Morgunblaðið - 10.10.1928, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Btofnandi: Vllh. Flnsen.
Uticefandi: Fjelag I Reykjavlk.
Ritstjðrar: Jön Kjartansson.
Valtýr Stefánsaon.
Auglýsingastjðri: E. Hafberg.
Skrifstofa Austurstrœtl 8.
Stml nr. B00.
AuglýBÍngaskrlfatofa nr. 700.
Helnaslmar:
Jðn Kjartansson nr. 748.
Valtýr Stefánsson nr. 1280.
E. Hafberg nr. 770.
Ankrlf tagjald:
Innanlands kr. 2.00 á mánubi.
Utanlands kr. 2.60 - ---
I lausasölu 10 aura eintaklO.
Frjettir.
Borgarnesi, FB. 8. okt.
Finnbogi R. Þorvaldsson verk-
fræðingur er væntanlegur hingað
með Suðurlandinu næst, til hafnar-
mælinga (framhaldsmælinga).
Frjest hefir hingað að land-
skjálftahræringar komi öðru hvoru
í uppsveitunum, en sjaldnar en 11111
áður.
Enn er unnið að vegabótum á
Holtavörðuheiði.
Nemendur Hvanneyrarskólans 11111
stunda landmælinganám til 15. þ.
m., en þá hefst bóklega námið.
Hvítárbakkaskólinn verður sett-
nr um veturnætur. Aðsókn að skól-
nnum er góð' eins og undanfarna
vetur.
Auðnum á Vatnsleysuströnd.
FB 8. okt.
Mikið hefir borið á kartöflusýki
hjer nm slóðir, einnig í svokölluð-
nm Eyvindarkartöflum, sem sagt
hefir verið um, að taki ekki sýk-
ina.
Holti undir Eyjafjöllum.
FB 9. okt.
Nýlátinn er aldraður bóndi,
Einar Sveinsson í Nýjabæ, myndar
og merkisbóndi.
Kartöfluuppskera með besta
móti. Ekkert borið á kartöflusýki
í ár, en talsvert í fyrra.
Langarvatnsskólinn.
Símalínu er verið að leggja frá
Minniborg að' Laugarvatnsskólan-
nm. Ráðgert er að skólinn byrji 1.
nóv. Slrólastjóri verður sjera Jak-
ob Ó. Lárusson í Holti og mun um
það bil að fara að Laugarvatni.
Eigi flytur liann þangað með f jöl-
skyldu sína að sinni, þareð hann
hefir ekki tekið ákvörðun um það,
hvort hann hættir prestsskapnum
til þess að taka að sjer skóla-
ntjörnina að fullu og öllu. (FB).
-----------------------
Frá Danmörku.
(Tillc. frá sendiherra Dana).
Ráðherraskifti.
Eftir ósk forsætisráð’herra hefir
honungur falið Stensballe sam-
göngumálaráðherra að gegna störf
hm verslunarmálaráðherra fyrst
tJin sinn.
Danir sigra Svía.
A sunnudaginn var háður knatt-
sPyrnukappleikur milli lands-
^okka Svía og Dana. Var áhugi
^ikill rneðal manna og komu ekki
^&rri en 30 þús. að horfa á leikinn.
hann fór svo að Danir sigruðu
með 3:1.
hlutafjelagi hól nokkurn, sem
er að stærð 4 tunnur lands
(6 dagsláttur) fyrir % miljón
króna. Rannsólmir, sem Steins
Laboratorium hefir framkvæmt,
sanna það að mikið er af radíum
í jörð þarna á blettum. Hlutafje-
lagið, sem er aldanskt, ætlar að
selja moldina í pökkum sem gigt-
anneðal og býst við að geta flutt
út mikið af henni.
„Fulltrúaráðiö
u
og söfnun atvinnuleysis-
skýrslna.
Dýr lóð.
Hansen sögunarmylnueigandi ___„___ __________________o
^olding hefir selt nýmynduðu | stofuna til þess að annast skýrslu
Síðasta þing samþykti lög er
fyrirskipa bæjarstjórnum að láta
safna skýrslum fjórum sinnuin á
ári, um atvinnuleysi í kaupstöð-
um. Skal ágrip af skýrslum þess-
sent Hagstofunni, sem svo
birtir yfirlit vfir þær. Önnur grein
nefndra laga hljóðar svo: „Þar
sem verklýðsfjelög eru á staðn-
skulu bæjarstjórnir leita
samninga við þau um að taka að
sjer söfnun skýrslnanna." Lolis
mæla lögin svo fyrir, að kostnað'-
ur við skýrslusöfnunina greiðist
að þriðjungi úr ríkissjóði og tveim
ur þriðjungum úr hlutaðeigandi
bæjarsjóði.
Lög þessi öðluðust gildi snemma
i sumar, en hafa ekki ennþá kom-
ið til framkvæmda hjer í Reykja-
vík, og sennilega ekki í öðrum
kaupstöðum heldur. Mun hafa stað
ið' á nánari fyrirmælum frá at-
vinnumálaráðherra um það, hvaða
form eigi að hafa á skýrslum þess-
um og hvernig tilhögun eigi að
vera.
Á síðasta bæjarstjórnarfundi bar
Stefán Jób. Stefánsson fram svo-
hljóðandi tillögu, sem var sam-
þykt, í einu hljóði:
„Bæjarstjórn felur borgarstjóra
í samráði við bæjarlaganefnd að
láta nii þegar framkvæma nauð-
synlegan undirbúning til þess að
byrjað geti 1. nóvember næstkom-
andi skráning atvinnulausra hjer
í bænum, samkvæmt lögum frá
síðasta Alþingi, og leita samvinnu
við nefnd. þá, er Fulltrúaráðið hef-
ir kosið til þess af hálfu verkalýðs-
fjelaganna að sjá um skýrslusöfn-
un. “ (Leturbreyting hjer).
Við fyrri lið þessarar tillögu er
ekkert að athuga. En að svo
komnu máli verður því ekki trú-
að, að það sje ætlun bæjarstjórnar
ao fela fulltrúaráði ákveðins
stjórnmálaflokks að annast
skýrslusöfnun þessa. Það er svo
ákveðið í lögunum að bæjarsjóður
beri að mestu þann lrostnað, sem
af skýrslusöfnuninni leiðir og er
það því skylda bæjarstjórnar að
sjá um að skýrslurnar sjeu rjettar
og ábyggilegar.
Menn kunna að segja að það sje
gert ráð fyrir því í lögunum sjálf-
um að pólitísk fjelög verði látin
annast skýrslusöfnun þessa, og er
það rjett. Sósíalistarnir á þingi
heimtuðu þetta ákvæði inn í lögin
og þeir kúguðu Framsóknarmenn
til þess að fella breytingartillögu,
er fór fram á að fela Hagstofunni
skýrslusöfnunina. En þó þing-
meirihlutinn hafi látið teyma sig
út í vitleysu í þessu máli, þarf
bæjarstjórn ekki að gera slíkt hið'
sama. Rjettasta leiðin væri sú, að
bæjarstjómin reyndi að fá Hag-
söfnun, þessa. Takist ekki að fá
málið leyst þannig, verður bæjar-
stjórnin sjálf að velja menn til
þess að annast verkið. Hitt væri
með öllu óverjandi ef bæjarstjórn
færi að fela fulltrúaráði ákveðins
stjórnmálaflokks að' annast þetta
verk. Vonandi tekst bæjarstjórn
að fá þá lausn á þessu máli, að
bæjarbúar geti við unað.
Innflutt dtykkiarfing.
Árið 1922 var leyfður innflutn-
ingur hinna svo nefndu Spánar-
vína, og brá þá svo við, að inn-
flutningur á spiritus, sem var 44
þús. lítrar árið áður, varð ekki
meiri en 17 þúsund lítrar þetta
ár. En þá var flutt inn af Spán-
arvínum 87 þúsund lítrar. Næstu
árin fór innflutningurinn vaxandi,
bæði á Spánarvínum og spiritus,
er. árið sem leið, dró heldur úr
honum aftur og mun þar hafa
valdið um að ilt var í ári hjer.
Þá nam innflutningui1 á Spánar-
vínum 91 þús. lítrum og á spiri-
tus 24 þúsund lítrum. Það verður
tæp flaska af Spánarvíni og tæp
flaslta af brennivíni á hvert
mannsbarn í landinu, ef alt er
drukkið. En auk þessa voru flutt-
ir inn um 14 þús. lítrar af rauðvíni
og messuvíni.
Af óáfengu öli fluttust inn 25.-
462 lítrar og er það með allra
minsta móti. 1926 nam þessi inn-
flutningur 104 þús. lítrum. Er
það' eflaust innlendu ölgerðinni að
þakka að innflutningur þessi hefir
minkað svo mjög.
Innflutningur á sódavatni er einn
ig altaf að minka, var 547 lítrar
1927, en 2300 lítrar árið 1925.
Panbók.
álvlnna.
Heildsðluve$*slun hjes* I bissum óskar eftlrc
Duglegum sölumanni.
Forstjóra fyrir vátryggingarstarfsemi.
Stólku, sem*er vðn bókfærslu.
Umsœkjendur þyrftu að geta tekið ad ejer
starfann efgi siðar en I. desember, og sendl um-
sðknir sinar sem allre fyrst tll
Ráðuingarskrifst. Verslnuarráðs íslands
Eimskipafjelagshúeinu.
Veðrið (í gærkvöldi kl. 5 síðd.):
Háþrýstisvæði og stilt veður um
Grænlandshafið og fsland en lægð
suðvestur í hafi og austan átt fyr-
ir sunnan land. Lægðin virðist
stefna til ANA og er hætt við að
hún valdi allhvössum austanvindi
hjer við suðurströndina á morgun.
Sennilega gætir hennar lítið á öðr-
um landshlutum..
Veðurútlit í dag: SA-gola. Skýj-
að loft en úrkomulítið.
Til Hallgrímskirkju frá ónefnd-
um 10 kr.
Ungfrú Filippa Blöndal, sem
auglýsir hannyrðakenslu í blaðinu
í dag er nýkomin frá útlöndum
eftir að' hafa’ verið þar að námi
marga undanfarna mánuði.
Bifreið brýtur staur. Hjerna um
nótt-ina vöknuðu menn í húsi inn-
arlega, á Grettisgötu við brak og
bresti og var sem alt ætlaði um
koll að keyra, en rafljós dóu í öll-
um húsúm þar nærri. Hjeldu menn
fyrst að þetta væri jarðskjálfti,
en svo kom upp úr kafinu, að
þetta var bifreið, sem hafði rent á
rafmagnsstaur og brotið hann.
Þverkubbaðist staurinn alveg nið-
ur við jörð og kastaðist til, en sím-
ar slitnuðu. Bifreiðin ók í burtu
hið skjótasta og mun bifreiðar-
stjórinn hafa ætlað að koma sjer
undan svo ekki vitnaðist hver
hefði brotið staurinn. En menn
voru þarna á götunni, sem sáu til
hans og mun vitnisburður þeirra
nægja til þess að' hægt sje að ná
í hann.
Hjónaband. Fyrra laugardag gaf
sjera Jóhann Þorkelsson saman
ungfrú Ólöfu M. Guðjónsdóttir og
Hafliða S. Hafliðason á Lindar-
götu 19.
Síldarnel íLapnefl
Lagnetaslttngup 7/8" I” l»/i” l‘/8” |'/4”
fyrírllggjandi.
Veiöarfærav. ,Gevsir‘
Fyrirliggjandi:
Laukur I pokum, Perur f körfum
lfinber f tunnum.
Eggert Kristjánsson & Co.
Hafnarstræti 15.
Sími 1317 og 1400.
Dilkakjöt
úr Hreppum, er viðurkent að
A'æðum.
Fæst í
Matarbúð Slðturfjelapsins
Laugaveg 42. Sirai Sí2.
Vjelareimar
Reimalásar og allskonar
Relmaéburður.
! Valfl. Ponlsen.
Klapparstíg 29
Peysur
á börn og full-
orðna, hvergi
meira úrval.
Siðasta
vetrarkðDu
(sendlngln kom nú
med „Islandi".
Verslun
Egfll lacobsen.
Sírai 27
heiraa 212?
Tin.
Dilkakjötið
fáið þið eins og fyr í
Fílnum,
Laugaveg 79, sími 1551.
Vai Houiens
konfekt og átsúkknlaCi
er annálað um allan heim
fyrir gæði.
1 heildföln hjá
Tófeaksverjlun íslands h.E