Morgunblaðið - 05.10.1927, Page 3

Morgunblaðið - 05.10.1927, Page 3
mo;u;tjnblaðið 3 MORGUNBLAÐIÐ Stofnandi: Vilh. Finsen. tJtgefandi: Fjelag í Reykjavík. Ritstjórar: Jón Kjartansson, Valtýr Stefánsson. Auglýsingastjóri: E. Hafberg. Skrifstcfa Austurstræti 8. Slmi nr. 500 Auglýsingaskrifst. nr. 700. Heimasfmar: J. Kj. nr. 742. V. St. nr. 1220. E. Hafb. nr. 770. Áskriftagjald innanlands kr. 2.00 á mánuöi. Utanlands kr. 2.50. t lausasölu 10 aura eintakib. ErlEndar símfrEgnír. Khöfn 3. sept. FB. Vísindamaður látinn. Símað er frá Stokkhólmi, að prófessor Svante Arrhenius sje látinn. (Prófessor Svante Arrhen- ius var f. 1859. Árið 1903 hlaut hann Nobelverðlaunin fyrir et'na- fræði). Chamberlain og Rivera hittast. Símað er frá Madxád, að Chain- berlain og Rivera hafi hitst í fyrra kvöld nálæprt Maltoreaeyju. Ri- vera liefir tilkynt, að ýms mál, er hafi alþjóðaþýðingu, liafi verið rædd, en engar ákvarðanir teknar. Khöfn 4. okt. PB. Rússar að grafa undan Bretum. Símað er frá Berlín, að fregnir hafi borist þangað frá Moskva um •að Rússland og Persia hafi imd- irskrifað víðtækan öryggissamn- ing, sem muni auka áhrif Rússa •aðj miklum mun í Vestur-Asíu, en veikja aðstöðu Breta. Hringmyndun. Síxnað er frá London, að blaðið Evening Standard slcýri frá því, •að samkomulag hafi komist á um hringmyndun í efnafræðisiðnaðin- um í Evrópu. Aðalþátttakendurnir •eru British chemical, industries fjelögin og þýsku bensín-iðnaðar- fjelögin. Byltingatilraun hindruð. Símað er frá Madrid, að tvö hundruð samsærismenn, er uppvís- ir höfðu orðið að ])ví, að liafa und- irbúið bvltingu, hafi verið liand- •teknir. Sameigiaiea þögn. Það eru einkum tvö mál, sein ''valdið hafa ínestu umtali manna Á milli nú í seinni t.íð. Er annað fjegjafirnar dönsku til Alþýðu- flokksins hjer, en hitt er neitun dómsmálaráðherrans, að frani- fylgja gildandi lögum. Eftirtektarvert er það, að bæöi -stjórnarblöðin hjer í bænum, Al- býðublaðið og Tíminn, hafa sem •hinsti viljað ræða þessi mál. Mern) höfðu búist við því. eftir -ýnisu sem a undan liafði gongið, ■hð Tíminn mundi eitthvað þurfa •að segja ut af mútufjenu danska. En hann kaus að segja sem minst. Það litla sem hann lagði til mál- ';,nna, voru afsökunarorð til þeirra 'ttanna hjer, sem þetta erlenda fje báðu. Hvernig víkur þessuvið? Ilvern- 'g víkur Jjví við að Tíminn, sem ttndanfarið liefir mikið gasprað yfir því, að liann væri^ eina þjóð- ^pga. blaðið á landi hjer, hann sbyldi nú draga sig í hlje? Ekki vantar þó verkefnið fyrir ])jóðlegr. blað, þar sem uppvíst var, að stjórnmálaflokkur hjer á landi var beinlínis gerður út af erlendum istjórnmálaflokki. Nei, það var .'ekki svo mikið við Jietta að at- huga, sagði hið „þjóðlega“ blað, Tíminn, ]>ví jafnaðarmennirnir í Danmörku eru allra bestu menn, eins og flokksbræður þeirra hjer, sem standa bak við stjórnina okkai-. Um sama leyti og Tíminn, hið „þjóðlega“ blað, lagði blessun sína yfir starfsemi jafnað.armanna,- flokksins danska hjer á landi, var afráðið að dómsmálaráðherrann skyldi fremja lagabrot. — Hann skyídi neit.a að framkvæma gild- andi lög um varðskip ríkisins. — Slíkt lagabrot, sem þetta, gat naumast komið fyrir á annan hátt en þann, að ráðherrann hefði sætt alvarlegri kúgun frá sósíalistum, mönnunum, sem standa bak við stjórnina. En það hlýtur að hafa þurft meira en lítið til þess, að kúga ráðherrann til þess að fremja 'slíkt lagabrot sem þetta, og eiga á hættu að verða dreginn fyrir landsdóm fyrir athæfið. Sú spurning hlýtur því að vakna hjá mönnum: Er samband milli þessara tveggja hneykslismála ? -- Eða er stjórnin svo lítilþæg og vesöl, að hún láti sósíalista ráða því, hvað aðhafst er í stjórnarher- búðunum ? Menn hafa lengi vitað um sam- bandið milli Tímamanna og sósía- lista. Oft og tíðum hafa þeir unnið saman við kosningar. Er skamt að minnast landskosningunnar í fyrra surnai’ o. fl. o. fl. Báðir flokkarnir hafa vafalaust orðið að taka þátt í kosnaðinum við kosningar ]iess- ar. Er því engan veginn óhugs- andi að slatti af fjegjöfnnum dönsku, liafi gengið til Tíma- manna; þeir hafa notið fjárins með sósíalistum. Væru þeir þá orðnir samsekir. Sameiginleg þögn stjórnarblað- anna nú, bendir til Jiess að eitt- hvað sje óhreint í báðum herbúð- unum. Sósíalistar virðast hafa al- varlegt keyri á Tímastjórnina, svo að hún neyðist til þess að hlýða öllum skipunum þeirra. Nýlega var sagt frá því i Tím- anum, að Magnús Gnðmundsson, fyrv. ráðherra, hefði komið dón- asi Jónssyni dómsmálaráðherra í mikinn vanda, er hann var ekki búinn að slcipa mennina á varð- skipunum í stöður sínar. Hvaða vanda komst ráðherrann í með J)essu? Lögin lágu fyrir; var nokk- ur vandi að framfylgja Jieim ? — Vissulega ekki. 1 andinn lá í öðru. Hann lá í hótuninni frá sósíalist- um. Hótuninni um J>að, að gefa skýrslu um danska fjeð, og um það, að verða sparkað af stóli. e£ ekki yrði gert. eins og sósíalistav lögðu fyrir. Þannig er Tímastjórnin buudin á klafa hjá sósíalistum. Hún er gersamlega ósjálfráð gerða sinna. Halda menn, að slíkt fyrirkomulag sje holt fyrir þjóðarbúið? Gjafir og áheit á Ellilieimilið. G. 10 kr„ B. M. K. 5 kr„ Bind- indisbrot 10 kr„ frá konu á Akra- nesi 10 kr„ Ingibjörg 5 kr„ í bygg ingarsjóðinn: Minningargjöf 2 kr„ frá Skagfirðingi 10 kr. Har. Sigurðsson. Skóhlíiar Hlífarstígvjel. Stórt og óflýrt úrval Hvannbergsbræður. Heilbrigðisfrjettir (18. sept.—1. okt.). Eftir frjettum frá landlækni. Reykjavík. Talsvert af kvefsótt, einkum í börnum, og nokltur tilfelli af lungnakvefbólgu, 1 tilfelli af llungnabólgu; þó nokkuð um háls- bólgu. Yfirleitt lakara heilsufar nú en að undanförnu, segir hjer- aðslæknir Suðurland. Heilsufar gott víðast livar. í Háfnarfirði brjóstkvef og yðra- kvef, á Akranesi, inflúensa, er hjer aðslæknir álítur að komið liafi frá Siglufirði og færist heldur í vöxt. 'Hafa. 4 fengið lungnabólgu. — í Borgarfirði yðrakvef í rjenun. Vesturland. 5 hjeraðslæknar segja kikhósta í rjenun eða útdauðan. — Á Pat- reksfirði 10 kvefpestartilfelli. Norðurland 5 hjeraðslæknar segja gott heilsufar. LítiLsháttar kikhósti í Hvammstanga-hjeraði, talsverð ■ kvefsótt í Blönduós-hjeraði. Hjer- aðslælcnir á Kópaskeri segir kik- hósta á öllum bæjum á Hólsfjöll- um, og garnakvef í Axarfirði og Núpasveit. Austurland. Um heilsufar þar símar lijer- aðslæknir á Eskif.: „Kikhósti ný- ilega kominn til Norðfjarðar, breið- ist út nú, líka á nokkrum bæjum í Breiðdal, rjenandi í Pljótsdalshjer- aði, annarstaðar nær horfinn. Eitt tilf. af mænusótt á Seyðisfirði.“ Hólar í Hornafirði sírnar sjer- staklega : „Iíikhósti gengur í Lóni, 'Nesjum og Austur-Mýrum, fremur Jiuugur, enginu þó dáið.“ —-—---------------- Dagbók. Veðrið (þriðjudagskvöld kl. 5). Stormsveipur yfii' sunnanverðu Grænlandshafi. Suðaustan rok á SV-Iandi, au&tanstormur í Ang- magsalik, en hægur norðan á Suð- nr-Grænlandi. Rigning um alt Suð- ur- og Vesturland, en Jiurt á Norð- ur- og Austnrlandi. Sveipurinn færist til norðausturs og kemst. sennilega norður fyrir land á morg un, svo vindur gengur til suðvest- urs hjer um slóðir. Taegð. sem er að myndast suður undir Azoreyj- um getur valdið austan hvassviðri á Suðurlandi aðfaranótt fimtu- dags. Veðurútlit í Rvík í dag: Suð- vestan stinningskaldi. Skúraveður, en batnar seinni partinn. Frystihúsið mikla, sem margoft hefir verið talað um, að í ráði sje að byggja hjer við hðfnina, mun verða bygt í vetur. Komu 5 Svíar frá Gautaborg- með Lyru í gær, er eiga að hafa umsjón með verkinu, m. a. tveir verkfræðingar. Heitir annar Nordenstedt og ætlar hann að veita verkinu forstöðu. Fyrsti fyrirlestur dr. Auers verð ur í ltvökl kl. 6 í Kaupþingssaln- um, og er um skoðanir íhaldsstefn- unnar (í guðfræði) á trúarbrögð- unum. En sá næsti (á föstudag- inn), verður um skoðanir frjáls- lyndu stefnunnar. ‘Slysfarir. í gærkvöldi vildi það slys til við uppskipun úr Goða- fossi, að þungt, járnrör, sem verið var að liefja upp úr lest skipsins, fjell niður í lest.ina aftur, og lenti á tveim mönnum, og slasaði ann- an allmikið. Keðju var brugðið um rörið, en hún bilaði. Annar maðurinn, sem fyrir rörinu va.rð, Jónas Jónsson, fjell í rot, en ekki var sjáanlegt í gærkvöldi, að hann hefði rneiðst neitt. En hann var eftir sig eftir höggið, og var því fluttur heim. Hinn maðurinn, Vil- mundur Ásmundsson, meiddist mik ið á höfði, og var fluttur upp á Landakotsspítala. Sagði læknirinn, sem batt um sárið, Morgunblaðinu í gærkvöldi, að sárið mundi ekki reynast hættulegt, en ekki væri liægt að segja um þá, nema meiðsl- in gætu verið meiri og alvarlegn. Maðurinn var með fullri rænu í gærkvöldi, þegar læknirinn skildi við hann. Skrítið ferðalag. Á Akureyri bar það til fyrir nokkru, að maður einn fór að rjála við mótorhjól, sem skilið hafði verið eftir yið hús eitt í Brekkugötu, og var vjelin í gangi. Maðurinn var óvanur Jiess um fíirgögnum, en vanur hjólreiða maður, og settist á bak, en varð J>ess valdandi um leið, að „klár- inn skelti á. skeið“ á sama vet- faugi. — Maðurínn gat set.ið og stýrt, en. hann gat eltki stöðvað hjólið, og hófst nú ægileg reið urn Akureyrargötur. svo alt lifandi og dautt hrökk undan, eins og storm- ur Jievtti visnuðum blöðum. Mað- urinn stefndi inn í bæinn og hjólið Jiaut og Jiant bæinn á enda og inn úr lionum og fram Eyjafjarðar- veg sem fugl flýgi. Sá nú maður- inn, að hann át.ti líf sitt undir því, að hann gæti st.ýrt svo ekki yrði slys. — Segir ekki af för hans fyr en haiin er kominn fram hjá Saurbæ, 25 km. frá Akureyri, þá stöðvast hjólið af sjálfu sjer. Var þá bensínið þrotið. Lofaði maður- ‘inn guð fyrir lífgjöfina, og þótt- ist sleppa vel. Var mikið um þetta ferðalag talað á Akureyri. Vitar og sjómerki. Vitamálastj. tilkynnir: Við Brekku á Mjóa- firði verða væntanlega þessi inn- siglingar- og legumerki sett upp í haust: Innsiglingarvarða, 4 m. há, hvít með lágrjettri rauðri rönd; 2 m. hátt toppmerki, stöng með þrí- hyrndri rauðri plötu, eitt hornið veit upp. Varðan verður ca. 400 m. fyrir ofan kirkjuna, og ber hún og kirkjan saman á innsiglingunni á leguna, þangað til tvær vörður á Brekkutúninu bera saman, sú neðri 40 m. frá sjó, hin efri 60 m. 'ofar. Neðri varðan er 2y2 m. há, hvít með lóðrjettri rauðri rönd, iy2 m. toppmerki með rauðri kringlóttri plötu. Efri varðan er ' 2y2 m. há, hvít með lágrjettri rauðri rönd, 1 y2 m. t.oppmerki með rauðri ferstrendri plötu með horui upp og niður. Á legunni er 40 m. dýpi — í hallanum —- góður hald- botn. Hjónaband. Gefin verða saman í hjónaband í dag ungfrú Helga Ólafs og Stefán J. Stefánsson cand. juris. ísfiskssala. í gær seldi Maí afla sinn í Englandi, 836 kitti, fyrir 1845 stpd. Er það frábærlega góð sala. Ofsarok gerði lijer í gær af suð- austri. Sleit einn vjelbát upp vest- ur undir grandagarðinum og rak á garðinn. Bátinn á Loftur Lofts- son og heitir hann ,,Svanur“. — Gullfoss kom hingað í gær laust eftir hádegið, Jiegar rokið var mest. Lagði hafnsögumannsbátur á stað út að honum eins og venja er til. Eu komst aðeins út í hafn- larmynnið, og varð að snúa við aft- ur. Gullfoss lagðist því út. á ytvi höfn og var ekki kominn upp að hafnarbakka seint í gærkvöldi. — Var og óvíst, að hann hefði lagc inn í innri höfnina, þó hafnsögn- maður hefði komist út. Goðafoss átti að fara lijeðan í gærkvöldi kl. 8. En hann var ófar- inn seint í gærkvöldi vegna drifs- ins. „Abraham" verðnr leikinn í a»m að sinn í kvöld. Sjá augl.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.