Morgunblaðið - 23.08.1928, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Stofnandi: Vilh. Pinsen.
Dtgefandi: Fjelag í Reykjavlk. >
Ritstjörar: Jón Kjartansson.
Valtýr Stefánsson.
Auglýsingastjöri: E. Hafberg.
Skrifstofa Austurstræti 8.
Slmi nr. 500.
Auglýsingaskrifstofa nr. 700.
Heimasímar:
Jön Kjartansson nr. 742.
Valtýr Stefánsson nr. 1220.
E. Hafberg nr. 770.
Askriftagjald:
Innanlands kr. 2.00 á mánufci.
Utanlands kr. 2.50 - ---
I lausasölu 10 aura eintakið.
Erlendar símfregnir.
Khöfn, FB 21. ágúst.
Merkir stjórnmálamenn látnir.
Haldane.
Frá London er símað: Haldane
lávarður, fyrverandi hermálaráð-
herra, er látinn.
(Viscount Haldane var fæddur
1851, þingmaður fýrir Hadding-
tonshire 1885—1911.Varð hermála-
ráðherra síðari hluta árs 1905. Var
Lord Chancellor 1912—15).
Skuludis.
Frá London er sírnað: Skuludis,
fyrverandi stjórnarforseti (í
iGrikklandi), er látinn.
Hafin leit að Hassel.
Frá New York er sírnað: Ótti
.manna um afdrif Hassels og Cram-
«rs fer vaxandi. Margir óttast að'
þeir liafi farist, en samt er hi'gs-
anlegt að þeir hafi neyð'st til þess
að lenda í óbygðum, annað hvort
;á Labrador eða Grænlandi eða í
einhverri bygð á Labrador, þar
*em ekki eru loftskeytasenditæki.
‘l'ollgæsluskip Bandaríkjanna leita
að Hassel við strendur Labrador.
Stjórnin í Bandaríkjunum hefir
farið ])ess á leit við stjórnina í
Newfoundland og stjórnina í Kan-
.ada, að láta leita að Hassel.
Kosningarnir í GrikklaJidi.
Frá Hamborg er símað: Þing-
kosningarnar fóru fram í Griklr-
landi í fyrradag. Venizelosar
flokkurinn fjekk mikinn meiri
hiuta þingsæta. Samkvæmt úrslit-
Um, sem hingað til hafa verið
gerð kunn, hefir hann fengið eitt
hundrað og sjötíu þingsæti af tvö
hundruð og fimmtíu. Pangalos
fjell við kosningarnar. Kosninga-
íirslitin eru talin vera mikill sig-
ur fyrir lýðveldið.
Albanía vill vera konungsríki.
Frá Tirana er símað: Albaníu-
frjettastofan tilkynnir að öflugar
óskir sjeu fram bornar víða í land-
inu um það, að Albanía verði gerð
að konungsríki, en núverandi
ríkisforseti lcrýndur konungur. —
Kröfugöngur hafa verið farnar í
þessu skyni um alla Albaníu.
Synt yfir Ermarsund.
Frá London er símað: Miss
Hawk, bresk stúlka, hefir synt
yfir Ermarsund á rúmlega nítján
klukkustundum.
Va^nsflóð í Kína.
Frá Peking er símað: Ýmsar
þverár Gulafljóts hafa flæt.t yfir
mikil flæmi í Shantunghjeraði. —
Tvö lmndruð sveitaþorp eru á
fióðsvæðinu. Attatíu menn hafa
druknað. Símfregnir frá Ameríku
herma, að 40.000 manns sjeu
heimilislausir.
• • • •—• •
Burt með
Teraany-táðherfann!
I.
Ekki alls fyrir löngu gat „Tím-
inn“ þess og var eins konar sigur-
lireimur í orðunum, að staðið hefði
í ensku blaði svívirðing um rjett-
arfar vort og dómgæslu, sem sett
hefði verið í samband við klögun-
armál erlendra landhelgisbrjóta.
Það er engin nýlunda að fá
slíkt að heyra frá vörum erlendra
veiðiþjófa. Þegar eftir að íslend-
ingar höfðu tekið landhelgisgæsl-
una í sínar hendur, fór að berast
hingað utan úr löndum ægilegar
lýsingar af rjettarfarinu hjer.
Þeir sem ókunnir voru málavöxt-
um, en lieyrðu sögur þessar, Idutu
að líta svo á, að hjer byggju ó-
mentaðir skrælingjar, er ofsæktu
og rændu alsaklausa menn. Er-
lendir þegnar væru hjer lijálpar-
og varnarlausir. Saklausir menn
voru lijer teknir og dæmdir um-
svifalaust í þungar sektir. Útlend-
ingar kysu því oft að játa ranglega
a sig brot og greiða sekt, því þá
gætu þeir vænst þess að fá ein-
liverntíma að losna úr greipum
ræningjanna!
Þannig eru í stórum dráttum
lýsiugin, sem erlendir veiðiþjófar
hafa gefið af ástandinu hjer.
Auðvitað er ekki hlustað á þess-
ar staðhæfingar af þeim mönnum,
sem nokkurt skyn bera á þessi
mál. Þó kemur það stundum fyrir,
að klögumál enskra veiðiþjófa
koma inn í breska þingið. Hafa þá
þingmenn úr togarabæjunum,
Grimsby eða Hull, látið hafa sig
til þess að flytja í þinginu fyrir-
spurnir um það, hvað hæft væri í
söguburði togaraskipstjóra, sem
sel^taðir væru á fslandi.
En þó einhver þingmaður hafi
látið hafa sig til þess að flytja
ákærur og þvaður landhelgisbrjót-
anna inn í breska þingið, hefir
það aldrei orðið frægðarför. Breski
utanríkismálaráðherrann hefir æf-
inlega svarað skýrt og afdráttar-
laust. Hami hefir hvað eftir ann-
að lýst ]iví vfir á þingi Breta, að
það væri ekki nema eðlilegt og
sjálfsagt að íslendingum væri sárt
um landhelgina, því við strendur
íslands væri dýrmæt auðæfi. Þeir
yrðu að vernda þessi auðæfi; þess
vegna væri ofur eðlilegt, að sektir
fy-rir ólöglegar landhelgisveiðar
væru háar hjá íslendingum. Það
væri og skylda breskra þegna að
hlýða lögunum, hvar sem þeir
væru staddir í veröldinni. Þeir
mættu ekki skorast undan rjett-
mætum dómi ef brotlegir gerðust.
Vafalaust hefði það verið ógern-
ingur fyrir fslendinga, að fá betri
og áhrifaríkari málsvara gegn
staðlausum þvættingi landhelgis-
brjóta, heldur en breska .utanrík-
ismálaráðherrann.
II.
íslenska þjóðin verður að gera
sjer ljóst, að öll aðstaða vor
gagnvart kærumálum erlendra
landhelgisbrjóta breytist, ef hún
ætlar þegjandi að sætta sig við að-
gerðir Jónasar Jónssonar dóms-
málaráðherra í „Tervany1 ‘ -málinu
svokallaða.
f þessu máli hefir dómsmála-
ráðherra gengið í lið með erlend-
um landhelgisbrjótum, sem hafa
á alla lund reynt að svivirða land-
helgisgæslu vora og rjettarfar.
Hann hefir með athæfi sínu slegið
öll vopn úr hendi málsvara vors,
utanríkismálaráðherrans breska.
Hjeðan í frá gagnar ekki þótt
utanríkismálaráðherra Breta fari
að halda hlífiskildi yfir dómstólum
vorum ; landhelgisbrjótar og þeirra
málsvarar geta bent á orð og at-
hafnir dómsmálaráðherrans ís-
lenska sínum málstað til stuðnings.
Hann hefir með athæfi sínu í
„Tervany“ -málinu gefið alveg ó-
tvírætt í skyn, að dómstólum vor-
um sje ekki treystandi til að
legg’ja á rjettlátan úrskurð í slík-
um málum. Og hann hefir oftar
en einu sinni gefið í skyn á Al-
þingi, að æðsti dómstóll vor,
hæstirjettur, dæmdi ranga dóma!
Athæfi dómsmálaráðherra í
„Tervany“-málinu getur haft hin-
ar alvarlegustu afleiðingar fyrir
sjálfstæði þjóðarinnar. — Ef er-
lendar þjóðir missa traust á rjett-
dæmi liæstarjettar er hættan yfir-
vofandi. Því þegar traustið á
hæstarjetti er horfið, mun skamt
að bíða þess að sjálfstæðið sje
tapað líka.
Ef íslenska þjóðin ætlar að kom-
ast ómeidd frá „Tervany—málinu
og afleiðingum þess, verður hún
einhuga og samtaka að krefjast
þess, að dómsmálaráðherrann segi
af sjer þegar ,í stað!
Burt ípeð þann ráðherra, sem
gengur í lið með erlendum veiði-
þjófum!
Burt með þann ráðherra, sem í
orði og verlri hefir reynt að lítils-
virða hæstarjett vorn og veikja
traust hans meðal erlendra þjóða!
Burt með Tervany-ráðherrann!
Flugvjelar til Grænlands.
Næsta sumar ætlar flotamála-
ráðunéytið danska að senda flug-
vjelar til Grænlands til þess að
taka myndir af landinu svo að
hægt sje að „kortleggja“ það.
Schmidt flugliðsforingi fer í næstu
viku með s/s „Disko“ þangað til
þcss að rannsaka skilyrði fyrir
flugi ]iar.
(Sendiherrafrjettir).
I '
Kafbáturinn sem sökk.
Við flotaæfingar, sem haldnar
voru hinn 7. ágúst skamt vestur
af eynni Brioni, fórst ítalski kaf-
báturinn „F 14“ með allri áhöfn,
27 manns. Kafbátturinn fekk skip-
un um það, að gera árás á tundur-
spillii’inn „Missori“. Fór báturinn
þá í kaf, en kom ekki upp síðan.
Af einhverju slysi sökk hann þar
til botns á 40 metra dýpi, en
honum var ekki ætlað að kafa
dýpra en á 25 metra. Kafarar
voru bráðlega sendir niður á sjáv-
arbotn og fundu þeir bátinn. Voru
þá allir mennirnir lifandi í hon-
um eftir því sem þeir skýrðu frá
með höggmerkjum. En það tók all-
langan tíma að koma skipinu þar
ao til þess að hefja kafbátinn frá
sjávarbotni, og þegar hann náðist
að lokum, voru allir mennirnir ör-
endir. Hið seinasta, sem kafararnir
heyrðu til þeirra voru þessi orð:
„Vjer erum glataðir!“, gefin með
höggmerkjum.
Ástæðan til þess, að mennirnir
fórust, var sú, að kafbáturinn
þoldi ekki vatnsþrýstinginn á 40
metra dýpi. Búkurinn hefir látið
undan þrýstingnum og farið að
leka, en er sjórinn blandaðist
brennisteinssýrunni í rafgeymun-
um liefir myndast eitrað gasloft,
sem hefir drepið alla mennina á
stuttri stund.
Pðlsku flugmeunlrnlr
sem ætluðu að fljúga yfir
Atlantshaf.
Kubala og Idzikovski.
Aðfaranótt 3. ágúst lögðu þess-
ir tveir pólsku flugmenn á stað
frá París og ætluðu að fljúga
yfir Atlantshaf til -New York. —
-Etluðu þeir að leggja leið sína
um Rochefort og Azoreyjar. Þeir
höfðu búið sig undir flug þetta í
nokkrar vikur á Le Bourget flug-
vellinum í Þarís, en pólska stjórn-
in ætlaði að kosta förina. Er mælt
að stjórnin hafi verið orðin óþol-
inmóð og skipað þeim að leggja
á stað, svo að þeir yx-ðu á undan
franska flugmanninum Cortes,
sem þá var að búa sig undir At-
lantshafsflug. Þeir Kubala og Id-
zikovski eru taldir nxeð bestu flug-
nxönnum Pólvex-ja og þótti mönn-
um því undarlegt, hve gálaus-
lega þeir hófu för sína. Veðurút-
lit var alls ekki gott, flxxgvjelin
var ekki í góðxx lagi og þeir höfðu
engin loftskeytatæki.
Eftir 31 stundar flug bilaði vjel
in þannig, að olíupípurnar stífl-
uðust. Veðxxr var þá hvast og sjó-
gangur nxikill og var þeiixx daxxð-
inn vís að setjast á sjóinn. Hjeldu
]>eir því áfram, meðan vjelin gat
flogið, til ]>ess að reyna að finna
eitthvert skip, og voi’u þeir svo
lxeppnir, að koma auga á þýskt
skip, sem „Samos“ heitir. Mátti
það eltki tæpara standa, því að þá
hlunkaðist vjelin stjórnlaust nið-
ur á sjóinn og varð fallið svo
nxikið, að vængirnir brotnuðu und-
ii’ eins. En flugmönnunum tókst
að komast úr sætunum og losna
við vjelina.
„Samos“ bjargaði þeim og flatti
þá til Portúgals.
islandshðsið ( Osiö
á að verða minningargjöf til
íslands 1930.
Nýlega hefir verið stofnað happ-
drætfi til fjársöfnunar í Noregi
handa íslandshúsinu í Osló. Það
heitir „Landslotteriet til inntekt
for jubileumsgaven til Island“.
Og eins og nafnið bendir á, er
tilætlunin sú, að húsið verði kom-
ið upp og afhent 1930. Bæjar-
stjórnin í Osló hefir gefið 10 þús.
krónur til húsbyggingarinnar og
nokkurt fje hefir safnast á ann-
an hátt, en enn vantar 35 þús. kr.
til þess að húsið komist upp og
]>ess vegna hefir happdrætti þetta
verið stofnað. — I framkvæmda-
stjórn eru Schei lyfsali (f. h. bæj-
arstjórnar), Kr. Aarnot blaðamað-
xxr, Breidsvold ritstjóri og Ingi-
mundur Eyjólfsson ljósnxynda-
smiður.
Leitað að Hassel í Grænlandi.
Ameríska stjórnin hefir beðið
dönsku stjórnina að hefja leit að
Ilassel í Grænlandi. Grænlenska
verslunin hefir skipað landfóget-
anum í Godthaab að láta leita svo
sem hann telur nauðsynlegt vera,
og liefir beðið skipstjórann á „Ger-
triul Rask“, sem nú er á leið frá
Julianehaab til Kaupmannahafnar
að gæta vel að því hvort hann sjái
nokklið til Hassels.