Morgunblaðið - 07.06.1929, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Olsem C
Dansbnr flórsyknr,
Belgísknr flórsyknr,
Svínafeiti,
Bakaramarmelaði.
Bakarasmjórliki B. og BB.
BRAGÐIÐ
mm
Sm'GRLÍKÍ
Tekjuskatturinn í Reykjavík
Úánægja með ákvðrðnn hásaleign af eigin íbnðnm.
Skrá yfir tekju- og eignarskatt
þetta ár liggur nú frammi á bæj-
arþingsstofunni. Kærufrestur er
liðinn 8. þ. m. Allir, sem vilja fá
breytt, skatti sínum frá því, er
skattstofan hefir ákveðið hann,
verð%a að senda skattstofunni kær-
ur sínar í síðasta lagi þann dag.
Það er eitt atriði í skattákvörð-
unum manna nú, sem sætt hefir
mikilli óánægju. Það er sú ákvörð-
un, sem skattstjóri hefir gert
með samþykki eða eftir fyrirlagi
yfirskattanefndar, að húsaleigu
skuli miða við brunabót.avirðingu
húseignanna. Þeim manni, sem t.
d. á húseign og'býr hjer í bænum,
og húseignin er virt til brunabóta
á kr. 50000.00, eru gerðar 5000.00
i húsaleigu eftir hana árið 1928.
Ef hann hefir talið fram það háa
leigu eftir eignina, þá stendur
framtal hans að því leyti. En ef
leiguframtalið er lægra, þá er
húsaleigan hækkuð svo, að hún
verði kr. 5000.00. Þessi leigu-
ákvörðun þykir mörgum mönnum,
sem búa í eigin húsum, koma all-
hart niður. Þeir hafa, sumir hverj-
ir, e. t. v. lagt hart á sig að koma
sjer upp húsi, ef til vill á dýrasta
tíma, og brunabótavirðingin er því
mikils til of há. Þeim hefir ekki
gefist færi á að láta meta upp
eign sína til brunabóta, því að
þeir vita ekki til þess, að þannig
skuli ákveða leiguna, fyr en fram-
talning tekjuskattskár er auglýst.
Á laugardaginn var, var haldinn
fundur í Varðarhúsinu að tilhlut-
an fjelags fasteignaeigenda bæj-
arins, og var þetta mál tekið til
umræðu. Kom það í Ijós, að fje-
lagsmenn, fiestir eða allir, telja
þessa ákvörðun á húsaleigunni
ólöglega. Þeir telja, að yfirskatta-
nefnd hafi brostið heimild til þess
að setja skattstjóra þessa reglu.
Samkvæmt. skattareglugerðinni 11.
gr. II. 1., á að áætla afgjald eftir
fasteign, sem eigandi notar sjálfur,
og það metið eftir því, sem aðrar
samskonar eignir eru leigðar. —
Eigendur fasteigna halda því fram
að hjer í bæ eigi, eins og annar-
staðar á landinu, alment, að taka
til greina framtal þeirra á leigu
eftir íbúðir, sein þeir nota sjálfir
x húsum sínum. En ef skattstjóri
eða yfirslcattanefnd vilji ekki taka
framtöl.til greina, þá eigi að gera
framteljanda viðvart um það/og
honum veittur kostur á að koma
til viðtals og leiðrjetta framtal
sitt að þessu leytj, eins og annars,
ef framtals manns«þykir verulega
ófuílnægjandi. Ef eigi verði sam-
komulag um leiguupphæðina, þá
vérði að ineta hana, auðvitað eftir
skoðun á húsnæðinu, sem skatt-
stjóri eða t. d. dómkvaddir menn
framkvæma.
Eins og vikið hefir verið að, þá
skapar Jxessi regla um ákvörðun
leigu eigandans af íbúð sinni í húsi
sínu misrjetti mikið. Einungis
skattþegnar í Reykjavík verða að
sæta henni. Maður búsettur og
húseigandi í Reykjavík fær áætl-
aða leigu af húsi sínu til skatts
10% af brunabótavirðingu, en
maður, sem búsettur er utan
Reykjavíkur, t. d. á Seltjarnar-
nesi, en á hjer hús, fær framtal
sitt tekið til greina, enda þótt
leigan af húsinu nemi ekki 10%
brunabótaverðs og þó hann hefði
sjálfur líka íbúð í húsinu. Telja
húseigendur sig hjer hart. leikna
og beitta misrjetti á borð við hús-
eigendur annarstaðar á landinu.
Fundurinn á laugardaginnn var,
samþykti yfirlýsingu um það, að
yfirskattanefnd hafi skort heim-
ild til þess að ákveða mönnum
húsaleigutekjur miðað við bruna-
bótavirðingu húsanna og áskorun
til skattstjóra um að leiðrjetta
skatt manna í samræmi við fram-
tölin.
Um ákvörðun húsaleigu á öðr-
um grundvelli hefir og verið talað:
Annað hvort miðað við fasteigna-
mat eða samkvæmt mati virðingar-
manna veðdeildarinnar. Margir
telja þann mælikvarða þó ekki
heldur viðunandi, enda breytist
leiga árlega. Hina einu löglegu
leið telja margir fasteignaeigendur
hjer í bænum þá, að meta leigu
hverju sinni hjá hverjum einstök-
um, ef ekki verður samkomulag
um hana milli skattstjórnar og
gjaldþegns. Þessu má vel í verk
koma, hvar sem vera skal á land-
inu. í hverjum hreþpi eða kaup-
stað mætti iiafa virðingarmenn, er
þá sýslun liefðu, að meta leigu
eftir íbúðir manna, sem búa í
eig'in húsum.
Matttifas Einarsson
fimtugur.
Matthías Einarsson læknir, sein
í dag verður fimmtugnr, er út-
skrifaður úr Læknaskólanum
gamla. Meðan sá skóli var við líði
mátti heita, að hjei'lendir læknar
skiftust í tvo flokka, þá heima-
lau'ðu og þá sem luku læknisprófi
við háskólann í Kaupmannahöfn.
Háskólagengnir kandídatar voru
i þá tíð settir skör hærra hjá veit-
ingarvaldinu, og voru teknir fram
yfir Læknaskólamenn. Þetta mun
hafa valdið því, að heimalærðir
læknar fundu, að þeim var ætlaður
lægri sess, en þeim sem lærðu er-
lendis. Kandídatar frá Læknaskól-
anurn garnla gengu allir embættis-
Matthías Einarsson.
leiðina, og leituðu út um land, til
þess að gerast hjeraðslæknar.
Matthías Einarsson mxm vera
fyrsti Læknaskóla-maðurinn, sem
treystist að skapa sjer framtíð
sem praktiserandi læknir, án þess
að leita á náðir landsstjórnarinnar
um embætti, og afrjeð að setjast
að í Reykjavík, jafnhliða þaul-
reyndum háskólagengnum lækn-
um. Árið 1905 tók hann að stunda
ahnennar lækningar hjer í bænum.
Brátt hneigðist hugur hans mjög
að skurðlækningum. Þótti þó ekki
árennilegt ungum kandídat að
gefa sig að þeirri grein lækning-
anna, jafnframt próf. Guðmundi
Magnússyni, sem þá var í fullu
fjöri, og má telja frumherja og
höfund skurðlækninganna hjer á
landi. En unga lækninum sóttist
á, við hlið læriföður síns. Hann
færðist ekki frekar þá en nú meira
í fang, en gætni og ytri ástæður
sögðu til um. Á liðnum árum hef-
ir þessi fyrsti alíslenski skurð-
læknir sífelt sótt fivam. Matthías
•
Einarsson hefir á sjer einkenni
þeirra, sem skara fram úr, að því
leyti að hann hefir jafnt og þjett
bætt við þekkingu sína, en jafn-
framt aukið starfsvið sitt sem
skurðlæknir. Hann hefir gerst stór
kírurg með Evrópu-sniði. Með
framkomu M. Ein. er brotið blað í
sögu íslenskrar læknisfræði. Hann
hefir sýnt fyrstur manna, að lækn-
ir með lijerlendri læknismentun
getur staðið jafnfætis þeim, sem
taldir e.ru vel færir ytra.
Tuto, cito et jucunde — það
eru ekki smáræðis kröfur, sem
gerðar eru, og gera þarf til skurð-
lækna. Margir halda. að ætíð reyni
mest á við sjálfa skurðaðgerðina.
En því er ekki svo varið. Oft er
engu minni vandi að greina sjiik-
dóminn rjett,, velja rjetta aðgerð,
og gera hann á hentugum tíma.
Til þess þarf bæði meðfædda lækn-
isgáfu og víðtæka þekking. Þar
skilur oft „heppna“ og „óheppna“
skurðlækna. Matthías Einarsson
hefir auðvitað orðið flugfermur
við skurðaðgerðirnar'sjálfar. Skjót-
ráður er hann þá, en ekki fljót-
fær. En meðferð sjúklinganna eftir
á er honum engu síður hugleikin,
og veltur oft mikið á því.
Vinnuþrek Matthíasar Einars-
soixar er miklu meira, en gengur
og gerist. Aldrei heyrist hann
kvarta undan annríki, og æt.íð
hefir hann tíma til að ljá koll-
egum sínum hönd, ef með þarf.
Oft hefir „átta stunda vinnudag-
ur“ tvöfaldast hjá honum. Oskilj-
anlegt er hvernig honum vinnst
tími til að lesa, ekki einasta lækn-
isfræðirit, heldur og aðrar bókment-
ir, ekki síst það sem að list lýtur.
Glöggar ritgerðir um skurðlækn-
ingar eru nokkrar frá hans hendi,
í erlendum og innlendum lækna-
ritum.
Af ýmsum ástæðum er það lítt,
samrýmanlegt, að vera í senn af-
kastamikill skurðlæknir, og mærð-
armikill við sjúklingana. M. Ein.
er hraðamaður, og hefir því stund
um þótt spunastuttur og ómas-
gjarnari en fólk hefir gaman af.
En bak við starf hans liggur meiri
skapfesta og ríkari umönnun og
samúð, en venjulegt. er. Hann er
læknir í orðsins bestn merkin.g. —
Leitun miux á kjarkmeiri og bjart-
sýnni manni. „Það er von meðan
sjúklingurinn lifir“, segir í gömlu
læknamáltæki. M. Ein. sjer auðvit-
að oft, að vonlaust er um lífið. En
hann leggur aldrei árar í bát, og
missir ekki vonina um að verða
megi sjúklingnum að liði, þótt úr-
slitin sjeu auðsæ.
Læknarnir senda hlýjar óskir á
fimtugsafmælinu þessum vinfasta,
og með öllu yfirlætislausa kollega
sínum.
Tveir kollegar.
Landhelgislirol.
„Þór“ tekur tvo þýska
togara.
Vestm.eyjum í gau.
„Þór“ kom liingað í morgun
með tvo þýska togara, er hann
hafði tekið í landhelgi austur með
söndum. — Bæði erxx skipin frá
Geestemiinde og heitir annað
„Fritz Sehröder“, en hitt „Alex-
ander Rabe“. Hefir skipstjórinn
á „Fritz Schröder“ áður verið
sektaður fyrir landhelgisbrot, og
er nú kærður fyrir ólöglegan um-
búnað veiðarfæra. Skipstjórinn á
„Alexander Rabe“ er kærður fyr-
ir ólöglegar veiðar. Mál þeiira eru
undir rannsókn.
Sportlöí,
Bykfrakkar,
Sportbnxnr,
Beiðjakkar,
Manchettskyrtnr,
Hatta og Bindi,
fáið þjer ódýrnst
og best í
Branas-Verslnn.
mæœmœbmmimmmKmmammm
Nýhomið:
„Tale“
Smekkiásar,
Hnrðarskrár,
Hengilásar,
Kaupið ávalt það besta.
JÁRNVÖRUDEILD
JES ZINI SEN.
Hinir margeftirspurðu
reonfrokkar
eru komnir aftur í stóru úrvali.
Verðið mikið lækkað!
Gnðm. B. Vikar,
Laugaveg 21.
Sími 658.
MðtorbðtHr
9 tonn, með 22 hesta vjel, til sölu.
Bátnum fylgir mikið af veiðar-
færum m. m.
Góðir greiðsluskilmálar.
Ólafur Guðlaugsson,
Sími í Gerðum.
Nýkomiö:
mikið úrval af fallegum, ódýrum
6 og 12 manna kaffistellum, Blóm-
sturvasar af ýmsum gerðum,
Borðhnífarnir ryðfríu með brúna
hornskaftinu, með sama lága verð-
inu. Munið einnig eftir að kaupa 6
manna matarstell með bláa postn-
línsmunstrinu á aðeins 17 krónur
og m. fl. ódýrt.
Versl.Jóns B. Helgasonar
Laugaveg 12.
SoKkar
fyrir karla og konnr
stórt og ódýrt urval.