Morgunblaðið - 16.04.1929, Side 3
M 0 R GUNBLAÐIÐ
8
2UorgmtHaí»iX>
Btoln&ndl: Vllh. Plnaen.
tlt*«tandi: Fjelagr t Reykjavlk.
Rltatjórar: Jón KJartanason.
Valtýr Stefánsaon.
An*ltsingastjóri: E. Hafber*.
Bkrlfstofa Austurstrœtl 8.
■Isal nr. 600.
Au*lýsingaskrlfstofa nr. 700.
Sstsoaslmar:
Jðn KJartansson nr. 74Í.
Valtýr Stefánsson nr. 1X10.
B. Hafberg nr. 770.
AskrlftasrJald:
Innanlands kr. X.00 & mánuBL
Dtanlands kr. 1.60 - ■ '
1 lausasölu 10 aura eintaklB.
Etlendar símfregnir.
Khöfn, FB. 14. apríl.
HernaSarskaðabætumar.
Fi'á París er símað: Banda-
smenn hafa náð samkomulagi sín á
milli um að læltka ltröfurnar um
hernaðarskaðabætur frá Þjóðverj-
«m, í þeim tilgangi að greiða fyr-
ir samkomulagi um stærð skaða-
hótanna. Bandaríkin vilja ekki
gefg eftir neitt af skuldum Banda-
mamia við Bandaríkin. Bandamenn
geta þm ekki lækkað þann hluta
þýsku skaðabótanna, sem ætlaður
-er til að borga með skuldir Banda-
manna við Bandaríkin. Banda-
mehn hafa. hinsvegar ákveðið, að
lækka hinn hluta skaðabótanna,
sem fer til Bandamanna sjálfra,
sem er endurgreiðsla fyrir eyðilögð
hjeruð og annað tjón.
Þessar nýju tillögur Banda-
ananna voru áfhentar fulltrúum
Þýskalands í gær.
Frakknesk blöð segja, að frek-
•ari tilslakana sje ekki að vænta af
Siálfu Bandamanna.
Frá Berlín er símað: Kröfur
Bandamanna hafa enn ekki venð
birtar. Heyrst hefir, að Banda-
menn krefjist þess, að Þjóðverjar
greiði 1.7 til 2.4 miljarða marka
•áriega í 58 ár.
Berliner Tageblatt og Vossiche
Zeitung halda því fram, að það
verði Þjóðverjum um megn að
greiða svo miklar skaðabætur og
anuni því ekki verða hægt að fall-
■ast á kröfurnar.
Stjómarbreyting í Þýskalandi.
'Gentrumflokkurinn fjekk í gær
þrjú sæti í ríkisstjórninni, nefni-
lega dómsmálaráðherraembættið,
■sem G-erard tók að sjer, samgöngu-
anáiaráðherraembættið, sem Steger-
wald tók að sjer, og loks var
'Wirth gerður að ráðherra Rínar-
’bygðamálefna.
Einveldið í Jugoslavíu.
Frá Belgrad er símað: Konung-
’urinn í Jugoslavíu hefir vikið frá
37 hershöfðingjum í embættum,
sennilega til þess að setja menn í
þeirra stað, sem stjóminni eru
tryggari, menn, sem gæti trygt
stjórninni fastan stuðning hers-
3ns.
Stjómarskifti í Póllandi.
Frá Varsjá er símað: Bartel-
■stjórnin baðst lausnar í gær, að
■sögn vegna þess, að sundurlyndið
innan stjómmálaflokkanna var orð
ið magnað. Switalski, hinn fráfar-
andi kenslumálaráðherra, hefir
íekist á hendur að mynda nýja
•fitjörn.
Frá Alþingi.
Efri deild í gær.
Vitar og sjómerki endursent Nd.
með þeirri breytingú, að hlutaðeig-
andi hafnarsjóður greiði kostnað
iann, sem leiðir af að nema burt
farartálma inn á löggiltri höfn að
tví leyti, sem hann fæst ekki
greiddur af eiganda þess er farar-
táima veldur. Verði kostnaður
hafnarsjóðs meiri en nemur af
árstekjunum, greiðir ríkissjóður
það sem fram yfir er.
Loftferðir.
Nokkrar brtt. lágu fyrir frá
BKr. um að nema úr frv. alt það
er rninti á hemaðarráðstafanir
annara þjóða í sambandi við flug-
ferðir. Leyfistíminsn sje styttur úr
20 árum niður í 10 ár og að atvrh.
sje heimilt að ráða innlendan
mann með fullkomnu flugvjela-
prófi til að annast eftirlit með
flugferðum. Voru brtt. þessar sþ.
og frv. sent Nd.
Eftirlit með loftskeytajaotkun
veiðiskipa, sþ. og- sent Nd.
Ófriðun sels í Ölfusá, vísað til
3 umr.
Neðri deild.
Sala á Laugalandi í Barðastrand
arsýslu sent orðalaust til Ed.
Refagirðingar og útflutningur
refa. Frv. þetta flytur landbn. Nd.
Er í því bannað að geyma refi
öðruvísi en í fulltrygðum girðing-
um og atvinnumálaráðimeytinu
falið að setja nánari reglur þar'
um og um rekstur refabúa, er
jafnan skulu vera háð eftirliti
dýralæknis. Þá er og banmað að
flytja út refi nema frá refabúum
sem • starfað hafa 12 mánuði og
verður heilbrigðisvottorð dýralækn
i" að fylgja hverri sendingu.
Um þetta mál urðu talsverðar
umr. Voru flestir sammála um að
þörf væri að setja lög um þetta
efni, en frv. ekki nægilega ljóst
orðað. Fór það svo til 2. umr.
Síldarverksmiðjan. Þetta er stj
frv. og komið frá Ed. Ekki fann
atrh. ástæðu til að fylgja frv. úr
hlaði, og þótti Pjetri Ottesen það
undarlegt tómlæti, þar sem ráðh
sat þó í sínu sæti. Hinsvegar
iýsti Pjetur ánægju sinni yfir því
að stj. væri horfin frá þeirri
stefnu að láta ríkið starfrækja
verksmiðjuna. Einnig benti hann á
nokkra galla á frv. en atvrh.
þagði. Var frv. vísað til 2. umr.
og sjútvn.
Og var þá komið að fjárlagafrv.
—■ eða áframhaldandi eldhússtörf-
um, sem stóðu fram á kvöld.
Slysavarnaijelaijið
fær stúrgjafir.
Dagurinn í gær var sjerstakur
happadagur fyrir Slysavarnaf jelag
íslands. Fyrst kemur Selfoss með
björgunarbátinn, sem á að verða í
Sandgerði, — ljómandi skip og
vandað og traustbygt með af-
brigðum.
Rjett á eftir berst forseta Slysa-
varnafjelagsins, Guðmundi Björn-
son landlækni, brjef frá Marius
H. Nielsen skipamiðlara í Kaup-
mannahöfn og 5000 danskra króna
gjöf handa fjelaginu og er hún
gefin í minningu þess, að Nielsen
átti 25 ára afmæli sem eiðsvarinn
skipamiðlari.
Og litlu síðar en þetta brjef
kom, tilkynti Þorsteinn Þorsteins-
son skipstjóri í Þórshamri forseta
Slysavarnafjelagsins, að björgun-
arbáturinn nýi eigi að vera gjöf
frá sjer og Guðrúnu Brynjólfs-
dóttur konu sinni, til Slysavarúa-
fjelagsins. 1
Báturinn kostaði ytra um 12
þúsund íslenskar krónur, en Eim-
skipafjelagið flutti hann ókeypis
hingað til lands. Hefir Slysavarna-
fjelaginu því þama borist 18 þús.
krónur í gjöfum sama daginn og
má það því vel minnast þessa
dags í framtíðinni sem hins mesta
merkisdags.
Hið mikla Slysavarnafjelag Eng-
lands, sem nú er rúmlega 100 ára
gamalt, á viðgang sinn að þakka
gjafmildi manna. Margir björg-
unarbátar þess eru gjafir frá ein-
stökum mönnum, eða frá einstök-
um borgum og bæjum, en rekstr-
arkostnaður, sem nemur miljónum
króna á ári, er greiddur með
gjafa og styrktarfje.Það er skemti-
legt að sá höfðingsskapurskuli vera
lijer, að fyrsti björgunarbáturinn,
ei Slysavarnafjel. eignast, er gjöf.
Og það gefur góðar vonir um það
að Slysavarnafjelagið hjer muni
eiga aðra eins hauka í horni og
slysavarnafjelagið breska og að
framtíð þess sje trygð með þeim
ítökum, sem það á í þjóðinni.
Allir velunnarar f jelagsins munu
vera þeim hjónunum, Þorsteini og
Guðrúnu, þakklátir fyrir hina stór-
rausnarlegu gjöf þeirra, og eins
munu þeir þakklátir útlendingn-
um, sem var svo hugulsamur að
senda fjelaginu stórgjöf.
Barnakerrurnar
ern komnar.
Vandaðastar og ódýrastar
eins og ætíð áður.
Johs. Hansens Enke.
H. Biering.
Langaveg 3. Sfmi 1550.
QengíQ.
Sterlingspmid .. .. 22.15
Danskar kr. ..
Norskar kr
Sænskar kr .. 121.92
Dollar .. 4,56%
Frankar .. 17.95
Gyllini .. 183.41
Mörk .. .
Þengskylduvinna verður á
Iþróttavellinum í kvöld kl. 7y2.
Vallarstjórnin biður meðlimi
íþróttafjelaganna að hafa með sjer
hrífu eða skóflu.
Björgunarbátur þessi er ekki
nýr, en hann var svo endurbættur,
áður en hann kom hingað, að hann
er alveg sem nýr bátur. Hann hjet
áður „George and Mary' ‘, í höf-
uðið á ensku konungshjónunum,
en nii verður hann skírður að nýju
og eiga gefendur að ráða nafninu.
Dagbók.
að nokkur maður skuli fást til
þess að sýna sig í slíkum leik.
Hitt er skiljanlegt að afburða-
menn freistist til þess, þegar um
stórfje er að tefla. Menn gera flest,
fyrir peninga. En maður getnr
næstum vorkent þeim mönnum, er
standa frammi fyrir fjölda manns
og berja hver annan þangað til
blóðið fossar úr vitum þeirra og
dreifist út um andlit, háls og axlir,
svo að þeir eru eins og skornar
skepnur. Og ótrúlegt er, að Reyk-
víkingar hafi gaman að horfa á
slíkt ár eftir ár. — Um úrslit á
þessum lmefaleik var ekki að ræða.
Menn voru látnir eigast við þrjár
lotur og stóð 3 mín. hver lota
og var þeim dæmdur sigur er fleiri
og meiri hafði kjaftshöggin gefið.
Dr. H. Lotz, hinn þýski húsdýra-
fræðingur, er starfað hefir að
raimsóknum á „Hvanneyrarveik-
inni“ svonefndu o. fl., síðan í
mars í fyrra, er nú á förum hjeð-
an. Hann fer með íslandi til Ak-
ureyrar í dag og kemur um hæl
aftur til þess að taka sjer far
hjeðan með Gullfossi. Hann hefir
skrifað grein um rannsóknir sín-
ar, er birtist hjer í blaðinu innan
skamms.
Guðmundur Kamban flutti í
fyrradag í Hafnarfirði erindi sitt
um Brynjólf biskup, Ragnheiði
dóttur hans og Daða. Þetta erindi
er auðugt af heimildum, langt og
snjalt, ágætlega orðað og flutt
svo sem best má vei’ða. Það vakti
athygli mína, hve fátt var áheyr-
enda, einkanlega ungra kvenna,
Skyldi það geta átt sjer stað, að
æskan viti hvorki nje hirði um
örlög Rangheiðar Brynjólfsdóttur?
— svo að hún kenni sín alls ekki,
þegar nafnkunnur maður býður
að hlusta á dálega samið og frá-
bærlega flutt erindi um þenna
atburð í sögu vorri, sem næst
gengur hjaritarótum manns og
konu. G. Fr.
Mr. Kesson, enskur lýsiskaup-
maður, kom hingað á Gullfossi
síðast. Hann hefir verið í Hafn-
arfirði í nokkur ár og haft þar
lýsisbræðslu fyrir stórt lýsiskaupa-
firma
StAlkn
vantar mig til að annast lft-
ið heimili.
J. A. Hobbs.
Aðalstræti.
Hnefaleikar voru háðir í Gamla
Bíó í fyrradag. Attu 11 menn að
keppa, en þeir urðu ekki nema 9,
því að tveir gengu úr skaftinu. —
Aðsólni var ekki líkt því eins mikil
og í fyrra. — ekki fult hús. En í
fyrra rifust menn um aðgöngu-
miða og fengu færri en vildu. Það
var ástæðá til þess þá, því að það
var í fyrsta sinn sem hnefaleikar
voru sýndir og mönnúm því mikil
forvitni á að horfa á þá. En marg-
if munu hafa fengið nóg af því
þá, því að ekki er íþróttin fögur.
Það er í rauninni undrunarefni,
Bndlítspðður,
flndlítscream.
og Ilmwðtn
op Avalt ódýpast
og bestI
ÉSéaímes--* ’
Driessen kókó, og snkkn-
laði er best“4^1íi
hann. Samt slasaðist drengurinn
í Aberdeen. En nú er hánn allmikið og var þegar fluttur á
kominn hingað til þess að kaupa
lýsi, sjerstaklega meðalalýsi.
Dómsmálaráðheira tók Óðinn til
þess að fara með sig vestur á
Bíldudal núna um helgina. Var
farið á laugardagskvöld og komið
aftur í gærmorgun. Mun sú för
hafá verið meira í þágu Jónasar
en landsins.
Slys. Drengur á hjóli rakst í gær á
bifreið fyrir neðan Kveldúlfshúsin.
Rakst hjólið á aurhlíf bifreiðarinn-
ar og kastaðist drengurinn af því
og fram fyrir bifreiðina, en bif-
reiðarstjórinn gat stöðvað hana
svo fljótt að hún fór ekki yfir
spítala. Var líðan hans slæm fram
eftir öllum degi og var hann þá
með óráði, en í gærkvöldi fekk
hann rænu aftur og sofnaði þá
vært, svo að hann virtist á bata-
vegi.
Samsæti hjeldu vinir Hjalta
Jónssonar skipstjóra honum í gær-
kvöldi í tilefni af sextugsafmæli
hans. Var þar á annað hundrað
manns.
Prú Eline Hoffmann, skáldkona
kom hingað með íslandi, á sunnu-
daginn til þess að sjá frumsýningu
Leikfjelags Reykjavíkur á „Dauða
Natlians Ketilssonar/ ‘