Morgunblaðið - 02.10.1929, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 02.10.1929, Blaðsíða 3
MOR6UNBLAÐIÐ 3 Wtofnandl: Vllh. Flneen Ot*»fandi: FJelag: t Reykjavtk. stitatjdrar: J6n KJartangson. Valtýr Stefansaon > offlfslngastJ6ri: E. Hafber* ‘nrlfstofa Austurstræt: * :i al nr. 600. » u*iy«ingaskrifstofa nr. 700 ’ssastmar: J6n KJartansson nr 74*. Vaitýr Stefánsson nr. 1110, E. Hafberg nr. <70. rlf < asJald: Innanlands kr. 2.00 á manuöl nlands kr. 2.50 - --- sölu 10 aura eintakik filímnlðr Ármenninga til Þýskalands. Jeg skildi við íslensku glímu- mennina í Berlín hinn 21. sept. Tveimur kvöldum áður hafði ver- ið glímu- og fimleikasýning þar I borginni og get jeg ekki stilt ia ig um að taka hjer upp það sem eitt hlaðið (Der Abend) sagði um sýninguna: -— Var aðgöngueyririnn 50— 100 pfenning of hár? HveT veit. — Að minsta kosti var sýningin skammarlega iíla sótt. En þeim mun betri var hún. Ahorfendur urðu hrifnir, andlit þeirra ljóm- uðu af gleði, og stöðugt kváðu við fagnaðarlæti. Glæsilegir og syngjandi gengu íslendingarnir inn á leiksviðið undir hinum þrílita krossfána sínum. Líkamsæfingarnar, sem voru undanfari glímunnar, töfruðu alla áhorfendur. Þetta voru fimleikar, sem æfa jafnt allar taugar og vöðva líkamans. Nokkuð eru æf- ingarnar svipaðar kerfi Niels Bukhs, en allar stefna þær að sama markmiði, sjerstaklega hinar Ijettu og snöggu fótaæfingar. — Það kom mönnum á óvart, að styrkleikaæfingar skorti, því að menn eru vanastir því að glímu- menn sjeu kraftamenn. En þeg- ar vjer sáum glímuha á eftir, varð oss það ljóst, að hún er gersam- lega frábrugðin fangbrögðum. — Glíman byggist á fimi og fegurð, í stað þjösnalega átaka. íslending- arnir eru liðugir se’m kettir, og fegurð íþróttarinnar er þeim fyrir öllu. —• — Þetta sýnishorn af blaðaum- mælum verður að nægja að sinni, en jeg er viss um að ekki fara dómarnir versnandi þegar fram i sækir og orðstír glímunnar og glímumannanna flýgur á undan þeim borg úr borg. Prá Berlín var förinni heitið til Jlannover. Þaðan til Bad Oeyn- ’hausen, Bielefe'ld, Bisehofsstein, Jena, Magdeburg, Leipzig, Niirn- berg, Saarbriikken, Trier, Bonn, Miihlheim a.d. Ruhr, Iserlohn, Eiberfeld, og Remseheid. Eiga að vera sýningar í öllum þessum borgum og ef til vill aftur í Berlín -og Hamborg. Einn af glímumönnunum, Frið- rik Jesson, slasaðist á sýningunni í Hamborg. Laska.ðist á honum knjeð og varð hann að liggja í spítala um hríð, eii kom heim til Vestmannaeyja núna með Goða- fossi. -— Þorsteinn Kristjánsson aneiddist %Ínnig nokkuð í knjelið, og gat ekki tekið þátt í glímu- sýningum um hríð, en hann fylgd- ist með flokknum alla leið. Árni Óla. ----------------- Kanp sjómanna á togurum helst óbreytt næsta ár. Samkvæmt samningi þeim, sem í gildi er milli togaraeigenda og Sjómannafjelagsins, er áfeveðið, að ef aðilar segja ekki samning- um upp fyrir 1. október, þá helst hann óbreyttur næsta ár — eða 15 mánuði. Á fundi togaraeigenda er hald- inn var í fyrradag, var ákveðið, að þcir segðu ekki samningnum upp í þetta sinn. Sjómenn ákváðu og fyrir sitt leyti að segja ekki upp, enda var eigi við því búist, að þeir teldu sjer hag í því. Þó útgerðarmenn te'lji að kaup- gjald það, sem nú er á togurun- um, sje liærra, en atvinnurekstur- inn getur borið t-il lengdar, þá Jíta þeir svo á, að þésS sje að gæta, að yfirstandandi ár hefir verið fremur hagstætt fyrir útgerðina, og því vilja þeir reyna að láta kaupgjaldið haldast svona hátt iiæsta ár. Er óhætt að fullyrða, að al- menn gleði verði hjer yfir því, að vinnufriður í þessari atvinnu- grein er trygðiu’ næsta ár . Oóðverk. Bæjarbiiar hafa þrásinnis hlaup ið vel og drengilega undir erfið kjör bágstaddra manna. í þeirri von að þeir geri svo enn, skal þeim hjer með bent á tækifæri til þess að gjöra góðvei’k og greiða úr vandræðum heilsulausrar og mun- aðarlausrar stúlku, sem um mörg ár hefir Jifað við vanheilsu og eytt aleigu sinni í sjúkrahúslegur og Jæknishjálp; og enn liggur hún rúmföst og borfir með kvíða fram á komandi vetur. Eigum við ekki, sem guð hefir gefið góða heilsu og got-t arðber- andi sumar, að rjetta henni hjálp- arhönd? „Stórt ef þii -ei gefið getur, gef sem ekkjan forðum smátt,“ og margt smátt gjörir eitt stórt. — Leggjum sem flestir í þann fjár- sjóð, sem mölur og ryð fá eigi grandað. Morgunblaðið er góðfúslega beð- ið að taka á móti væntanlegum gjöfum til veiku stúlkunnar. mt. Blaðið mun fúslega veita gjöf- um móttöku og gefa frekari upp- lýsingar. Heilsufarið í Englandi. Árið 1928 var heilsufar betra en nokkru sinni áðnr í Englandi. Af ungbörnum dóu aðeins 65 af búsundi. Þannig hafa um 41.500 fleiri börn lifað eftir fæðingu, en meðaltal sýnir árin 1901—1910. — Yfirlit sýnir og, að dánartala hef- ir lækkað og að fólk lifir vfirleitt lengur. Dáuðratala af berklum hefir lækkað úr 53.120 (1911) í 36.623 (1928). Hvítir fermingarkjólar með lðngnm ermnm ern nn til í „NIN0N“ Anstnrstræli 12. Opið 2-7. Bjiirgrinjartiúar búast við Atlantshafsflugferðum um íslands og Björgvin. í Björgvinjarblaðinu „Morgen- avisen“, er frá því skýrt nýlega, að kapteinn einn, sem hefir flug- málin með höndum, hvetji mjög þess, að sjeð verði fyrir því, að Björgvin geti síðar mejr orðið hentug og rfimgóð flughöfn. Er maður þessi Meisterlin að nafni, nýkominn af fundi flug- manna í Ilaag. En þar voru saman komnir margir helstu áhrifamenn í sviði flugmálanna. Eftir að hafa verið þar, heldur Meisterlin því fram, að öll líkindi sjeu til þess, að flugferðir komist á yfir norðanvert Atlantshaf um Island og Grænland, og sje því eðlilegast, að viðkomustaðurinn fyrsti og- síðasti á meginlandinu verði í Björgvin. Þess vegna þurfi að sjá svo um að í Björgvin geti komið hentug og rúmgóð flughöfn fyrir hinar stóru flugvjelar, er notaðar verða í ferðir þessar. Hann lítur svo á, að hrakníng- ar Ahrenbergs og þeirra fjelaga liafi engin áhrif á álit mauna á flugleið þeirri, sem þeir reyndu. Brauns-Verslun, Karlmannaf öt, það nýjasta fyrir haustið, kemur upp í dag. Karlmannsregnf rakkar, í fallegasta úrvali, í öllum stærðum fyrirliggjandi.| Manchettskyrtur, nýjar geröir teknar upp í dag. Verð frá 6.85. Milliskyrtur, alveg ný tegund, mjög smekkleg, verður tekin upp í dag. Hattar og Húfur eru ódýrastar hjá okkur, eins N æ r f ö t, karla og drengja. Brauns-Verslun. Dagóók. Ve,rið (í gærkv. kl. 5): Lægðin sem var yfir hafinu suður af Græn landi á mánudagskvöldið hefir dýpkað mjög mikið og er nú kom- i'i í nánd við V-strönd Skotlands. Veldur liún S og SV-hvassviðri og miklu regni um allan vestur- hluta Bretlandseyja og mun valda úveðri á N-sjónum þegar líður á nóttuna. Hjer á landi er yfirleitt hæg A-átt og hvergi rigning nema í Vestmannaeyjum og grend. — Hitinn er úm 0 stig á öllu N-landi 3—5 stig í öðrum landshlutum. Veðurötlit í Rvík í dag: A og síðan NA-kaldi. Sennilega þurt. Á happdrætti hlutaveltu h.f. Kvennaheimilið Hallveigarstaðir lconra npp þessir seðlar: I. vinn- ingnr nr. 6316, farseðill til Berg- on, báðar leiðir. II. vinningnr nr. 7527 reiðhjól. Vinninganna sje vítjað til frú Laufeyjar Vilhjálms- dóttur, Suðurgötu 18. „Island“ fór til Norðurlands klukkan 6 í gærkvöldi. Meðal far- þega voruá Valdimar Þorvarðsson kaupmaður, ungfrú Elísabet Valdi- marsdóttir, frú Finnbogason, Guð- jón E. Jónsson kaupm., Jónas Tómasson kaupm., Jón Víðis verk- fræðingur, Elías Pálsson kaupm., Guðmundur Jónsson kaupmaður, Hermann Jónsson, Hörður Bjarna- son, sjera Sigurður Stefánsson og fle'iri. Barði Guðmundsson sagnfræð- ingur var meðal farþega á Lýru í gær. Hann var ráðinn stunda- kennari við Mentaskólann í vetur. Leikfjelag Akureyrar hefir frá bæjarstjórninni fengið 4 þús. kr. fjárveitingu til að endurbæta leik- sviðið. í sýningarhúsinu: Styrkur bæjarsjóðs hefir verið hækkaður ilMlli helst með bakherbergi ósk- ast til leigu, helst í miðbæn- um. — A. S. í. vísar á. Ný laotbalifnr og hjörln. Lækkað verð. Kanpfjelag Borgfirðinga. Laugaveg 20 — Sími 514. Idozan er hið besta meðal við blóðleysi sem til er Fsost i Lyfjabúdum. 2 stórar, sólríkar ibáðir til leigu í miðbænum. Tilboð merkt „TVÆR IBÚÐIR' ‘ sendist A. S. í. 1. flokks : fyrirliggjandi. Bestu greiðsluskilmálar. Not- uð hljóðfæri keypt, tekm upp í nf, einnig tekin til sölu, ef óskað er. Alskonar strengjahljóðfæri. Skólar og kenslunótur. Stærst úrval. Lægst verð. Hljóðfærahnsið. { í 'm m a 2 heröergl hentug fyrir skrifstofur, S góðum stað í miðbænum til leigu. Upplýsingar í Björnsbakaríi. Svlð, Lifur. Hjörtu, Dilkakjöt, isl. Egg. Tólg, Saltfiskur 15 aura % kg. Gulrófur 10 aura, ísl. Kartðfl- ur, pokinn 10 kr. Kjötbúðin, Grettisgötu 57. Sími 875.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.