Morgunblaðið - 10.02.1925, Page 4
MORGUNBLAÐIÐ
Tilkynningar.
Vörubílastöð íslands, Hafnarstræti
15, (inngangur um norðurdyr húss-
ins). Sími 970.
Vinna.
Tek að mjer að skrifa stefnur,
lcærur, gera samninga o. fl.
Heima 10—12 og 6—8.
G. (ruðmundsson, Bergstaðastíg 1.
VÍSakiftL iSHÍ
Morgan Brothers vim
Portvín (Jdonble diamond).
Sherry,
Hadeira,
eru viðurkend best.
Handskorna neftóbakið úr Tóbaks
húsinu er viðurkent fyrir hvað fínt og
gott það er.
Túlipanar. Amtmannsstíg 5. Sími
141.
Hyasinthur kr. 1,25. Amtmannsstíg 5.
Lítið hús, óskast keypt. A. S. í.
vísar á.
Lítið hús verður ke\pt, ef samið er
strax. Upplýsingar á Laugaveg 56,
uiðri, frá 7—10 e. m.
Tulipanar, Hyacintur og kransar,
fást á Vestnrgötu 19. Sími 19.
ITy. falles clieviotföt til sölu, einuig i
Jaeket-föt. A. S. T. vísar á.
HúsnæM.
íbúð, 3 til 4 herbergi og eldhús
vantar mig 14. maí. Engilbert Haf-
berg, >ímar 770 og 700.
íbúð, 2—3 berbergi, ásamt eldhúsi,
óska barnlaus hjón að fá til leigu 1.
marsmánaðar, eða 1. apríl (þ. á. Upp-
lýsingar hjá M. Frederiksen. Sími 147.
Fæíi.
Ágætt fæði fæst á besta stað í
miðbænum, um lengri eða skemri
tíma. A. S. I, vísar á.
Ef vjer hugsum oss, að á næstu 50
árum miði ræktuninni jafnt áfram,
og engin sjerstök óhöpp koma fyrir,
þá má ráðgera:
36 miljónir til bygginga.
Sveitabýlin eru 6112, samkvæmt
aíðasta jarðamatinu, og við þau eru
ræktaðir rúmlega 20,000 lia. Ef til-
ganginutn á að ná, væntum vjer, að
eftir 50 ár verði býlin orðin 8000, eða
að þeim hafi f/jölgað um tæp 2000.
pað samsvarar því, að 2 nýbýli yrðu
reist í sýslu hverri árlega; á þes-su
50 ára tímabili þarf því að byggja
þessi 2000 ný-býli, og jafnhliða því, að
endurreisa flest gömlu býlin.
Gera má ráð fyrir að 14 þessa
starfs verði framkvæmdur, án þesis
að láns sje þörf, en 6000 býlum þurfi
að fá lán til bygginga. Að hyggja
býlin upp, getum vjer eigi áætlað
minna en 12000 kr. á býli, einkum
þegar tekið er tillit til þess, að kröf-
ur til bygginga fara vaxandi, og hjer
er bæði að tala um íbúðar- og pen-
ingshús. petta myndi því kosta alls
72 milj. kr.
40 miljónir til ræktunar.
Eæktunarsjóðurinn á að lána helm-
ing þessa, eða 36 milj. kr. En á undan
bvggingunum -þarf að auka ræktunina,
og ætlumst vjer til, að á hverjum 10
árum sje bætt við jafn miklu og nú
er ræktað iá hverju býli. petta er
bráðnauðsynlegt, ef fullnægja á kröf-
um um aukinn bústofn og velmegun í
landinu. Eftir þessari áætlun þarf að
rsekta á næstu 50 árum 100.000 ha.
að nýju. I sambandi viú það stæðu
svo ýmsar aíðrar umbætur, t. d. girð-
ingar o. fl.
Vænta má, að 1/3 þessara um-
bóta yrði framkvæmdar án nokkurra
lána, en eftir yrðu þá um 60,000 ha.,
sem styrkja þyrfti bændur til að
rækta.
Hve mikið kostar að gera einn ha.
að túni, er mjög mismunanid-i, eftir
jarðvegi og öðrum ástæðum. Vjer á-
ætlum, að (það muni kosta 1000 kr.
3/5 hluta þess þarf að fá að láni, eða
alls um 40 milj. kr.
Frá þessu sjónarmiði verður því
lánsþörfin all-s á næstu 50 árum, 76
milj. kr., eða að meðaltali árlega 1.5
milj. Að sjálfsögðu yrði það minna
fyrstu árin, en mun aukast, eftir
því, sem tímar líða, og meira verður
unnið að um-bótum.
Hinum nefndu lánskröfum mun
Ræktunarsjóðurinn, eftir því sem vjer
frekast getum áætlað, vera fær um
að fullnægja. Ef stofnsjóður sá mynd-
ast, sem ráðgert er, og sjóðurinn stöð-
ugt má bafa sexfalda upphæð hans
í vaxtabrjefum. pví þess er að gæta,
að hinn upprúnalegi. stofnsjóður vex
eftir því sem árin líða, svo sjóðurinn
verður einnig fær um að' fullnægja
meiri og meiri kröfum, eftir því, sem
stundir líða. pess er líka að gæta, að
sjóðnum er eigi ætlað að lána til
len-gri tíma en 20 ára. Fje kemur því
0g fer um Ræktunarsjóðinn, innan
þess tímabils. Vjer treystum því þess
vegna, að sjóðurinn ætfð geti baft
uægilegt fje fyrir Jietidi, ef aðeins
tfkst að afla vaxtabrjefum hans á-
lits og trausts hjá landsmönnum, svo
að Iþau verði keypt, og þess vegna
höfum vjer með tillögum vorum rcvnt
að tryggja þau sem best, og farið
frnm á, að þau njóti ýmsra sjerrje„t-
inda. Alt er þetta gert í þeim til-
-gangi, að -gera brjefin útgengilegri
og tryggari, og vissari sölu þeirra.
Framfarir síðastliðinna 50 ára
og framtíðin.
Margir munu nú segja, að þessar
áætlanir vorar sjeu loftkastalar, og
gripnar úr lausu lofti.
Satt er það að nokkru leyti, en
þessir loftkastalar eru þó lægri en
sumir þeir raunverulegu kastalar, sem
bygðir hafa verið á síðustu 50 árum.
Athugum hve mikið meira er nú unn-
U að jarðabótum en fyrir 50 árum.
Að jarðabótum var unnið:
Arið 1872............... 8,520 dagsv.
— 1912.............. 158,000 —
— 1922.............. 102,000 —
Tölur þessar eru talandi. pær segja
að nú sje 12 sirmum meira unnið að
jarðabótum árlega, en fyrir 50 árum.
Vjer höfum áður gert ráð fyrir, að
á næstu 50 árum þyrftum vjer að
auka túnin um 100,000 ba. pað sam-
svarar, eftir því sem sljettur eru nú
metnar til dagsverka, að árlega þurfi
aö vinna að þessu einu 400,000 dags-
verk. En iþegar vjer nú tökum til
liliðsjónar, að á síðustu 50 árum höf-
un vjer getað tólf faldað dagsverka-
töluna á jarðabótum, og þetta á erf-
iðum tímum, þar sem menn hafa orðið
að stríða við þekkingarskort, vöntun
á hentugum verkfærum og fje til
framkvæmda, þá verður oss ósjálfrátt
á að hugsa hvort oss eigi hljóti að
takast, að gera líkar framfarir á
næsta tímabili. Óneitanlega virðast
ástæðurnar mikið betri, möguleikarn-
ir mieiri á öllum sviðum, til meiri
jarðyrkjuumbóta, -á næsta tímabili, en
verið hefir.
En þó framfarirnar yrðu aðeins
hliðstæðar við það ,sem verið hefir,
þá ættum vjer á fimta áratugnum,
að vinna alt að 1,200,000 dagsverk
að jarðabótuin áriega. Af þessum
framkvæmdum eru líkur til að lýj
gangi til tónyrkju, beint eða óbeint,
eða árlega um 900,000 dagsverk. Eft-
ir því, sem tíniar líða og þekking vex,
þá menn fá betri verkfæri, fara að
nota meira hest- og vjelaafl.
pá vei'ður margfalt ljettara að
framkvæma jarðvrkjuumbæturnar, en
verið hefir, og því líklegt að- þær
aukist hlutfallslega meir en áður.
Pað mætti nefna mörg dæmi þess,
a,i bændur hafi tvöfaldað töðufeng
sinn á 10 árum, já jafnvel meira.
Margir iþessara manna munu hafa
verið fátækir, og vantað flest það
ei þurfti, til þess að þeim væri lj'ett
að framkvæma jarðabæturnar, og um
lánsfje hefir vart verið að tala. —
Hversvegna megum vjer þá eigi vænta
meiri framkvæmda, því óneitanlega
eru ástæðurnar og verða í þessiim
efnum mikið betri en áður.
pað má auðvitað deila um tölur
þær, er vjer höfum nefnt, og sem
vjer höfum sett -sem mælikvarða fyrir
því, hve miklu yrði afkastað í rækt-
unarlegu tilliti, á næstu fimm ára-
tugum.
Mönnum kantn að virðast þess-
ar áætlanir vorar vera noikkuð
djarfar eins og þær koma fram í
nefndarálitirm. En til þess vildi
jeg svara því, að mikið hefði
mönimm einnig fundist til um það,
ef því hefði verið spáð fvrir 50 ár-
um, að árleg dagsverkatala 12
faldaðist, og meira en það.
Taka verður það og til greina,
að þetta er málefni, sem allir
laridsbúar verða að sameina krafta
sina um, að hrinda í fram-
Uvromd. TTjev mega cn'tir pólit-.ik-
ir flokkar komast að nrcð reip-
tog sitt. í nefndinni var oss þegar
fullkomlega ljóst, að h.jer yrði
slíkt aðeins til tjóns og tálma.
Yið vonum fastlega, að þeir, sem
nm mál þetta eiga að fjalla, líti
á málefnið eitt, en ekki á menn-
ina, sem kunna að því að standa.
Við lítum svo á, að allir leið-
andi menn þjóðarinnar, 'eigi að
hlúa að þeirri hugsun, að rækta og
byggja landið. Koma verður hirmi
uppvaxandi kynslóð í skilning um
það, hvaða markmið hjer er franr
undan. Allir kennarar þjóðarinn-
ar, stjórnmálamennimir og blöð-
in, eiga að h.jálpast að því, að
öll þjóðin leggist hjer á eitt, til
að ala hina uppvaxandi kynslóð
upp, með það fyrir augum, að hún
fá'i áhuga og vilja og þrek til þess
að leysa þau verkefni sem hjer
liggja fyrir, prýða og bæta fóstur-
jörðina. „E11 leiðir eru langþurfa
menn,“ segir máltækið. pó al-
menningur, og hin upprennandi
kynslóð, sje fús til að fórna kröft-
um sínum í íæktun landsins, þá
er það þó eigi einhlítt, ef eigi er fje
fyrir hendi til framkvæmdanna.
Fjeð þarf að komast í hringrás,
og hún þarf að vera sí-feld og
stöðug, því annars er hætt við að
reksturinn stöðvist, alt verði
þungt og er-fitt og þurfi mikið til
þess að koma *eðlilegum rekstri
aftur á stað.
Takist okkur nú þegar að fá
nægilega öflugá lánsstofnun, tij
þess að styðja að ræktun og bygg-
ing landsins, þá er víst, að kom-
andi kynslóðir leggja lag á lag
ofan, í þá veglegn þjóðfjelagshöTl,
sem sómir landi voru, og vistleg
verður öllum laudslýð.
Hyrningarsteinana í þeirri bygg
ingu, tel jieg vera þessa, að unga
kynslóðin hafi óbilandi traust á
sjálfri sjer, ævarandi trú á land-
inu og gæðum þess, og bjarg-
fasta sanfæringu um sigurmátt,
málefnisins. Og- að lokum er, fjórði
hvrningarsteinninn þrautseigur
viljakraftur sem aldnei lætur und-
an. Ef þetta er alt fyrir hendi, þá
er víst, að éftirkomendur vorir
standa í engu forfeðrunum að
baki heldur feta röskTega
fram á við, og FjaTlkonan
mun þá Teiða með sjer alTa hoTl-
vætti Tandsins í framtíðarhöTT
þjóðarinnar, tiT ævarandi bless-
una.r fyrir alda og óborna.
Erí. simfregnir
Khöfn 7. febr. ’25. FB
Frá Ópíumráðstefnnnni.
FuHtrúar þeir frá Bandaríkj
unum, er taka þátt í Opíumsráð-
stefnunni í Genf, hafa yfirgefið
hana í reiði yfir því, að þan ríki
sem eiga lýlendur þar sem ópíum
er ræktað, vilja ekki gera nógu
mikla gangskör að því, að tak-
marka framleiðslvma strax til
lyfja eingöngu, en hinir álíta
lnegfara takmörkun hagkvæmnri.
Fundnrinn ætlar áð semja álit án
undirskriftar Bandaríkjanna.
Rússneska stjórnin.
Sínuið er fi’á Berlín, að Braun-
ráðuneytið prússneska sje aftnr
farið frá.
Khöfn, 8. febr. FB.
Iðjuhöldarnir þýsku.
Sírnað er frá B- rlín, að iðju-
höidarnif í Ruiir hafi krafist þess
í desembermánuði s. I. að ríkið
endurgreiddi þeim 715 miljónir
gullmarka, til uppbótar á skaða,
er þeir höfðu li'ðið, vegna þess að
Ruhr-hjeraðið viir tekið herskildi.
Báru þeir fyrir sig loforð þáver-
andi ríkiskanslara, Stresemann. Nu
er komið í 1 jós, að í raun og veru
hafa þeir grætt afarmikið á her-
tökunni. Ríkisbanlkinn hjái paði
þeim og sjerstakur hjálparsjóð-ur
var st'ofnaður t il stuðnings þeim,
og var iðjuhöldunum lánað yfir 2
miljarða gullmarka, er þeir endur-
greiddu í verðlausum pappírsseðl-
um, og sluppu þeir einnig hjá að
greiða vissa, skatta. pá verandi
ríkiskanslari Stres-emann og Lut-
iher, sem þá var fjármálaráðherra,
eru nú ákærðir um að hafa mis-
beitt embættisvaldi sínu í þessum
m-álum, enda hafa þeir farið svo
að ráði sínu, sem nú er í ljós kom-
ið, án vitundar og samþykkis rík-
isþingsins.
Gengiö
Reykjavík í gær.
Sterl. pd. .. .. .
Danskar kr. .. .
Norskar kr......
Sænskar kr. .. .
DoLar...........
Franskir franlkar
27.30
101.48
87.18
151.25
5.73
31.00
Dagbók.
□ Edda 59252107 —
Instr.'. Br.\ Y.\ Stv.\
Botnvörpungurinn „Rán" kom inn
til Hafnarfjarðar í gær. Hafði lent
í veðrinu á sunnudaginn og mist ann-
a n bátinn. Skipið var nýlega farið
út, og var því aflalaust.
75 ára er í dag Ámundi Ámunda-
son fiskimatsmaður, Vesturgötu 26-
Sextugur verður á morgun Ellert
H. Seliram skipstjóri, Stýrimanoa-
stíg 8 a.
í ofsanorðanveðrinu á sunnudagina
var að heita inátti blíðuveður í Haf°"
arfirði, og haggaði þar ekki um neith-
hvorki á sjó eða landi.
ísland fór hjeðan í gær kl. 6 sA
Meðal farþega voi-u: Berens framkv.-
stjóri, Kjartan Thors og frú haiA
Björgúlfur Stefánsson kaupm. og ft** I
hans, Pjetur Ólafsson konsúll, H«r' i
aldur Árnason kaupm„ ungfrú Ragnk
Blöndal, ungfrú EK11 Ja-kobsdóttíí
Walter Sigurðsson verslunami., Oben-
baujit heildsali, Ásgeir Pjetursson út-
gerðarmaður, Helgi Hafliðason kanp*
maður, frú Lydía Guðmuudsso-n, Árn*
Piálsson verkfra?ðingur og ungft16'
Magnea Einarsdóttir.
porleifur H. Bjarnason yfírkenuaú
tók sjer fari með íslandf til útlanda>
og dvelur erlendis fram á næsta suW'
ar
Enskur togari kom híngað inn
gær; hafði brotnað eitthvað í suniiO'
dagsveðrinu, og þarf að fá viðgerð »
því.
Gulltoppur sendi loftskeyti í gíf'r>
og segir frá því, að hann hafi fengi®
á sig stórsjó í sunnudagsveðrinu °3-
hafi unnar báturinn lirotnað, önnlrf
toppstöngin og allar lifrartunnurnaí
farið. Stóð eimfremur í skeytinu, að’
nieiri Flreiiidii* hafi or<Si?) íi
< >t ekki tiltekið bvérjai- GuIltoppuU
var væntanlegur hingað í gærkvöldi-
Sljmslit liafa orðið víða og mikil
helgina síðustu. Var sambandslausí
við ísafjörð í gær, þræðir slitnir
sti.u-rar brotnir á tveggja kílómeti’®
svæði rnilli Borðeyrar og Hóhnavíkui'-
Einnig var mikið slitið við ísafjarðaf
djúpið. pá var og slitið milli BorS' |
evrar og Sauðárkróks. Og hjer auB'
ur undan var meira og minna bila*’- j
Hæstárjettur í gær. par var dónitK,
u;ip kveðinn í máli því, er rjettvísi^'
höfðaði gegn Bertel Signrgeirssyn1'
og var dómur undirrjettar staðfest«r
ao öðru leyti en því, að refsingin vaf
2 X-5 daga fangelsi við vatn og brauf*’
Aðfinslur fjekk umdirrjettardómarii1^
fyrir meðferðina á málinu.
Lista-Kabarettinn heldur 22. kv5l<f
-sitt í Iðnó á morgun, miðvikudag-
Skemtunin verður afar-sjerkennile?'
með fjölbreyttri skemtiskrá. Rússnes^-
músík, eftir Iþekt tónskáld: Zigaui1**'
vísur og dans. X-
--------x----------
Lausairisur.
A1 þ ý ð n s t ö k ii r n a r -
Oft eru -kvtéðin efnissmá
og ekki á rjettum nótum,
sem að kveðin eru á
eykta- og -gatna-mótum.
En þó er gull og gersinlí,r
geymd í þessum sjóðum
og margt af slíku metið v"ar
móti bestu ljóðum.
Bjarni Eggertsson,
Eyrarbakka.