Morgunblaðið - 08.07.1928, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 08.07.1928, Qupperneq 4
MORGUNBLAÐIÐ 4 Kappleikar milli Skota og Islendlnga I. kappleikisr á morgun milli K. R, og Skotanna. K. R. Sjö af þessum mönnurn keppa nú í liði K.R. við Skotana og eru þessir, í fremri röð: F. m. Sigj. Pjeturss., og t. h. Sig. Halldórss. f miðröðinni: fyrir miðju, Kristján L. Gestsson og til kægri: Daníel Stefánsson. í öftustu röðinni: fyrir miðju, Guðjón Ólafsson, næst til hægri Þor- steinn Einarsson og yst til hægri: Guðjón Einarsson. gj yg 1 Hugiysiniaðagiiök | jij Viðskifti. 1 Fólksflutningabifreið til sölu. — Einnig 4 hesta bátsmótor, næstum nýr. Uppl. Bergstaðastræti 28, uppi, eftir kl. 8 síðd. Garðblóm og ennþá nokkuð af plöntum fæst í HeUusundi 6, —■ sími 230. Ferðalög með sælgæti og tó- baksnesti úr Tóbakshúsinu, Aust- urstræti 17, eru hressandi og skemtileg. Eammalistar, fjðlbreyttast úr- ▼al, lægst verð. Tnnrðmmnn fljótt og vel af hendi leyst. Guðmundur Ásbjðmsson, Laugaveg 1, sími 1700. Íi Vinna IBÍ Stúlka óskast í vist. Skólavörðu- stíg 44. Katrín Jónsdóttir. Kaupamaður og kaupakona ósk- ast á gott sveitaheimili nálægt Reykjavík nú þegar. Upplýsingar á Afgr. Álafoss. sími 404. Lauga- veg 44. Alafossskemtunin i dag. Bo S. R. hefir ferðirnar þangad. Affgreiðslusimar 715 og 716. Bifreiðasföð Reykjavikur.. Reynið viðskiftin wið okkup. Hjötbúðin Hsrðubreið. Jarðepli góð, valin og ódýr. Heildverslnn Garðars Bíslasonar Ódýrar Kven- Regnkápur nýkomnar. Verslun Egill lacehsen. HorgunblaCiQ fæst á Laugavegi 12 KnattspyrnufjelÖgín hjer í bæ eiga von á góðum gestum með Gullfossi, sem væntanlegur er í dag. 16 bestu knattspyrnumenn meðal skoskra stúdenta, munu á næstunni reyna sig við íslensku knattspyrnufjelögin og tvö ís- lensk úrvalslið. Hefir nú móttöku- nefndin, sem sjá á um móttök- urnar og kappleikana, komið sjer saman um hvernig móttökum og kappleikum skuli hagað, og verða Skotarnir ekki iðjulausir á með- an þeir dvelja hjer. Varpað var um það hlutkesti í hvaða röð knattspyrnufjelögin hjer keptu við Skotana, og fjell það í hlut sterkasta knattsp.fjel. landsins, K.R., að etja fyrst kappi við gestina. Sá kappleikur verð- ur á morgun, mánudagskvöld kl. 8% á íþróttavellinum. Næst kepp- ir Valur, þá Víkingur og síð'an’ Fram, en dagur líður svo á milli hvers kappleiks, að ekki er kept. Verður þá farið með gestina til Þingvalla, en þangað býður bæj- arstjórnin þeim, inn að Alafossi til þess að skoða sundlaugina og íþróttasvæðið, sem hinn merki íþróttafrömuður, Sigurjón Pjeturs- son^ hefir látið gera þar. Síðar verður farið með Skotunum austur í Þrastaskóg og áð að’ hinu nýja gistihúsi, sem frk. Elín Egilsdóttir hefir látið reisa þar í sumar. Eftir að „Glasgow University Football Club“ er búið að keppa við öll fjel. fara aðalkappleikarnir fram þriðjudag og fimtudag í næstu viku, og keppa þeir þá við tvö úrvalslið, B-lið á þriðjudags- kvöld og A-lið á fimtudagskvöld. Á föstudaginn í næstu viku fara svo Skotarnir aftur. i 1. kappleikurinn Hlutkesti rjeð því, að það verð- ur K. R., sem mætir Skotunum fyrst, en það er eins og það sje dálítið meira en tilviljunin ein, að' einmitt knattspyrnufjelagið, sem sigur bar af hólmi í nýafstöðnu íslandsmóti, verður fyrst að verja lieiður ísl. knattspyrnumanna út á við að þessu sinni. Það er þess vegna áreiðanlegt, að K. R. mun gera sitt ítrasta til þess að fara eigi halloka annað kvöld. Lið K. R. er og betur skipað en nokkru sinni áður og mjög líklegt til þess að standa í Skotum. K. R.-liðið verður þannig skip- að ; Sigurjón, Pjetursson mark- vörður, bakverðir: Sig. Halldórs- son, Sigurjón Jónsson, framverðir: Daníel Stefánsson, Kristján L. Gestsson^ Jón Oddsson; framlierj- ar: Guðjón Einarsson, Þorsteinn Einarsson, Guðjón Ólafsson, Hans Kragh (varpað var hlutkesti um hann og Gísla Guðmundsson og varð Hans hlutskarpari) og Sig. Sigurðsson. Eins og sjá má á kappliðinu, þá mun það öllu sterkara en kapp- lið fjelagsins á íslandsmótinu^ þar eð sú breyting hefir á orðið, að í þessu liði keppa þeir: Kristján L. Gestsson, Guð'jón Einarsson og G. Ólafsson. Eins og kunnugt er, eru Skot- ar meðal bestu knattspyrnumanna heimsins, og verður það því áreið- anlega hin besta skemtun að sjá þessa fulltrúa þeirra keppa hjer næstu daga. Gefst þá og hið besta tækifæri til þess að gera saman- burð á leikni og lipurð fslendinga og Skota. Gera má ráð fyrir að kappleik- arnir verða afarfjölsóttir, þareð svo einstakt tækifæri býðst til þess að sjá framiirskarandi góða leika. Sananar, Kartöílur og Epli * >o Prófessor Georg v, Wendt Helsingfors segir: Bananar eru okkar næring- armestu ávextir, þeir eru næstum eins næringarmiklir og hollir og kartöflur, en meir en helmingi næringar- meiri en epli. J Reildsölubirgðir fyrir kaupmenn og kaupfjelög hjá 0. Johnson & Kaaber. Hreinn" framleidir þessar vörun Kristalsápu Gransðpu Handsápur Þwottasápur Þvottaduft (Hreinshvítt). Gólfáburð Skósvertu Skógulu Fsagilög (Gull) Baðlyf Kerti Vagnáburð Baðsápu 60 Þessar vSrur eru islenskar. ritryggj* alskonar vðrur og innbú gegn eldi með bestu kjorum Aðalumboð8imaður Garðar Gislason. SÍMI 281. + Best að auglýsa í Morgunblaðinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.