Morgunblaðið - 26.09.1928, Síða 4

Morgunblaðið - 26.09.1928, Síða 4
* 4 MORGUNBLAÐIÐ Ví2feklfti. Afskorin snmarblóm altaf til sölu í Hellnsundi 6. Send heim ef óskað er. Sími 230. Reykjarpípur, vindlamunnstykki eigarettumunnstykki, pípumunn- stykki, tóbaksdósir, reyktóbaks- ílát og cigarettuveski í miklu úr- vali f Tóbakshúsinu, Austurstræti 17. Aliskonar fjelagsmerki útveguð. Biðjið um tilboð. -— Bjavni Guð- munsson, Túni, Árnessýslu, Hrg. m m mmmaaaawsumtMumfmBm Viima Unglingsstúlka, helst úr sveit, óskast á fáment heimili. Fríða Þórðardóttir, Sólvhólsgötu 12 (næsta hús fyrir austan Sambandshúsið). Piltur, sem lauk gagnfræðaprófi síðastliðið vor óskar eftir atvinnu, helst við skrifstofustörf, frá 1. október næstkomandi. Prófskír- teini ásamt meðmælum til sýnis hjá A. S. í. Dugleg stúlka, helst vön mat- reiðslu, óskast frá 1. október til L. Kaaber bankastjóra, Hverfis- götu 28. -mmKW&amzsm'W'-tt.-távs’.ni&ixx i HúsnæM. Lítið herberði til leigu á Mýrar- götu 1, — með húsgögnum að ein- hverju leiti ef óskað er. Skólapiltur óskar eftir húsnæði (sjerherbergij, fæði og þjónustu á sama stað. A. S. í. vísar á. RjðmaMssmjðr □g ný egg, stor fást i Hepðubreið. Simi 678. Slðtnr úr ágætum dilkum og sauðum úr Biskupstungum, fæstí „ísbimin- um“ í dag eftir hádegi. Vetrarkápueini, Skinnkantar. Verslunin Björn Kristjánsson. Jón Björnsson & Co. MorgnnblaðiC fæst á Laugavegi 12 DllfeakjSt úp Bðrgarfjnrdas'dðluin fmmt i desg. ffiatarbðð SíátofiieSa'islss Laugaveg 42. Simi 812. hinar stóru birydir af Karlmannafötum i Fatabúðinni þegar þjer kaupið föt. TemlsmóS fslands. Gísli Sigurbjörnsson frá Ási vinnur meistaratignina. Úrslitakappleikur tennismóts ins fór fram á sunnudaginn. Kepptu þeir fyrst Gísli Sigur- björnsson gegn Ströjberg ög Hallgrímur Hallgrímsson gegn Kjartani Hjaltesteci. Fóru þeir leikar svo, að Gísli vann Ströj- berg með 2 „settum“.Það fyrra með 6—3 en hið síðara 6—4. Þá vann Hallgrímur Kjartan með 2 „settunT gegn 1. Var nú úrslitaorustan eftir, en hana skyldu þeir heyja Gísli og Hallgrímur. Voru þeir hini** einu sem engum leik höfðu tap- að. Einvígið hófst kl. 2- e. m. og stóð yfir í röska 2 tíma. Og endaði með sigri Gísla, sem vann 3 „sett“ gegn tveimur. Gísli vann fyrsta „sett“ með 6 —3. Hallgrímur vann það næsta með 6—4. Gísli vann þriðja ,,sett“ með 6—4 og Hallgrímur fjórða með 6—4, en hið fimta vann Gísli með 8—6. Leikmenn voru báðir snjallir og mjög lík- ir. Leikur þeirra var öruggur og hinn skemtilegasti, og höfðu á- horfendur mjög gaman að horfa á hina rösku hólmgöngumenn. Að leikslokum afhenti fo;- seti í. S. í. Gísla hinn fargra silfurbikar, sem Schevmg Thor steinsson gaf í fyrra, en hon- um fylgir nafnbótin „Tennis- meistari lslands“. Ennfremur fengu þeir Gísli og Hallgrímur hvor sinn minnispeninginn. Gísli Sigurbjörnsson er fje- lagi í knattspyrnufjelaginu Vík ing. Er hann mjög efnilegur tennisleikari og líklegur til að verja vel meistaratign sína. Dagbðk. Veðrið (í gærkvöldi kl. 5 síðd.): ' Hæð 770 mm. fyrir sunnan Iand en lægð 760 mm. fyrir norðan, milli Vestfjarða og Scoresbysunds. Hæg vestanátt og 8—10 stiga hiti um land alt. Rigning sumstaðar vestan lands. Þurt veður á Norður- og Austurlandi. Á NA-Grænlandi er kaldur norð- rænn loftstraumur að síga suður á bóginn. Má búast við að hann nái til Norðurlandsins seinni part- inn á morgun og valdi úrkomu og kalsaveðri. Veðurútlit í dag. Vestan kaldi Þykt loft og rigning. Ef til vill norðlægur með nóttunni. Hljómsveitin heldur fyrstu hljóm leika sína 7. n. m. Þeir er ætla að f á sjer miða að öllum hljómleikunum í vetui^ verða að tryggja sjer þá fyrir mánað'armót. .Sjá augl. hjer í blaðinu. Togaramir „Geir“ og „Hilmir“ komu inn af veiðum í gærmorgun. Morgunblaðið fæst framvegis á Baldursgötu 11. .Nýjir kaupendur að Morgun- blaðinu fá blaðið ókeypis til n.k. mánaðarmóta. Leiðarþing- hefir Ólafur Thors alþm. boðað að Reynivöllum í Kjós í dag og hefst það ki. 12 á hádegi; mun hann einnig innan skamms halda leiðarþing annarsstaðar í kjördæminu. Björn Kristjánsson alþm. mun ekki fara á leiðarþing þessi að þessu sinni, því hann á e.rfitt um ferðalög. Jóuasi Jónssyni ráðherra var boð'ið á leiðarþingið í Kjósinni og er sagt að hann muni mæta þar, en heyrst hefir jafn- framt að liann muni taka einhvern sósíalista með sjer þangað til þess að fá vitneskju um hvernig bæud- um í Kjósinui geðjast að k'enning- um þeii’ra. Mjólkurbú Flóamanna. Bygg- ingu þess á að verða lokið 1. júní næstk., ef hún kemst undir þak fyrir frost í haustt. Þéir Arinbj. Þorkelsson og Sig. Bjargmundsson bafa tekið að sjer að reisa bygg- ingu þessa fyrir 84.500 kr. 1 þess- ari upphæð eru ekki innifaldir flutningar á möl og sandi, gröftur fyrir grunni, miðstöð, hitavarha.r- Iög o. fl. Bixist við að byg'gingal•- lcostnaður verði alls um 120 þús. krónur. Bjöm í Grafarholti auglýsir í síðasta' tbl. Tímans eftir leiðrjett- ingurn í skýrslu Ríkisgjalda- nefndarinnar. Einkennileg vinnu- brögð á bænum þeim. Fyi’st situr nefndin í nokkra mánuði með talnaregistur sem hirn fær í Iiend- ur frá opinberum skrifstofum, og sýður upp úr því svonefnda„g jörða bók‘ ‘. Síðan ætlast nefndarmaður til þess að landslýður taki að sjer að leiðrjetta „gjörðabókina.“ Hæstirjettur tekur aftur til starfa í dag í fyrsta skifti eftir rjettarfríið. Forseti Hæstarjettar er nú Páll Einarsson, hæstirjettar- dómari. 1 dag verður sótt og vai’ið mál er valdsstjórnin höfðaði gegn Þorsteini Jónssyni bifreiðastjóra á G.K. 60 fyrir brot á bifreiðar- lög'uniim, Skoðunarmenn bifreiða kærðu hann fyrir að liafa tvo far- þega í framsæti bifreiðarinnar; voru farþegar alls 7, en skoðunar- menn fyrirskipuðu að þeir mættu ekki vei’a fleiri en 6. Undirrjettur dæmdi bílstjóranu í 15 kr. sekt fyrir brot á bifreiðarlögunum, en þeim dómi áfrýjaði dómfeldi til Hæstarjettar. Raflýsing- sveitábæja. í sumar var reist rafmagnsstöð í Varma- hlíð, undir Eyjafjöllum og voru skilyrði ágæt; afl nægilegt til ljósa, suðu og hitunar. Guðmundur Einarsson í Vík í Mýrdal setti upp stöðina. í Fagradal í Mýrdal hefir einnig verið reist rafmagnstöð í sumar; einnig ágæt sldlyrði. Bjarni í Hólmi setti upp þá stöð. í haust verður sett upp rafmagns- stöð í Kerlingardal í Mýrdal og sjer Guðmundur Einarsson um verkið. — Áhugi bænda er sem óðast að vakna fyrir nanðsyn raf- magnsins til heimilisnotkunar, enda umskapast heimilin við kkomu rafmagnsins. Þorkell Þorkellsson brá sjer ný- lega norður á Akureyri og athug- nði þar laugauppsprettur í Gleráx*- gilinu. Hefir mönnum dottið í hug að bora þar fyrir heitu vatni til þess að nota það til upphitunar m. a. í barnaskólann nýja sem Akureyringar ætla að reisa. 20 nemendur er tóku gagnfræða- próf í Akeureyrarskóla í vor ætla að stunda þar 4. bekkjarnám í vetur. Brödrene Levy“ og Einar 01- geirsson. Stjórnarblöðin á Akur- eyri eru enn að reyna að telja xnönnum trú um að „Brödi’ene Levy“ í Höfn liafi eigi haft nein afskifti af . síldareinkasölunni. Ætla blöðin að fræða lesendur sína um það, hvernig á því stóð, að Einar Olgeirsson hafði bæki- stöð sína fyrst framan af á skrif- stofu þeirra Levy bræð'ra í Höfn. Hann fjekk þar púlt til afnota fyr ir einkasöluna. Menn geta gert sjer í hugarlund hvernig a því stóð að Einai* fjekk þar inni með xithald sitt. Kiistín Sigfúsdóttir skáldkona hefir nýlega gefið út síðari hluta af bók sinni „Gömul saga“. Sveinbjörn Jónsson bygginga- meistai’i frá Akureyri kom hingað með Drotningunni að norðan. Hef- ir -hann meðferðis talsvert af vik- ursteinsflögum sínum, sem gerðar ern til veggfóðrunar og nota á í staðinn fyrir kork eða annað til hlýjinda. Dronning Alexandrine kom frá Norðurlandi í gærmorgun. Far- þegar voru milli 400 og 500. Meðal farþega voru: Jónas Lárusson, Bjarni Benediktsson, Beinteinn Bjarnason, Kapt. Broberg, Hösk- uldur Ólafsson, Stefán Á. Pálsson, Sigurður Jónasson, Eggei’t Krist- jánsson, ungfrú Margrjet Thor- berg, Friða Sæmundsdóttir, Aðal- heiður Oddgeirsdóttir, Ásta Þórar- insdóttir, Tórnas Tómasson, Magn- ús Stefánsson. Skipið fer í kvöld kl. 8 til Kaupmannahafnar og er þetta síðasta hraðferðin á þessu' ári. Uffe, dýpkunarskipið, er verið hefir undanfarið hjer við land fór upp í Borgarnes í dag. Meðþví fer m. a. Krabbe vitamálastjói’i og Geir vegamálastjóri. Ætla þeir að atlxuga möguieikana til bafnarbóta í Borgarnesi. Buckheim, liinn þýski blaðamað- ur, sem verið hefir lijer undan- farnar vikur, tók sjér far heim- leiðis með Gullfossi. Hann ætlar m. a. að rita leiðarvísi fyrir erlenda skemtiferðamenn er hingað koma. Býst hann. við að koma lxíngað 1930 til þess að vera bjér á Ál- þingishátíðinni. Jón Sveinbjörnsson konungsrit- ari fer með Drotningunni í dag áleiðis til Hafnar. Kn. Zimsen fer í dag utan m. a. til þess að vinna að þrunabótamál- inu fyrir bæinu og leita fyrir sjer með lántöku. ..Jarðarför Gísla Björnssonar frá Miðdal fen fram í dag. Það var ósk lxans, að þeir sem kynnu að vilja gefa kransa á kistu. hans ljetii Elliheimilið. njóta andvirði þeirra. Morgunblaðið er 6 síður í dag. Veðrið í maí. Mánaðarskýrsla Veðurstofunnar fyrir maí er ný- komin út. Vegna þess live veður- afbrigði liafa hjer verið mikil í sumar, veita menn veðurskýrslun- um sjerstaka athygli. Hitinn var alstaðar í maí langt fyrir ofan meðallag, 3,2° að meðaltali. Mest van hann yfir meðallag á Gi’íms- stöðum 4,8°, niinst í Vestmanna- eyjum 1,4°. Sjávarhitinn var og langt fyrir ofan meðallag, að með- altali 2,5°. Tiltölulega hæstur við Norðausturlandið 3,5°, við Rauf- arhöfn, en við Papey 3,4° ofan við íneðallag. Mestur hiti sem athxxg- aður var á landinu í þessum mán- uði var á Húsavík 20,6° (þann 30. maí). — Svo þurviðrasaxnt var þennan mánuð, að úrfelli á öllu landinu var 69% neðauvið meðal- tal undanfarinna ára. Minst úr- korna á Akureyri, 1,3 millimetra; en það er elcki nema ýringur 1/20 af sæmilegum gróðraskúrum. — Samkvæmt skýrslum þeim, sem Veðurstófan fær um bxuiaðarmál \liefir ám vei-ið slept á tímabilinu 28. mars—15. maí, seinast; að með- taðtali 20. aþríl. 1 Vestmannaeyjum þó fyr (1. mars). Kýr voru látn- ar út, að meðaltali 14. maí, eða >16 dögum fyr en venjnlega (sam- kv. meðaltali undanfarinna ára). Hætt að gefa. kúm, að meðaltali KO. maí. Túnalireinsun byrjar frá 110. maí—3.júní, og kartöflur sett- ar niður frá 5.—26. maí. Að með- altali 14. maí. (Á Reykjanesi þó allra fyrst, 11. apríl.) nEsjaM fer hjeðan væntanlega á mánudag 1. október austur og norður um land. Vörur afhendist á morgun eða föstudag, og farseðlar óskast sóttir á föstudag. „Bráarios" fer hjeðan eftir næstu helgi, vestur og norður um land, tö LONDON, HULL og LEITH og tekur vörur á pessum stöð um til íslands. „Seli©ssM fermir í HAMBORG 1. og 2. október, og fer þaðan 3. októ ber um HULL, kemur til Reykjavíkur um 13. okt. M.s. Di»«mning$ AlexanelHne ier i krðlá kl. 8. v C. Zimsen. Strausykur 65 aura pr. kg. Hveiti no. 1 50 aui-a pr. kg. Rúgmjöl ísl. 38 aura pr. kg. Hrisgrjón 50 aura pr. kg. Verðið miðast við 5 kg. í einrr af hverri tegund og aðeins gegn greiðslu við móttöku. Halldór Ióbssob, Sínii 1403 „VÖGGUR“. Sími 1403„ Nýkoicniðs SkúlatOskur afar ódýrar. Verslun Egll lasQbsen. /

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.