Morgunblaðið - 20.07.1929, Page 2
2
MOKGUNBLAÐIÐ
)) Ngnm & OítsEiNi M
Höfum til:
Ullarballa,
Þakjárn 24 og 26.
Hiúkrunarkonustarfið
•við barnaskóla Eeykjavíkur er laust næsta vetur. Umsóknir send-
%
ist borgarstjóra fyrir 31. jólí næstkomandi.
Fyrir skólanefnd Reykjavíkur.
Borgarstjórinn í Reykjavík, 18. júlí 1929.
K. Z i m s e n.
Rossnm kardínáli
á leið til íslands.
Á miðvikudaginn lagði van Ros-
sum kardináli á stað frá Kaupm,-
höfn á leið til íslands. Hafði hann
dvalið einn sólarhring í Kaupm,-
höfn, en ekkert. látið á sjer bera
þar. Hann er væntanlegur hingað
á sunnudaginn og á þriðjudag
verður kirkjan í Landakoti vígð.
Mikiil viðbúnaður er í Landa-
koti undir þá athöfn. Girðíngar
nieðfram Ti'mgötu hafa verið tekn-
ar burtu og verður fólki heimilt
að vera inni á túninu umhverfis
kirkjuna á meðan á vígsluathöfn-
inni stendur. Hringinn í kring um
túnið hafa verið settár niður hvit-
ar fánastangir með stuttu millibili,
en á brautinni, gegnt dyrum kirkj-
nnnar, er reist heiðurshlið, og á
því eru skjaldarmerki páfa og
ltardinálans, en'á turni kirkjunn-
ar eru fánastangir margar.
Röðrarháturinn
sem ætlaði frá Færeyjum til
Noregs er kominn fram.
Eins og kunnugt er, fór hinn
kunni ræðari Pless Schmidt laug-
ardaginn 8. júlí einn á báti frá
Færeyjum og ætlaði til Noregs.
Bátinn hafði hann sjálfur smíðað
og fullyrti, að hann væri þannig
úr garði ger, að hann gæti ekki
sokkið.
Lengi spurðist ekki til bátsins frá
því hann lagði á stað og vegna
þess hvernig veðUr hefir verið,
voru menn orðnir hræddir um
hann. Danski veðurfræðingurinn
Speerschneider kapteinn ljet það
álit sitt í ljós í fyrradag, að bátinn
bafi að minsta kosti hrakið af
rjettri leið norður á bóginn og
muni hann alls ekki ná landi sunn-
ar en hjá Lófóten.
í gær kom blaðaskeýti frá Nor-
egi um ]>að, að á sunnudaginn hafi
norskt fiskiskip, „Slogen“ frá Ála-
sundi, hitt Pless Schmidt 130 sjó-
mílur vestur af Álasundi. Leið
honum þá ágætlega, en skipið tók
hann um borð. (Sendiherrafrjett).
Silávðiðin.
Allir togarar „Kára“-fjelags-
ins i Viðey eru nýkomnir til
Hesteyrar með síldarafla, Ari í
fyrrinótt með 1100 mál, Þorgeir
Skorargeir L-fyrrakvöld með 900
mál og Kári Sölmundarson í gær
með 900 mál. Höfðu þá verið lögð
upp á Hesteyri upp undir 20 þús.
mál síldai’. Ennfremur komu til
Hesteyrar í gær: Hávarður ísfirð-
ingur 1000 mál, Hafsteinn 1100
mál, Egill Skailagrímsson 1200—
1300 mál, og í gærkvöldi voru á
leið þangað: Skallagrímur, Þór-
ólfur og Snorri goði, allir með
1600—1700 mál, og Ver með 1000
mál. Arinbjörn hersir hafði feng-
ið 1000 mál í gærkvöldi. Allir
þessir togarar voru að veiðum á
Húnaflóa.
Leitin að „Köbenhavn“.
Austur-Asíufjelagið tilkynnir, að
skipið ,,Mexico“ hafi rannsakað
alla ströndina frá Höfðanýlendu
til Baniia dos- Tigros á 16° s.
breiddar, en árangurslaust. Leit-
inni er haldið áfram suður og
austur fyrir Góðrarvonarhöfða.
lHinuingarorð.
Hinn 26. júní, síðastliðinn and-
aðist merkiskonan Helga Vigfús-
dóttir að heimili sínu, Vatnsnesi
við Keflavílc. Hún var fædd að
Kjartansstöðum í Skagafirði hinn
13. september 1846 og var því
tæplega 83 ára gömul. Árið 1874
fluttist hún suður í Leiru og gift-
ist þar 7. júní 1878 Guðna Jóns-
syni, og bjuggu þau nokkur ár á
tyeim stöðum þar, uns þau árið
1891 fluttu að Vatnsnesi og bjsjggu
þar síðan, hinu mesta sæmdarbúi,
þar til hún misti mann sinn seint
á árinu 1922.
Þau eignuðust 3 börn, hvar af
einn sonur lifir, er tók við biís-
forráðum eftir föður sinn látinn
iog hjá honum og lconu h^ns naut
hún hinnar bestu umönnunar og
hjúkrunar, svo að orð var á gert,
enda var hún þess þurfandi, þvi
að heilsa hennar og sjón var mjög
að þrotum komin hin síðustu ár.
Helga sál. var hin mesta sæmd-
arkona, skynsöm og dagfarsprúð
og bar af mörguni konum, því að
útlit hennar og dagleg framkoma
var þannig, að vel hefði mátt
höfðingskonu sæma, enda mun
hún hafa átt mestan þátt í að
gera þann garð frægan með reglu-
semi, siðprýði og góðri fyrirmynd
við hærri og lægri og er hennar
því mjög saknað af vandafólki og
öðrum sem höfðu náin kynni af
henni.
Kunnugur.
Spámaður ( Berlln.
I fíerlín er „spámaður“ nokkur
og ,,trúboði“, sem nefnist Weis-
senberg, og hefir þar mörg þús-
und nianna söfnuð. Hann er lítill
maðui', feitur og ógeðslegur, en er
gæddur þeim hæfileikum, að geta
safnað um sig auðtrúa sálum, og
á söfnuður haiis ekki færri en 3
kirkjur í Berlín. Trúarbrögð þessa
safnaðar er merkilegt samsull af
spíritisma og andasæringum. Sjálf-
ur er Weíssenberg höfuðpaurinn
og þykist vera annar Kristur og'
áhangendur hans fullyrða, að
hann hafi gert ótal kraftaverk,
þar á meðal valiið menn upp frá
dauðum. Eitt af boðorðum haiís
er það, að enginn saftíaðarmaður
má leita læknis, en ef þeir verða
veikir, eiga þeir að biðjast fyrir
þangað til þeim batnar. En vilji
batinn ekki kðma með því móti,
leggur Weissenberg hendur yfir
sjúklingana.
Þetta bann að leita læknis hef-
ir auðvitað oft haft alvarlegar af-
leiðingar, en svo hafa safnaðar-
menn Weissenbergs verið orðvarir
þar um, að yfirvöldin hafa ekki
getað sannað neitt á hann. En
hjerna úm daginn náðu þeir þó í
sannanir. Einn úr söfnuði Weis-
senbergs, lyfsalasveinn nokkur,
fjekk kýli. Weissermann ráðlagði
honum að leggja ost við það og
biðjast svo fyrir. Afleiðingin' varð
sú, að maðurinn dó úr blóðeitrun.
Og þá var Weissenberg kærði^r
fyrir að vera valdur að dauða
hans.
Síðan hefir ýmislegt komið í
Ijós, er sýnir, hvernig starfsemi
Weissenbergs hefir verið. Það er
talið, að hann hafi haft 100.000
marka tekjur á ári fyrir að gefa
Allskonar
Vald. Poulsen
Simi 24. Klappapstio 2B*
m iiwaiinmuaiiiin ii—mi i im n n n inriítiT
| Til Víkur,
| ferðir alla þriðjudaga og
föstudaga.
Austur í Fljótshlíð
I alla daga kl. 10 f. hád.
Bifreiðastöð Reykfavikur.
1 Afgreiðslusímar 715 og 716.
■i .
út safnaðarblað og smárit, og
hirða safnaðargjöld. Blað þetta er
hlægilega heimskulega ritað. Und-
ir aðalgreinirnar eru ýmist skrif-
aðir erkiengillinn Gabríel, eða Ra-
fael, og meðritstjórar eru taldir
Bismarck, Friðrili mikli, Nietzsche,
Napoleon mikli og ýms önnur frain
liðin stórmenni. Nýlega spáði blað-
ið því, að England mundi farast
og 16. júní tilkynti það lesöndum
sínum, að nú væri spádómurinn
kominn fram. „Nú er England
sokkið í sæ“, stóð þar með feitu
letri. í seinasta blaði eru ýmsir
spádómar, svo sem það, að innan
skamms muni pest drepa helming-
inn af öllum íbúum Rússlands,
fellibyljir muni leggja Bandaríkin
i auðn, og flóðalda muni fara yfir
gjörvalla Danmörk.
Gengið.
Sala.
Sterling 22.15
Dollar 4 568/4
Rmark 108.89
Fr. frc. 18.01
Belg. 63.57
Sv. frc. 87 97
L'ra 24.03
Peseta 66.92
Gyllini 183.55
Tékk.sl kr. 13.57
S. kr. 122.49
N. kr. 121.76
D. kr. 121.67
Smælki.
Ameríkskur prestur nokkur hef-
ir tekið upp þann sið, að láta taka
talandi kvikmynd af hverri þeirri
hjónavígslu sepi hann framkvæmir.
Ætlar hann síðan, ef hjónin æskja
skilnaðar, að sýna þeim talmynd-
ina — láta þau rifja upp liina
tíátíðlegu stund, er þau gáfu livert
öðru hönd og hjarta og hjetu
ævarandi ást og trygð í blíðu og
stríðu. Ætlar hann, að með því
moti muni hægt að koma í veg
fyrir að hjónaskilnaðir fari svo
mjög '< vöxt, sem nú hefir verið á
seinni árum.
— Mamma, skapaði guð líka
ljón og tígrisdýr?
— Já barnið mitt.
— Að hugsa sjer að hann skyldi
þora það.
sumarkiólaútsðlunni
iunan fárra daga.
„KIN0N“ Anstnrstr. 12.
Opið laugardag 1—4.
Nýkomið:
Undirkjólar
Skyrtnr
Bnsnr
Náttkjólar
afar fallegt
og smekklegt.
Vörubúsið
Matsvelnn.
Vanan aðstoðar-matsvein
vantar á varðskipið „Ægi“
nú þegar. Upplýsingar um
borð hjá brytanum.
Til sunnudagsins:
Nýslátrað dilkakjöt,
Nýtt nautakjöt,
Nýr lax.
Kjðtbúðin, Týs ötu 3.
Sími 1685.
Barnlaus hjón
óslca eftir íbúð, 2 til 3 herbergja
og eldhúsi, frá 15. september eða
1 október næstkomandi.
Tilboð með leiguliæð merkt ,Góð
íbúð‘,Ieggist inn á A. S. í. fyrir
lok þessa mánaðar.
Bílaeigendur.
Hvergi i'áið ]iið eins traustar
og ódýrar yfirbyggingar og við-
gerðii’ á bílana ykkar, eins og' á
Vesturgötu 16. Húsin altaf tilbú-
in, svo það tekur mjog stuttan
tíma að setja þau á. Gjörið svo vel
og talið við okkur áður en þið
festið kaup annarsstaðar.
m dllkakiOt
Verðiðllæbkað.
KLEIN,
Baldnrsgötu 14. Sími 73.