Morgunblaðið - 17.02.1926, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Hðfum fyrirliggjandi
„Bjó3“ b.
Dðnsk ostagerð óskar eftir góðum og tryggum samböndum til að
kaupa Ementhaler og Mysuost (einungfs í heildsölu). Svendborg Ostefabrik,
Svendborg, Danmark. (Hefir búið til osta í 50 ár).
Símassimmn§armr.
Framsögnræða Magnúsar Guðmtindssonar atvinnumálaráðherra
í Neðri deild 13. febr.
(Kaf lar.)
Landsstjórninni var á síðasta
þingi falið að gera samninga um
skeytasamninga við útlönd frá
þeirn tíma er einkaleyfi Mikla
norræna ritsímafjel. væri á enda,
eða frá 1. okt 1926, þó þannig,
að samningar þessir skyldu lagðir
fyrir Alþingi til samþyktar á
eftir.
Þessir samningar hafa nú verið
gerðir og er farið fram á, að Al-
þingi veiti samþykki til þess að
gera megi endanlega samninga.
Saga málsins.
Samningar um rekstur sæsímans
í Norðursjónum 1924.
Saga þessa samningamáls er sú,
að á árinu 1924 vissi stjórnin um,
að danska stjórnin og Mikla Nor-
ræna ritsímafjel. áttu í samning-
um um endurnýjun á leyfi fje-
lagsins um rekstur sæsimanna í
Norðursjónum, en rekstur þessara
sæsíma, eða ijettara sagt gjaldið
fyrir notkun þeirra, kemur oss
mjög við, vegna þess, að öll sím-
skeyti vor til Norðurlanda og
víðar, verða að fara um þessa sæ-
síma. Af þessu var það ráð tekið
haustið 1924 að senda landssíma-
stjóra utan, til þess að vjer gæt-
um haft hönd í bagga um samn-
inga þessa, og jafnframt til þess
að grenslast eftir, hvort Mikla
Norræna fjel. mundi vilja ganga
að þeim kröfum, sem vjer yrðum
að gera, til þess að endurnýja
sjerleyfi fjelagsins.
Sömu kjör fást við Norðursjávar-
símann fyrir skeyti til íslands
eins og Bretlands.
Árangurinn af þessari ferð varð
sá, að vjer fengum bindandi lof-
orð um, að svo framarlega sem
samningar tækjust við fjel. um
íslandssímann, skyldi ekki hærra
gjald tekið fyrir hvert orð í skeyt
um til og frá fslandi, er fa’ru um
Noðursjávarsímana, en tekið
væri á hverjum tíma fyrir hvert
orð í skeytum milli Danmerkur
og Englands, en hingað til hefði
hærra gjald verið tekið fyrir okk
ar skeyti en dansk-ensk skeyti.
Ennfremur var það ákveðið, að
ef það yrði ofan á, að færa niður
símgjöldin milli Danmerkur og
íslands, svo að þau yrðu ekki
hærri en milli Englands og ís-
lands, skyldi hlutfallsleg lækkun
koma á gjaldið fyrir notkun Norð
ursjávar símans.
Mikla norræna læst ekki
geta orðið við kröfum vorum.
Að öðru leyti strönduðu samn-
ingarnir alveg um íslandssímanu
og Mikla norræna fjel. ljet í
veðri vaka, að það mundi *alls
ekki geta gengið að kröfum vor-
um, og í samræmi við það ljet
fjelagið þess getið í skýrslu sinni
fyrir árið 1924 til aðalfundar, að
hluthafar mættu búast við, að
einkaleyfið um íslandssímann yrði
ekki framlengt.
Samkomulag fæst eftir mikla
vafninga.
Eft.ir þetta strand samninganna
j 1924 voru svo samningaumleit.anir
: teknar upp aftur síðastliðið haust
I og fór þá enn svo, að f jelagið
. kvaðst ekki geta gengið að kröf-
, unum; en eft.ir mikið þóf fór þó
svo, að fjelagið slakaði til og
; komust á samningar, sem samn-
ingamenn vorir töldu oss hag-
! kvæma, og liggja þeir nú fyrir
lijer til samþyktar eða synjunar.
Leiðirnar fimm.
Þegar um er að ræða skeyta-
samband við umheiininn, er, eftir
því sem nú er komið, um þessar
leiðir að velja:
1. Sæsímasamband eingöngu.
2. Sæsímasamband og loft-
skeytasamband til vara.
3. Sæsímasamhand og laft-
skeytasamband jöfnum höndum.
4. Loftskeytasamband eingöngu.
5. Loftskeytasamband og sæ-
simasamband !il vara.
Tutækilegasta leiðin,
011 am þeini, sem við samning-
í j'a fengust af okkar hálfu kom
saman um það, að hvorki síma-
samband eingöngu nje loÞskeyta-
samband eingöngu væri nægilega
t.rygt, en símasambandið þó trygg-
ara. Einnig voru þeir allir sam-
rnála um það, .eftir nákvæma at-
hugun, að það væri altof dýrt að
halda uppi bæði símasambandi
og loftskeytasambandi sem aðal-
sambandi jöfnum höndum, eða
eftir vali sendanda, því að þá
þyrfti miklu fleira starfsfólk, og
skejúin hlytu að verða dýrari.
Aðal samhand loftleiðina og sími
til vara, mundi einnig verða mjög
dýrt, vegna mannahalds og við-
halds sí-mans, sem er jafnmikið,
hvort sem hann er notaður mikið
eða lítið. Lang tiltækilegast þótti
því símasamband og loftsamband
til vara, svo framarlega sem sím-
skeytagjöldin yrðu ekki hærri um
símann en loftleiðina. Símasam-
bandið er enn sem komið er trygg
ara en loftsambandið, og ef hið
fvrnefnda yrði ekki dýrara fyrir
almenning, væri það hentugra.
Lækkun símagjalda.
Viðleitnin gekk því mjög í þá
átt, að fá símskeytagjöldin svo
langt niður, að loftskeytasam-
bandið gæti ekki orðið ódýrara,
og þetta heppnaðist, eftir þeim
upplýsingum að dæma, sem um
þessi efni fengust, enda hafa síma
g'jöldin lækkað um 8V2 ctm. pr.
orð, eða um 34%, og munar þetta
170000 gullfrönkum á ári, eða
um 150000 kr. Nokkuð af þessu,
eða 4 ctms. fyrir or.ðið, hverfur
þó aftur, vegna þeirrar hækkunar
á sendi- og móttökugjöldum, sem
alþjóða símafundurinn í París síð-
astliðið haust samþykti; en sú
hækkun er vitaskuld þessum
samningum algjörlega óviðkom-
andi, enda kemur hún til fram-
kvæmda 1. apríl í vetur, en samn-
ingarnir ganga í gildi 1. sept. í
haust. Með hinuin nýju samning-
um græðist því 8y2 ctm, eða sem
næst 71/2 eyrir á hverju símuðu
orði, og þessi sparnaður rennur
vitanlega til þeirra, sem fiím-
skeytin senda.
Fjárhagslegur hagnaður ríkis-
sjóðs af samningnum áætlaður
150 þús. kr. á ári. Lækkun síma-
gjalda nemur svipaðri upphæð.
Þá kem jeg að hinni hlið máls-
ins, þeirri, sem veit að ríkissjóði
eða landssímanum. par liggur
málið þannig fyrir, að vjer fyrst
og fremst losnum við 35000 dansk
ar kr., ársgreiðsluna; í öðru lagi
fáum vjer 30000 gullfranka á ari
eða sem næst 30000 kr., sem
nokkurs konar sjerleyfisgjald frá
, fjelaginu. 1 þriðja lagi tökum vjer
, að oss rekstur símastöðVarinnar
á Seyðisfirði, gegn 65000 gull-
franka greiðslu á ári, og telur
landssímastjóri að vjer munum
græða á því um 25000 kr. á ári,
með því að vjer getum rekið
stöðina ódýrar en Mikla norr-
æna. í fjórða lagi fáum við nú
umráð yfir veðurskeytum vorum
og getum. sennilega haft upp úr
þeim um 20000 kr. á ári. 1 fimta
lagi fáum við helming brúttó-
tekjuauka sæsímans, miðað við
orðafjölda 1924, og' áætlar lands-
símastjóri það 37000 kr. á ári að
jafnaði, en vitaskuld er þetta að-
eins líltindareikningur, en hann
styðst við þá aukningu símavið-
skiftanna, sem hingað til - hefir
verið frá árinu 1924 til
þessa tíma. Alls ætti því ríkis-
sjóður að bera úr býtum að jafn-
aði á ári á hinum umsamda leyf-
istíma hjerumbil 150000 kr. um-
fram það, sem verið hefir hingað
til, og er það þá sem næst jafnhá
upphæð og skeytasendendur fá í
lækkuðum símgjöldum. Fyrir rík-
issjóð og símanotendur ætti því
munurinn að verða um 300000 kr.
á ári. Hagnaður ríkissjóðs er þó
eins og jeg tók fram, að sumu
leyti ágiskun, og verður að meðal-
tali minni, ef samningnum verður
sagt upp við fyrsta tækifæri, og
veldur því væntanleg aukning
sí'm aviðskif tanna.
Því sem á hefir unnist við
samninga þessa hefir því verið
skift nokkumveginn jafnt milli
ríkissjóðs og símanotenda.
Ef samningar þessir verða sam-
þyktir erum vjer bundnir við þá
í 3% árs eða til 1. janúar 1930,
og síðan má segja þeim upp ann-
aðhvert ár, og verði þeim ekki
sagt upp, falla þeir úr gildi í
árslok 1934, enda eru þá á enda
STORNYHEDE
Agentur iilbyðes atie.
“ il 50 kr. Fírtii
Energfiske Personer ogsa i Damer i alle Sam-
fundsklasser faar stor extra Bifortjeneste, höi
Provision og fast lon pr Maan- ö veö salg af
en meget efterspurgt Artikel, som en.'og i öisse
ö. a ge Tiöe' er meget letsælgelig. Skn'v s'.raks
saa faar De Agentv lkaartne gratis tils nðte
Bankfirmaet S. fóondahl.
3 Drottninggatan 3, S'ocbholm, Sverige.
samningar þeir, sem Mikla nor-
ræna,. hefir gert bæði við Eng-
lendinga og Dani, um sæsíma þá,
er liggja til þeirra landa.
Áður en jeg lýk máli mínu
þykir mjer skylt að votta nrn-
umboðsmanni vorum í Kaup-
mannahöfn, Jóni Krahbe og For-
berg landssímastjóra bestn þakk-
ir fyrir hlutdeild þeirra í samn-
ingunum. Er því meiri ástæða til
þess að þakka hinum síðarnefnda,
þar sem Öllum er vitanlegt, að
hann vann að samningunum, þótt
hann væri mikið veikur, svo
veikur, að flestir mundn hafa tal-
ið ófært að fást við mál sem
þetta.
.»•« ">«1 ------
Landsmálafjelagið Vörður
stofnað á laugardaginn var.
Dórín andlitspúður frá París.
í litlum öskjum með kvasti, gef-
ur andlitinu eðlilegan og fall-
egan hörundslit. — — Hent-
ugt að hafa í tösku. — Mjög
ódýrt.
Laugavegs Apótek.
Besta sákkBlaðið ei
Á fundi, sem haldinn var í húsi
K.F.TT.M. síðastliðinn laugardag
var stofnað landsmálafjelag hjer
í bænum. Fjelagið heitir „Vörð-
ur“, og hefir það markmið, að
,sameina til starfsemi þá, sem að-
hyllast víðsýna, þjóðlega og var-
fa:rna umbótastefnu á grundvelli
einstaklingsfrelsis, án tillits til
stjettahagsmuna. Fjelagið leggur
einkum áherslu á: Að haft sje sí-!
felt vakandi auga á heiðri og
hagsmunum landsins út á við, að
höfuðatvinnuvegum vorum, land-
búnaði og sjávarútvegi, sje lið-
sint jöfnum höndum, svo að livor-
ugur beri hinn ofurliði, að versl-
nn og viðskifti sjeu látin þróast
í frelsi, án ónauðsynlegra afskifta
ríkisvaldsins, að lagt sje af opin-
beru fje til samgöngumála, verlt-
legra fyrirtækja og aunars þess,
er til framfara horfa, eins ríflega
og unt er, án þess að ofbjóða
gjaldþegnunum, og að hlynt sje
að skóla- og mentamálum vorum,:
listum og vísindum.
Án efa mnn allur þorri bæjar-'
húa geta átt samleið um þessa:
stefnuskrá, nenia sósíalistarnir og
Tímamenn, og er þess að vænta,
að fjelag þetta eig'i eftir að vinna
mikið og þarft, verk, ef menn sýna
því ekki tómlæti. En svo sárt
hafa margir góðir menn fundið
til uppvöðslusemi sósíalistanna
hjer í hænum og víðar, að ekki
er hægt að gera ráð fyrir öðru,
en menn skipi sjer þjett og ein-
dregið utan um þetta merki, sem
hjer hefir i’erið reist. Og víðar
um landið munu menn þá einnig
reisa samskonar merki og hefja
nndir því þá sókn, sem nauðsynlegt
er að framkvæma til þess að taka,
aftur sem mest af því, sem menn !
hafa hálfdottandi látið frá sjer
taka.
Stjórn fjelngsins skipa:
Magnús Jónsson, dósent, for-
maðnr og meðstjórnendur eru:
Sigurhjörg porláksdóttir, kenslu-
kona, Guðmundur Áshjörnsson,
kaupmaður, Bjöm Ólafsson, heild-
sali og Sigurgísli Guðnason gjald-
keri.
Heildsölubirgðir hefir
Eiríkur Leifsson,
Reykjavík.
0
0
af öiium vörum.
í M\\ Usen,
Laugaveg.
Simar:
24 verslunin.
23 Poulsen.
27 Fossberg.
Klapparstig 29
SteinsmiðavBrkfæri.
Hofum fyrirliggjandi *
Telefunken-
Lampa-tæki
Krystal-tæki
Lantpa
Hátalara.
Hjalti Björnsson & Co.