Morgunblaðið - 21.07.1925, Side 3

Morgunblaðið - 21.07.1925, Side 3
IHORGUNBjLAPIÐ MORGUNBLAPm eilofnandl: VUh. Fln*an. Útgefandl: FJelag 1 Reykja»Hc. Rlt»tjórar: J6n Kjartamaon, ValtjT StefánHon. Anglýeingaatjðrl: E. Hafber*. Skrlfstofa Austurstræti 8. Slanar: nr. 498 og B00. Auglýsingaskrifst. nr. 700. Helwasimar: J. KJ. nr. 74Í. V. St. nr. 1IÍ0. B. Hafb. nr. 770. Áskriftagjald innanlands kr. 2.00 ð. mánuBi. Utanland’s kr. 2.50. 1 lausasölu 10 aura elnt. Sanuiingsrofin á Siglufirði. í gærkvöldi, rjett áðnr en sím- anum var lokaS, sannfrjetti Mbl. ]?aÖ, a'ð allir síldarútgerðarmenn • á Siglufirði myndu framvegis greiða eina 'krónu fyrir tunnuna við söltun síldar. Undanfarin ár liefir sú vinna verið borguð með 75 aurum. Hjer skal enginn dómur á það lagður hvort 75 aura kaupið var ósanngjarnlega lágt. En fremur virðist manni það vera sæmileg borgun, þareð handfljótar og van- ar stúlkur fá með því kaupi um •og yfir 3 krónur á klst. Eins og fregnir frá Siglufirði herma, og prentaðar eru á öðruin stað hjer í blaðinu, sáu þær alt lí einu sjer ekki fært að vinna fyrir það kaup. — Fjórar til fimm krónur þurfa þær hjeðan í frá að fá á klukkustund fyrir áð vinna við síldarsöltun. Og síldarútgerðarmenn hafa ■gengið að því eða ætla að ganga að því, að greiða þetta kaup. Hvort 75 aurarnir eða 1 króna •er hið sanngjarna kaup fyrir síld- arsöltunina, er ekki aðalatriðið í þessit máli. þá á síld, og yrði hún ekki sölt- uð jafnóðum og hún kom í land, þá yrði hún útgerðarmönnum að miklu leyti ónýt. Samningnum — loforðum kasta þær góðu verkakonur fyrir borð, og nota sjer augnablilts nauðsyn vinnuveitenda á þann lúalegasta hátt. Það er þessi aðferð, þetta fram- ferði, sem kemur almenningi við, hvar á landi sem er. Afleiðingarnar eru svo augljós- ar. Enginn maður, með þetta fyrir augum, getur treyst á verkamann sinn. Þó menn ráði til 'sín fólk fyrir ákveðið kaup til ákveðinnar vinnu, þá geta menn hjeðan af búist við því, að hhiupi frá gerðum verkafólkið En það er önnur hlið á þessu máli, sem kemur öllum almenn- ingi við, og hverju einasta manns- barni í þessu landi: Á Siglufirði eru ráðin nokkur hundruð kvenmanna. Gerðir eru samningar um ákveðið kaup. — Gildir það einu hvort hátt er eða iágt. Báðir aðilar hafa gengið að samningunum. Enginn veit annað en verkakonur sjeu ánægðar með það kaup, sem ákveðið er. Enginn hefir hugmynd um að nokkur óá- nægja eða vandræði sjeu í aðsígi. Síldarútgerðin á Siglufirði er með allra mesta móti. Hafa út- gerðarmenn lagt sig fram til þess ú alla lund að láta síldina ekki ganga úr greipum sjer í ár. Þeir hafa lagt mikið í hættu til þess að afla stúlkunum atvinnu, er í landi bíða og samið hafa um 75 aura 'kaup fyrir söltun tunnunnar. ____, w samnmgum, hvenær sem' því þóknast. i Og eftir fordæmi Siglfirðinga að dæma, þá vaknar tilhneigingln j til samningsrofa, einmitt þegar svo stendur á, að vinnuveitendur eru varnarlausir. Ánægjustund er það í herbúð- um Bolsa, er þeir sjá slíkan ávöxt af boðskap sínum. Glaður verður Hallbjörn og og Ólafur og alt þeirra lið. Þeir hafa sannarlega ástæðu til þess. Þeir fengu því að vísu ekki framgengt í ár, að Samband ísl. samvinnufjelaga styrkti blað þeirra. f ár verður peningum bænda eigi varið til þess að út- breiða boðskapinn um „hágöfugt“ hlutverk samningsrofanna. Ennþá geta þeir ekki sýnt það svart á hvítu að fje bændanna sje notað til þess að grafa allan grundvöll undan verkafólkshaldi í landinu. En aðferð þeirra hefir fest ræt- ur í sjóplássunum. Hún er notuð . á Siglufirði nú. Og hver veit hve lengi íslenskir bændur geta treyst þv*í, að verkafólkið svíki þá ekki þegar mest á ríður. (Bnnþá er mikill meiri liluti ís- lensks verkafólks og íslenskrar alþýðu öðruvísi sinnaður en Sigl- firðingarnír. :í En alt tekur sinn tíma. Og hver veit hvenær Bolsar ráða í sveitun- um. Hefir einn helsti frumherji jafnaðarmanna hjer á landi og samherji Ólafs Friðrikssonar, -Tó- nas frá Hriflu, ekki ferðast um sveitirnar nú undanfarið á kostn- að bænda? Er hann ekki enn í bændaflokknum ? Jú, sannarlega. 1 Þeir Ólafur Friðriksson og Hall- björn og allir þeirra fjelagar geta átt sjer bjartar framtíðarvonir, ef (íslenskir verkamenn svæfa hjá sjer alt velsæmi og sómatilfinn- ingu og feta í fótspor Siglfirð- inganna. Verkakonurnar bíða átekta með dagpeninga sína. Enginn bærír á sjer. Alt í einu er von á því, að síld fari að veiðast í stórum stíl og út- gerðarmenn fái eitthvað sem um munar upp í þann kostnað, sem þeir hafa lagt fram — í titgerð, dagpeninga og annað. En þá skjóta stúlkurnar á fundi, þá samþykkjá þær að salta enga tunnu fyrir umsamið kaup — samþykkja í einu hljóði að ganga í gerða samninga, ganga á gefin loforð, og snerta ekki á því verki, sem þær eru ráðnar til að gera. Það getur engin tilviljun verið uð þær samþyktu það á laugar- daginn. Allir vissu að von var erlendar SlMFREGNIR Khöfn 19. júlí ’25. FB. Ummæli merkra lækna um krabbamein rannsóknirnar. iSímað er frá London, að hið al- kunna læknablað „The Lancet“, birti greinar eftir merka lækna, er telja það hafa afar mikla þýð- ingu, að krabbameins bakterían er fundin. Tekniska aðferðin, sem notuð var við uppgötvunina getur ennfremur komið að gagni í bar- daganum við aðra sjúkdóma, t. d. mislinga, heilabólgu o. s. frv. — Margir vænta, að þessi uppgötv ■ un verði leiðarvísir til þess að finna meðal við krabbameini. Verkfall á Siglufirði. Sfldarsöltunarstúlkur rjúfa samninga og heimta kaup- hækkun. Leggja að öðrum kosti niður vinnu. Útgerðarmenn neyðast til að láta að kröfum þeirra. (Einkaskeyti til Morgunbl.). Siglufirði, sunnudag 19. júlí, kl. 7 e. h. — Síldarútgerðarmönnum hjer barst í gærkvöldi (laugardag) undirskrifað skjal frá 375 síldar- stúlkum, þar sem þær boða verk- fall kl. 12 'í dag (sunnudag), ef þær eigi fái 1 krónu fyrir að salta tunnuna. Útgerðarmenn hjeldu fund með sjer og kusu 5 manna samninganefnd og er Ásgeir Pjet- ursson formaður hennar. Bjóða út- gerðamenn 85 aura fyrir að salta tunnuna, en samningar ákváðu 75 aura. 400 síldarstúlkur halda nú fund og ræða málið. Getur þetta haft hinar alvarlegustu afleiðing- ar, ef eigi næst samkomulag bráð- lega. í dag er engin síld. A. — n. Öspektir og hark. — Á þriðja himdrað verkakvenna bægja verkfúsum stúlkum frá vinnu. Bærinn í uppnámi í fyrrinótt. (Eftir símtali í gærkvöldi). í fyrradag varð ekkert útgert um söltunarkaupið. Útgerðarmenn voru tilleiðanlegir með að hækka það upp í 85—90 aura á tunnu, og við það sat. í fyrrinótt komu nokkur skip inn með síld. Eitt af skipum S. Goos kom inn með 500 tunnur. Stúlkur þær, sem hjá honum voru raðnar mættu allar á staðnum til vinnunnar. Lofaði hann þá að þeim yrði goldið það kaup sem alment yrði komið sjer saman um, þegar nýir samningar kæmust á. En þetta þótti stallsystrum þeirra ekki nóg. Fjölmentu þær á söltunarplássíð og fengu nokkra karlmenn sjer til aðstoð- ar. Þær aðvífandi voru um 200. Gerðist nú hark mikið og gaura- gangur, hróp og sköll. Yar meðal annars æpt hástöfum: Niður með auðvaldið", og annað í þeim tón. Með ofbeldi var söltunarstúlk- um varnað að salta. Sumar sátu svo fast við sinn keip að vinna varð þeim ekki vörnuð fyrr en þær voru teknar með valdi og þær bornar burtu. . Gekk í þessu þjarki mikinn hluta nætur. f gær komu 15—1600 tunpur af síld til Siglufjarðar. Fjekst söltun á þeim öllum. En það mun hafa orðið með því móti að útgerðar- menn hafa búist við að gengið yrði að kaupkröfunni að gjalda eina krónu fyrir söltun tunnunn- ar. Vandræði Frakka í Marokkó. Símað er frá París, að öllum sje ljóst, að ástandið í Marokkó sje ákaflega alvarlegt. Hjálparlið komst ekki á vígvöllinn fyr en eftir 10 daga. Hitinn á vígstöðvun- um er lítt þolandi. Margir fallnir. Fjöldi særður síðustu dagana. Khöfn, 20. júlí. FB. Frakkar flytja herinn úr Ruhr. Símað er frá Berlín, að Frakk- ar hafi hafið burtför sína úr Ruhr-hjeruðunum. Frakkar sækja á í Marokkó. Símað er frá París, að í ákaf- lega hörðum bardaga hafi Frökk- um heppnast að reka uppreistar- menn aftur sumstaðar á vígstöðv- unum. DAnMERKUR FRJETTIR. (Tilk. frá sendih. Dana.) Rvík 18. júlí ’25. FB. Viðtal við Garðar Gíslason. í „Börsen“ er birt viðtal við Garðar Gíslason, og gerir hann í því grein fyrir starfsemi Verslun- arráðsins. Garðar þakkar enn- fremur hina ágætu móttöku í Dan- mörku fyrir hönd íslensku þátt- takendanna á verslunarráðstefn- unni. Axel Brejdahl um „listakabarettinn.“ Maður að nafni Axel Brejdahl hefir skrifað grein, sem birt er í „Politiken,“ um samvinnu á milli íslendinga og Dana í málum, er snerta listir, og minnist hann í því sambandi á „listakabarettinn“. — Segir hann, að menn sjeu enn að þreifa fyrir sjer hvernig slíkri samvinnu verði best háttað, en vonast til, að með aðstoð góðra manna af báðum þjóðum, verði hægt að koma á samvinnu á þess- um sviðum er margt gott muni af leiða. Frá Grænlandsmiðum. Samkvæmt loftskeyti frá Dana, sem er í fiskirannsóknaför við Vestur-Grænland, undir stjórn pró fessors Adolph S. Jensens, var engin þorskveiði á ,Fyllas Banke' í byrjun júní, en aftur var gnægð af þorski í sjónum þar 4. júlí. í Frá Vestfjörðum. Frá ísafirði er Morgunblaðínu skrifað 14. þ. m.: Síldveiðarnar. Síldin er að koma. Reknetabát- ur kom inn í gær með öll net full, eða um 10 tunnur í net að meðal- tali, um 220 tunnur í 20—30. Af þecsari síld voru ekki saltaðar nema 65 tunnur, hitt fór í bræðslu. í dag fjekk annar bátur um 60 tunnur í net. Síldveiðamenn segja, að síldin sje ekki farin að vaða enn, átan sje neðarlega í sjó. Aftur á móti sýnir fengur þessa báts, að síldarmagn er fyrir. Margir reknetabátar ganga hjeð- an í sumar, og er tilætlunin að salt hjer allmikið. Síldin er enn mögur, en batnar óðum. 3 1 Framkvæmdir fjel. „Andvara.“ Á Önundarfirði er verið að vinna að miklu mannvirki. Er; verið að reisa þar lýsisgeymi, sem taka á 5000—6000 föt. Er það feikna mikið ílát. Verksmiðjan á Önundarfirði er nú orðin mjögi fullkomin, líklega með fullkomn- ustu verksmiðjum á landinu, og bryggjur og safnþrær stórar. Fjelagið „Andvari,“ sem á verksmiðjuna, ætlar að kaupa afar, mikið af síld í sumar. í því skyni hefir það 2800 tonna bark á Siglu- firði sem safna á í síld og stærðar, gufuskip, sem bæði á að dragá barkinn vestur og flytja síld þangað, sem keypt verður í það. Hefir heyrst, að „Andvari“ kaupi síld af 20 skipum í sumar. Vertíðin og grassprettan. Vorvertíð vestanlands í meðal- lagi. Óþurkasamt er nú um þessar, mundir. Grasspretta er mjög góð. j Sláttur er byrjaður víða, og er það með langfyrsta móti. Frá ísafirði. ísafirði, 20. júlí. FB. j íSíIdveiði í reknet: Saltaðar um . 2000 tunnur (á Isafirði). Þurk- j laust enn. Töður farna.r að skemm' j ast. Búnaðarmálastjóri fór hjeð- , an í dag vestur á fjörðu, áleiðiá i til Barðastrandar. Hefir hanri farið hringferð um Strandir og Djúp. Frá Borg'arfirði. Borgarfirði eystra, 20. júlí FB. Húsbruni. Stúdentasöngvarar. Stúdentasöngf 1 okkurinn söng í nótt eftir kl. 12. Húsfyllir. Á- heyrendur ánægðir. — Hús Jóns Björnssonar brann í fyrradag. Það var vátrygt. íbúandinn var Jón Jóhannesson kennari, og misti hann aleigu sína. Munir hans voru' óvátrygðir. Óvíst er um upptök eldsins. .-i w Geysimikill hiti af sólu hjer í gær og var þurkurinn óspart not- aður t.il þess að þurka fisk og töðu. Er heynýting góð og hafa flestir þurkað það sem þeir áttu úti af heyjum. Fiskafli batnandi. Góður á Langanesi. H. GENGIÐ. Reykjavík í gær. Sterlingspund 26.25 Danskar krónur 113.64 Norskar krónur 97.16 Sænskar krónur 145.45 Dollar 5.41% Franskir frankar 25.68 DAGBÓK. Hjúskapur. Á laugardaginn var voru gefin saman í hjónaband, af sjera Friðrik Hallgrímssyni, ung- frú Ragnheiður Jónasdóttir frá Bjarteyjarsandi á Hvalfjarðar- strönd og Magnús Magnússon, verkstjóri hjá Lofti Loftssyni iit- gei ðarmanni. Til Strandarkirkju: frá Anny kr. 24.00. Til Elliheimilisins Grund: frá Anny kr. 5.00. Trúlofun. Nýlega hafa opinber- að rúlofun sína ungfrú Elísabefr

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.