Morgunblaðið - 07.06.1929, Page 3
MORGUNBLAÐJÖ
»
Ogurleg eldgos.
Vesúvíus-gosið magnast ákaflega. — Prestar og alþýða
ganga með sálmasöng og bera dýrlingamyndir
gegn hraunflóðinu.
Tvö eldfjöll gjósa í Argentína.
jnorgiinbiiií)ií>
Stofnandi: Vilh. Finsen.
Utgefandi: Fjelag í Reykjavlk.
Ritstjdrar: J6n Iíjartansson.
Valtýr Stefánsson.
Auglýsingastjóri: E. Hafberg.
Skrlfstofa Austurstræti 8.
Simi nr. 600.
AuBlýsingaskrifstofa nr. 700.
Heimasímar:
Jðn Kjartansson nr. 742.
Valtýr Stefánsson nr. 1220.
E. Hafberg nr. 770.
.i ím 'íftaicjald *
Innanlands kr. 2.00 á mánubl.
ITta.nlands kr. 2.50 - ---- ■
t lnusasöiu 10 aura eintakib.
Eiieadar Kmfregnir.
Khöfn, PB. 6. júní.
MacDonald myndar stjóm.
Frá-London er símað: Ramsay
MacDonald hefir tekist á hendur
stjórnarmyndun. Stjórnin verður
sennilega fullskipuð á laug'ardag-
inn.
Úrslit. eru nú kunn í öllum kjör-
dæmum nema fjórum. Hafa verka-
menn til þessa fengið 288 þing-
sæti, íhaldsmenn 257, frjálslyndir
58, utan flokka 8.
PóstmannaverkfaU í Frakklandi.
Frá París er símað: Stjórnin í
Frakklandi hefir vikið frá störf-
um 190 póstmönnum um stundar-
sakir. Höfðu þeir gert verkfall.
Póstmenn hafa því gert sólar-
hrings verkfall í mótmælaskyni, og
leiddi það af sjer, að póstflutning-
ar stöðvuðust að mestu leyti. Vinn-
an er nú byrjuð aftur. Á ráð-
herrafundi var ákveðið, að gera
ræka suma upphafsmenn mót-
mælaverkfallsins úr þjónnstu póst-
stjórnarinnar, en aftur verður öðr-
um vikið frá aðeins um stundar-
sakir.
DalalSr Jðuasar.
Staðarfellsskóli vígður.
Samtímis því að „Þór“ litli hef-
ir verið að taka togara í'yrir sunn-
an land, hefir „Oðinn“ verið í
ferðaiagi miklu við 'Vesturland,
með dómsmálaráðherrann, Jónas
Jónsson og fjölskyldu, ásamt all-
miklum fjölda stórmenna. Var er-
indið í tveim liðum: Annarsvegar
að vígja Herdísarskólann á Stað-
.arfeUi og liinsvegar að halda póli-
•tískan fund í Búðardal.
Vígslan fór fram þi'iðjudagiirs.
4. júní. Var margt manna komið
Á'ar saman, sunnan úr Reykjavík,
úr Stykkishólmi og úr sýslunni.
Var .gengið til kirkju og fór at-
höfnin þar fram. Stefán skáld frá
Hvítadal las kvæði, er hann hafði
•gert, og var það síðan snngið. Þá
flutti dómsmálaráðherra ræðu og
lýsti Herdísarsltólann stofnaðan.
Sýslumaður Dalamanna, Þorsteinn
Þorsteinsson, þakkaði skólann fyr-
ir hönd hjeraðsins. Síðan töluðu:
Forstöðukona Staðarfellj&sk 61 ans,
frk. Sigurborg Kristjánsdót.tir, Sig
urður Eggerz, þingm. Dalamanna,
Sigurður búnaðarmálastjóri og
Páll Bjarnason sýslumaður, sein
mintist frændkonn sinnar, Herdís-
ar Benediktsen í fagurri ræðu. —
Loks las síra Ásgeir Ásgeirsson
Tivæði, er gert hafði Jóhannes úr
Kötlum skáld, sem var forfallað-
ur. Magnús Friðriksson, sem gefið
hefir Staðarfell og mikið fje að
•■auki til skólans, stjórnaði athöfn-
Khöfn, FB. 6. júní.
Vesúvíus-gosið ágerist.
Frá Neapel er símað: Vesúvíus-
gosin halda áfram og ágerast. Smá
bærinn Campitello hefir gereyði-
lagst, og aðrir smábæir eru í yfir-
vofandi hættu.
Frá Berlín er símað: Gosin úr
Vesúvíusi lialda áfram og eru hin
ægilegustu. Mikill hraunstraumur
veltur niður suðausturhlið íjalls-
ins og niður allan Inferno-dalinn
hlíða, milli, en skiftist því næst í
þrjár álmur. Efstu húsin í smá-
bæjunum Terzigno og Diszepza
liefir hraunflóðið tekið. Ibúarnir
hafa fhittst á hrott. Miklir skóg-
ar hafa eyðilagst. Aðalstraumur-
inn er 200 metra breiður. 500
metra hár eldstólpi stóð í gær upp
úr Vesúvíusi, en reykjarstrókur-
inn var tveggja kílómetra hár. —
inni, og mælti nokkur orð síðast.
Því næst var kvæði Jóhannesar
sungið.
Var þá gengið til veislu ágætr-
ar, húsakynni skoðuð og sýning
ýmsra muna frá skólanum, einkuin
vefnaðar. Við athöfn þessa afhenti
Mag-nús Friðriksson skólanum að
gjöf málverk allmikið af Staðar-
felli, sem gert hefir Magnús Jóns-
son prófessor.
Fundur í Búðardal.
Svo var lialdið inn í Búðardal,
því að daginn eftir hafði dóms-
málaráðherra boðað tii fundar. —
Hafði hann með sjer ritstjóra Tím-
ans, svo og Alþýðuflolcks-kappana
Jón Baldvinsson og Ingimar Jóns-
son. Loks kom til móts við þá fyr-
verandi þingmaður Dalamanna,
síra Jón Guðnason. Af hálfu Sjálf-
stæðismanna var í förinni Sigurð-
ur Eggerz, en Magnús Jónsson
prófessor, er var staddur í Stykk-
ishplmi, slóst í förina með. Fund-
urinn var allfjölmennur og var
lialdinn í sláturhúsi kauptúnsins.
Bagaði það helst, að veður var
bæði hvast og kalt, og vistin í
fundarhúsinn varð því mjög svo
ónotaleg. Við það varð fundurinn
st-yttri en' ella myndi hafa orðið.
Jónas ráðherra setti fundinn og
tilnefndi Bjarna bónda í Ásgarði
til fundarstjórnar. Var hann treg-
ur til í fyrstu, en stjórnaði svo
fundinum með mestu prýði.
Jónas talaði fyrstur og skamm-
aði „Morgunblaðsflokkinn“, sem
hann svo kallaði, fyrir nafnbreyt-
ingarnar og annað, og taldi Frain-
sókn hafa stýrt öllum málum Dala-
mönnum og öllum til heilla. Næst
talaði Sig. Eggerz. Benti hann m.
a. á, að Framsókn liefði setið á
svikráðum við Brattabrekkuveg-
inn. Annars talaði hann mest um
sjálfstæðismálið. Næst, flutti Jón
Baldvinsson ræðu um stefnu Al-
þýðuflokksins. Jónas t.ók svo til
máls aftur og var nú æði mikið
heitari út í Sig. Eggerz og „Morg-
unblaðsmenn“ og taldi alla sið-
spilling af þeim stafa, og þekkja
Áætlað er, að 8 miljón rúmmetra
hraun hafi myndast seinustu tvo
sólarhringana.
Prestarnir og íbúarnir á gos-
svæðinu ganga í skrúðgöngum,
berandi dýrðlingamyndir, með
sálmasöng og bænalestri, biðjandi
að gosinu megi af ljetta.
Frá Buenos Aires er símað: Eld-
fjallið Navado gýs. Nýtt eldfjall
liefir myndast í Mendozahjeraðinu
og eru mikil gos þar. íbúarnir
flýja. Hraunstraumar og land-
skjálftar hafa valdið afar miklu
tjóni og margir hafa farist.
(Mendoza er hjerað í Argentínu
í Suður-Ameríku, 56,502 fermílur
enskar, og íbúatala 277,535. Aðal-
atvinnuvegir í hjeráðinu eru kvik-
fjárrækt, hveitirækt og vínafram-
leiðsla).
allir þá ræðu, sem einhvern tíma
hafa heyrt Jónas tala. Þá talaði
Magnús Jónsson. Rakti hann nokk
uð sögu og tildrög íslensku stjóm-
málaflokkanna og sýndi fram á, að
nú stæðu í raun rjettri tvær stefn-
ur hvor gegn annari: Jafnaðar-
menn og Sjálfstæðismemi. Pram-
sólm kæmist ekki fyrir milli þeirra
flokka, en hefði nú um tíma verið
í vasa sósíalista. Mundi af því
leiða, að bændur vörpuðu nokkr-
um hluta flokksins alveg til só-
síalista, en tækju sjer svo fasta
stöðu með sjálfstæðisflokknum. —
Næstur talaði Ingimar Jónsson,
um jafnaðarstefnuna. Tóku nú
umræður að harðna, en ræður voru
styttar meir og meir. Töluðu enn:
Jónas, Sig. Eggerz, Magnús Jóns-
son, Guðmundur Benediktsson,
Jónas Þorbergsson, síra Jón Guðna
son, Jón Baldvinsson. Þegar fundi
var slitið, hað Magnús Jónsson
fundarmenn syngja að lokum „Ó
fögur er vor fósturjörð“, og tókn
fundarmenn vel undir það.
Fundarmenn virtust vel ánægð-
ir með fundinn, en Ijetu lítt í ljós
með hverjnm þeir voru helst. En
ekki er efi á því, að fylgi Sigurð-
ar Eggerz er mjög sterkt í Dölum,
>og hefir ekki minkað við fund
þennan. Hann er nú að halda leið-
arþing með kjósendum sínum.
Norræna söngmótið.
Flugferðir Luft-Hansa.
Nýlega hefir Jiýska ríltið veitt
flugfjelaginu Luft-Hansa 14 milj.
marka styrk til þess að halda uppi
flugferðum sínum. Hefir fjelagið
því' afráðið að halda áfram um
þriggja ára skeið flugferðunum
milli Líibeck—Kaupmannahafnar
—Gautaborgar og Ósló. Hófust
flugferðir þessar að nýju hinn 21.
maí og standa yfir í 3 mánuði í
sumar, en næsta sumar eiga þær
að standa yfir í 4 mánuði og árið
1931 í 6 mánuði. Flugvjelarnar,
sem þarna verða notaðar, eru all-
ar eins, og hefir hver rúm fyrir 7
farþega.
Horræna söngmötið.
Nánari fregnir
frá sendiherra Dana.
Norræna söngmótið opnaði ríkis-
erfinginn, sem var heiðursfoi'seti
þess, í viðurvist konungsfjölskyld-
unnar, sendiherra íslands og Jóns
Krabbe fulltrúa og kvenna þeirra.
Tókst söngmótið afbrigða vel. Eft-
ir sönginn á laugardaginn í kon-
unglega leikhúsinu hæla blöðin
söngstjórn Sigfúsar Einarssonar
og hvað íslenski söngflokkurinn
syngi hreint og með nákvæmni.
Fegurst þótti meðferðin á þjóðlög-
unum, sem Sigfús hefir raddsett.
„Hinn litli og ágæti ísíenski söng-
flokkur hlaut þann vanda að
syngja fyrstur á eftir 1000 radda
flokknum, en söngur hans var fag-
ur, sjerstaklega vegna þess hvað
hann var innilegur.“ Söng allra
fimm þjóða var tekið með dynj-
andi fögnuði. Söngstjórarnir fimm
voru kallaðir fram áður en tjaldið
fjell. Að söngnum loknum gekk
allur KÖngvaraskarinn, 1000 manns,
syngjandi eftir götunum og til ráð-
hússins, en þar hafði bæjarstjóm
húið þeim veislu, og í veislunni
þakkaði ríkiserfinginn fyrir hönd
gestanna.
Á söngskemtuninni á sunnudag-
inn var hið mikla samkomuhús
(Forum) fullskipað áheyrendum.
Islenski söngflokkurinn byrjaði
með „Fjalládrotningunni“ eftir
Svhj. Sveinbjörnsson, og sýndi þar
enn, að hann er ágætur, sopran-
raddirnar aðdáunarverðar >o>g sam-
hljómur nákvæmur. Var bæði
flokknum og söngstjóranum fagn-
að hjartanlega. Lokaþáttnrinn,
hinn mikli söngur „Sangen i Nor-
den“, tókst einnig afbrigða vel.
Blöðin segja, að Sigfús hafi náð
hreinum og föstum tökum á sínum
hlnta. Söngvarar og söngstjórar
voru kallaðir fram óteljandi sinn-
um. Að lokuin bað Axel Juel, sá
sem orkti kvæðið, Norðurlönd að
lifa lengi, en hinn^Einski pr'ófessor
Klemetti hað gestina að hrópa
liúrra fyrir Danmörk.
BagfióM.
I.O. O.F. 1 = 111678V2. —
Veðrið (í gærkv. kl. 5): Grunn
lægð yfir Faxafl. og út af Reykja-
nesi veldur hægri S-átt á Sv-landi
en á Breiðafirði og öllu N- og A-
landi er NA-átt. Smáskúrir á V-
landi, en annars úrkomulaust. 4
st. hiti í útsveitum á N-landi en
7—-8 st. hiti sunnan Iands.
Lægð frá Bretlandseyjum norð-
ur með vesturströnd Noregs veld-
ur allhvassri N-átt fyrir austan
land, en hægri S-átt á Norðursjón-
um og í S-Skandinavíu.
Veður er nú gott í S-Sviþjóð og
alt til Færeyja, en á milli Fær-
evja og íslands mun vera all-
hvast á NA. Bjart og gott veður
við S-Grænland og í Labrador.
Veðurútlit í dag: Sennilega NA-
kaldi og úrkomulaust.
Goðafoss fór hjeðan í gærkvöldi
kl. 8 til útlanda. Farþegar voru
þessir: Karólína Lárusdóttir, Páll
Jónsson, frú Kummer, Laufey
Valdimarsdóttir, Bríet Bjarnhjeð-
insdóttir, hr. Lindemann, Matthild
ur Gottsveinsdóttir, Katrín Þórar-
insdóttir, Ragnh. Þórarinsdóttir,
Anna Brynjólfsdóttir, Elísabet
Arnórsdóttir, mr. Hallivell, Jóh.
Axel Jóhannsson, Geir Ásgeirsson.
Fánadagurinn er 12. júní, en
hans verður minst með skemtun
að Álafossi á sunnudaginn, og
liefst hún kl. 3 síðd. Verður þar
margt til skemtunar, t. d. flytur
dr. Guðm. Finnbogason erindi um
fánann. Þá verðnr sýnd leikfimi,
börn dansa vikivaka og svo ltoma
sunddýfingar af liápalli — þar á
meðal stökka t.veir íslands bestu
menn, „litli og stóri“, í vatnið.
Á eftir verða sundknattleikar. —
Síðan kemur stór hlutavelta, kvik-
myndasýning og dans.
Magnús Ágústsson hefir verið
skipaður hjeraðslæknir í Borgar-
fjarðarhjeraði frá 1. júní að télja.
Átta skólastofnr eiga að verða
lilbúnar í nýja barnaskólanum á
næsta hausti.
Kristinn Sigurðsson hefir tekið
að sjer múrsljettun utan húss og
innan og frágang á þaki barna-
skólans nýja fyrir kr. 144,500. —
Aðrir gerðu ekki tilboð.
Arnfríður Stefánsdóttir liefir
fengið leyfi til þess að hafa veit-
ingar í húsinu nr. 2 við Laufásveg.
Mæling á ræktanlegu landi bæj-
arins fer fram í sumar, svo hægt
verði að koma föstu heildarskipu-
lagi á skifting og ræktun lands-
ins.
TJm haiklóðirnar urðu langar
umræður í bæjarstjórninni í gær,
út, af byggingarmáli einu hjer við
Laugaveginn. Skipulagsnefnd hef-
ir sem kunnugt er bannað bygg-
ingar á flestum haklóðum. Kemur
það við og við fram í bæjarstjórn,
og síðast. í gær, að bæjarfulltrn-
arnir liafa ekki gert sjer alveg
fullkomna grein fyrir ákvæðum
skipulagsnefndar og tilhögun
skipulagsuppdráttar. Bæjarbúar
hafa sennilega ekki heldur gert
sjer fulla grein fyrir því, að þeir,
sem verða fyrir tjóni vegna hins
nýja skipulags geta lieimtað skaða
bætur. En þegar alt þetta skýrist
betur fyrir mönnum, eru nokkrar
líkur til þess, að það dragist, að
full kyrð komist á skipulagsmál
bæjarins.
Skrifstofnhúsháknið. Byggingar
nefnd samþykti á síðasta fundi
leyfi handa ríkisstjórn til að reisa
á Arnarhólstúni, norðanvert við
Landsbókasafnið, þrílyfta skrif-
stofubyggingu, sem er 428 ferm. að
grunnfleti. Stjómina vantar ekbi
fje í það, þó henni fyndist þörf á
að sníða af framlögum flestum til
aðalþjóðveganna.
Byggingaleyfi í Aldamótagarð-
inum. Þar sem menn hafa gróður-
reiti í garðsvæðum í úthverfum
erl. borga, er það siður, að reist
eru smáhýsi eða skúrar til íveru
dagstundir þær, sem fólk er í görð-
um þessnm við vinnu, eða sjer til
skemtunar. I Aldamótagarðinum
hafa engin slík hús verið reist.. Nú
hefir bygginganefnd leyft fyrir
sitt, leyti, að menn mættn reisa þar
smáhýsi lagleg útlits, ef leitað er
samþykkis nefndarinnar í hvert.
skifti. Ekki má hafa þar eldfæri,
og um íbúð er ekki að ræða, þar
eð húsin mega ekki hafa stærri
grunnflöt en 5 fermetr?..
Kvenleikfimisflokkurinn frá Ak-
ureyri sýndi listir sínar í gær-
kvöldi fyrir troðfullu húsi. Áhorf-
endur skemtu sjer hið besta, enda
eru æfingarnar hinar skemt.ileg-
ustu og stúlkurnar fimar með af-
brigðum og samtaka. Hjer var og
um að ræða nýjung, sem íslenskir
fimleikakennarar hafa enn ekki