Morgunblaðið - 22.04.1925, Qupperneq 4
4
|| Auglýsingadagbók.
lllllHII Tilkyraiingar. ÍIUllll
Sumarklúbburinn heldur dans-
íefingu á sumardaginn fyrsta. —
Aðgöngumiðar verða afhentir í
Eókaversl. pór. B. Þorlákssonar.
Stjórnin.
Dansskóli Sig. G-uðmundssonar.
Dansæfing í Bíókjallaranum í
kvöld kl. 9—1.
nilllli Yiðskifti. IIIIIIIIIIIIII
SHorgan Erofbers vxm
Portvín (donbl* diamond).
Sherry,
Madaira,
ern viðmrkend best.
r-i/«§■!■■■■ ................ ■■■ .......
Handskoma neftóbakið í Tó-
bakshúsinu, Austurstræti 17, er
viðurkent að vera svo gott, sem
neftóbak yfir höfuð getur verið.
Veggfóður, Loftpappír, Veggja-
pappa og G-ólfpappa, selur Björn
Björnsson, veggfóðrari, Laufás
vegi 41. Sími 1484.
1 Fyrir skósmiði: Sjerlega ódýr,
en sterkur tvinni nr. 6 og nr. 12.
Sömuleiðis maskínusiíki nr. 12, og
óvenju góður maskínu-hörtvinni
á 600 metra keflum. ' Guðm. B.
Yikar, Laugaveg 5.
Appelsínur, verð frá 15 aurum,
selur Tóbakshúsið, Austurstr. 17.
Við seljum ísl. Smjör, gott og
ódýrt á 2.50 pr. % kg. í 2%—5
kg. stykkjum. V o n .
Góðar sumargjafir fást í Bóka-
verslun porsteins Gíslasonar,
Veltusundi 3.
Barnavagnar, Barnalkerrur, —
Blómsturstativ. Lágt verð. Hannes
Jónsson, Laugaveg 28.
Smáhögginn molasykur, ódýr.
Hveiti og gerhveiti. Danskar kart-
öflur. Hannes Jónsson, Laugaveg
28.
Illllllllllllllll Vinna. ■líl'lllllllll
Stúlka óskast í vist nú þegar
eða frá mánaðarmótum til maí-
loka, eða miðs júní, á Laugaveg
42. Sími 770.
■■
2 herbergi og eldhús verða leigð
ódýrt, ef maðurinn vill lána dá-
litla peningaupphæð. A. S. í. vís-
ar á.
Dansskóli
fDElene Buömundsson
heldur æflngu í kvöld frá 9—2
i Bárunni.
er brýn, og fje safnast óðum.
Hjálpsemi manna og fórnfýsi
haldast í hendur og uppfylla boð-
,orð hans, sem sagði: pað, sem
þjer gjörið einum af mlínum
minstu bræðrum, það hafið þjer
gjört mjer.
Einhver segir ef til vill sem
svo, að það sje nú öðru máli að
gegna um ástand barnanna 1 stór-
borgum erlendis eða hjer hjá oss,
og sem betur fer, vona jeg að við
eigum ekki innan þjóðfjelagsins
aðra eins eymd og neyð eins og
víða á sjer stað annarsstaðar þar
sem örbyrgð og neyð vega salt á
vogaskálum lífsins. En þrátt fyr-
ir það, þá er hjer nóg verkefni
að inna af hendi fyrir þá, sem
vilja og geta, einmitt á meðal
barna, og fyrir þá sök hefir verið
hafist handa og starfsemi hafin
á meðal vor, börnum til hjálpar
á einhvern þann hátt, sem heilla-
vænlegast þykir. Og fyrstu sporin
eru þegar stígin, eins og heiðraðir
bæjarbúar vita, smá spor að vísu,
en þó eru það spor, sem geta með
guðs hjálp orðið að góðu liði, og
rutt braut um óunnin lönd.
Eins og að undanförnu verður
sumardeginum fyrsta varið til
fjársöfnunar í þessu augnamiði.
Hver eyrir sem inn kemur verður
lagður í sjóð barnanna. Safnast
þegar saman kemur.
Yiltu muna, að þótt fjárfram-
lagið þitt sje ekki stórt, þá getur
það orðið að góðu liði, og alt, sem
gefið er af toærleiksrlíku hugar-1
fari, á fyrirhéit blessunarinnar.
pað verður tækifæri til þess að
minnast minstu bræðranna og
sy-tranna á sumardaginn fyrsta!
Rjettu fram hönd til hjálpar! ■—
Guð blessar sjerhvert gott Starf,
MORGUNBLAÐIÐ
sem unnið er í hans nafni.
Guð blessi íslensku börnin, og
gefi landi voru og þjóð farsælt
sumar.
Guðrún Lárusdóttir.
HETJUSKAPUR.
Mbl. hefir verið send eftirfar-
andi grein af Norðfirði:
pað hefir verið siður blaðanna
að geta þess, þegar einstaklingar
þjóðfjelagsins sína af sjer óvenju-
legan dugnað og hreysti. Er það
vel við eigandi, því á bak við
hetjúverkin stendur hetjusáí, en
enginn er sönn hetja, nema sá,
sem er drenglyndur. Drenglyndi
getur komið fram í ýmSum mynd-
um, svo sem hjálpfýsi við aðra,
fórnfýsi og skyldurækni. Skyldu-
ræknin er trúmenskan við það
hlutverk, sem maður hefir áform-
að að inna af hendi.
Tilefnið með þessum línum, er
að forða frá gleymsku hetjuverk-
um, sem unnin voru hjer á Norð-
firði síðastliðið sumar.
Maður er nefndur Jón Sigurðs-
son, rúmlega 69 ára að aldri, og
á heima hjer á Norðfirði. Hann
e?. í daglegu tali nefndur Jón
„fótalausi,*1 því hann varð fyrir
því hörmulega slysi, fyrir mörg-
um árum, að missa báða fætur
sína, neðan við hnjen. Gerðist
það með þeim hætti, að ihann lenti
í sjóhrakningum á opnum báti í
Seyðisfjarðarflóa. Yarð hann að
hafast við undir Skálanesbjargi
í fjóra sólarhringa í grimdar-
frosti, og snjóbyl, og kólu þá af
honum fæturnir. Jón stundar sjó
hjer á opnum bát, og rær oftast
einn á.
Hann stundaði sjóinn af svo
miklu kappi síðastliðið sumar, að
jeg þekki ekkert dæmi því líkt,
og aflaði áfbragðs vel. Sótti hdim
mestan aflann suður í Sandvík,
en sjóleið þangað er 7—8 sjó-
mílur, og ekkert góð, því fyrir
,.Norðfjarðarhorn“ er að fara, en
þar er straumasamt og oft úfinn
sjór. Jón stundaði veiðina með
línu og beitti oftast skelfiski. —
Undraðist jeg oft áræði hans að
leggja einn á báti í svona langa
sjóferð, á gamalsaldri, og eiga
svo fyrir höndum að sinna veiði-
skapnum þegar á miðið kom. Jeg
held, það hljóti að vera fremur
vandasamt verk, að róa tveim
árum og leggja lóðina jöfnum
höndum, jafnvel í logni, hvað þá
ií vindi, öldum og straumsjó, eins
og oft vill verða. En ekki bar á
að þetta færi illa úr hendi fyrir
Jóni, því hann aflaði jafnan af-
bragðsvel. Man jeg ek)ki eftir að
'aðrir bæru hærri hlut frá borði
en hann, þó yngri væru og ófatl-
aðir. Hann mun liafa aflað fyrir
nokkuð á þriðja þúsund krónur
yfir sumarið.
Svona framúrskarandi hetju-
skap, sem Jón hefir sýnt með sjó-
sókn sinni á gainalsaldri er skylt
að halda á lofti. pað er ennfremur
skylda. þjóðfjelagsins að launa
honum í ellinni, þegar kraftarnir
taka að þverra, þann óvænta
skerf sem hann á gamalsaldri
leggur til þjóðarbúsins.
Alt sem vel er gert, ber að
launa vel.
Kunnugur.
GENGIÐ
Reykjavík í gær.
Sterlingspund............ 26.90
Danskar krónur.......102.99
Norskar krónur....... 91.97
Sænskar krónur.......151.69
Dollar................... 5.63
Franskir franlka r....... 29.40
DAGBÓK.
Messað á sumardaginn fyrsta í
fríkirkjunni í Hafnarfirði kl. 4,
sjera Ólafur Ólafsson.
100 ára minning Vesturheims-
ferða Norðmanna. pess var getið
hjer í blaðinu 1 gær, að í sumar
færu fram hátíðahöld í Amedíku,
til minningar um það, að á þessu
ári eru 100 ár liðin síðan Norð-
menn tóku að flytjast til Vestur-
heims. Hátíðaliöld þessi verða
fyrri hluta jtinímánaðar. pau eru
að því leyti eftirtekta.rverð fyrir
okkur, að konum þeim íslenskum,
sem sæk.ia fund alþjóða-kvenna-
ráðsins, er haldinn verður í "Was-
hington 4,—14. maí n. k., hefir
verið boðið að taka þát.t í þeim.
Gullfoss fór frá Höfn í gær-
morgun áleiðis bingað.
Goðafoss var á A'kureyri í gær.
Lagarfoss fer frá Hull í dag.
Esja var á Dýrafirði í gær.
Villemoes var í London í gær.
Botnia fór frá Leith í gær.
Douro fór frá Hafnarfirði kl. 4
í gær.
Barnauppeldissjóður Thorvald-
sensfjelagsins. Stjórnendur hans
liafa ákveðið að helga daginn í
dag fjársöfnun í hann. Verður
hún m. a. með þeim hætti, að
gefnar verða út og seldar brjós
nælur með mynd Thorvaldsens^
Er það jafnframt gert í rtlin"ing,_
um það, að 1 haust verður
valdsensfjelagið 50 ára. pá vel a
og seld myndaspjöld, skreytt 1° ®
merkjum sjóðsins. En um
jívöldið'
IUCJ. tvj lUli öJl/UiílUot /i
verður sýning í Nýja Bíó kl- ’
tii ágóða fyrir Barnauppeldiss.l0^
irn. BarnauppeldissjóðuHnn er nu
orðinn rúml. 58 þús. kr., og er
tilætlunin að taka til starfa n®*
komandi haust. Bæjarbúar ra a
miklu um það í dag, hvort sv°
verður eða ekki, því leggi ielf
eitthvað af mörkum í dag, 1113
vænta þess, að sú hugsjón sto 11
enda ,og stjórnenda sjóðsins r
ist — að sjóðurinn geti tekið ti
«tarfa í haust; og þvií fyT seD1
hann fer að starfa, þess meiri
i von
er um það. að uppeldi barnanna
hjer komist í betra hörf.
i
Af veiðum Iiafa komið í %xV'
pórólfur með 98 föt, BelganD1
með 88 og Baldur með 98 f°t-
s'
Franskur togari kom hjer illT1
gær, að fá sjer kol.
Mercur kom hingað lí gærm°r^
un snemma. Meðal farþega v°
ungfrú E. Paturson frá ^æveJ\
um, ungfrú Dr. Rosa Stoppei ra
f i-
Hamborg, K, Petersen og „
Bergmann. Skipstjóri þessa rer,.
var Togstad; f jekk Krúger lef ^
til að dvelja heima meðan
ferð skipsins stæði yfir, því ha
átti silfurbrúðkaup í fyrradag-
Togstad hefir áður verið hjer me
skip í förum.
Hrognkelsaveiði hefir verið me^
tregasta móti hjer undanfarið, ,
er nú töluvert að glæðast, b®ði
Skerjafirði og við Akurey. BíiU^,
maginn er nú seldur hjer a
aura, og lækkar sjálfsagt eUÍ'
meir.
,, Gáta‘ ‘ Alþýðublaðsins.
M'pb1
ber þá „gátu“ upp í gær, hver“
vegna Morgunbl. hafi ekki ge
um ræðu Sig. Jónssonar bjrl11
skólastjóra í frásögn af síóa^ ^
bæjarstjórnarfundi, eins og 3
hinna, sem til máls tókiu. l^or
unbl. er skyldast að ráða ÞeS^
gátu og gerir það líka. Pa^ g £
ekki um ræðu Sig. Jónssonar '
þeim ástæðum, að hún kom
litlu leyti við því máli, sem Ó,rl
lá, Sjúkrasamlaginu, þó mar
væri vel sagt í henni. Mbl- 11
svo á, að þegar það flytur ^
ir af bæjarstjórnarfundi, þá yer j
það að 'leggja mesta áherslu a> ^
flytja aðalatriði umræðanna,
sleppa. því, sem ekki stefnir bel^
á úrlausn þess máls, sem nm
rætt í svipinn.
EEIÐA-BRÚÐUBIN.
— Hvað kemur bakdyralykillirm þessu við ?
—- Hann kemur því við "á þann hátt, að meðan þessi
kristni apaköttur var að hvíslast á við þig hjer áðan, þá hjekk
lykillinn á sínum venjulega stað. En jeg heyrði, að þið rædd-
uð nm „kvöldmat“ og „klukkan tíu“. Jeg vildi, að hann háls-
brotnaði og losaði mig við að gera það. Svo gefur hann mjer
skipun um að fara hjeðan út. .Teg skildi vel, hvað það átti
að þýða. p'egar jeg kom aftur, leit jeg inn í herbergið — þá
var lykillinn farinn og jeg sá, hvemig í öllu lá. Og nú spyr
jeg: Hvernig stendur á því, að greifinn getur ekki komið
inn um aðaldyrnar, ef hann hefir engu að leyna? Hvers vegna
leyfir þú honum að koma inn um bakdyrnar, eins og hann
væri þjófur? Veitingastofan stendur öllum opin. Hvers vegna
þarf greifinn að komast hjer inn í húsið með þessari levnd?
Leopold varð reiðari og reiðari. Hann var líkastur grimmu
dýri, sem býr sig til stökks á byáð sína. En þó talaði hann
lágt. En ofsinn sauð niðri í honuro. Og hann hjelt áfram:
— pú spurðir rjett áðan, hvað Iykillinn kæmi því við,
að jeg fer ekki til Fiume. Samhengið milli hans og burtfarar
minnar er það, að þú ert tilvonandi kona mín, og að þú ert af
sama kynstofni og jeg, þú ert heiðarleg, eða hefir verið lieið-
arleg Gyðingastúlka, guð sje Iof, og ekki ein þessara ljett-
Ivndu, sálarlausu kristnu stúlkna. Værir þú ekki heiðvirð,
mundi jeg drepa fyrst þig, og síðan mig. Og svo vil jeg breta
við: Ilitti jeg einhvern í kvöld, sem ætlar sjer hjer inn — það
gildir einu hverskonar þjófur það er — þegar þú ert alein
heima, þá, þá------- — <
Hann þagnaði og tennumar glömraðu í munni hans eins
og í skjáftahroli.
En Klara sagði stamandi:
— Hvað ætlaðirðu að segja? pví segirðu ekki það, sem
þjer býr í brjósti?
— Vegna þess, að þú skilur mig, sagði hann rólegri. Jeg
er ekki kristinn maður, og er heldur ekki neinn guðs engill.
Jeg get ekki farið til hallar greifans eða til þessara kristnu
ungversku bænda og barið þá vegna þess, aS þeir ætla að ræna
mig því eina sem jeg á, og sem er mjer dýrmætara en lífið.
Jeg er Oyðingur, lágt settur Gyðingur, sem aðalsmennimir
hafa kúgað eins og allan mirm þjóðflokk. En nú ert þú mjer
lofuð, og ætlaði annaðhvort greifinn eða einn þessara bölvuðu
bænda að laumast hjer inn til þín um nóttina, þá--------
, /
Hann þagnaði enn, en dró upp úr vasa sínum tb ,
langan biturlegan veiðihníf, og Ijet hann svo renna ni'ö111
vasann aftur.
Klara rak upp lágt hra'ðsluóp. Leopold gekk að bo1
/1 l-i r^ljl
og helti. vatni í glas og tæmdí í einum teyg. Síðan toK
vindlinga npp úr vasa sínum og kveikti í einum. Sv0 1111
hann: ^
— Jeg fer hjerna út fyrir og reyki um stund.
sjeð báðar dyrnar þaðan, sem jeg stend. pegar þú hefb’ ^111
ið lykilinn að bakdyrunum, getur þú farið til dansleibfc’1
fyr ekki.
Hann leit í kringum sig og bætti svo við: ,jV
—Á jeg að kasta þessum drykkjuræflum út fyrir Þ1^
ur en jeg fer? f
—Nei — svaraði Klara hægt og eins og utan við sl?‘ ^
er best að þeir sofi vímuna úr sjer. pegar þeir vak113
þeir leiðar sinnar. 0<f
Um leið og hún slepti orðinu var dyrunum l°bi®
inn kom Andor Lakatos. Leopola kinkaði kolli til hans og
svo út.