaditi, fullyrðir að 'hann hafi fundið einfalt lyf, sem verji menn fyrir syfilis. pað heitir stovarsol og er tekið inn líkt og önnur lyf. Einn skamtur (2 grm.) á að nægja til þess að verja menn fyrir syfilis, ef tekinn er áður 5 klúkkustundir eru liðnar frá smitun. Tilraunir hafa verið gerð- ar með þetta bæði á öpum og mönnurn en almenn reynsla er þó «kki á þetta komin. G. H. 09 P. Níels Dungal læknir hefir ný- lega vakið athygli á því, hjer í hlaðinu, að hætta stafaði af ame- rísku hermönnunum, sem voru hjer í landi hundruðum saman, sjerstaklega að þeir flyttu hingað ur þá líkari norskum bæ en ís- lenskum. pá eru og hotnvörpung- ar vorir á sífeldu ferðalagi til skotskra hafnarbæja og nóg er þar af kynsjúkdómum. pað er von þó menn spyrji, hversu vjer getum varist hætt- unni, sem stafar af þessum miklu samgöngum, og ekki síst kynsjúk- dómunum, sem eru á hverju strái erlendis. Einfaldasta ráðið sýnist það vera, að láta lækna skoða alla aðkomumenn, karla og ’konur. pví miður er þetta ekki framkvæm- anlegt. Sýfi'lis liggur niðri um 3 vikur en menn fara milli land- anna á fám dögum, og tæplega auðið að komast eftir því, hvort menn eru smitaðir eða ekki með- an undirbúningstími stendur yfir. Jafnvel þó honum sje lokið og veikin hafi brotist út, er ekki ætíð mögulegt að fá fulla vissu fyrir hver veikin sje, í skjótri svipan. pá er gamall lekandi oft svo torþektur, að ekki veitir af fleiri rannsóknum með nokkurra daga mi'l'libili. Pað yrði því bæði dýrt og seinunnið verk, að rann- saka t. d. 100 menn, sem koma með milliferðaskipi, og því sém næst ókleyft, að rannsaka alla síldveiðamenn. pessir erfiðleik- ar eru svo miklir, að jeg tel engin líkindi til þesg, að vjer getum, notað þessa aðferð. En hvað geturn vjer þá gert? Mjer virðist það einkum yera ’þrent: fræð.sla alls almennings Um kynsjúkdóma' og vamir gegn þeim, lögreglu'eftirlit samkvæmt 181 grein hegningarlaganna og greiður aðgangur að læknishjálp. Að almenningsfræðslunni hefir verið nokkuð unnið, en þyrfti þó að vera meira. Yjer eigum nú þrjá I alþýðlega bæklinga um kynsjúk- 1 dóma (Samræðissjúkdómar eftir G. H., Freyjufár eftir Stgr. Matt- híasson og Syfilis eftir Va'ldemar Erlendsson) og kenslu hefir verið haldið uppi um sjúkdóma þessa á Stýrimannaskólanum. Yæri ef til vill ástæða til þess, að taka hana upp í fleirum skólum. Nú er svo mælt fyrir í lögunum frá 1923, um varnir gegn kynsjúkdómum (16. gr.), að „þar sem sjerstök hætta stafar af kynsjúkdómum,. miklar útlendar skipakomur eru, síldarstöðvar o. þvíl., slkal hjer- aðslæknir sjerstaklega skylt, að rinna árlega að því, eftir samráði við heilbrigðisstjórnina, að efla þekkingu almennings á sjúkdóm- um þessum, hættunni, sem af þeim stafar, óg helstu vörnum gegn þeim.“ Jeg hefi ekki orðið var við að þessu 'boði sje hlýtt og tel það illa farið. Hjer í Reykjavík þyrfti árlega að vekja athygli almennings á hættunni, ekki síst við slfk tækifæri sem heimsókn margra herskipa, og mætti það takast án þess að styggja nokk- urn. Sama er að segja um allar síldarstöðvar um veiðitímann. — Hjeraðslæknar og heilbrigðisstjórn hafa hjer, skylduverk að leysa af hendi, en til þessa mun lítið hafa orðið úr framkvæmdunum. Menn kunna nú svo mörg ráð til þess að verjast kynsjúkdómum og lækna þá, að stórkostlega má draga úr hættunni, sem af þeim stafar, en alíur almenningur verð- ur að þekkja þau! í 181. gr. hegningarlaganna er svo ákveðið, að kvenmenn, sem leita sjer atvinnu með saurlífi, þrátt fyrir áminningar lögreglu- stjórnarinnar, skulu sæta fangelsi. Lögreglustjórninni ber því að á- minna slíkar stúlkur og láta þær sæta hegningu, ef nauðsyn krefur. Jeg efast um að þessu boði sje svo fylgt sem vera skyldi, og eitt, sinn hefi jeg sjeð þess áþreifan-, legt dæmi. pað væri ekki óþarft, ■ að athuga þetta bæði hjer í Reykjavík og á sumum öðrum - höfnum, því örfáar stúlkur geta smitað marga. Yjer getum hrósað oss af því, að hafa aldrei ley'ft, stúlkum slíka atvinnu og ættum J að gera það, sem í voru valdi stendur, til þess að hún þrífist ekki hjer. Fljót og góð læknishjálp skiftir hvergi meiru máli en í kynsjúk- dómum. Vjer erum nú vel settir að þessu leyti, því eftir lögunum um varnir gegn kynsjúkdómum, eru allir sjúklingar skyldir til þess að leita sjer tafarlaust lækn- ishjálpar við sjúkdómum þessum, til þess smitunarihsetta er afstaðin; og læknishjálpin er ókeypis fyrir alla, sem efnalitlir eru. pá er og • | mönnum bannað að ganga í hjóna-, band, fyr en allri smitunarhættu er lokið. 1 engu landi eru kynsjúkdómar jafn fátíðir og hjer, og löggjöf vor um þá er betri og fullkomnari en í flestum öðrum löndum. Með svo góðri aðstöðu ætti»það ekki að vera ókleyft, að iitrýma þessum óþverrakvillum, að mestu eða öjlu, en til þess þurfa læknar, lögrpgla ög almenningum áð verða sam- taka. G. H. II Barnadauði er talinn eftir því, hve mörg börn deyja á fyrsta ári af hverjum 1000 börnum, sem fa-ðast lifandi. Ef sagt er, að liann sje t. d. 70, þýðir það, að af 1000 börnum deyja 70 á fyrsta ári. Barnadauðinn hefir lengst af verið afskaplegur hjer á landi, nálægt 300 eða þar yfir. priðja hvert barn dó á fyrsta ári. Nú er öldin önnur, sem sjá má á eft- irfarandi yfirliti: Tómai' flöskur og glös verður keypt þessa víku i (Inngangur frá Vegamótastíg). Munið A. S. I. Simi 700. DELKO reiðhjólaluktir og alt tilheyrandi reiðhjólum, ódýrast hjá mjer Sigurþór Jónsson, úrsmiður. ísland*) 1916—20. Barnad. 67,8 New Zeland 1906—15. — um 67, Norvegur 1906—15. — — 72, Ástralía 1906—-15. — — 78, Svíþjóð 190)8—13. — - 79, Damnörk**) 1906—15. — - 107 Einnland 1907—14. — - 125 Frakkland 1908—13. — - 127 Engl. og Skotl. 1906—15. — - 130 Ítalía 1907—14. — - 168 pýskaland 1907—14. — - 193 Við stöndum hjer efst á blaði við hliðina á Nýja Sjálandi, sem er frægt fyrir óvenjulítinn mann- dauða og fremstir af Norður- löndum. pau taka þó flestum fram. Fyr mega nú vera fram- farir en svo sje. Minstur varð barnadauðinn árið 1918. pá var hann 46,7. petta 'hafa þá ljósmæður vorar og læknar nnnið á. Og þó munu bæði læknar vorir og sjerstaklega ljósmæður, búa við miklu verri kjör en í nokkru öðru landi. Nýtt lyf við berklaveiki. hefir H. Möllgaard, prófessor við danska landbúnaðarháskólann, fundið. pað er gullsalt, og kallað auricidin. Dönsk blöð láta mikið yfir þessu, en að svo stöddu vita menn ekkert með vissu um, hversu lyf þetta reynist, hvort það er að nokkru nýtt eða ekki. G. H. *) ísland 1911—15. Barnad. 74,3 **) 1920 var bamadauði 88. Sundiþróttin. Fæstir fara að hugsa um beilsuna, fyrr en þeir eru orðnir heilsutæpir, og lækn- ar hafa ráðlagt reglubund- ið líferni. Líklega mun engin ein íþrótt vera jafn heilsubætandi og sund, sje það rjett iðkað. Og ættu menn að muna það betur en gert er. Engin ein iþrótt þykir vera jafn mörgum góðum kostum bnin, Og þó menn hafi vitaði þetta lengi, hafa þeir misjafnlega vel lrunnað að færa sjer það í nyt. Og liggja til þess margar ástæður. Erfitt hefir verið að koma upp sund- stæðum. Volgar laugar eru ekki á hverju strái; þó víða sjeu þær til hjer á landi. Frá öndverðu. hafa menn þekt sundlistina, þó hún hafi vitanlega staðið á mjög misjafnlegu þroska- stigi. Hjer á landi hefir sund ver- ið iðkað, meir og minna, frá land- námstíð; og það bæði af konum sem körlum. En oft hefir það átt erfitt uppdráttar; mest vegna I kennaraleysis. Um árið 1820 er . sagt, að ekki fleiri en sex menn j á öllu landinu, hafi kunnað að ( fleyta sjer. En sem betur fer, hefir sundlistinni aukist mjög fylgi síðan, þó enn sje margt ógert. En i sorglegt er, ef sátt reynist, að enn- þá skulu vera heilir hreppar, hjer á landi, þar sem enginn maður er syndur. pað er skemtil egt að lesa, hvað J einn af brautryðjendum sundlist- arinnar, hjer á landi, Jónas skáld 1 Hallgrímsson, segir, í formálanum, jfyrir sundreglum þeim, er Fjölnis- menn gáfu út í Kaupmannahöfn 1. mars 1836. par segir svo: „Frá aldaöðli hefir sund verið kal'lað éinhver hin besta og nyt- samasta íþrótt. Pað hefir verið tíðkað meðal allra þjóða, frá því sögur gerðust, og það er lfka þess vert! það lífgar og hressir lík- 1 amann, eykur þrek og áræði og ’ verður mörgum manni til lífs, að ótöldum öðrum kostum og margs- J konar gagni og gamni, er sund- maðurinn getur haft af -íþrótt sinni. Forfeður vorir voru fullnuma í þessari lcunnáttu, og þykir okkur enn í dag góð skemtun að lesa frásögnina um Kjartan Ólafsson, er hann ljek á sundi við Ólaf konung Tryggvason, eða þá Gretti sterka, þegar hann reið sjer fit og lagði til lands úr Drangey á vetr- ardag, og synti meir en vi'ku sjávar....“ Hvernig Fjölnismenn hafa litið á sundkunnáttu og sundiðkun, má nokkuð sjá á því, aS þeir tileinka þetta áöurnefnda sundkver, „öllum vöskum og efnilegum unglingum á íslandi, sem unna góðri mentun, og íþróttum féðra sinna.“ Víst er um það, að aldrei verður ágæti sundíþróttarinnar of vel rómað. Pað er fleira en aukið hreinlætið, sem því fylgir að iðka sund. Fyrir löngu er það viðurkent að sundkunnátta eýkur hreysti manna og þol, auk þess sem það verður mörgum manni til lífs að kunna að fleyta sjer. Og er óskilj- anlegt hvað erfitt gengur að fá því framgengt að sund verði skyldunámsgrein við> alla skóla landsins. Ættu menn þó að vita að sundkunnátta er ekki síður jnauðsynleg þeirri þjóð, sem aðal- lega lifir á sjávarútvegi, en and- leg fræði. Bennó.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.