Morgunblaðið - 01.12.1928, Page 2
2
MORGUNB LAÐIÐ
hjeruðum íslands bygðum á kom-
andi öld? Mun ekki hitt, að lands-
’lýðurinn færist saman í megin-
hjeruðin, en útkjálkarnir að
minsta kosti fari í auðn? Engum
mun sú hugsun ljúf, að nokkur
bygður blettur þessa lands verði
.að þúst. En hvers er að vænta,
þar sem hlutfall landmegins og
’þjóðmegins er í svo háskalegu mis-
ræmi, sðm hjer á íslandi?--------
Um framsóknarvilja og orku
þjóða rinnar á þessum áratugum
mætti rita langt mál. Vjer erum
ibyrjendur, landnámsmenn í gömlu
sögulandi og ráðnir í því að skapa
mýja sögu, námfúsir nýsveinar í
:skóla Evrópumenningarinnar, en
fornlyndir' og fastheldnir á gömul
verðmæti. Eða svo ættum vjer að
vera! Einskis er betra að minn-
ast en þess, hve mikið vjer höfum
■numið af Evrópuþjóðum á síðustu
stímum. Vjer eigum nú Evrópu-
mentaða söngmenn og tónlistar-
menn, myndhöggvara og málara,
x)g hafa sumir þeirra hlotið mikla
viðurkenning í öðrum löndum. Jeg
«r óviss um, að margir íslend-
úngar kunni að meta þann sigur,
sem íslenskir málarar unnu, er
7>eir sýndu verk sín í Danmörk
og á Þýskalandi síðastliðið ár.
Hinum útlendu dómurum kom
•nokkurn veginn saman um. að
iistamenn vorir væri að vísu læri-
sveinar útlendrar listmenningar,
«n þó brytist fram í verkum
sumra þeirra eitthvað nýtt, —
náttúra nýs lands og nýrrar þjóð-
ar, — eitthvað, sem væri áður
ósjeð og óþekt. Hinir snjöllustu
þeiiTa hafa kunnað að læra. En
allur rækilegur og djúptækur lær-
■dómur gerir mennina sanna og
-sjálfstæða, — kennir þeim aði
ruppgötva það', sem mest er um
vert: sjálfa sig. — Einnig má
minnast þess í þessu sambandi, að
mýlega fór flokkur íslenskra leik-
fimisltvenna til annara landa, og
vakti þó nokkra eftirtekt, svo að
jafnvel útlendir kunnáttumenn á
því sviði dáðust að æfingunum og
töldu sig geta lært nokkuð af
þeim. Margir munu láta sjer fátt
mm finnast, að slíkra hluta er
miinst. En þeir menn, sem enn eru
á ljettasta skeiði, og kunna þó að
minnast þess, hvílíka óvirðing ís-
lendingar enn þá lögðu á sjálfa sig
fyrir 20—30 árum, láta ekki slík
tíðindi sem vind um eyrun þjóta.
-Jeg minnist þess, að þegar jeg var
í skóla vorum við skólapiltar sum-
ir allhreyknir yfir því, að' einn
nafnkunnur sjómaður að vestan
hafði orðið háseti á „Láru.“ Börn
vorum við að vísu, en eldri kyn-
slóðin var ekki miklu stoltari eða
■djarfsýnni. „Miklu tíðkast það nú
meir en áður, að Islendingar fari
utan,“ sagði einn skólakennarinn,
«r Davíð' frá Stöðlakoti var sendur
•með f járfarmi til Englands. Slíkur
var þá þjóðarmetnaður íslendinga,
— stundum að vísu hlægilega mik-
ill í orði, en altof hlægilega lítill
á borði.Allir hinir eldri menn voru
1 rauninni hjartanlega sannfærðir
<og sammála um, að enginn maður
,af íslensku bergi brotinn gæti
staðist útlendum manni snúning,
allra síst í andlegum viðskiftum.
Þetta var raunar þungbærasti og
ískyggilegasti arfurinn frá liðn-
um óláns öldum. Danir höfðu geng
ið svo frá okkur, að við þorðum
v&rla að líta á sjálfa okkur sem
menska menn.
3.
Hefir nú viðurkenning hins ís-
lenska fullveldis knúð fram eða
örvað þá framsókn, sem gert hefir
vart við sig í svo mörgum efnum?
Sumir lslendingar vilja helst vera
þeirrar skoðunar. En þó er sann-
ast að segja, að viðurltenning sjálf
stæðisins hefir ekki út af fyrir sig
valdið neinum straumhvörfum eða
stefnubreytingum, nje haft nein
veruleg áhrif á þroska og sjálfs-
traust þjóðarinnar. Hinn sami
viiji og metiiaður, sem leiddi til
stjórnmálasjálfstæðis, liafði gert
vart við sig áður á nálega öllum
sviðum jijóðlífsins. A næstu árum
eftir 1874 þóttust menn verð'a var-
ir við óvenjulega mikinn og al-
mennan áhuga til unibóta og
framsóknar ,eftir því sem menn
höfðu átt að venjast og efni stóðu
til. En hjer varð1 engin nýbreytni
eftir 1918, enda urðum vjer fyrir
því óhappi, að óvenjulega erfið
ár fóru í kjölfar sjálfstæðisins
og bar því meir á önn og áhyggju
á þeim árum, en fögnuði yfir
fengnum sigri. En eins munu þó
flestir hafa vænst: að stjórnmála-
líf vort vrði lieilbrigðara og frið-
samlegra eftir en áður. Sambands-
málið hafði fram af þeim tíma
kasað nálega öll önnur mál vor
undir sjer, og bjuggust menn nú
við, að íslensk flokkaskifting yrði
mun eðlilegri og sæmilegri. Margir
voru orðnir leiðir á hávaðamönn-
um sjálfstæðisbaráttunnar og víg-
orðum þeirra, og vonuðust nú eft-
ir að betri og bjartari öld myndi
rcnna upp.
Hafa þær vonir rætst?
Björnson sagði einu -sinni, að
aldrei væri logið meir í löndunum
en á sunnudögum. En ef sunnu-
dagjarnir eru nú orðnir svo rúm-
helgir, þá væri ekki illa til fallið
að velja einliverja daga, — og
þótt ekki væri nema einn dag á
ári — til þess að segja satt.Ættum
vjer fslendingar að gefa ölclum
og óbornum það boðorð, að aldrei
mætti ljúga á fullveldisdaginn, —
síst prjedika lýgi í ræðu eða
riti. Nú í dag er því best að segja
■iatt og er þá einsætt að svara
spurningunni hjer fyrir ofan neit-
indi.
Sjaldan eða aldrei liafa verið
eitraðri flokkaclrættir á fslandi, en
síðan fullveldið var viðurkent. —
Það má fullyrða, að vanstilling
vor í umræðum um stjórnmál hefir
aldrei verið eftirtektarverðari og
iskyggilegri heldur en á þessum
síðustu árum. Og stundum hefir
liún náð slíku hámarki, að ekki
Jón Magnússon.
hefir mátt tæpara standa. Sumir
vor á meðal hafa gert, alt sem í
þeirra valdi hefir staðið, til þess
að egna stjett á móti stjett, sveit-
ina móti sjávarsíðunni, verka-
manr.inn móti verkafrömuðinum
Og þjóðinni hefir verið prjedikað
það eins og heilagt evangelíum,
að stjettabarátta Aræri bæði nauð-
syn og siðferðisleg skylda. Nú
mun engum koma til hugar að
neita, að samtök verkamanna sjeu
eðlileg og hafi jafnvel verið óhjá-
kvæmileg, eftir að sjávarútvegur-
inn komst í það' horf, sem hann
er nú í. En hvaða vit hefir verið
í því að egna bóndann móti sjávar-
manninum? Hvað græðir bóndinn
á því að hata útgerðarmanninn,
án þess þó að geta náð sjer niðri
á honum, þ. e, a. s. keppt um
vinnukraftinn við hann? Það er
ekki auðsjeð, einkum þegar þess
er gætt, að' forvígismenn sjávarút-
vegsins hafa margsinnis sýnt og
sannað, að þeir Iiafa glöggan
skilning á þörfum og nauðsynj-
um landbúnaðarins og engu minni
rækt til sveitanna, lieldur en þeir
bændaforingjar, sem hámæltastir
eru og mikillátastir. Þetta er eitt
liöfuðeinkenni fullveldisáranna, að
ákafar tilraunir hafa verið gerð-
ar til þess að ala á stjettagrein-
ing meðal þessarar vesælu þjóðar,
þar sem fátækt og mannfæð hafa
öldum saman sljettað alt þjóð'fje-
lagið, svo að varla hefir risið
hundaþúfa upp úr þeirri óræktar-
flöt. Og stundUm liafa þessar til-
raunir verið svo ofstækisfullar og
öfuguggalegar, að sæmd og full-
veldi andans, — fullveldinu,
sem í dag er einna tíu ára gam-
alt, — hefir staðið háski af þeim.
Jeg vil nefna aðeins eitt dæmi
tii þess að færa sönnur á þetta.
Arið 1925 lagði Jón heitinn Magn-
ússon frumvarp fyrir ]>ingið, þar
sem farið var frsyn á, að stofnuð
yrði ríkislögregla á íslandi. Frum-
varpið var eltki svo vel úr garði
gert, sem venja var til um frum-
vörp Jóns Magnússonar. En hvað
gerðist? Andstæðingar stjórnarinn-
ar, — Framsóknarmenn og Jafn-
aðarmenn, -—- risu gegn frumvarp,
inu eins og sjálfur djöfullinn
befði birtst í deildinni í eigin
persónu og líkamlegri mynd. Þeim
kom ekki til liugar, að ljá lið
sitt til þess að umbæta frumvarp-
ið, enda sáu þeir ofsjónir eða ljet-
ust sjá ofsjónir. Þeir ærðust að
Jón Magnússyni vegna þess, að
hann hefði með þessu frumvarpi
egnt „yfirstjettina" í höfuð al-
múganum og stofn.að til vígaferla
og blóðsúthellinga. Slíkar ásakanir
ljetu menn sjer sæma að bera á
einn hinn frið'samasta og væru-
gjamasta mann, sem nokkru sinni
liefir lifað í frið'sömu og væru-
gjörnu þjóðfjelagi. A þennan hátt
var frumvarpið myrt. En sá ís-
Jendingur, sem nú er spurður,
hversvegna við eigum engan vott
'ða vitund landvarna, — nema
Sambandslaganefndin 1918
Sitjandi umhverfis borðið, talið frá vinstri: I. C. Christensen, Einar Amórsson, Jóhannes Jóhannesson, Þorsteinn
M. Jónsson, Bjami Jónsson frá Vogi, Christopher Hage, Erík Arup og Borgbjerg. Að baki þeirra standa skrifaramir.
Myndin er tekin i lestrarsal Háskólans, þar sem nefndin hjelt fundi sína.
þessa tvo fallbyssubáta, — og
ekki einu sinni lögreglulið, sem
geti haft hemil á götu-uppþotum
útlends eða innlends skríls, —
hann verður að svara: „Vjer get-
um eldd átt ríkislögreglu, svo
mjög stöndum vjer öðrum þjóðum
að baki að skapfestu og dreng-
lyndi. Oss er að visu kunnugt, að
öll önnur ríki, bæði hvít, svört og
gul, telja sjer skylt að eiga að
minsta lcosti svo miklum vopnuð-
um mannsafla á að skipa, að þau
geti ráðið við óvopnaða óróaseggi
og upphlaupsmenn. En vjer ís-
lendingar treystum oss ekki til
þess að færast slíkt í fang. Stjetta-
hatrið er svo magnað hjer á landi,
að stofnun ríkislögreglu hlyti óhjá
kvæmilega að leiða til hinnar
mestu ógæfu, — mannvíga og
annars ófarnaðar.“ Slík orð og
ummæli væru fullkomlega í anda
stjórnarandstæðinga 1925, en ekki
bera þau vott um mikið traust til
þjóðarinnar eða mikla virðingu
fyrir fullveldi liennar.
4.
í dag höldum vjer fullveldishá-
tíð og minnumst um leið, hvað
vel okkur liafi tekist að vera hús-
bændur á voru eigin heimili um
síðustu 10 ára skeið. Ef heitstreng-
ingar tíðlcuðust enn vor á meðal,
færi vel á, að fullveldisdagurinn
væri almennur lieitstrengingardag-
ur. Vjer skyldum þá strengja þess
heit: að láta aldrei stjettagreining
sprengja þetta_ fámenna og ein-
steypta þjóðfjelag, þar sem ættir
flestra manna koma saman, ef rak-
tar eru 7—8 liði aftur í tímann; að
gjalda jafnan varhuga við útlend-
um yfirgangi og rangindum, eftir
því sem við höfum vit og mátt
til, en þola aldrei innlendum
mönnum, hvort sem þeir eru valda-
menn eða ekki, að fótum troða
lög landsins eða rjett einstaklings-
ins, því að oss er í sjálfsvald sett,
að kenna slíkum mönnum betri siði
og sæmilegri hegðun; að halla
aldrei rjettum dómi, hvort sem
í hlut á meiri maður eða minni; að
gleðjast aldrei yfir óförum íslend-
ings, en fagna í hvert sinn, er fs-
lendingur vinnur sjer eitthvað til
ágætis, og sýna þann fögnuð í
orði og gerð!
Árni Pálsson.
Hátfðahðldin í dag.
Eins og að undanförnu gengst
Stúdentaráð Háskólans fyrir há-
tíðahöldum 1. desember, og verð-
ur nokkuru meira til þeirra vand-
að nú en áður, vegna þess, að nú
er jafnframt 10 ára afmæli hins
íslenska ríkis, og verður þess
minst sjerstaklega í dag. Ætti
enginn, sem getur því við komið,
að sitja sig úr færi til þess að
fylgjast með því, sem til skemtun-
ar verður og sýna með því góðan
hug sinn til þess merkilega dags,
er helgaður er íslensku sjálfstæði,
og stúdentar hafa kjörið sjerstak-
lega til þess að vinna að sínum
eigin áhugamálum og jafnframt að'
mikilsverðu menningarmáli, sem
snertir alla þjóðina.
Skrúðganga og ræða af svölnm
Alþingishússins.
Hátíðahöldin hefjast kl. 1 með
því að stúdentar ganga í skrúð-
fylkingu frá Mensa og niður að