Morgunblaðið - 29.09.1925, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 29.09.1925, Blaðsíða 5
Aukabl. Morgbl. 29. sept. ’25. MORGUNBLADIÐ 5 Drekkið Bjór Heildverslun Ásgeirs Sigurðssonar, Sími 300. 0000*C>000000000000000000000<»0000000-0 Biðjið um tilboð. Að eins heildsala. Selur timbur í stærri og smærri sendingum frá Kaupmannahöfn. — Eik til skipasmíða. Einnig héila skipsfarma frá Svíþjóð. P. CU. Pacobsen & 5ön. Stofnuð 1824. Símnefni: Granfuru. New Zebra Gode. Timburverslun. Kaupmannahöfn C, Carl-Lundsgade. OCxXÖOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOQOOO Heilbrigöistíðinöi. Almennar frjettir vikuna 13. til 19. september. í Reykjavíkurhjeraði fanst einn sjúklingur með taugaveiki (í Við- ey), annars er þar ágætt heilsu- far. Svo er og í öðrum hjeruðum, að því er jeg best veit, alstaðar góð sumarheilsa. 22,—9.—’25. G. B. Úr bændabygðum. Matvæli. Það má segja, að þjóðin lifi nú við góð kjör og góða heilsu — ef litið er á liðna tíð. Viðkoman e:: nú um það bil 1% á ári (þ. e. f ólksf jölgunin). Og með þeim þætti tvöfaldast þjóðin á 70 árum. Jeg hefi einu sinni — fyrir 12 árum — spáð því, að árið 2000 muni 250.000 manns lifa á landi hjer („Næstu harðindin“ bls. 14). Bn mjer er nær að halda, að sú spáfluga springi, fólkið verði orðið fleira en því nemi. Það er r.útíðarreynsla, að þjóð sem vegn- ar mjög vel, æxlast svo fljótt, að fólksfjöldinn tvöfaldast á 50 ár- um. Ef nú þar við bætist inn- ílutningur fólks, þá vex þjóðin enn örar (Bandaríkin!). Islenska þjóðin á vafalaust hrað fara vöxt í vændum — ef hún sveltur ekki. Það er sulturinn, það er hall- æri og drepsóttir, sem hamlað hafa vextinum alt til skamms tíma. Og það er ekki langt að fara. Jeg veit fullar líkur þess, að í harðindunum 1881—87 muni bjargarskortur hafa grandað heilsu og lífi allmargra manna. Fyrir 50 árum var oft og tíð- um svo þröngt í búi víða hvar á vorin, að það sá á fólki. Og það Ikom fyrir, að slíkt bar fyrir mín augu fyrstu læknisárin mín hjer í Reyk j aví kurh j er að i. Þetta liefir alt breyst til batn- aðar og okkar að sjá fyrir því, að það komi ekki fyrir næstu kynslóð. En þetta, að matarskortur er miklu fátíðari en áður, það er ekki eina breytingin. Jafnframt hefir orðið stórkostleg breyting á matarhæíi þjóðarinnar. Hverjar eru þær breytingar, og eru þær til bóta? Aðalbreytingin er í því fólgin, að notkun þeirra matvæla, sem aflað er úr jurtaríkinu, hefir aulk- ist stórkostlega, eu notkun mat- væla úr dýraríkinu minkað að því skapi. Þetta er mjög eftirtektar- vert, ekki síst af því, að mestöll matvæli lir jurtaríkinu verðum við að kaupa af öðrum þjóðum. Hins vegar seljum við þó marg- falt meira af matvælum út úr landinu, matvælum úr dýraríkinu (fiskur, kjöt o. fl.). Hjer fer á eftir skýrsla um helstu aðflutt matvæli 1870 og aftur 1920. Hefir Hagstofan hjálpað mjer til að tina þær tölur saman. Helstu aðflutt matvæli. 1870 1920 kílógr. kílógr Eúgur .. .. 2.556.000 96.000 Eúgmjöl .... 471.900 7.240.000 Bankabygg . 1.115.600 164.422 Bygggrjón .. 50.100 37.394 Lvggmjöl .. 108 15.697 Hveitimjöl .. 27.967 3.659.472 Hveitibrauð 92.874 133.096 Skonnrok . ■ 10.956 130.832 Hrísgrjón .. 233.165 180.778 Baunir .. .. 253.100 210.779 Hafragrjón .. 1.996.115 Kartöflur .. 41.200 1.147.960 Kandíssykur 173.888 168.163* Hvítisykur 57.206 1.157.968* Strausykur L.569.368* Púðursykur 18.960 20.479* Syróp 9.500 590 Hjer er margs að gæta. Þessar tölur verður að bera saman við fólksfjölda. 1870 var fólksfjöld- inn á öllu landinu 69.763. En 1920 var íbúatalan 94.690. Það kemur þá í ljós, að 1870 kom,u á mann um það bil 69 kg. af kornmat og tæp 4 kg. af sykri. En 1920 komu á mann um það bil 146 kg. af kornmat og 30 kg. af sykri. Þessi stórkostlega breyting hef- ir vitanlega gerst smátt og smátt. Er hjer ekki rúm til að rekja þann feril. Þess ber að gæta, að aðflutn- ingur matvæla úr dýraríkinu hef- ir líka aukist að miklum mun, var lítill 1870, en nam 1920 1.015.070 kg. (ket, feitmeti, ostur, egg o. fl.) og metið á 2.600.000 kr. Um allar þessar útkomur má margt hugsa. Við sjáum til dæm- is' að rúgurinn kom áður mestall- ur ómalaður, en nú malaður. Þetta er ótvíræð afturför. Hveiti- kaupin hafa aukist stórkostlega á móts við rúg, og er það vafasöm framför; sumir telja það beina afturför, af því að minna er af fjörefnum („vitaminum") í hveiti en rúg. Hafrar eru ágæt fæða — þar er breyting til batnaðar. Þá verður að minnast á kart- öflurnar. Við sjáum að aðflutn- ingurinn hefir aukist stórkostlega. Jafnframt hefir kartöflurækt tek- ið afarmiklum framförum hjer á landi. Þetta er ágæt nýjung, eink- um til sveita, þar sem tíðast er fátt um nýmeti (nýtt ket, nýjan fisk). Það er veglegt verkefni fyrir Búnaðarfjelag fslands að hlynna að kartöfluræktinni. Kart- öflur eigum við ekki að kaupa af öðrum þjóðum. Það er óþarfi. Þær geta vaxið víðast hvar í bæjndabygðum. Kartöflurækt er nú best stundnð í sveitunum sunn an undir Eyjafjallajökli og Mýr- dalsjökli (Eyjafjallasveitum og Mýrdal), enda hygg jeg að þar mætti rækta kartöflur í svo stór- um stýl, að tekið yrði fyrir allan Ikartöfluflutning frá öðrum lönd- nm, Þó verður aldrei vart við kartöflur þaðan að austan hjer í Reykjavík. Því valda illar sam- göngur — járnbraut vantar. Al- staðar stendur járnbrautaleysið bcstu bygðunum fyrir margvísleg- um þrifum. Eitt verð jeg að segja: Verðið á kartöflum hjer í Reykjavík er nú afarhátt, svo að kartöflur eru hjer miklu dýrari en flest önnur fæða, miðað við næringargildi. Það mtm þykja harla eftirtekt- arvert, að sykurátið liefir meira en sjöfaldast á undanförnum fim- tíu árum. Sykur er að vísu ekki mjög dýr fæða, miðað við marga aðra fæðu. En minna má þó gagn gera. Um kornmataraulkninguna er cðru máli að gegna. Hún er til bóta, meina jeg. Og svo er annað: Kornmaturinn er okkar ódýrasta fæða nú á dögum. Það var öðru vísi áður, þa var harðfiskurinn „brauð íslendinga1 ‘, eins og Egg- ert Ólafsson rjettilega komst að orði. Skreiðin var á fyrri öldum ódýrasta fæðan hjer á landi — það hefi jeg fundið út úr okkar fornfrægu Búalogum. Jeg sný mjer þá að matvælum úr dýraríkinu, þeim sem lands- mikið til búsins. En rosknir menn vita vel, að þar hefir einnigmargt breyst undanfarin 50 ár. Ketát hefir stórum minkað á sveitaheimilum. Ketið er orðið helsta verslunarvara bænda. Það er orðið dýr fæða. Það er sparað. En slátri hafa þeir nóg af, meira en áður. Má segja, að það komi í stað ketsins. Og þegar um vetr- arfæjði er að ræða — „gamlan mat“ — þá er vel verkað súrt slátur að mörgu leyti ekki lak- ari fæða en saltket. Sumir halda því fram, að súrmeti sje hollara en saltmeti. Hjer er og á það að minnast, að nú er hrossaket orðið algeng fæða víðs vegar um land. Er það vel farið. Það er holl og góð fæða. A því er enginn efi. Og það verður bændum miklu ódýrara en sauðaket eða nauta- ket. Súrt skyr — gamalt skyr — verður varla á vegi manns síðan hætt var að færa frá og hafa ær í kvíum á sumrin. Það tel jeg vel farið. Eldsúrt skyr er ill fæða, þó að nýtt og nýsúrnað skyr sje ágætur og hollur matur. Þá er harðætið, harðfiskurinn, skreiðin. Um þá vöru er nú miiklu minna en áður. Harðfiskur er næringarmikil og góð fæða, góð fyrir magahraust fólk, en all tor- melt. Einn höfuðkostur fylgdi skreiðinni: Hún þroskaði tennur barna og unglinga og hjelt þeim óskemdum. Tannpínan — sú sí- vaxandi þjóðarpína — stafar vafa laust af harðætisskorti, aðallega, en ekki bara af sykuráti, eins og margir halda. Eitt er eftirtektarvert. Við sem höfum svo lítið á borð að bera af innlendri jurtafæðu, við erum að hverfa frá ýmsri þeirri jurtafæðu, sem forfeður okkar neyttu í stór um stýl. Á jeg þar einkum við fjallagrös og söl. Ef nú spurt er um galla á raat- reiðu sveitamanna, þá verður eig- inlega ekki fyrir manni nema einn höfuðgalli, sem sje skortur á nýmeti mestan hluta árs. Hvernig á að bæta úr því? Menn hafa bent á mörg ráð: reisa íshús í sveit- nm, sjóða niður á haustin, slátra smám saman árið um kring til heimilisþarfa (besta ráðið). En þar er eitt enn. Afarvíða á land- inu eru silungsvötn þar sem veiða má eða veiða mætti árið um kring. Og silungsveiðina mætti vafalaust auka stórkostlega, með silunga- klaki og viturlegri veiðiaðferðum en nú tíðkast. Hver á að vinna að þeim þjóðþrifum — fiskifjelagið 1 húnaðarfjelagið? IHjer hefir verið farið fljótt yfir sögu, örlítið minst á nokknr atriði í matfangamáli þjóðarinn- ar, máli sem einlagt liggur of lang't niðri í láginni. En jeg get ekki lokið þessu tuli mínu án þess að minnast á höfuðhættu þjóðarinnar — hafís- ir:n. Verstu harðindin, verstu haf- ísharðindin koma ekki á hverri öld. En lesið um harðindin á sí- asta áratug 17. aldar, lesið í bók- nm Þorvaldar Thoroddsen (Lýs- ing íslands. Árferði á ísl.), eða lesið bara lítinn bækling minn, er heitir „Næstu harðindin“ og kom út 1913 (fæst enn í bókabúðum). Og engum mun dyljast, að það geta komið þau ísár, að alls ófært I verði fyrir skip að Norður- og *) Þessar tölur eru teknar úr j menn leggje sjer til munns. Þau! Austurlandi frá því á útmánuðum verslunarskyrslum fyrir árið 1921,' eru flest innlend. Eru engar skýrsl1 og fram á sumár. Og munið svo, af því að sundurliðun vantar 1920. 1 ur til um það, hve bændur leggja' að nú er jafnan bjargarlaust í SYKUE í ‘kössum 25 kg., og besta hveiti í pokum, sem hægt *r að fá, selur ódýrast Tersltmin „Þörf“, Hverfisgötu 56, sími 1137. Komið sjálf og reynið I Pfjónagarn 30 litir nýkomnir. Mll Ein I El llerðlækkuns 3000 bollapör, postulín á 75 aura. 1000 bollapör á 55 aura. 100 kaffistell 6 manna á 11,00. 50 þvottastell á 11,75. Landsin mesta úrval af al- úminium búsáhöldum. Flestar vörur lækkaðar í verði. — i Einon * Eiörn. Fyrirliggjandi i H BJinssu i ti. Sfml 720* Á hlutaveltu Taflfjelagsins voru dregnir þessir happdrættisseðlar á skrifstofu bæ- jarfógetans: Nr. 5197 Stofuklukka. ( Nr. 3429 Rit Björnsons. Nr. 2578 Legubekkur. Munirnir sækist til Ágúsar Pálmasonar, BergþórugÖtu 20, — fyrir 30. okt. þ. á. kaupstöðum um miðjan vetur, st.ólað upp á miðsvetrarferðir skip anna. Ef þær bregðast — og þær geta brugðist, á næstu öld, eða þessari öld, kannske áður langt líður — enginn veit það fyrir. En við vitum það sem af er. Við vit- um, að það er samgönguteppan sem verst hefir leikið þjóðina í þeim heljararum. Samgðngutepp- an ein (allir aðdrættir bannaðir) hefir stundum valdið því, að fólk og fje hefir hrunið niður úr hungri. Og jeg á ekki bara vi8

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.