Morgunblaðið - 24.06.1928, Blaðsíða 6
£
MORGUNBLAÐIÐ
nðalfundur EimsklpaQe'agslns.
Afkoman i fyrra betri en undaníarin ár,
og ffamtiðarhor fssr góðaf.
Tekjuafgangur á árinu 1927 nam nálægt
200 þúsund krónum.
Mobiloils
frá
Aðalfundur Eimskipafjelags ís-
lands var haldinn í gær í Kaup-
þingssalnum. Fundurinn hófst kl.
1 og var Jóhannes Jóhannesson
bæjarfógeti kosinn fundarstjóri og
kvaddi hann Lárus Jóhannesson
hrj.m.flm. til fundarskrifara. Að-
sókn að fundinum var allgóð og
höfðu aðgöngumiðar og atkvæða-
seðlar verið afhentir fyrir 40.6%
hlutafjár. Með' umboð Vestur-ís-
lendinga fóru á fundinum Magnús
Kristjánsson fjármálaráðherra og
Benedikt Sveinsson alþm.
Formaður fjelagssstjórnarinnar,
Eggert Claessen bankastjóri lagði
fram skýrslu stjórnarinnar „um
hag fjelagsins og framkvæmdir á
starfsárinu 1927 og starfstilhögun
á yfirstandandi ári“; ennfremur
lagði hann fram endurskoðaða
reikninga fjelagsins og skýrði þá
fyrir fundarmönnum.
Til þess að gefa almenningi
nokkra hugmynd um hag fjelags-
Ins og framkvæmdir á hinu liðna
starfsári, verða hjer birtir kaflar
úr skýrslu fjelagsstjórnarinnar.
I
HeksturshagTUbður um 200 þúsund
krónur.
Reikningar fjelagsins sýna all-
miklu betri afkomu síðastliðið ár
en árið þar á undan, þar sem
tekjuafgangur hefir nú orðið kr.
198.657.07 en árið' áður var hann
aðeins kr. 6.719.91. Reksturshagn-
aður skipanna hefir numið samtals
kr. 291.192.28, en árið 1926 var
hann kr. 71.091.88. Hagnaður
hefir verið á rekstri allra skipanna
þaraf kr. 146.462.63 á Goðafoss,
•eða fullur helmingur af öllum
ieksturshagnaðinum. Á Gullfoss
hefir hagnaðurinn orðið kr. 63.786.
58. Á Brúarfoss kr. 56.804.20 en á
Lagarfoss kr. 24.138.87. Tekjur
allra skipanna samanlagt hafa
numið kr. 2-428.532.77 en gjöldin
kr. 2.137.340.49. Árið 1926 voru
tekur þeirra þriggja skipa en fje-
lagið átti þá, kr. 1.911.174.65 og
gjöldin lcr. 1.840.082.77. Hjer er
því um allmikla. hækkun að ræða,
og stafar sú hækkun vitanlega af
því að' á síðasta ári voru skipin
fjögur. En sje þessu hinsvegar
jafnað niður á skipin, kemur í
Ijós, að tekjurnar hafa verið um
30 þús. kr. lægri fyrir hvert skip
að meðaltali en árið á undan. Að
afkomu f jelagsins er þó þetta mik-
ið betri árið 1927 en árið á undan,
stafar af því að útgjöldin hafa
einnig lækkað allmikið og nemur
sú lækkun tæpum 80 þús. kr. fyrir
hvert skip að meðaltali.
Siglingar skipanna.
Eitt af því sem háði fjelaginu |
mjög var það', hve fáar ferðir voru
milli Reykjavíkur og Kaupmanna-
hafnar með viðkomu í Leith, þar
eð Gullfoss var einn í þeim ferð-
um og leið þar af leiðandi oftast
rúmur mánuður' milli þessara
ferða. Úr þessu var nokkuð bætt
á síðasta ári er Brúarfoss hóf
siglingar. Var skipið jafnan í
ferðum til Khafnar, en eina ferð
fór skipið til London með farm af
frosnu og kældu kjöti og aðra ferð
fór skipið til Hull og hjelt síð'an
áfram til Khafnar. Hamborgarferð .
irnar voru einnig auknar talsvert,
með því að Goðafoss var í stöðug-
um siglingum þangað og fór skipið
als 9 ferðir hingað til lands frá
Hamborg með viðkomu í Hull. —
Jafnframt var Lagarfoss látinn
annast ferðirnar til Norður- og
Austurlands frá Khöfn og Leith
og fór skipið 8 slíkar ferðir, og
sneri jafnan við' á Húnaflóa án
þess að fara alla leið til Reykja-
víkur. ‘
Viðkomustaðir skipanna á inn-
lendum höfnum utan Rvíkur voru
alls 415 árið 1926, en 713 árið
1927. Er þetta mikil framför, sem
stafar af auknum skipakosti.
i
Kæliskipið „Brúarfoss.“
Þær vonir, er menn gerðu sjer
um hið nýja kæliskip fjelagsins
hafa ekki brugðist. Á síðastliðnu
hausti fór skipið tvær'ferðir með
kælt og frosið kjöt til *Englands,
og gengu báðar ferðirnar mjög vel
og reyndust kælivjelar skipsins
og kæliútbúnaðurinn yfirleitt eins
og best var á kosið. í hvorugri
ferðinni fjekk skipið þó fullfermi (
af kjöti, þar sem frystihús voru t
ekki nægilega mörg eða stór til
J)ess að hægt væri að hafa nægi- *
lega mikið tilbxiið af kjöti, svo að
fullfermi fengist, en eftir því sem
fleiri frysthúsum verður komið
upp á höfnum úti um landið, má
búast við að kæliskipið fái meiri
flutning, og sömuleiðis að útflutn-
ingurinn, sem nú er aðallega bund-
inn við einn mánuð að haustinu,
geti náð yfir lengri tíma fram
eftir vetrinum.
Vacuum Oil Company.
Gargoyle-skrá
Skrá þessi sýnir yður hvaða tegung olíu þjer
eigið að nota á bifreið yðar, suniar og vetur.
Nöfn bifreiða Sumar Vetur Qang- skiftihjól Transmiss
Buick .... A. Arc. C.
Chandler . . . A. A. C.
Chevrolet . . . Arc. Arc. C.
Chrysler . . . A. A. C.
Citroen.... A. A. C.
Dodge .... A. Arc. c.
Essex .... A. Arc. c.
Fiat B. B. A. c.
Flint A. Arc. c.
Ford E. E. c.
Hudson . . . A. Arc. c.
Morris .... A. A. c.
Nash .... A. Arc. c.
Oakland . . . A. Arc. c.
Oldsmobile . . A. Arc. c.
Overland . . . A. Arc. c. c.
Rugby .... A. Arc. c.
S. P. A. . . . B. B. A. c.
Studebaker . . A. Arc. c. c.
Willys Knight . A. Arc. c.
Arc.
E.
A.
B.
B. B.
C.
C. C.
Skammstafanir:
er Gargoyle Mobil oil Arctic.
— Mobil oil E.
— Mobil oil A.
— Mobil oil B.
— Mobil oil B. B.
— Mobil oil C.
— Mobil oil C. C.
f Farið eftir vetrarleiðarvisirnum
i þegar hitastig er frá 0° til 18°
Vjelin: ^ Cel. Sje meira frost á að nota Mobil
j Oil Arctic á allar vjelar, nema Ford,
sem ætíð á að nota Mobil Oil E.
Trygging fyrir góðri oliu er að Gargoyle-
merkið standi á hverjum dunk eða tunnu.
t
Ríkissjóðsskipin.
Selfoss keyptur.
Eimskipafjelagið hafði á hendi
útgerðarstjórn ríkissjóðsskipanna
Esju og Villemoes og fjekk fyrir
)>að kr. 48.000.00. í byrjun þessa
árs ákvað stjórn Eimskipafjelags-
ins að kaupa Villemoes (nú Sel-
foss) af ríkisstjórninni og var
kaupverðið 140 þús. kr., er greiðist
á 10 árum með' jöfnum afborgun-
um. Er útlit fyrir að þessi kaup
hafi verið hagfeld fyrir Eimskipa-
fjelagið.
I
Astand og horfur.
Með þeim skipastól, sem fjelagið
hefir nú umráð yfir, hefir verið
unt að fjölga talsvert millilanda-
ferðunum á þessu ári, og eru þær
mi 52 alls. Einkum hefir Ham-
borgarferðunum verið fjölgað, svo
að þær eru nú 20 í stað 9 í fyrra.
Ferðir falla nú með skipum vorum
2—3 á mánuði árið um í kring
frá útlöndum hingað til lands.
Þar sem vörumagnið sem flyst
til landsins og frá því, eykst hins
vegar ekki að sama skapi og skipa-
kosturinn hefir aukist, leiðir það
af þessum tíðu skipaferðum, að
vöruflutningarnir dreifast meira,
og minni flutningur verður með
hverju skipi en áður. Þess vegna
er nú enn nauðsynlegra en áður,
að menn geri sjer far um að beina
öllum þeim flutningi, er þeir' geta,
til fjelagsins. Þessar tíðu ferðir
gera mönnum einnig auðveldara
að nota skipin til flutninga, þar
eð vörur þurfa nú aldrei að bíða
mjög lengi í erlendri höfn til
næstu ferðar, þó þær sjeu ekki til-
búnar til sendingar með þeirri
ferð, sem þær áttu að fara.
Fjelag vort stendur nú orðið
mjög vel að vígi með að fullnægja
flutningsþörf landsmanna á al-
nffennum stykkjavörum. Fram-
haldsflutningar hafa einnig aukist
allmikið á þessu ári, og auk þess
sem mikil þægindi eru að því að
geta sent vörur sínar á framhalds-1
skírteini, og ennfremur að fram-
haldsflutningsgjöld fjelagsins eru
mjög sanngjörn, þá fer það betur
með vörurnar, ef ekki þarf að um-
hlað'a þeim nema einu sinni, en það
þarf að jafnaði ekki með vörur,
sem sendar eru með skipum fje-
lagsins.
Að endingu vill fjelagsstjórnin
minnast þess með þakklæti, að tals
vert auknir flutningar með skip-
um f jelagsins það sem af er þessu
ári, bera vott um það, að lands-
menn hlynna nú að fjelaginu het-
ur en nokkru sinni fyr, og láta það
sitja fyrir vöruflutningum, en í
þessu felst hinn öruggasti grund-
völlur fyrir framtíð fjelagsins.
Fjelagsstjórnin ákvað að verja
kr. 182.474.46 til afskrifta á eign-
um fjelagsins, en kr. 34.406.38
komu til ráðstöfunar á aðalfundi.
Var till. stjórnarinnar sú, að' þessu
yrði ráðstafað þannig: 1. Til
stjórnenda fjelagsins 500 kr. til
hvers, samtals kr. 4500.00, 2. Til
endurskoðenda kr. 3600.00 og 3.
Yfirfærist til næsta árs kr. 26.306.-
38. — Stjórnin sá sjer ekki fært
að leggja til að hluthöfum yrði
greiddur arður. Var till. stjórn-
arinnar samþykt.
Voru þá kosnir fjórir menn í
stjórn fjelagsins og hlutu þessir
lcosningu:
Jón Þorláksson með 13969 atkv.
Eggert Claessen með 13519 atkv.
Garðar Gíslason með 10781 atkv.
og fyrir hönd Vestur-íslendinga
Ásm. P. Jónsson með 13633 atkv.
Voru þessir menn allir endurkosn-
ir; sömuleiðis var Ölafur G. Ey-
jólfsson endurkosinn endurskoð-
ardi fjelagsins með 10724 at.kv.
Björgnn.
ítalskt skip, sem „Artiglea“
heitir, er nýlega lagt á stað í
leiðangur til þess að reyna að
lyfta af mararhotni flakinu af
belgiska gufuskipinu „Elisaheth-
ville“, sem þýskur kafhátur skaut,
í kaf 1917. „Elisabethville“ var
með demantafarm frá íukisnámun-!
um í Kongo og var hann 200 mil-!
jóna franka virði.
Nýkomið:
Skinnkantur,
hv. og misl.
Svuntusilki,
sv. og mislit frá 10.90 í
svuntuna.
Slifsi
frá 5.00.
Upphlutasilki,
5 teg.
Silkisokkar,
viðurkend gæði.
Sængurdúkur,
16.90 í verið.
Ljereft
frá 85 aur. mtr.
Veralun
Laugavegi 11.
Flft
er besta
f lugueitr ið,
fæst i
Nýlenduvörudeild
Jes Zimsen.