Morgunblaðið - 30.10.1927, Blaðsíða 3
M03GXJNBLAÐIÐ
8
MORGUNBLAÐÍÐ
Stofnandi: Vilh. Finsen.
Útgefandi: Fjelag1 í Reykjavtk.
Ritstjórar: Jón Kjartansson,
Valtýr Stefánsson.
Auglýsingastjóri: E. Hafberg.
Skrifstcfa ^Vusturstræti 8.
Sími nr. 500
Auglýsingaskrifst. nr. 700.
Heimasímar: J. Kj. nr. 742.
V. St. nr. 1220.
E. Hafb. nr. 770.
• Áskriftagjald innanlands kr. 2.00
á mánu'ði.
Utanlands kr. 2.50.
t iausasölu 10 aura eintaklö.
matthías Þórðarson
þjóðminjavörður — fimtugur
HiiiisiaisiHieykslið.
Rannsóknarclómari tekur Eggert
úr varðhaldinu eftir klukkustund-
ar-veru þar.
{Eftir síinfregnum frá Isafirði).
A fimtudaginn gerðist það í
'HnífsdaJsmálimi, að haldið var
snargra klukkustunda rjettarhald
„yfir Hálfdáni lireppstjóra. — Bn
sagt. er að vestan, að ekkert hafi
sannast á Hálfdán í því rjettar-
haldi, og háfi hann neitað enn á-
kveðnara en nokkru sinni fyr að
vera valdur að atkvæðafölsuninni.
Binni klukkustnnd eftir að rann
sóknardómari hafði sett Eggert í
varðlialdið, tók hann hann þaðan
t dag’ verður Matthías Þórðar-
son þjóðininjavörður 50 ára að
aldri. Hann er fæddur að Fiski-
íæk í Melasveit 30. okt. 1877. Voru
foreldrár llans Þórður hreppstjóri
Sigurðsson (d. 1883) og lcona hans,
Sigríður Runólfsdóttir (d. 1891)
frá Saurhæ á Kjalarnesi, systi •
Eyjólfs, sem þar hýr nú. — Matr-
hías settist í 2. bekk lærðaskólans
haustið 1893 og lauk stúdents-
prófi 1898 með 1. eink. Sigldi til
•aftur og flutti burtu með leynd. Khafnar sama ár og lagði stund á
Vissu ættmenn og vinir Eggerts
■eklcert hvar hann var niðurkom-
inn. En þó tókst að grafa það upp,
norræn fræði við báskólann þar
um nokkur ár. Var heima 1902—
03 og fór þá að leggja stund
að hann hafði verið fluttur á skrif íslenska fornfræði, einknm sögu-
stofu Vilmundar Jónssonar hjer-
•aðsheknis í sjúkrahiisinu.
Eins og fyr er getið í frásogn
uð vestan uin þetta mál, hefir
kona Eggerts verið mjög veik.
A miðvikucl. þegar verið var að
staðalýsingu íslands.
Varð lionum brátt ljóst að nauð-
syn bar ti! að setja lög um vernd-
un íslenskra fornminja og vakti
máls á því í Skírni árið 1905. Veitti
j hann síðan stjórninni og Alþingi
taka Eggert og á eftir, fjekk hún|agstoð við samningu slíkra laga,
•ofsalegan krampa. Var læknir hjajer samþ. voru og gefin út 16. nóv.
lienni lengi, og taldi liana nær 1907. — Alfarinn fór Matthías
dáuða en lífi. En í fvrradag var
þún þó noklmi skárri.
Rjettarhald mnn rannsóknar-
dóniari hafa haldið yfir fleirum
ivn Hálfdáni í fyrradag, en ekki
hefír þeyrst, að neitt markvert
■ftafí 'komið fram í þeimi
í gær Jijelt dómari rjett yfir
Eggert í spítalanum í marga
klukkiit’íma. En að því er sagt ec
að vestan, kom ekkeirt nýtt fram
yið þ'að rjettarhald, og neitaði
Eggert mjög ákveðið að hafa átt
úokkurn þlut að atkvæðafölsun-
inni.
Einhverja fleiri kallaði rann-
sóknardómari fyrir rjett í gær, en
fátt markvert mun liafa borið þar
til tíðínda.
Sagt.er að vestan, að það muni
fara að styttast í rannsóknuin
Halldórs þar vestra.
„Alþýðublaðíð“ gat þess fyrir
stuttu, að Eggert liefði aldrei í
fangelsið fa.rið. En þetta er venju
,egt ranghermi þess. Eggert kaus
fangelsið fremur en sjúkrahúsið,
og fór í það, en hann var þar ekki
nema Idukkustund eins og framan
er sagt, hvernig sem á því stendur,
að rannsóknardómari ljet hann
ekki vera þar lengur.
í 2 næstu fyrirlestrum dr. Auers
(mánudag og miðvikudag kl. 6)
verður umræðuefnið-c Jesús Krist
úr (sjónarmið íhaldsstefnunnar oa
* kiálslyndisstefmmnar).
Morgunhlaðið er 8 síður í dag;
•'ftuk Besbókar.
heim árið 1906 og gerðist þá eftir
áramótin aðstoðarmaður Jóns Jak-
öbssonár fornminjavarðar við
Forngripasafnið. Hefir. hann því
á þessu árið verið við safúið í 20
ár. — En er Jóji varð landsbóka-
vörður, var Mattliías settur forn-
minjavörður frá ársbyrjun 1908,
en fjekk veitingu fyrir því em-
bætti 1. júlí sama ár. Það sumar
'og hin næstu ferðaðist. hann um
allar bygðir landsins til að skrá-
setja alla kirkjúgripi samkv. áður-
nefndnm lögum. Atlnigaði liann þá
um leið sögustaði og staðbundnar
fomleifaí víðsvegar um landið og
útvegaði safninu allmarga gripi.
Síðan liefir Matthías haldið áfram
fornleifarannsóknúm meira og
minna á hverju sumri og t. d. nú
síðast í suinar rannsakað ineð út-
grefti bið forna bæjarstæði á Berg-
þórshvoii.
Þegar Matthías liafði tekið við
Forngripasafninu, tók liann að
iviða því niður í deildir og mynd-
aði liann einnig nýjar, svo sem
m anna mynd a deil dina.
Þegar safnið var flutt í húsnæði
]iað. er það liefir nú, sá Matthías
um ]iað að öllu Ieyti og raðaði því
úpp einn, sem er næsta mikið
verk. Þótti honum hafa tekist
snildarlega. að koma. því öllu fyr-
ir, svo ófullnægjandi sem hús-
næðið vitanlega er. Kveðst hann
ekki mundu telja eftir sjer að
raða upp safninu að nýju ef hann
fengi nýtt, og betra húsnæði. -7-
Þykir honum meðal annars safn-
ið nú ekki fullkomlega trvgt
gegn eldhættu.
fð hefir safnið aukist síðan
Matthías tók við því — líklega
tvöfaldast eða vel það. Þykir það
vera í hiiíni bestu reglu og svo
umhyggjusamlega viðhaldið, að
þa,ð er orðið að landsfleygu orð-
taki um Matthías, að ]iar sje
„rjettur maður á rjettum stað.“
— Leiðarvísi samdi liann um safn-
, ið 1913 og Minningarrit er það
ívarð 50 ára sama ár.
í Auk starfsins við Forngripa-
safnið, sem nú heitir Þjóðminja- j
Isafn íslands, hefir Matthías starf-
að mikið í ýmsum fjelögum. t
Fornleifaf jelaginu hefir hann unn-1
ið langt starf. og er Árbók þess
síðustu 20 árin mestmegnis lians
verk. t stjórn Bókmentafjelagsins
hefir hann átt sæti lengi, og verið ,
þar varaforseti síðustu árin. —|
Þá liefir hann gegnt stjórnarstörf-
tim í Heimilisiðnaðarf jelaginu,
Stúdentaf jelaginu og Stúdenta-
fneðslunni, átt frumkvæði að
stofnun „Norræna fjelagsins“ og
„Germanín“, og í mörgum fleiri
fjelögnm hefir liann verið starf-
andi fjelagsmaður. Margvísleg rit-
störf hefir hann haft með höndiim
og liggur eftir hann fjöldi greina
í blöðum og tímaritum. Einn af
stofnendum Listvinafjelagsins var
hann og ritaði fyrir fjelagið bók-
ina „íslenskir listamenn“ í tveim
bindum (1920 og 1925).
Stjórnmál liefir hann ekki látið
'sig miklu skifta, nema fánamálið,
sem var honum sjerstakt áhuga-
mál. Vakti hann máls á því í Stú-
dentafjelaginu í Reykjavík
og fann upp gerð þá sem nú er
'notnð.' Átti líka sæti í fánanefnd-
inni. sem skipuð var af stjórninni j
1914. Að ýmsttm opinberum störf-
uin hefiv hann unnið þessutan, á
nú t. d. sætí í sóknarnefnd Reykja-
víkur. Sæmdttr var hann ricldara,-
krossi Daimebrogsorðunnar 1925.
Mattliias er tvíkvæntur. Fyrri
kona hans var dönsk Alvilde Marie
f. Jensen. Áttu þau tvö hörn, er
bæði eru á lífi í Danmörku.
'Kirsten Sigríði (f. 1906) og Ágúst
Þórð (f. 1909). Síðari konu sinni
Guðríði Guðmundsdóttur kvæntist
bánn 1926.
Svo. sem vita má er Mattliías
meðal þeirra manna er víðkunn-
astir ertt um land alt. Er hann
'hvarvetna mjög mikils metinn og
hinn vinsælasti. Muntt því margir
send'a honum í dag hlýjar kveðjnr
og óska þess að hanú megi lengi
lifa og landið sem lengst, fá að
njóta áhuga hans og starfskrafta.
H.
Safnið myndum af „The
Major“. Fyrir 50 slíkar fáið
þjer þetta smekklega skrín
ókeypis.
Army Clnb
6 aara dgaratta.
Eftirleiðia p’etið þjer svo
keypt pak^ka Army Club
með 200 stk.5 fylla skrín-
in fyrir Í^^tóViur. Á þann
hátt verður Army Club ein
allra besta virginia cigarett-
an, lítið dýrari en sú lakasta,
. eða aðeins 6 aura. Þa fer að
verða lítill munur á verði,
‘hvort þjer reykið það besta
eða hið versta,
Army Club fæst alstaðar
með op; án korkmunnstykkis.
Nýja liósmyndastoiu
hefi jeg opnað í Austurstr. 12
(gangið inn frá Austurvelli).
Opið daglega frá kl. 1 — 5. Hægt að panta
sjerstakan myndatökutíma.
P. 38*jnjéKfssonf
Kgl. Hof. Fofograf.
Fyrirlestrar dr. Fluers
Enn á rtý höfum við fengið mikið af
Oolftrcyium
úr ull, ull og silki og silki, bæði fyrir fullorðna og börn.
J
Asgein G. GiÆnnlanxgssen & Co*
Blir, lámliitir
Ilann liefir flutt fjóra fyrir-
lestra þessa vikuna, eins og að
undanförmi. og nienn liafa lihis*--
að' á hann með sania áhuga og
ánægju, enda er öll framsetning
lians einkar skýr og skilmerkileg
og framburðurjnn glöggur. Þessar
hafa verið meginhugsanirnár:
11. fyrirlestur: Hjálpræðið (sjón
armið rjetttrúnaðarins).
ltjetttrúiiaðarstefnan lítur svo á,
að syúdin sje í því fólgin að vilja
ekki hlýðnast hoðorðum Guðs.
’livort sem vjer skiljum boðorð
Guðs eða ekki. Þ.etta eða liitt er
rangt, af ]iví að Guð telur það
rangt, en ekki af því að maðurinn
líti svo á.
Frh. á 4. síðu.
Mannbroddar á skó og Skóhlífar.
Skautalyklar. — Ska utareimar.
JÁRNVÖRUDEILD
Jes Zimsen.
Málfyndaflelagið Óiinn
heldur fyrsta fund sinn í vetur, mánudaginú 31. október í Kaup-
Jiingssalnum kl. 8^ síðdegis. Tek in verður ákvörðun um tilhögun
fnnda í vetur, og er vænst þess, að fjelagsmenn mæti allir.
STJÓRNIN.