Morgunblaðið - 30.12.1928, Blaðsíða 3
VfORCrTTNRT.AÐTÐ
MORGUNBLAÐIÐ
■tofnandl: Vllh. Flngen.
Utcefandl: FJelag 1 Reykjavlk.
*lt»tjörar: Jðn KJartanaeon.
Valtír StefAnaaon.
Audýaingaetjðrl: E. Hafberc.
■krlfatofa Auaturstrntl t.
■IbU nr. 500.
Auglý.lnga.krif.tofa nr. 700.
Helaaaalmar:
Jðn KJartanaaon nr. 741.
Valtýr Stefánaaon nr. 1110.
H. Hafberc nr. 770.
AakrlftaKJald:
Innanlanda kr. 2.00 á aaánuBl.
Utanlanda kr. 2.60 - —
I lauaaaðlu 10 aura elntaklB.
Erlendar sfmfregnir.
Khöfn, FB 29. des.
Suðurför Byrds.
Blaðið „Politiken" birtir sím-
•skeyti frá Byrdleiðangrinum. Br
Byrd kominn að ísveggnum sunn-
an við Rossflóann, eftir sjö daga
siglingu gegnum ísinn. Þaðan fer
hann til Hvalaflóans.
Bretar viðurkenna stjálfstjórn
Kína í tollmálum.
Frá London er símað: Bresk-
kínverski tollsamningurinn hefir
verið birtur. Bretland viðurkennir
kínverska sjálfstjórn í tollamálum.
Blaðið Manchester Guaridan segir,
að kínverskir tollar hækki sam-
kvæmt samningnum og verulegs
verslunarhagnaðs af samningunum
sje ekki að vænta; í bráðina, en
hinsvegar álítur blaðið að pólitísk-
ur hagnaður af samningum verði
mikill. — Blaðið Daily Telegraph
álítur þýðingarmikið, að samning-
urinn lögleiði reglubundið tollfyr-
irkomulag í staðinn fyrir handa-
hófs aukatolla.
Öll stórveldin að undanteknu
Japan hafa gert tollsamninga við
Kína.
Bretakonungi versnar.
Ástand Bretakonungs lakara síð-
ustu dagana. Kraftarnir dvína.
UppreiBnin í Afghanistan.
Blaðinu Daily Mail hefir borist
skeyti frá Lahore (borg í Ind-
landi), þess efnis, að' Uppreistar-
mennirnir í Afghanistan hafi verið
reknir til fjallanna fyrir norðan
KabuLTiltölulega friðsamlegt í höf-
uðstaðnum (þ. e. Kábul, höfuð-
stað Afghanistan). Lítils háttar
hefir verið á það minst, að Aman-
ullah muni ef til viH fara frá
völdum og taki þá sonur hans við
völdunum.
Kínverjar varkárir.
Frá Shanghai er símað til Uni-
'ted Press, að 'kínverSk yfirvöld
hafi handtekið fimtíu og tvo verka
menn, flesta kínverska, nýkomna
frá Rússlandi. Ljek yfirvöldunum
■grunur á, að þeir ætti að hafa á
'hendi kommúnistiskan undirróður.
Ófriðurinn í Suður-Ameríku.
Frá Washington er símað: —
'Sendisveit Paraguay’s hefir til-
kynt, að' Boliviuherinn hafí aftur
hertekið Yan Guardia virkið og
ruðst tólf mílur enskar inn í hið
umþráttaða Chaco-hjerað. Paragu-
ayherinn veitti ekki viðnám. —
Stjórnin í Paraguay telur ástandið
alvarlegt.
(Chaco-svæðið er um 100.000
íerhyrningsmílur enskar og liggur
á milli Pilcomayo-fljóts og Para-
guay-fljóts. Bolivia og Paraguay
hafa lengi átt í deilum um svæði
þetta.)
3 1
Menningarstarf Mustafa Kemal.
Frá Konstantinopel er símað : —
Yfirvöldin í Konstantinopel hafa
fyrirskipað að kalla daglega sam-
an alla íbúa borgarinnar á aldr-
inum 16—45 ára, til þess að kenna
þeim að lesa og skrifa latneskt
letur. Verða allir að stunda lestr-
arnám þetta, hvort sem mönnum
líkar betur eð'a ver, enda flúttir
með valdi á námsstaðina, ef menn
vilja eigi fara fúslega.
Vinnudeilurnar í Þýskalandi.
Báðir málsaðiljar hafna gerðar-
dómnum.
Frá Hamborg er símað: Atvinnu
rekendur í skipasmíðaiðnaðinum
hafa felt gerðadóminn. Verkamenn
hjer sömuleiðis.
Vörnfðlsnnin
Œtlar stjórnin að gerast
samsek ?
I.
Öll skrif Guðbrands Magnús-
sonar um stjórn og rekstur Áfeng-
isverslunar ríkisins er ágæt sönn-
un þess, hve gersamlega óhæfur
hann er að gegna því ábyrgðar-
mikla starfi, sem lionum hefir ver-
ið trúað fyrir. Hann byrjar um-
ræður um þetta mál með því að
liælast yfir því, að' hann hafi fram-
ið stórkostlega vörufölsun og á
þann hátt tekist að selja mikið af
birgðum Áfengisverslunarinnar.
Var ekki annað að sjá, en að hann
vildi einn eiga allan heiðurinn af
því að hafa fundið upp „ráð“ til
þess að koma út birgðunum.
Mgbl. benti því næst Guðbrandi
á, að „ráð“ hans væri óleyfilegt
og mundi varða við lög, og þá er
Guðbrandur til með að unna fyrir-
rennara sínum heiðrinum af nokkr-
um hluta af vörufölsuninni! Þó
vírðist hann enn „ekki skilja til
fulls í hverju aðalbrot hans er
fólgið, sem sje í því að hafa í
heimildarleysi notað vörumerki er-
lends verslunarfjelags til þess að
selja iit birgðir Áfengisverslunar-
innar. Þegar lionum hafði verið á
þetta bent, vill hann koma allri
skuldinni á fyrirrennara sinn! —
Hann segir í síðustu grein sinni,
að hann hafi spurt Mogensen að
því, hvort ekki væri rjett að iit-
búa nýjan flöskumiða á þessa nýju
tegund af áfengisblöndu. „En hann
(þ. e. Mogensen) kvað það óþarft
og taldi sjálfsagt að nota þamn
flöskumiða, sem hann hafði bland-
að undir, hann væri eign Áfengis-
verslunarinnar“. (Leturbr. Guð-
brands).
Skín ekki vesalmenskan út úr
hverju orði Guðbrands hjer? —
Fyrst hælir hann sjer yfir óhæfu-
verkum sínum; þeg'ar honum svo
var bent, á óhæfuna, skríður
hann bak við þann mann, sem
hann hefir orðið að rægja að und-
anförnu!
Og hvað er orðið eftir af öllu
sjálfhólinu í fyrstu grein Guð-
brands? Nú er það Mogensen, sem
fann upp „ráðið“. Það var líka
liann, sem ráðlagði Guðbrandi að
nota flöskumiða, sem á var letrað
vinsælt vörumerki! Hvað hefir
veslings Guðbrandur eftir af sjálf-
hólinu? Er hann jafn lítill og
hann var, þegar hann fór frá
Kaupfjelagi Hallgeirseyjar?
II.
Annars skiftir það engu máli,
hvor forstjóranna hefir fundið upp
hið óleyfilega „ráð“, sem notað
var. Síst er að óreyndu liægt að
trúa því, sem Guðbrandur segir
um þetta, því að hann hefir orðið
margsaga í þessu máli. Aðalatriðið
er, að hjer hefir verið framin stór-
kostleg vörufölsun og það 1 stofn-
un, sem ríkið sjálft á og ber alla
ábyrgð á. Framhjá þessari stað-
reynd verður ekki liomist.
Guðbrandur lætst í síðustu grein
sinni vera reiður við Mbl. fyrir
það, að það hafði bent honum á þá
óhæfu, sem hann framkvæmdi í
Áfengisversluninni. Er hann þá
búinn að gleyma sjálfhólinu og
rembingnum í fyrstu grein sinni.
En vita má Guðbrandur það, að
Mbl. hefir ekki annað gert en
skyldu sína í þessu máli: að víta
óhæfilegt hneyksli, sem fram fór
í stofnun ríkisins. Máske hefir
Guðbrandur ætlast til að fá lof
fyrir verknaðinn og viðurkenning
að auki!!
Nei, Guðbrandur Magnússon!
Þjer hafið með framhleypni yðar
og glópslcu auglýst það fyrir al-
þjóð, að þjer eruð gersamlega ó-
hæfur til þess að hafa á hendi
stjórn Áfengisverslunarinnar. Þjer
hafið' af einfeldni og vanþekkingu
framið óleyfilget verk og síðan af
monti hælst yfir ósómanum. Þjer
getið búist við, að ríkið eða stofn-
un sú, er þjer stýrið, verði að
blæða stórfje vegna verka yðar.
Eftir alt þetta eruð þjer svo ein-
faldur, að ætlast til, að samborg-
arar yðar ausi yður lofi fyrir
verknaðinn!!
III.
Ætlar stjórnin ekkert að' gera?
Ætlar hún að hylma yfir ósómann
í Áfengisversluninni ?
Þannig spyrja menn og ekki að
ástæðulausu.
Vörufölsunin í Áfengisverslun-
inní snýr að þegnum erlends rík-
is: þess vegna má stjórnin ekki
vera aðgerðaláus. Hún verður þeg-
ar í stað að fyrirskipa rannsókn.
Aðgerðarleysi stjórnarinnar verður
skoðað sem yfirhylming og getur
haft alvarlegar afleiðingar.
En er þess að vænta, að stjórn-
in geri nokkuð í þessu rnáli? Hún
veitt.i Guð'brandi stöðuna vegna
þess að hann var pólitískur sam-
herji. Mun hún ekki halda hlífi-
skildi yfir honum nú vegna þess
að hann er pólitískur samherji?
Fjórar vikur eru liðnar síðan
upplýst var um hneykslið í Áfeng-
isversluninni, og enn héyrist ekk-
ert frá stjórninni; engin rannsókn
og Guðbrandur situr kyr eins og
hann hafi ekkert óleyfilegt að-
hafst.
Er ekki þessi yfirhylming stjórn
arinnar aðeins sýnishorn af stjórn-
arfarinu í landinu? Þar sem póli-
tískir andstæðingar eiga í hlut, er
„vörður laga og rjettar“ sífelt á
verði og refsivöndurinn ætíð reiðu-
búinn, ef nokkuð ber út af. Er
beinlínis hafin leit að misfellum
hjá andstæðingum og þeir ofsóttir
og svívii'tir á állan hátt, ef nokk-
uð finst.
En þegar röðin kemur að póli-
tískum samherjum sefur rjettvísin
og hinir seku fá óáreittir að hæl-
ast yfir verkum sínum.
Hvað á lengi að þola þennan
órjett í landinu og þá óstjórn, er
slíkt rjettarfar skapar?
Dagbók.
□ Edda 5929163 — H. -.St. •.
□ Edda 5929167 — V. -..St. •.
Listi í □ og hjá S.. M.. til 2.
jan. kl. 6 síðdegis.
Veðrið (í gærkvöldi kl. 5): —-
Lægðin fyrir sunnan Island fer
óðum minkandi og hreyfist suð-
austur eftir. — Háþrýstibelti f.rá
Azoreyjum og norður um Græn-
land, en þar fyrir vestan tekur
við stór lægð, sem hreyfist austur
eftir og sennilega veldur S-átt og
hlákuveðri hjer á gamlársdag.
Klukkan 5 í kvöld var vindur
а. llhvass SA sunnan lands (storm-
ur í Eyjum), en yfirleitt hægviðri
norðan lands.
Veðurútlit í dag: NA-gola. Þurt
veður — með nóttunni verður
vindur sennilega SA og hvessir
með morgninum.
Áramótamessur í dómkirkjunni:
Gamlárskvöld kl. 6, sjera Friðrik
Hallgrímsson; kl. 11% cand. tlieol.
S. Á. Gíslason. Nýársdag kl. 11
sjera Bjarni Jónsson; kl. 5 sjera
Friðrik Hallgrímsson.
í fríkirkjunni í Reykjavík: Á
Gamlárskvöld kl. 6 sjera Árni Sig-
nrðsson. Á nýársdag kl. 2 sjera
Árni Sigurðsson.
í fríkirkjunni ' Hafnarfirði á
gamlárskvöld kl. 7% síðdegis sra
Ól. Ólafsson. Á nýársdag lrl. 2 síð-
degis sjera Ól. Ólafsson.
I Garðaprestakalli. í Hafnai--
f jarðarkirkju: Á gamlárskvöld kl.
б. Á. B. Á nýársdag kl. 1 Á. B.
Sjómannastofan. Guðsþjónusta
á Gamlárskvöld kl. 6. Ólafur Ól-
afsson kristniboði talar.
Sunnudagaskólabörn K. F. U. M.
komi í samkomuhúsið við Ámt-
mannsstíg kl. 1% í dag (en ekki
kl. 10 eins og vant er), til þess
að ganga í kirkju kl. 2.
Jólagleði Mentaskólans, sem út-
lit var fyrir að farast mundi fyrir,
fór frarn í gærkvöldi í Mentaskól-
anum.
Frú Ingibjörg Steinsdóttir hefir
sjeð um útbúnað leiksviðs fyrir
„Kinnarhvolssystur“, sem nú er
verið að sýna á ísafirði og sjálf
leikur frúin "Clrikku. Þykir vel
hafa tekist allur útbúnaður leiks-
ins. og leikur frú Ingibjargar er
talinn mjög góður. Er það' álit
manna, að frúin sje gædd ágætum
leikarahæfileikum. Innan skams
fer hún til Akureyrar og ætlar
að leika Höllu í Fjalla-Eyvindi.
Frá Akranesi. Vertíðin er þegar
byrjuð á Akranesi; fóru bátar til
fiskja.r á fimtudag og öfluðu vel.
Búist er við að fáir bátar fari til
Sandgerðis á þessari vertíð, en
alls munu um 20 bátar véra gerðir
út frá Akranesi á vertíðinni.
Þingmálafund hjelt Pjetur Otte-
sen alþm. á Akranesi í gærkvöldi.
Bæjarstjómarkosning á fram að
fara á ísafirði þann 12. jan. n. k.
Ganga 3 úr. Eru komnir fram 2
listar. Á A-lista (sósíalista) eru
þessi nöfn: Finnur Jónsson, póst-
meistari, Jón Pjetursson, skrifari
og Ingólfur Jónsson, bæjargjald-
keri. Á B-lista (íhaldsm.) eru:
Árni Jón Árnason, brauðgerðar-
húseigandi og Helgi Ketilsson
frystihússtjóri.
Hjónaband. Gefin verða saman í
hjónaband á gamlárskvöld Luther
Salómonsson, Ránargötu 10, Rvík
og ungfrú Anna Magnúsdóttir frá
ísafirði.
Þýski togarinn, sem rakst á dög-
unum á sker hjá Yigur, situr enn
fastur og er kominn talsverður
leki að skipinu. Eru taldar litlar
likur til þess að það náist út.
Trúlofun sína opinberuðu á að-
fangadag jóla í Stokkhólmi, ung-
frú Greta Erdman og Jón Björns-
son málarameistari.
Alþingi hefir verið stefnt sam-
an þann 15. febr. n. k.
Nafnlausar greinir, sem Morg-
unblaðinu berast í pósti, eru aldrei
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
••
• •
• •
• •
••
• •
kaupið
GoldMedal
hveiti i 5 kg. pokmu.
Allar besta verslan-
ir bæjarins selja
Qold Medal bveitið.
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
••
••
••
••
••
••
• •
™VífElss«ada,
Hafnarfj arðar,
Keflavíkur
og austur yfir fjall
daglega
frá Steindóri.
Simi 581.
ísafoldaprerntsmlðja h. f.
hefir ávalt fyrlrllggjandi:
Leiíarbækur og klaðdar
LelBarbökarhefti
VJeladagbækur og kladdar
Farmskirteinl
Upprunaskírteinl
Manifest
FJárn&msbelBnl
Qestarjettarstefnur
Vlxilstefnur
Skuldalýslng
Sáttakærur
UmboB
HelgisiBabæknr
Prestþjönustubækur
Sóknarmannatal
FæBingar- og sklrnarvottorB
Gestabækur gistihúsa
Ávísanahefti
Kvlttanaheftl
ÞinggJaldsseBlar
Reikningsbækur sparisJöSa
LántökueyBuhlöB sparlsJÖSa
Þerripapplr I Vi örk. og niSursk.
Allskonar pappfr og umslög
Hinkabrjefsefni { kössum
Nafnspjöld og önnur spjölð
Prentun á aUa konar prentverkl,
hvort helilnr gnll-, nllfur- eBn 111-
prentun, eBa meB avörtn elngöngtn
er kvergt betnr nje fljðtar af
hendl leyat.
S I m 1 4 8.
ísafoldarprentsmiðja h. f.
Liebig-Harmonium,
Einkasali:
K. SÖEBECH, Lækjargötu 4.
Brunatryggingar
Sími 254.
Sjóváfryggingar
Sími 542.
ÖOOOOOOOOOOOOOOÖOO