Morgunblaðið - 03.07.1929, Page 2
2
MOKGUNBLAÐIÐ
]. Steffensens Fabrfkker, Haupm.hofn.
Pylsur, soðnar og reyktar.
do. niðursoðnar.
Flesk, saltað og reykt. Rúlluskinkur.
Lifrarkæfa í dósum. Grísahlaup, uxatungur o. fl.
Alt viðurkendar fyrsta flokks vörur. Afgreiðsla beint
til kaupenda fyrir milligöngu okkar.
ornll
ltreina og ábreina k. npir
Heildverslnn
fiarð ars Bislasonar.
Footwear Company.
Egta strisraskór bæði
bfúnir og hvítir með
egta hrágúmmísólum.
Herra tær'ir 40—45.
Drengj-istærðir 35—39
Kvenstærðir 35-42.
Barnastærð r 29—35.
Ennfremur kven- og
barna ristarbandaskó og reimaðir skór með gúmmísólum.
Aðalumboðsmaður á íslandi Birgðir í Kaupmannahöfn hjá
Ó. 8enjeminsson Bernhard Kjœr
Pósthússtræti 7. - Reykjavík. Oothersgade e49. Möntergaarcien.
Símnefni Holmstrom.
MORGENAVISEN
T* TTi TT VT mHiiniiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiint
^ ^ 1111111111111111111111111111111111111111111111111
er et af Norges mest læste Blade og er serlig '
Bergen og paa den norske Vestkyst udbredt
alle Samfundslag.
MORGENAVISEN er derfor det bedste Annonceblad for alle son
önsker Porbindelse med den norske Fiskeribe
drifts Firmaer og det övrige norske Forretnings
liv samt med Norge overhovedet.
MORGENAVISEN bör derfor læses af alle paa Island.
Annoncer til Morgenavisen modtages í Morgunbladid’s Expedition
Eesta saltkjðtið,
sem til bæjarins flytst, er frá
Borðeyri. Það kostar 50 aura y2
kg. og mikið ódýrara í stærri
kaupum. Reynið og sannfærist. —
Sent um allan bæinn.
Verslunm Pjörniun
Sími 1091. Bergstaðastræfi <•'
Karpol
er bílaáburður, sem heldur bílun-
um gljáandi, er ljettur í notkun
■og hreinsar bílinn tmdur vel.
Reynið Karpol.
Fæst í Von.
Hveiti
í 10 Ibs. ljereftspokum og
heilum sekkjum.
■WSII. 1 Mll u.
Verslíð vli Hkar.
— Vörur við vægu verði. —
Flœðigras í Englandi.
Fyrir skömmu hefir Baldur
Sveinsson ritað vtm flæðigras þetta
(Spartina Towsendii) í Vísi, og
getið þess, hve gagnlegt það hefir
reynst til að græða upp flæðileir-
ur og til varna fyrir ágangi sjáv-
ar á Austur-Englandi og víðar.
Var greinin þörf bending til
]>eirra, sem við ræktunarmál fást
hjer á landi, um það að afla sjer
upplýsinga um grastegund þessa
og gera tilraun nieð hana hjer á
landi. Að vísu lifir tegund þessi
eigi enn sem komið er norðar en
við England, þar sem sjór er tals-
vert hlýrri en hjer við Suður- og
Vesturland. En ]>ar eð hún breið-
ist mjög iit á kynlausan hátt með
jarðsprotum, væri útbreiðsla lienn-
ar hjer eigi Iiáð því, að fræin nái
þroska árlega.
Eins og Baldur bendir á í Vísi,
eru í ýmsum fjörðum hjer á landi
allvíðáttumiklar flæðileirur, er sjór
fellur yfir. Er leirinn oft blandað-
ur hálfrotnuðum jurtaleifum og
því frjóefnaríkur. Sem dæmi má
nefna leirurnar við Hvítárósa í
Borgarfirði, við Hvammsfjarðar-
botn, í Gilsfjarðarbotni og inst. í
Eyjafirði.
Landmegin við þessar leirur
vaxa ýmsar landjurtir, sem ]>ola
]>að, að sjór skolist yfir þær að
öðru hvoru (t. d. kornpuntur,
strandsandlaukur o. fl.), þar fyr-
ir framan eru leirurnar gróður-
lausar, getur eigi einu sinni þang
fengið þar festu, því að það þarf
steina eða klappir til að’ festa sig
á. Þegar kemur niður undir lág-
fjörumark tekur við marhálmur,
sem vex 2—3 metra niður fyrir
lágfjörumark. En hans gætir lítið
nema við Suður- og Vesturland.
Leirubeltið milli landgróðursins og
marhálmsins er því ógróið, leirinn
festulaus og skolast. aftur og fram
með öldunum. Fengist einhver
gróður til að festa rætur á þessu
ógróna leirubelti, mundi það geta
orðið til að binda leirinn og
mynda undirstöðu að landauka. f
Englandi hefir engin jurt reynst
eins vel fallin til vaxtar á þessu
belti eins og flæðigrasið, og auk
þess hefir það reynst vel til fóð-
urs handa fjenaði.
Flæðigrasið er sjerstaklega vel
fallið til að standa af sjer öldu-
rótið og koma í veg fyrir að sjór-
inn grafi leirinn undan landgróðr-
inum, er vegs niður að leirunum.
Það hefir tvennskonar rætur. Að-
alrótin er sterk og gengur beint
niður og djúpt ofan í leirinn, og
er til þess að festa jurtina sem
traustast í leirnum. Auk þess hefir
hver jurt smágerðar, marggreind-
ar rætur, er kvíslast ofarlega í
leirnum, og eru sjerstaklega til
þess að afla næringar. Jarðstöngl-
arnir eru skriðulir og fljettast eins
og net í leimum frá einni jurt til
annarar, og bæði þjetta hann og
binda.
Það eru til allmaígar aðrar teg-
undir af flæðigrasi, sem ástæða
væri til að reyna hjer á landi. Er
aðalheimkynni þeirra í N.-Ame-
ríku. f Nýja-Englandi vex t. d. ein
tegund (spartina alterniflóra eða
glabra) á sjávarieirum, er verður
1—2 m. á hæð. Sprettur hún frá
flæðarmörkum niður að hálffölln-
um sjó. Onnur flæðigrastegund
(spartina patens) vex þa.r um eða
ofanvert við háfjörumark, og er
mjög notuð til heyskapar. — Við
strendur Nýja-Englands er sjór-
inn tiltölulega kaldur og lifa þar
ýmsar sæskeljategundir, er eigi lifa
sunnar hjer við land en í Faxa-
flóa. Einnig eru þar til tegundir
af flæðigrasi, er spretta í ósöltu
vatni.
Fyrir átta árum var stungið upp
á því að sett væri á fót sjerstök
stofnun, er ynni að því að rann-
saka flæðigrasið á Englandi, bæði
vöxt þess, útbreiðslu, fræþroska
og alt annað í lífsháttum þess, er
mönnum gæti orðið til leiðbein-
ingar viðvíkjandi ræktun þess. Er
nú verið að koma slíkri rannsókn-
arstöð á fót á Austur-Englandi.
Þannig fara ménningarþjóðirnar
að, þegar um er að ræða jurtir,
sem líklegar þykja til nytja.
Æskilegt væri að Búnaðarfjelag
íslands gæfi flæðigrastegundunum
gaúm og fengi sjer hið bráðasta
fræ þess, — eða öllu heldur jarð-
stöngla tii górðursetningar á hent-
ugum stöðum hjer á landi. Hent-
ugt myndi vera að gera fyrstu til-
raunirnar á leirunum hjá Ilvann-
eyri í Borgarfirði og inst í Eyja-
firði. — Auðgert ætti að vera að
fá fljótlega jarðstöngla til tilraun-
anna, þar eð Baldur Sveinsson
befir aflað sjer upplýsinga um
það, hvaðan auðveldast sje að fá
þá og með hvaða verði.
Rvík, 8.-6. 1929.
Guðm. G. Bárðarson.
Kappreiðar
í Miðdölum.
Sunnudaginn 23. júní efndi
Hestamannafjelagið „GIaður“ til
kappreiða á skeiðvelli sínum við
Nesodda í Miðdölum. — Um 300
manns var þar saman komið, og
má það kallast mikil aðsókn, eftir
því sem gerist í sveitum, enda er
áhugi manna í Dölum mjög mikill
fyrir hestum og hestaíþróttum.
Tólf hestar voru reyndir, 4 fol-
ar og 8 fullorðnir stökkhestar, en
enginn kom þar skeiðhestur fram.
TJrslit kappreiðanna urðu þann-
ig: —
Folahlaup (250 mtr.): 1. verðl.
20 kr. „Blakkur“, eigandi Bergjón
Kristjánsson, Snóksdal, 20,2 sek.;
2. verðl., 10 kr., „Köttur“, eig. Ág.
Sigurjónsson, Kirkjnskógi, 20.5
•sek.; 3. verðl., 5 kr., „Snekkja“,
eig. Ólafur Finnbogason, Sauða-
felli, 20.6 sek.
Stökkhestar (300 mtr.): 1. verðl.
50 kr„ „Hrani“, eig. Jón Klemens-
son, Neðra Hundadal, 23 sek.,; 2.
verðl., 30 kr„ „Sokki“, eig. Ólaf-
ur Finnbogason, Sauðafelli, 23.2
sck.; 3. verðl., 15 kr„ „Mósa“, eig.
Guðlaugur Magnússon, KolstÖðum,
23.4 sek.
Völlurinn var ekki sem bestur
og má því kalla góðan þann tíma,
er hestarnir háfa náð.
Innflytjendalög U. S, A.
Frá Washington er símað: Nýju
innflytjendalögin, sein lækka inn-
flytjendatölu Norðurlanda og
Þýskalands, en hækka tölu Bret-
lands, gengu í gildi 1. júlí.
Hðtur,
Plolur.
Allar uýjnngar frá
Kanpm.höfn, Berlín,
London og Parfs,
Hljóðfærahnsið,
Austurstræti 1, sími 656.
Okkar
marg eitirspnrða og
velþekta
frnBska
alklæði
er komið aftnr ásamt
öllu tilleggi til fata.
il s í 6uðfllaugssan s Eo.
Austurstræti 1.
Hvkomið:
Byrons skyrtur, hvítar
Kahakiskyrtur,
brúnar og munstraðar.
Enskar húfur í úrvali,
Drengjahúfur,
flauel í tveim litum.
Axlabönd,
Sokkabönd,
Ermabönd, sænsk teygja
Taubuxur,
snotrar og ódýrar,
Regnfrakkar,
í mörgum litum,
Regnkápur, verð 45,50
Sportbuxur,
Sportsokkar,
Skáta-belti,
Skáta-sokkar,
Skáta-húfur,
Oxfordbuxur
og belti tilheyrandi,
Ferðajakkar,
mjög góð t.egund.
Manchetskyrtur,
ásaint einum og tveimur
flibbum, í mörgum litum,
Flibbar, allar tegundir.
Fataefni,
í stóru úrvali nýltomin,
ásamt öllu til fata.
ALT Á SAMA STAÐ!
Guðm. B. Vikar,
Laugaveg 21. Sími 658.
■«-»' í r.'igavegi 12