Morgunblaðið - 15.04.1928, Síða 3
MORGUNBL A j) IÐ
3
MORGUNBLAÐIÐ
Stofnandi: Vilh. Pinsen.
(Jtg-efandi: Fjelag í Reykjavík.
Ritstjórar: J6n Kjartansson.
Valtýr Stefánsson.
Auglýsingastjóri: E. Hafberg.
Skrifstofa Austurstræti 8.
Simi nr. 600.
Auglýsingaskrifstofa nr. 700.
Heimasímar:
Jón ICjartahsson nr. 742.
Valtýr Stefánsson nr. 1220.
E. Hafberg nr. 770.
Askriftagjald:
Innanlands kr. 2.00 á mánuöi.
Utanlands kr. 2.50 - ----
I lausasölu 10 aura eintakiO.
Frá 5eyðisfir0i.
ErlEndar símJrEgnir.
Khöfn, PB 13. apríl.
Banatilræði við ítalakonung-.
Prá Berlín er símað: Konung-
Urinn í ítalíu fór til Milano í gær
til þess ’að opna kaupstefnu,
sem þar er haldin. Rjett áður en
konungurinn kom að kaupstefnn-
kvggingunni spraklt sprengikúla
þar fyrir utan og enginn vafi á
því, að sýna átti konunginum bana-
tilræði, Sprengingin varð nákvæm-
lega á fyrirhugaðri komustund
konungsins, en hann kom örlitlu
-seinna en áætlað var. Tilkynt hefir
-verið opinberlega, að fjórtán her-
menn og áhorfendur hafi beðið
bana af völdum sprengingarinnar.
Pjörutíu særðust. Mikill mannsöfn-
uður, sem menn ætla að hafi verið
um hundrað þúsund, safnaðist
saman fyrir framan konungshöll-
ina í gærltvöldi og hylti konung-
irin. Okunnugt er hverjir eru upp-
hafsmenn banatilræðísins.
Prá Lugano er símað: Milano-
blaðið Cörriera della sera, skýrir
frá því, að sprengikúla hafi fund-
ist í gær á járnbrautarlínunni Róm
—Milano, rjett áður en lest, sem
Mussolini var á, kom til Milano.
Atlantshafsflug.
Prá Dublin e'r símað: Þýslta
flugvjelin Bremen flaug af stað
frá Dublin. í gær áleiðis til Am-
-efíku. í henni voru tveir Þjóðverj-
ítr, og einn írskur liðsforingi.
Khöfn, FB. 14. apr.
Atlantshafsflugið.
Frá New York borg er símað:
Flugvjelin Bremen neyddist til
þess að lenda í nótt á Greenly-
«yjunni í Canada, nálægt Que-
bec. Bensínforðinn var þrotinn.
Þjóðverjarnir Koehl og Huene-
feldt og Irlendingurinn Fitc
Maurice hafa þannig fyrstir
hianna flogið yfir norðurhluta
Atlantshafs frá austri til vest-
urs.
Banatilræðið við Italíukonung.
Frá Rómaborg er símað: Tvö
hundruð menn hafa verið hand-
teknir út af banatilræðinu við
Ítalíukonung. Flestir þessara
hianna eru anarkistar, Agenzia
Stefani ber til baka þá fregn,
9ð gerð hafi verið tilraun til
tess að sprengja í loft upp lest
þá, sem Mussolini var ár
^reskt-amerísk f jármálaf jelag.
Frá London er símað: Vold-
ugt breskt-amerískt. fjármála-
íjelag hefir verið myndað und-
h’ foryrstu Alfreds Mond. Er
Sagt, að fjelagið ráði yfir hálf-
miljarð sterlingspunda. Til-
^angur þess er að styrkja fjár-
^agslega iðnaðarfyrirtæki í
^iueríku og Englandi og ef til
VlÞ nokkrum öðrum Evrópulönd
en Englandi.
Worgunblaðið er 8 síður í dag
Lesbókar.
Seyðisfirði FB 14. apríl.
Niðurjöfnun útsvara nýlokið,
upphæð 40 þúsund og 680 krónur.
Gjaldendur 379. Pimm þeir hæstu
greiða samtals 10 þúsund og 300
krónur. Hæsta útsvar 4000 ltr.
Mjög tregur afli á Hornafirði
og Djúpavogi. Er búist við bátum
þaðan í næstu viku aftur. Reit-
iugsafli í norðanverstöðvunum.
Sýslufundur Norður-Múlasýslu
hefst í dag.
Öndvegistíð.
Frá Danmörkn.
Danmörk og Haiti hafa gert
með sjer 10 ára samning um það
að öllum deilumálum ríkjanna
skuli vísað til sáttasemjara eða
gerðardóms.
Konungur og drotning í ítalíu
ltoma í opinbera heimsólm til
dönsku konungshjónanna í Kaup-
mannahöfn liinn 16. apríl. 1 för
með þeim vörðaCharlesprins, Marie
José prinséssa og Hymans utanrík-
isráðhei’ra. Þau halda aftur heim-
leiðis 19. apríl.
Þverár-nndrin.
Eldri drengurinn verður sendur
hingað suður.
Hvammstanga í gær.
Rannsóknum í fjárdrápsmál-
inu á Litlu-Þverá er nú lokið
fyrir nokkru. — Hafa margir
menn verið yfirheyrðir, en ekk-
ert hefir sannast um það, að
neinn hafi verið í vitorði með
drengjunum, og engar líkur
fundist til þess. Kindur bónd-
ans, þær er eftir voru lifandi,
voru margar særðar meira og
minna og varð að skera tvær
þeirra, en hinar munu skrimta
af. —
Yngri drengnum hefir verið
komið fyrir á öðrum bæ, en
eldri drengurinn verður sendur
suður til Reykjavíkur til rann-
sóknar. Hann er mjög undarleg-
ur í háttum og hefir það ágerst
upp á síðkastið. Fer hann mik-
ið einförum og er að öllu líkur
því, sem hann sje ekki með
rjettu ráði.
Jánihrantarmálið
og sjerleyfi ,Titans‘
H.afa þingmenn snúist?
■ Umr. um járnbrautarmálið og
sjerleyfi „Titans11 stóðu fram á
nótt í Nd. s. 1. föstudag .Þykir
framkoma hinna 5 Sunnlendinga
harla. undarleg, þar sem þeir hafa
sent forsrh. skriflega áskorun við-
víkjandi þessu máli, sem forsrh.
m. a. ber nú fyrir sig sem eina
ástæðu fyrir synjun sinni. Kynleg-
ast af öllu er það, sem heyrst hef-
ir, að það hafi verið þingmenn
Arnesinga, er gengust fyrir ásltor-
un þessari. Þegar svo Jör. Br.
flutti fyrirspurn sína í þinginu,
vissi hann mæta vel um svar Tr. Þ.
Hefir Tr. Þ. vafalaust verið bú-
inn að ákveða, í samráði við stjótn
arflokkana, hvað gera skyldi í
þessu máli. HeÞjr þar verið ákveð-
ið, að sjerleyfið skyldi ekki veitt.'
Skyldu sósíalistar ekki eiga simi
þátt í því, að þessi niðurstaða hef-
ir lijer órðið?
Þessi framkoma virðist harla
undarleg. Engum þarf að láta sjer
lcoma til lmgar, að það hefði nokk-
uð tafið fyrir framgangi járnbraut
armálsins þótt sjerleyfi þetta hefði
verið veitt og ekkert oi’ðið úr fram
kvæmdum hjá „Titan“. Pyrir 1.
maí 1929 átti Titan að hafa byrj-
að á járnbrautarlagningu, svo þeg
? r á næsta þingi var liægt að hef j-
ast handa í járnbrautarmálinu, ef
það hefði sýnt sig, að „Titan“
gerði ekki neitt.
Annars þarf enginn að láta sjer
koma til hugar, að ríkið fari á
næstunni að leggja járnbraut aust
Ur yfir fjall. Er því sennilega
óliætt að taka mál þetta út af dag-
sltrá fyrst um sinn.
Geta Áriiesmga-þingmennirnir
nú farið lieim til kjósenda sinna,
og skýrt þeim frá hvernig málið
er komið. Vafalaust skýra þeir
jafnframt frá því, hvers vegna
þeir, viljandi eða óviljandi, hafa
orðið til þess að leggja stein í
götu þessa máls.
Per hjer á eftir lirafl úr um-
ræðum þeim, er fram fóru á þingi
á föstudagskvöld.
Jörundur kvaðst hafa tilkynt for-
sætisráðh. fyrirspurn sína. Sagði að
yfirlýsing sú hefði ekki átt að vera
steinn í götu fyrir sjerleyfisveitingu
stjórnarinnar. Taldi sig vondaufari
nú en í fyrra um að fjelagið mundi
geta bygt járnbrautina, úr því f jelag-
ið hafi ekki f jeð nú þegar, og/ ef svo
væri ætti það ekki að fá sjerleyfi,
heldur ætti ríkissjóður að leggja járn-
brautina á sinn kostnað.
Vildi mótmæla því, að hann hefði
snúist síðan í fyrra, eða viljað spilla
fyrir málinu, en taldi þó ýmislegt mál-
inu til foráttu.
Magnús Torfason sagði, að það væri
engin tröllatrú á Titan fyrir austan
fjall, sem hefði sýnt sig hest í því,
að Titan hefði fallið við kosningarn-
ar í sumar, þ. e. Klemens Jónsson.
P. Otte&en þótti margt skrítið i har-
inoníum. Nú ibærust þeir á banaspjót,
sem í fyrra hefðu staðið hlið við
hlið. 2 þm. Árn. hefði nú lýst því yfir,
að hann hefði greitt atkvæði með
Titan í fyrra á ábyrgð þáverandi ráð-
herra, en nú ætlaði hann að greiða
atkvæði á ábyrgð núverandi atvinnu-
málaráðherra þvert ofan í fyrri að-
stöðu, og yfirl. vildi hann (M. T.)
hafa ráðh. ábyrgð fyrir öllu sem haun
gerði í þessu máli.
Gunnar Sigurðsson: pótti þingm. í
fyrra hafa verið næsta mikil börn ef
þeir hefðu haldið að Titan kæmi vapp-
andi með 4 milj. áður en fjel. fengi
sjerleyfi. pess væri ekki að vænta að
fjelagið fengi nægilegt fje fyr en það
hefði feiigið sjerleyfi.pess vegna hefði
hann neitað að skrifa undir yfirlýs-
ingu fimm-menninganna.
Heimtaði af stjórninni að hún
hrinti járnbrantarbyggingu í fram-
kvæmd, ef hún eyðilegði þessa tilraun
með sjerleyfisneituh sinni.
Sigurður Eggerz lýsti ánægju yfir
því hve margir menn hefðu * snúist
málinu svo forsætisráðherra hefði nú
haft kjark til að kveða þenna hættu-
lega draug niður, þ. e. sjerleyfið, þakk
aði forsjóninni fyrir þennan gleðilega
snúning margra manna í málinu.
Magnús Guðmundsson sýndi fram á
að það væri óliugsandi að fjelagið gæti
haft fjeð á reiðum höndum fyr en
sjerleyfi væri fengið. Lögin væru að-
eins heimildarlög, og með þeim hefði
fjelagið engan rjett. Með sjerleyfinu
væri hægt að setja svo óaðgengileg
skilyrði að enginn fengist til að leggja
fje í fyrirtækið, en meðan fjármála-
menn vita ekki hver þessi skilyrði eru
leggja þeir ekki fje á borðið. Sýndi
að öðru leyti fram á að þeir, sem
skrifað hefðu undir áskorunina til
ráðh. væru að eyðileggja það sem þeg-
ar væri búið að gera fyrir þetta mál,
þvert ofan í fyrri tillögur sínar.
Útsalan
stendur að eins yfir í 3 daga enn bá.
Enn er nokkuð óselt af mjög ódýrum vörum, t. d.
Alfatnaður frá 20,00; Reiðjakkar frá 13,50;
Enskar húfur frá 1,00; Karlm. sokkar frá 0,50;
Hattar frá 4,50; ullarvesti frá 3,00; Regnkápur
frá 14,00; Ullarvetlingar frá 0,60; Ferðateppi
sem kostuðu 9,85, nú 4,00; Kvenbuxur frá 1,35;
Isgarnssokkar frá 1,00; Baðm. sokkar frá 0,50;
Karlm. nærföt frá 4,00 settið.
Það, sem til er af áteiknuðum vörum, verður
selt fyrir Vá virði.
Messingplattar og pottar fyrir Vá virði.
Notið tækifærið og gerið góð kaup.
Munið, aðeins 3 útsöludagar eftir.
VOrnhfisið.
„Jeg hefi aldrei vitað hvað harmonium geta haft til
að bera, f yrri en jeg kyntist MANNBORG“,
/
o*
er viðkvæði margra.
1II*
1 skí- •fliiwrffiöiii i
*
Foreldrar, munið eftir MANNBORG-HARMONIUM,
þegar þjer veljið börnum yðar fermingargjöfina. —
Komið meðan nógu er úr að velja. Fást með hag-
kvæmum greiðsluskilmálum. — Einkaumboðsmenn:
Sturlaugur Jðnsson & Co.
Hafnarstræti 19. Sími 1680.
Útboð.
Þeir, sem gera vilja tilboð í að reisa verslunarhús á Lækj-
artorgi, sem og kaupa húsið nr. 1 við Lækjartorg, til niðurrifs
og flutninga, vitji uppdrátta og útboðslýsingar á teiknistofu
EINARS byggingarmeistara ERLENDSSONAR, næstk. mánudag.
Tilboð verða opnuð þann 21. þ. m. kl. 5.
Reykjavík, 14. apríl 1928.
PÁLL STEFÁNSSON.
i,Ariia og eilíiðinC(
Ppjedikanip eftip Harald Nielsson ppófessop,
Biafa vei^ið feldar i werði,
og kosta nú:
í skinnbandi kr. 16.00, shirting kr. 12.00, heft kr. 8.00.
ísafoldarprentsmiðja h.f.