Morgunblaðið - 01.08.1928, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
3
MORGUNBLAÐIÐ
Stofnandi: Vilh. Pinsen.
Utgefandi: Pjelag I Reykjavik.
Ritstjórar: Jón Kjartansson.
Va 11.ýr Stefánsson.
Auglýsingastjðri: E. Hafberg.
Skrifstofa Austurstræti 8.
Sími nr. 600.
Auglýsingaskrifstofa nr. 700.
Heimasimar:
Jðn Kjartansson nr. 742.
Valtýr Stefánsson nr. 1220.
E. Hafberg nr. 770.
Askrif tag jald:
Innanlands kr. 2.00 á mánuCI.
Utanlands kr. 2.50 - ---
I lausasöiu 10 aura eintakið.
ErlsncJar símfregnir.
Khöfn FB 31. júlí.
Tollvemdin í Bretlandi.
Frá London er símað: Kröfur
ýmissa íhaldsmanna um tollvernd
íyrir járniðnaðinn og stáliðnað-
mn hafa valdið ágreiningi milli
ráðherranna. Joynson Hieks, inn-
anríkismálaráðherrann, hefir hald-
ið því fram í ræðu, að hann líti
svo á, að tollvernd mundi draga
nr atvinnuleysinu. Churchill fjár-
málaráðherra, sem er ákafur tals-
niaður frjálsrar verslunar, styður
Laldwin forsætisráðherra, sem
hefir neitað að' verða við kröfun-
Um um tollvernd.
Bela Kun landrækur.
Frá Berlín er símað: Bela Kun
hefir verið gerður landrækur í
Austurríki. Yar hann fluttur til
Swinemunde, en þaðan fór hann
ú rússnesku skipi.
Ferðalag
Jónatans Þorsteinssonar.
Hann kannaði enn ókunnuga stigu
í gær í bíl sínum
Whippet-Overland.
I gærkvöldi hafði Morgunblaðið
tal af Jónatan Þorsteinssyni. Hann
var þá
á Borðeyri,
uýkominn þangað í bíl sínum. Br
það í fyrsta skifti sem bíll kem-
ur til Borðeyrar. Hafði hann far-
jð sem leið liggur yfir Holtavörðu-
beiði, og síðan út hjá Melum og
Kjarðarhorni til Borðeyrar. Bíl-
^egur þangað af aðalpóstleiðinni
slarkfær, en ekki góður.
Talið berst síðan að
Kaldadalsf örinni.
Þeir fóru klukkan 11 á föstu-
óagsmorgun frá Hrauntúni í Þing-
^allasveit, og komu að Húsafelli
hb 7 á laugardagsmorgun; komu
bíinum niður að Lambá.
Frá Hrauntúni að Langahrygg
a Kaldadal, voru þeir 12 _ tíma,
homu þangað kl. 11 um kvöldið.
í»ar þurftu þeir að ryðja ýmsum
erfiðleikum úr vegi, og hvíldu sig
stundarkorn áður en þeir byrjuðu
•erfiðið. Byrjuðu þeir vegabæturn-
ai kl. 2 og voru komnir upp á
Uangahrygg kl. 4 um nóttina. —
Fr því mættu þeir engum veru-
lcgum erfiðleikum fyrri en á klif-
^öu við Lambá, en það er svo ná-
T®gt Húsafelli, að þeir fengu sjer
hjálp þaðan til að' laga veginn.
Að Húsafelli hafa margir bílar
farið úr Borgarnesi, síðan Þorkell
Teitsson fór þá leið í bíl.
Jónatan hefir selt einn bíl vest-
ur í Stykkishólm, og fer með
hann þangað í dag úr Borgarnesi.
Bíll . sá, er hann hefir ekið í
^ndanfarna daga, er óskaddaður
^eð öllu eftir ferðalagið.
Hestamannafjelag
stofnað í Dölum.
Hinn 20. júlí var stofnað fjelag
í Miðdölum og nefnist „Hesta-
mannafjel. Glaður“. Var það að
undirlagi Hestamannafjel. Fáks,
að fjelagsskapur þessi var stofn-
aður og fór Ludvig C. Magnússon
kaupmaður þangað vestur fyrir
Fáks hönd, til þess að' koma fje-
laginu á og leiðbeina um kapp-
reiðar sem haldnar vora 2 dögum
seinna. Voru þær haldnar á bökk-
unum norðan við Nesodda í Mið-
dölum og voru þar reyndir þrír
folar, 7 stökþhestar og 3 skeið-
heptar. Voru þar verðlaun veitt og
lagði Fákur þau til. Hlauptími var
góður, miðað við reynsluna hjer á
skeiðvellinum.
Það sýnir mikinn áhuga manna
út um land fyrir því að, bæta
hestakynið, og meðferð reiðhesta,
að' á þessum stað gengu 17 menn
í hið nýja fjelag á stofnfundi, en
10 bættust við á kappreiðunum,
svo að fjelagsmenn eru 27 úr 5
hreppum. Þegar Fákur var stofn-
aður, voru fjelagsmenn þar ekki
nema 24. Stjórn Glaðs skipa þeir
Jón Sumarliðason hreppsstjóri á
Breiðabólsstað (form.), Benedikt
Jónsson í Neðra Hundadal (ritari)
og Olafur Finnbogason, Sauðafelli
(gjaldkeri).Þessi fjelagsstofnun er
fyrsta sporið í áttina til þess að
koma upp hestamannafjelögum í
sveitum landsins, sem með tím-
anum á að verða allherjarfjelags-
skapur liestamanna um land alt.
Ætlar Fákur að kappkosta að
koma upp slíkum fjelögum sem
víðast fyrir 1930, svo að sem flest-
ir æfi hesta sína eftir vissum regl-
um undir kappreiðarnar þá. —
Þetta hefir og mikla þýðingu um
það að komast eftir flýti hesta
út um land, fá að vita hver hesta-
kyn eru líklegust, hvar hestar
eru stærstir o. s. frv. Og áreiðan-
lega getur það haft mikla þýðingu
fyrir markað á góðum reiðhestum.
Sandgræðslan.
FB. 31. júlí.
Við Strandarkirkju er ákveðið
að set.ja sandgræðslugirðinu í sum-
ar. Verður hún um 8 kílómetra
löng og nær 400 hektarar að flat-
armáli. Vandað efni til girðing-
arinnar er þegar pantað.
Undirbúningur bygginga í Gunn-
arsholti. Byggingar (bæjar og pen-
ingshús) er verið að undirbúa í
Gunnarsholti, stærstu sandgræðslu-
stöðinni austan fjalls. Er hún yfir
2000 ha. að stærð. í fyrra fengust
í stöðinni um 1800 hestar af heyi.
Aðeins lítill hluti af stöðinni er
grasi gróinn ennþá. Gott útlit með
grasvöxt nú.
Nýjar sandgræðslustöðvar hafa
í ár verið settar í Þykkvabæ,
Rangárvallasýslu. Þar eru girtir
allir sandarnir, sem liggja með-
fram sjó, milli Þjórsár og Hólsár.
Var sett girðing á milli ánna, 10
kilometra löng. Svæðið þar fyrir
framan er nær 3000 ha. stórt.
Sandgræð'slugirðing var sett á
Kambsheiði í Holtum. Eru það 7
bæir, sem eiga land að henni. Er
sandgræðslugirðing þessi 8 kílc-
met.ra löng. Svo liefir verið sett
girðing á Keldum á Rangárvöllnm.
Loks hefir verið komið upp sand-
græðslustöðvum á Mýri í Bárðar-
dal og Bjarnastöðum í Bárðardal.
Eru það fyrstu sandgræðslustöðv-
arnar norðanlands. Sandgræðslu-
stöðvar eru orðnar um 20 alls.
Molar.
Fjárbruðlunin heldur áfram.
Þess hefir verið getið hjer í
blaðinu, að stjórnin hafi veitt Hall
birni Halldórssyni fyrv. ritstj. Al-
þýðublaðsins 1800 kr. utanfarar-
styrk og það enda þótt Alþingi
hafi neitað Hallbirni um styrk
þenna. Er þetta athæfi stjórnar-
innar gersamlega óverjandi og
verður að krefjast þess á sínum
tíma að stjórnin endurgreiði ríkis-
sjóði þessa upphæð'. — En stjórnin
hefir ekki látið sjer nægja að faka
í algerðu heimildarleýsi 1800 kr.
úr ríkissjóði handa Hallbirni; hún
hefir nýverið greitt öðrum for-
ingja sósíalista, Stefáni Jóhanni
Stefánssyni, 1500 kr. styrk úr rík-
issjóði, til þess að sækja fund
sósíalista í Finnlandi!
„Bænda“-stjórnin íslenska er þá
svona djúpt fallin! Hún telur það
hlutskifti íslenska ríkisins að
senda fulltrúa á flokksfund sósíal-
ista í öðrum löndum. Hvað segja
bændur um slíkt athæfi sem þetta ?
Á hverju þingi verður að skera
niður f járbeiðnir til nauðsynlegra
framkvæmda í landinu, vegna fjár
skorts. Þrátt fyrir þetta leyfir
stjórnin foringjum sósíalista að'
bruðla með fje ríkissjóðs svo sem
það væri þeirra eigin sjóður! Hve
lengi ætlar þjóðin að þola slíkt
ofríki yfir sjer?
Sigurjón fær bita líka.
Þingfulltrúar sósíalista höfðu
allir fengið ríflegan bita hjá
stjórninni á síðasta þingi, nema
Sigurjón Ölafsson þm. Reykvík-
inga. Var talið ólíklegt, að Sigur-
jón mundi lengi við þetta una,
enda er nú svo komið, að stungið
hefir verið upp í hann drjúgum
bita líka. Á síðasta þingi samþykti
nerði deild þingsályktun, þar sem
skorað var á stjórnina að láta
endurskoða siglingalögin og sam-
ræma þau siglingalögum Norður-
landa. Nú segir Tíminn að Sigur-
jóni Ölafssyni hafi verið falið
starf þetta ásamt forseta Fiskifje-
lagsins. Er mælt að Sigurjón hafi
þegar fengið greiddar 1000 krónur
úr ríkissjóði fyrir verk þetta. Ann-
ars er það bersýnilegt, að það þarf
meiri þekkingu á siglingalögum og
sjórjetti en þá sem Sigurjón þessi
liefir til brunns bera, til þess að
lag verði á endurskoðun siglinga-
laganna. Með forseta fiskifj|lags-
ins átti að sjálfsögðu að vera lög-
Ifræðingur, er sjerþekkingu hafði
á sjórjetti. — En stjórnin liefir
þurft að rjetta Sigurjóni bita, og
þá var sjálfsagt að grípa tækifær-
ið fyrst það gafst.
Dagbók.
Veðrið (í gær kl. 5): Djúp lægð
austan við' Jan Mayen á norð-
vesturleið; veldur hún snjókomu
eða slyddu á Austur-Grænlandi og
Jan Mayen, enda er hætt við að
nokkur úrkoma berist þaðan að
norðurströnd Islands á morgun.
Lægðin suður af Reykjanesi lireyf-
ist hægt suðaustur eftir. Veldur
hún SA-stinningskalda í Vest-
mannaeyjum, en hefir annars lítil
áhrif á veðurlagið. Ný lægð yfir
S-Grænlandi, hreyfist austur eftir
og mun valda sunnanátt hjer á
fimtudaginn.
Veður er nú þurt um alt land
og víðast er logn eða NA-hægviðri.
Fáum með e.s. Island 6. þ.m.
Kai'taflur valdar.
Epli, Lauk.
Efgf§er*t Kpisijánsiðii & Co.
Simar 1317 og 1400.
Tvo til 3 sjómenn
vantar á sildveiðar á SiglufjSrð.
Upplýsingar i
Veiðarfæraversl. Verðandi.
Kven-
regnhlifar
verða seldar fyrir
hálfvirði.
Verslun
Igill lacobsen.
St. Jðnssyni & Go
Kirkjustræti 8 b. Sími 420
nvkomið:
Gasbaðofnar
Korkplötur
Þakpappi,
margar tegundir.
Yírnet
2”, U/2”, 1", %”
og %”
Saumur, ferstrendur
Gúmmmíslöngur
0. m. fl.
A. Einorsson á Funk.
hafa fyrirliggjaiidi miklar birgðir
af fallegu og endingargóðu vegg-
fóðri, pappír, og pappa á þil, loft
og gólf, gipsuðum loftlistum og
loftrósum.
Veðurútlit í dag: N-gola. Þurt
veður. Ef til vill skúraleiðingar til
fjalla.
Afmæli. Ölafur Blöndal, bók-
haldari, Bergstaðastræti 68, er fer-
tugur í dag. Pjetur Ottesen al-
þingismaður er fertugur á morgun.
,,Víkingar“. Knattspyrnuæfing
verður í kvöld kl. 7y2 hjá I. flokki
og eru fjelagar mintir á að þeir
eiga að koma stundvíslega.
Hnnan ágúsl í w* b ^ ■ ■
í Hlafossi L
Steindórs bifreiðar aka þangað upp eftir allan daginn.
Sætið tvær krónur.
Kaxlakór Reykjavíkur var það,
en ekki Karlakór K. F. U. M., sem
fór til Þingvalla á sunnudaginn.
Skipaferðir. Gullfoss leggur á
stað frá Kaupmannahöfn í dag. —
Goðafoss var í Siglufirði í gær, en
Esja á Hólmavík.
Nýjar landssímastöðvar. Eftir-
taldar 3. flokks landssímastöðvar
hafa verið opnaðar nýlega: Hruni
og Galtafell í Hrunamannahreppi,
Ásar og Hæli í Gnúpverjahreppi,
Fellsmúli í Landmannahreppi,
Stóridalur í Svínavatnshreppi,
Hnjúkur, Flaga, Eyjólfsstaðir og
Ás í Vatnsdal. Ennfremur hefir
stöðin á Varmá verið flutt að
Álafossi.
Brennahor
barnakerrur, þær bestu, sem
til landsins flytjast.
Hlaupahjól og þríhjól
fyrirliggjandi.
Fálkinn.
Sími 670.
Heiðareldur. í gær var beðið um
aðstoð slökkviliðsins til þess að
slökkva heiðareld hjá gömlu
Lækjabotnum. Hafði af einhverj-
um ástæðum kviknað eldur í hraun
mosa, rjett fyrir vestan Selfjalls-
skálann og vegna þess að mosinn
var næfurþur og vindur stóð af
eldsvæðinu á skálann, óttaðist,
eigandi að eldurinn muni ná skál-
anum. — Þegar slökkviliðsmenn-
irnir komu þangað' uppeftir, hafði
þó tekist að kæfa eldinn að mestu
og vindátt hafði einnig breytt sjer
svo að eldinn lagði frá skálanum.
Um sama leyti gerði líka skúr og
er búist við að hún og aðgerðir
manna hafi kæft eldinn að fullu.
— Menn eiga að muna eftir að
5ími 27
heima 2127
Vjelareimar.
fara varlega með eld á víðavangi,
helst þar sem mikið er um lyng,
ínosa og sinu, þegar langvarandi
þurkar og hitar hafa gengið. —
Ögætni manna í þeim efnum hefir
oft valdið stórtjóni erlendis og