Morgunblaðið - 02.05.1929, Síða 5

Morgunblaðið - 02.05.1929, Síða 5
Fimtudagiim 2. maí 1929. oriptttMa!!# Ekknastyrksnefndin. Frá stfirfnm beanar. Fundurinn í Nýja Bíó 21. apcíl. Sunnudaginn 21. apríl 1Í29 kl. 3 c. k. var haldinn kvennafundur í Nýja Bíó. Var hann haldinn að tilhlutun nefndar þoirra, er fyrir forgöngu Kvenrjettindafjelagsins var kosin síðastliðinn vetur til þes.s áð vinna að því, að ekkna- og mæðratryggingum (eða styrkj- urn) yrði komið á fót hjer á landi. Frú Laufey Vilhjálmsdóttir var fundarstjóri og um leið og hún setti fundinn og bauð gestina vel- ltomna, taldi hún fund þanu boð- aðan til þess að skýra frá tildrög- um velferðarmáLs þess, er hjer væri á dagskrá, ræða kjör ekkna og' einstæðra mavðra hjer á landi og á hvern hátt að hægt væri að bæta þau. Þá ljek Þristur Þórarins Guð- mundssonar: „ó, guð vors lands Skýrslusöfnuniu. Síðan tók til máls ungfrú Lauf- ey Valdimarsdóttir, sem er for- maður nefndarinnar. Skýrði hún frá því, að Kvenrjettindafjelag íslands hefði átt. upptök málsius og leitað hófanua hjá kvenfjelög- um Reykjavíkur. Hefðu undirtekt- ir orðið svo góðar, að 15 fjelög liefðu kosið fulltrúa í nefnd þá, er nú nefnist mæðrastyrksnefndin. —- Undirbúningsstarf nefndarinnar hefði verið í því fólgið, að erindi um málið, brjef, oíx skýrslueyðu- blöð til útfyllingar hefðu verið seud nm allar sýslur landsins. Hefðu undirtektir verið góðar, einnig í þá átt að útfyltar skýrsl- ur frá ekkjum og einstæðum mæðr- uni liefði komið viðsvegar að. Víða hafa kvenfjelög falið föstum nefnd um að beita sjer fyrir málinu. Enn þá eru þó ófengnar skýrslur frá öllum þorra þeirra kvenna, sem hjer ræðir um. Af bæjunum hafa Siglufjörður og Norðfjörður sent skýrslur, Akureyri og Seyðisfjörð- ur sett nefnd í rnálið, en skýrslur vantar enn frá fsafirði, Vest- mannaeyjum, Hafnarfirði og Reykjavík. Hefir nefndin boðað til þessa fnndar til að kynna Reykja- víkurkonum málið og biðja um þær upplýsingar um kjör ekkna 'og einstæðra mæðra, sem eru nauðsynlegur grundvöllur und- ir starf nefndarinnar: að undir- búa frumvarp um ekknastyrki og koma því inn í þingið. Víða í öðr- um löndum munu styrkveitingai* fyrir mæður vera komnar á og gaf ræðukonn fróðlega skýringu á því, hvernig veitingum þessum væri háttað. Brýna nauðsyn taldi hún á, að styrkirnir yrðu ekki lægri en almennir sveitarstyrkir, því þá væri lítið unnið. Xú fer mikið fje árlega til sjúkra- og fátækra- styrks, sem ef til vill mætti kom- ast hjá að miklu leyti, ef ekkj- urnar eru styrktar strax við frá- fall mannsins og þjóðfjelagið á þann hátt styður að því, að við- halda menningu heimilanna og heilsu barnanna. Ekkjur og einstæðar mæður eru tíðum olnbogabörn þjóðarinnar, þar sem þær sitja. einar eftir með hóp barna og efnalausar. Dregur þá oft að því að heimilin leysast upp og móðirin er til neydd að láta börnin sín frá sjer og þá oft í staði á móti vilja þeirra. Næst talaði ungfrú Inga Lárus- dóttir. Skýrði hún aðallega frá árangri skýrslusöfnunarinnar. Um 205 skýrslur væru koinnar og væru þær úr 14 sýslum. Tiltölu- lega flestar skýrslur kæmu úr þeim sýslum, þar sem væru sjó- þorj> og kaupstaðir, og mætti af skýrslunum sja, að þar væri mjög margar ekkjur sjómanna, og að það værí oft, að konur flyttu til kaupstaoanna, er þær yrðu ekkj- ur, í von um að geta frekhr fleytt fram heimilum sínum, með dag- launavinnu sinni og stálpuðu barn- anna. Skýrslurnar teldu alls 616 börn og af þeim 351 innan 14 ára atdurs. Auk þess hefðu sumar kon- urnar fyrír öðrum ómögum að sjá, t. d. 13 konur fyrir heilsulausum eiginmönnuui. í þessum hópi 205 kvenna væru 59 ógiftar mæður, og sýudu skýrslumar, að rúmur helm- ingur þeirra (30) hafa engan styrk frá barnsföður. Mætti af þessu á- lykta, að slæiega væri eftir geng- ið og ]x\sh mundi full þÖrf, að lit- ið væri eftir, að barnsfeður gætu ekki svo hæglega hlaupist undan þeirri skyldu, að greiða meðlag með bömuuum. Starf það, sem einstæðingsekkjur og mæður vinna, va>ri sannarlegt hetjuverk og bein skylda þjóðfjelagsins að styrkja þter í því starfi; dýrasta eign þjóð- fjelagsins eru börnin, og undir þroska þeitrra kominn velfarnaðnr landsins í framtíðinni. Fórnfýs* og- bágindi fáiæku mæðranna. Þá fjekk frú Aðalbjörg Sigurð- ardóttir orðið. Taidi hún konuna vera þess vel verða, að vinna jafn- hliða manninuin í hvívetna, mað- urinn skynjaði oft með heilanum en konan með hjartanu, innsæi konunnar væri það oft að þakka að mahnúðar væri gætt, enda sýndi afstaða kouuunar í heimilisstarf- seminni, i upjældi barnanna á- samt fúmfýsi hennar, að hún sje einuig þess verð að standa við lilið mannsins út á við. Prú Rríet Bjarnhjeðinsdóttir lýsti ástæðum fátækra mæðra, sliti þeirra og fórnfýsi. en lítið eha ekkert í aðra hönd. Kvað hún konur þess maklegar að njóta styrks af almannafje, þegar mað- urinn fjelíi frá, því í raun rjettri væri ríkíð þeir foreldrar, sem bæri ðkykia til að ala önn fyrir þeim börnum. er af einhverjum ástæðum mistu föður síns við. Frú Jónína Jónatansdóttir áleit málið 1 mjög knýjandi, enda væri sennilega eklii ein einasta kona á fundinum, er liti öðruvísi á. Brá liún up]> mynd af munaðarleys- ingjum frá barnæsku sinni; þá Iiefði lítdl skilningur verið sýnd ur ekkjurn og munaðarleysingjum og svo væri eflaust ennþá víða. Hefði oft verið fokið í flest skjól fyrir konum með stóran barnahóp við fráfall mannsins. Aminti kon urnar urn að greiða sem best fyrir þeim konum, sem framvegis ætla sjer að starfa að skýrslu söfnun hjer í bænum, til þess að afla upp- lýsinga um hag ekkna. Fátækraflutningurinn. Þá las fundarstjóri upp 3 til- lögur og bar þær upp til samþykt- ar. Tillögurnar voru svohljóðandi: 1. Fundurinn lýsir ánægju sinni yfir þeirri starfsemi, sem þegar er liafin til að rjetta hluta ekkna og annara bágstaddra mæðra og tel- ur brýna nauðsyn á löggjöf um bætur á hág þeirra. Heita fundar- konur þessu máli eindregnu fylgi sínu og skora á aðrar konur að styrkja það. 2. Fundurinn væntir þess af mæðrastyrksnefndinni, að hún undirbúi frumvarp um styrkveitslu til slíkra kvenna, annaðhvort með tryggingum eða af almannafje, og sjái um, að það verði lagt fyrir næsta þing. 3. Fundurinn mótmælir því, að heimilum sje sundrað vegna fá- tækraflutnings og skorar á Alþing að breyta svo fátækralögunum, áð slíkt geti ekki átt sjer stað. Greinargcrð: Sá tvískinnungur er í núgildandi fátækralögum, að bannað er að taka börn frá mæðr- um á móti vilja þeirra, en hins- vegar er hreppnum sett í sjálfs- vald að neita að veita þeim styrk sjéu þær ekki fluttar, og geta þeir þannig svelt þær út (og fengið þær .til að láta börnin, því sjald- gæft mun, að eitt heimili geti tek- ið að sjer móður og fleiri börn). Tillögurnar voru allar samþykt- ar í einu hljóði. Ungfrii Laufey Valdimarsdóttir skýrði síðustu til- löguna samkvæmt meðfylgjandi greinargerð. Einnig lýsti hún því yfir, að í ráði væri að opna skrif- stofu í Guðspekihúsinu á næst- unni, sem tæki að sjer að gefa upplýsingar og ráðleggingar um þetta í heild sinni. Mun skrifstof- an verða opin daglega kl. 4—6 og ef til vill eittlivað á kvöldin. Landbúnaðarbankinn i Elri deild. Niðurlagsorð. Síðust talaði frú Guðníii Lárus- dóttir. Lagði hún út af þessum orðum í 7. kap. Lúkasar guð- spjalls: „En er hann nálgaðist borgarhliðið, sjá, var þar borinn út maður, einkasonur inóður sinn- ar, og hún var ekkja, og mikill fjöldi úr bænum var með henni.“ Var rroða frú Guðrúnar hugðnæm. Ilún benti fundarkonum á mildi og miskunnsemi frelsarans, og á- minti þær um að láta dæmi hans verða þeim livöt til þess að ganga í lið með ekkjunum og liinum mun- aðarlausu, enda könnuðust vjer öll við orð postulans, sem sagði: Hrein og óflekkuð guðsdýrkun er að vitja ekkna og nmnaðarlausra í þrenging þeirra. Fundinum lauk með því að all- ir viðstaddir snngu: Faðir and- anna. Fundurinn var fjölmennur og fór liið besta fram. Laufey Vilhjálmsdóttir, (fundarstjóri). Sigríður Eiríksdóttír, (fundarritari). Frv. um Búnaðarbanka Islands var til 2. umr. í Efri deild á föstu- daginn var. Hefir landbúnaðar- nefnd deildarinnar haft málið til meðferðar, en eigi flutt breytingar tillögur. Aftur á móti flytur Jón Baldvinsson tillögur um að stofna „lánadeild smábýla við kaupstaði og kauptún“. Björn Kristjánsson flytur nokkr ar brtt., m. a. að fella niður veð- deild bankans. Ennfremur að á- kveða laun aðalbankastjórans 8000 kr. byrjunarlaun, er hækki upp í 10.000 kr. auk dýrtíðaruppbótar. Tillaga B. Kr. um veðdeild er sem hjer segir: „Ríkisstjórnin skal annast um, að nýr veðdeildarflokkur eða flokk ar verði stofnsettir samkvæmt veð- deildarlögunum, nr. 60. 7. maí 1928, og skal honum eða þeim fengið það sjerstaka starfssvið að lána eingöngu gegn veði í jörðum, erfðafestulöndum til ræktunar og hverskonar fasteignum, sem ætlað- ar eru til framleiðslu landbúnaðar- afurða, eða til almenningsnota sveitum landsins. Skal fara um skiftingu varasjóðs þeirra veð- deildarfloltka, er lokið hafa skuld- bindingum sínum, svo sem fyrir er mælt í 24. gr. nefndra laga. Ríkisstjórninni er heimilt að taka lán til kaupa á alt að 3 mil- jónum króna í vaxtabrjefum flokks eða flokka þessara, með þeim kjörum, að ríkissjóðurinn verði skaðlaus af. Ákveða má með reglugerð nánar um fyrirkomulag flokka þessara.“ B. Kr. telur sem sje óheppilegt að setja upp sjerstaka veðdeild við þennan banka við hlið gömlu veð- deildarinnar. Óhentugt að stofna til nýrrar veðdeildar. Um þetta atriði fórust honum þannig orð: ,Þegar veð]ánabanki er settur á stofn eða. veðdeild, þá liggur fyrst fyrir að atliuga, fyrir hvaða fje ætlar stofnunin að kaupa veð- deildarbrjefin af lántakendum, og livað kostar það fje. Ekki hefir verið ymprað á þeirri hlið málsins enn. Að vísu er gert ráð fyrir í frumvarpinu, að taka megi þriggja miljóna króna lán til þess erlendis. En er ]>að fje fáanlegt, og verður það fje ódýrara bændum en það fje, sem Landsbankinn hefir til umráða, sparisjóðsfjeð, um 33 mil- jónir króna? Eða fyrir hvaða kjör getur rikið nú fengið lán erlendis til veðdeildarbrjefakaupa ? — Je vænti, að hæstvirt stjórn geti nú gefið upplýsingar um það. Þá er önnur spurning, sem þarf að Jeysa úr, og hnn er sú: Hvað margar jarðir eru það íslandi, sem eru í einstakra manna eign, sem enn eru óveðsettar veð- deild Landsbankans, ríkissjóði söfnunarsjóði eða ræktunarsjóði? Jeg hygg að þær sjeu fáar. Og ef þær eru fáar, þá er þessi veðdeild arstofnun ónauðsynleg. Þeir, sem tekið hafa lán í veðdeild Landsb., hafa allir greitt þau afföll af brjef unum, sem giltu á hvei'jum tíma fjöldi manna hefur 2—3 veðdeild- arlán á jörð sinni; þeir taka við- bótarlán, þegar þeir hafa greitt nokkuð af fyrri veðdeildarlánum • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • é • • :: § •• •• ta® -^ashiuhjí-cios*^ HbmiFIO** •'W' • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • kanpið Gold Medal kreitt i 6 kg. pokuB. AUar bftsti verslai* ir kj»)ariks sftl)a •• •• •• •• •• •• •• •• •• •• •• •• I :: fiold Medal ItvelUS. j: u Fermlngarfet 2 tegundir. Skyrtur — Flibbar. Slaufur — BindL 1 Manchesfer. Laugaveg 40. Sími 894. Gardinntau fallegt úrval, nýkomið. — öll gardínutau frá fyrra ári seljast með miklum afslætti Verslnnin Vík. Laugaveg 52. Simi 1485. lieblg-Harmonium. Eink&sali: K. SÖEBECH, Lækjargötn 4. “Beimaline Hin stöðugt vaxandi sala .Bermaline' brauða er besta sönnunin fyrir gæðum þeirra — Ef þjer eruð ekki þegar Bermaline-neytandi, þá byrj- ið í dag. Gílletteblfið ávaltfyrirliggjandi í heildsðlo. Vilh. Fp. Frimam Sími 557.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.