Morgunblaðið - 19.09.1929, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 19.09.1929, Blaðsíða 4
é m O R rj v * f» í ýí Ljósmyndastofa mín er flutt í Lækjargötu 2 (áður Mensa). Opin virka daga 10—12 og 1—7. Helgi- daga 1—4. Sími 1980. Tek myndir á öðrum tímum eftir samkomulagi. Sigurður Guðmundsson. Vinna. Vjelstjóra vantar. Talið við Jón í fflíð frá kl. 1—2. Hotel Hekla X Hljóðfæraviðgerðir. — Stemmi Qfgel og Piano með mjög fallegum hljómblæ. Hvergi eins vel gert. Hljóðfærin sanna það best sjálf. Njarðargötu 35. V. B. Mýrdal. Húsnæði. 1 skrifstofuherbergi í miðbæn- um til leigu, mætti einnig nota til íbúðar fyrir einhleypan karl- mann. A. S. 1. vísar á. Minst 3 herbergi og eldhús ósk- ast leigð 1. okt. eða strax. Fyrir- framgreiðsla. Tvent fullorðið í heimili. Upplýsingar I sima 383. S. lóhannesdóttir, AustuPslr'Atl 14. Skólaföt Matrósaföt Matrósafrakkar Unglingaföt Unglingafrakkar mikið og gott úrval í Sollíubúð. 100 lunnur frosin beitnsild tU sðln. Upplýsingar t síma 678. Börnin eru misjafnlega gerð og misjafnlega uppalin. Sum þeirra leggja í vana sinn að berja önnnr böm og þau gætu hægiega fundið upp á því að berja kennara sína, etH8 og viðgengst sumstaðar í heimahúsum, að bömin berjú for- eldra sína. Sjá þá allir í hvem voða stofnað er, bæði námi og sið- gæði barna. Eigi mundi stoða neitt að bjóða hina hægri kinn, ef sleg- ið væri á þá vinstri, því að óvitar eiga í hlut. Er nú mikið verkefni hjer fyrir skólanefndir og fræðslu- málastjóra, að ráða fram úr hvað gera skal við vandræðabömin, sem ekki eiga heima í skólum innan um önnur siðsöm börn, og eigi væri keldur úr vegi að kennarar gerðu sjer og öðrum ljóst, hver er þeirra rjettur og vemd. Sumum virðist hvort tveggja harðla lítið. Vísast ðr að skólastjórinn á Ak- urej'ri beri eigi sitt barr eftir það sem orðið er, þó eigi verði spáð um það á meðan sjálfir Akureyr- arbúar hafa eigi skilist við hann. Alt er þetta mikill sársauki, en út af þessu getur þó komið annað og meira en orðið er. Frumvarpið um afnám allra líkamlegra refs- inga hlýtur að koma fyrir næstu þing og að síðustu verður það að lögum. Ásgeir Magnússon. Dagbók. Veðrið (í gær kl. 5): Lægð yfir miðju Islandi á hreyfingu austur eftir. Vindur er orðinn norðlægur um alt N-land, en aðeins gola eða kaldi. Hitinn víðast 3 stig ogsenni- lega krapajel. Sunnan lands er ennþá V-átt og 6—7 stiga hiti, en sennilega verður komin N-átt um alt land á morgun. Veðurútlit í dag: N-kaldi. Senni- lega þurt veður, en fremur kalt. Gullfoss fór í gærkvöldi til Stykkishólms og Flateyjar. Vaslev blaðamaður, hinn danski, ætla að flytja fyrirlestur sinn um Grænland í kvöld kl. 8 í Kaup- þingssalnum. Jafntefli enn. í gærkvöldi fór fram úrslitakappleikurinn á ann- ars flokks Knattspyrnumótinu. — Lauk honum með jafntefli 2:2. Hefir löngum farið svo, að jafn- tefli hefir orðið á þessu móti milli sterkustu fjelaganna KR og Vals. Nú er enn eftir að vita, hvort vinnur þessa skæðu keppni að þessu sinni. Blómkálshöfuð 2y2 kg. að þyngd er til sýnis í glugga Morgunblaðs- ins. Það er úr garði Einars Helga- sonar garðyrkjustjóra við Laufás- veg. Lúðrasveitin Ijek í gærkvöldi á Austurvelli, að viðstöddu fjöl- rrenni. Þótti fólki einkanlega mik- ið koma til sólóleiksins í „Die Post im Walde.“ Leysi Eggert Jóhann- esson hlutverkið af mestu snild eins og fyrri daginn. Sveitinni stjórnaði L. Frederiksen að þessu sinni. Kristileg samkoma á Njálsgötu 1 í kvöld kl. 8. AJlir velkomnir. Skólavist fyrir óskólaskyld böm. Svonefnd tillaga verður borin upp á bæjarstjórnarfundi í kvöld: „Bæjarstjórnin felur fátækranefnd til afgreiðslu umsóknir um ókeypis kenslu í barnaskólanum næsta skólaár, og skólanefnd að ákveða um skólavist bama, sem ekki eru á skólaskyldualdri.1 ‘ Vatnsbólið í Gufunesi. Á fundi fasteignanefndar 17. þ. m. var samþykt að fela borgarstjóra að láta endurbæta vatnsbólið í Gufu- nesi. Fjósið í Lauganesi er komið að hruni; hefir fasteignanefnd falið borgarstjóra að láta endurbyggja fjósið. m Verðlanna-samkepnl. i Kr. 225 í verðlann! Okkar ágæta Lillu-Gerduft og Lillu-Eggjaduft er nú notað á all-flestum heimilum hjer á Iandi og hafa Efnagerðinni borist meðmæli og hrós fyrir þessar góðu vörur. Til þess að geta heyrt álit sem flestra, höfum við ákveðið að efna til verðlaunasam- kepni, þannig: Kaupið nokkur hrjef af Lillu-Gerdufti og Lillu-Eggjadufti. Notið það næst þegar þjer bakið til heimilisins. Umbúðirnar, eitt brjef af hverri tegund ásamt meðmælum, þar sem þjer takið fram, hversu vel gerduftið og eggjaduftið hefir reynst yður og hversu gott það er, sendið þjer til Efnagerð Reykjavíkur, Laugaveg 16, Reykjavík. Af hinum mótteknu meðmælum verða í lok desember mánaðar dregin þrjú aðalverðlaun 1. verðlaun kr. 75. 2. — -- 50. 3. .........25. Ennfremur verður veitt fyrir bestu meðmælin: Ein verðlann að nppbæð kr. 75. Um áramótin verður auglýst hverjir hafa hlotið verðlaunin og verða þau send vinn- öndum. — Skrifið þjer nafn yðar, bæjarnafn, sveit og sýslu greinilega. Hi. Efnagerð Reykjavíkur L- kemisk verksmiðja. Sjera Tryggvi Kvaran á Mæli- felli er nýkominn hingað til bæj- arins snögga ferð. Ásgeir Þorsteinsson verltfræð- ingur, hefir verið skipaður konsúll fyrir Tjekkóslóvakíu. Skaftfellingur fór í gær til Vest- mannaeyja og Víkur. íslenskur flugkeimari. íslenskur maður, Konráð Jóhannesson að nafni, er nýlega orðinn flugkenn- ari „Winnipeg Flying Club.“ — Konráð fjekk flugæfingu sína á heimstyrjaldarárunum og var þá um skeið flugkennari suður á Eg- yptalandi. Hann er íþróttamaður mikill, einkum skautamaður góð- ur, var hann í flokki Fálkanna frægu 1919—1920 (Hockey-fjelagið ,Falcons‘.) Foreldrar Konráðs eru búsett í Winnipeg. (FB). Davíð Stefánsson frá Fagraskógi iefir nýlega lokið við útgáfu cvæðabókar. Heitir bókin „Ný cvæði.“ Kemur hún á bókamark- iðinn næstu daga. Sparisjóðurinn á Stokkseyri. — dkiftafundur í þrotabúi Sparisjóðs stokkseyrar verður haldinn í þing- Iiúsi Stokkseyrarhrepps, laugar- íaginn 28. þ. m. klukkan 2 síðd. Er nauðsynlegt að instæðueigend- ur mæti á fundinum, því þar verður rætt um hvort sjóðurinn kuli endurreistur eða haldið á- ram undir gjaldþrotameðferð. Morgunblaðið er 6 síður í dag. ---------------------- Smœlki. — Því segi jeg það, með heið- arleik kemst maður lengst í ver- öldinni. — Þú hefir nú samt komist furðanlega langt. Kennarinn: Þegar jeg fer niður eftir Dóná, hvað hefi jeg þá á hægri hönd? Hnefaleikur í Kaupmanna- höfn. I lok ágústmánaðar fór fram hnefaleikur í Kaupmann'ahöfn, er vakti athygli um allan Danmörku. Negri einn, Aí Brown að nafni, kom til Kaupmannahafnar til að keppa við einn besta hnefaleikara Dana, Knud Larsen. Það mátti svo að orði kveða, að öll borgin stæði á öndinni út af úrslitum ieiksins. 23 þús. manna voru við- staddir leikinn og mátti glögt kenna mikla eftirvæntingu um úr- slitin. Leikurinn fór þannig, að kepp- endur voru hjer um hil jafnir, og harði hvorugur annan niður, en dómarinn dæmdi negranum sigur. Lærisveinninn: Þjer eruð með vörtur á hendinni. — Hafið þjer verið i Englandi? Þjer eruð svo Englendingslegur1. — Nei, en jeg hefi haft ensku sýkina. (innur myndin sýnir Knud Lar- sen með þjálfara sinum, en hin er af A1 Brown. Læknirinn: Þjer eruð svo gugg- inn. Hafið þjer ekki farið að ráði mínu um að reykja aðeins einn vindil á dag? Sjúklingurinn: Jú, en jeg hefi aldrei reykt fyr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.