Morgunblaðið - 22.01.1930, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 22.01.1930, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐTÐ S Jtíloröunbliií>ii etcíatndl: VilU. Fin»en. sts»tandl: FJeJnt I Roykjvrík. Xltatjðrar: J6n KJartanason. Valtjr StafAnsaon. A.aB'lí'ainfaitJörl: H. Hafber*. ðkrifatofa Austuratrsatl 8. ðiSBi nr. 600. ÁUKiyalnffaskrifatofa nr. 700. .Ailnailaar: Jön K.Jartan*«on nr. 74*. Valtyr StaftnaBon nr. 1280. B. Hafberu nr. 770. v»ítrtf*a«J»l«i Innanlanda kr. 2.00 X aAnuSi. nlands kr. 2.60 - — «ölu 10 aura »tntakiS. Forsetakosutaigiii Ekki mun ofmælt, að kosningu forseta í sameinuðu þingi, var að þessu sinni fylgt með alveg ó- ^enjulegri athygli. Ekki einungis hffijarbúa í Reykjavík, heldur ■allrar þjóðarinnar. Það er afráðið •að þingi ve'rður ekki slitið fyrir hátíðahöldin í sumar, heldur að- «ins frestað. Forseti sameinaðs þings hefir því að þessu sinni ímnað og me'ira hlutverk að inna •en að stjórna venjulegum þing- fundum. Hann á að koma fram, ■sem æðsti fulltrúi þeirrar stofn- unar, sem á sumri komandi he'ldur Bainningarhátíð, sem einstæð er í 'SÍigu allra þjóða, og ríkja. Síðan Framsóknarflokkurinn komst til valda, hefir hann á hverju þingi valið Magnús Torfa- son til að gegna hinu virðulega forsetastarfi 'sameinaðs Alþingis. þ’egar. af þeirri ástæðu hlutu menn að búast við að liann yrði að nýju * kjöri af fiokksins hálfu. En þar við bætist, að vitað cr að sá-mað- urinn sem hingað til hefir ráðið mestu um gerðir flokksins, hefir haft Magnús Torfason mjög á oddi tíl þessa starfs. Er þess skemst að minnast að á síðastliðinu sumri fór Magnús Torfason, utan að tii- hlutun dómsmálaráðherrans, til þess að búa sig undir, að geta komið fram fyrir landsins hönd í æðsta virðingarsæti þingsins á þúsund ára hátíðinni. Það hefir ekki farið leynt, að umliyggja dómsmálaráðherrans fyrir upphefð Magnúsar Torfáson- ar, hefir ekki bygst á trúnni á hæfileikum Magnúsar til starfans, heidur af andúðinni gegn þeim Tnanni, sem vitað var að hlaut að verða í kjöri að Magnúsi Torfa- syni frágengnum.- Deilan um forsetavalið innan Eramsóknarflokksins er ekki ný. Hún er jafngömul valdatíð flokks- ins á þingi. — Þessi deila hefir karðnað eftir því, sem fram í sotti nær dró þeirri hátíðlegu athöfn, •sem um fram alt krafðist þess, að vandað væri til forsetavalsins, svo sem föng vorn á innan stjórn- arflokksins. En eftir því, sem ótti <lómsmálaráðherrans liefir aukist við vaxandi fylgi Ásgeirs Ásgeirs- sonar, hefir andstaða hans magn- ast og barátta hans liarðnað. Þeg- ar þingmenn komu saman nú í þingbvrjun, var málum þannig komið, að deilan stóð í rauninni <ekki um það hver yrði forseti, heldur hver ætti að ráða í flokkn- wm. En það er til marks um of- Tirkapp dómsmálaráðherrans í þessu máli, að eftir þing í fyrra þá fær liann Mkgmósi Torfasyni upp á sitt eindæmi ríkulegan styrk úr ríkissjóði til hinnar umgetnu ntanfarar. Mun ráðhe'rrann með þessu þóst hafa koinið ár sinni vel fyrir horð, o.g álitið að nú yrði Frá flotamálaráðstefnunni í London. London, FB. 21. jan. Kl. 1,40. 'United Press tilkynnir: Frá Madrid er símað: Calvo Sateto fjármálaráðherra hefir beðist lausnar vegna ágreiningsins við Primo de Rivera. Samkvæmt á- reiðanlegum heimildum, stafar ágreiningurinn af því, að fjár- málaráðherrann var á annari skoðun en Rivera viðvíkjandi þátttöku Spánar í starfsemi al- þjóðabankans, aðallega að því er snertir upphæð þá, er Spánn skyldi til leggja, og ennfremur, að Primo de Rivera hefir ekki tekið afstöðu til verðfestingar pesetans. Kl. 9,30. Frá Tolcio er símað: Keisar- inn hefir leyst upp þingið. Kl. 11,15. Flotamálaráðstefnan í Lon- don var sett laust eftir klukkan 11. Er fulltrúarnir höfðu safn- ast saman í lávarðadeildinni flutti Georg V. Bretlandskon- ungur setningarræðu sína og tal- aði úr konungsstúkunni. Kl. 11,45. Forsætisráðherra Bretlands, Ramsay MacDonald, hefir verið kosinn forseti flotamálaráðstefn unnar. Kl. 12,28. Þá er konungurinn hafði hald- ið ræðu sína, töluðu formenn sendinefnda helstu þjóðanna, er þátt taka í ráðstéfnunni. Mac Donald talaði næst á eftir kon- unginu*. Kvað hann aljar þjóð- ir búast við því, að sá yrði árang- ur af fundinum, að flotastór- veldin fimm (Bretland, Banda- ríkin, Frakkland Italía og Jap- an), komi sjer saman um að draga svo úr vígbúnaði á sjó, að herskipaflotar þeirra nægi að- eins til raunverulegra þarfa, þ. e. til öryggistryggingar. Enn- fremur kvað hann nauðsynlegt að taka sjerstaklega til meðferð- ar strandvarnir og hernaðarflug tæki í sambandi við vígbúnað á sjó. Loks lagði hann mikla á- herslu á, að vinna kappsamlega að því, að samkomulag næðist. Kl. 12,40. Fregnir hafa borist um, að ræður Bretakonungs, MacDon- alds og Stimsons o. fl., sem öll- um var útvarpað, heyrðust út um alla Evrópu, t. d. í Róma- borg, Madrid, Vínarborg og Berlín. Einnig heyrðust ræðurn- ar í New York, Chicago, Den- ver og Montreal. I ræðu sinni sagði Stimson ráðherra m. a., að takmörkun vígbúnaðar yrði að fara fram stig af stigi. ,,Við lítum á af- vopnun sem takmark, sem við munum ná smám saman, með því að halda áfram samvinn- unni og tilraununum til um- bóta“. Að lokinni ræðu Stimsons tal- aði Tardieu, fyrir hönd frakk- nesku fulltrúanna, og svo hver af öðrum. Kl. 13,24. Fundinum slitið kl. 13,18. Ásgeiri eigi komið í þennan virð- ingarsess, nema með því móti, að sýna Magnúsi Torfasyni meiri van- virðu en flokksmönnum væri trú- andi til. Síðan þingmenn komu til bæj- arins hefir dómsmálaráðherrann lagt sig allan fram. Hann hefir ekki ge'ngið þess dulinn fremur en aðrir, að baráttan stóð um ýfirráð hans yfir þeim flokk, sem hann á síðustu árum hefir verið einráðinn i. Eu dómsmálaráðherrann heið ósigur og það er vitað að allur þorri flokksmanna lians á þingi, stóð saman um að yfirbuga hann í þessu ofurkappsmáli hans. Hingað til hefir dóinsmálaráð- herrann kúgað flokk sinn. Nú kúgar flokkurinn ráðherrann. — Flokkurinn tólr svo sterkum tök- um á ráðherranum, að hann neyddi hann eigi aðeins til að þola forsetatign Ásgeirs Ásgeirs- sonar, heldur og til að kjósa hann. Hafa flokksmenn dómsmálaráð- herrans og nánustu samverkamenn sýnt, að þeim er Ijóst að framtíð flokksins þolir eigi, að slíkur mað- ur maður fari þar með völd. En sjálfur liefir ráðherrann sýnt að eklci e'i* eins erfitt að beygja hann til auðsveipni og ýmsir hafa álitið. Engum mun blandast hugur um að forestaefni Sjálfstæðismanna, Jón Þorláksson, var allra manna hæfastur til að koma fram fyrir landsins hönd við hátíðahöldin. En þeir sem falið hafa Framsóknar- mönnum að velja í öndvegisstöður ií þjóðfjelaginu, mega vel við una hvernig þingmenn þeirra liafa áð þessu sinni farið me'ð vald sitt. Og landsmenn í heild sinni munu við- urkenna að með forsetavalinu hafi aðalflokkur stjórnarinnar sýnt þjóðinni meiri nærgætni, en menn Iiöfðu fyrir fram ástæðu til að vænta. Bæjarstðrnaikosningin í Vestmannaeyjum kærð. — Velta þeir báðir úr bæjar,- stjórn ísleifur Högnason og Þorsteinn Víglundsson. Úrskurður í ,,fíokkssvikara“-málinu. Vestm. 20. jan. FB. Kærður hefir verið úrslcurður Ifjörstjórnar við síðustu bæjar- stjórnarkosningar, ve'gna þess að I.iörstjórn úrskurðaði Þorstein 'V:glundsson af C-lis%a og ísleif Högnason af A-lista rjett kjörna, en líklegt er, ef ekki því meiri breytingar verða á listanum, að sjöunda fulltrúaefni C-lista, sem jafnframt var sjötta fulltrúaefni A-lista", Guðm. Magnússon smíður, hafi samanlagt hærri atkvæðatölu eri 5. fulltrúaefni af A-lista. — Magnús Magnússon smiður, jafn- framt að 14. fulltrúaefni C-lista hafi samanlagt hærri atkv.tölu en ísleifur. C-listi hafði 387 atkv. en A-listi.223 atkv. Verði kærari úr- skurðuð rjettmæt, verða Þorsteinn og ísleifur varafulltrúar, en hinir koma í staðinn. Mun málið bráð- lega tekið fyrir í bæjarstjórn. Vegna brottreksturs 6 manna, þar á meðal Þorsteins Víglunds- sonar, form. verkamannafje'l., úr fjelaginn, hefir fógeti úrsknrðað (brottreksturinn) ólögmætan og afhent Þorsteini hækur fjelagsins. Lítið um sjóróðra. Afli rýr. — Vantar enn töluvert af vermönn- um. Svar til ungfrú Laufeyjar Valdi- marsdóttur. Jeg get ekki orðið við þeim tilmælum yðar að dæma um persónulega trúrækni þeirra manna, sem þjer nefnið í fyrir- spurn yðar. Það er annar, sem betur sjer, sem dæmir um hana, og honum eiga þeir*, hver ein- 'stakur, að standa full skil, en hvorugri okkar. Hitt get jeg bent á, sem jeg hjelt, að flestir bæjarmenn vissu og býst við, að margir muni, bæði á laugardaginn kemur og miklu lengur, að það hefir verið ólík framkoma jafnaðarmanna og hinna í bæjarstjórninni, þeg- ar eitthvað hefir verið minst þar á þau mál, sem snerta kristin- dóm. Vitið þjer ekki t. d., hvernig Ólafur Friðriksson og fylgis- menn hans tóku undir styrk- beiðni til sjómannastofunnar hjer í bæ, og hve virðulega hann orðaði andmæli sín? Vitið þjer ekki, hvernig hann og bróðir yðar töluðu á bæjar- stjórnarfundum um húslestr- ana á Elliheimilinu, og sögðu meðal annars, að jeg ætla, á móti betri vitund, að heimilis- fólki þar væri þröngvað til að hlusta á húslestra? Vitið þjer ekki, hverjir það voru í bæjarstjórninni, er vildu ekki, að söngflokkur K. F. U. M. fengi nokkurn utanfarar- hjerna um árið, nema hann hætti við að kenna sig við kristi- legt fjelag ungra manna? Vitið þjer ekki, hverjir það eru, sem margoft hafa reynt að nota það borgarstjóra til ámæl- is, að hann er formaður sunnu- dagaskólans hjerna í Reykja- vík? Þarf jeg að telja upp fleira til þess að sýna yður fram á, hvers vegna jeg vantreysti þess- um flokksmönnum yðar í krist- indómsmálum? Sje þeim nú snúinn hugur, þá eru mörg tækifæri til að sýna það og sanna. Kirkjumálin verða t. d. á dagskrá Alþingis í vetur. og þar gefst sumum þessum sömu jafnaðarmönnum tækifæri til að sýna lit í |arð kristindóms- ins. Komi þeir þar vel fram, skal ekki standa á mjer að geta þess þeim til sóma. Guðrún Lárusdóttir. Innflutningurinn- FB. 20. jan. Innflutningurinn. Fjármálaráðu- neytið tilkynnir: Innfluttar vörur í desember 1929 kr. 4.436.021.00; þar af til Reykjavíkur krónur 3.392.361.00. Mannuðarmálin hans Sig- urjóns Ólafssonar. Sigurjón Á. Ólafsson ríkisútgerð armaður og ráðunautur núverandi stjórnar, var fjölorður um það á sunnudaginn var, að fátæklingarn- ir sem þegið liefðu af sveit, og æskumennirnir, frá 21—25 ára fengju nú í fyrsta sinn að kjósa, Það hefði á undanförnum árum verið „mannúðarmál“ sósíalista að koma þessum breytingum á. Og það sagðist Sigurjón vita, að bæði fátæklingarnir, og æskumenn irnir, hver einasti einn myndu kjósa sósíalista í bæjarstjórn. Þetta var rúsinan hjá Sigurjóni. „Mánnúðin“ var ekki á hærra stigi en það hjá sósíalistum, að þeir höfðn harist fyrir breytiguni þessum, í vom um, að fá með því aukið fylgi lianda sjálfum- sjer. En nú er komið babh í hátinn fyrir sósíalistum. Skv. undirtekt- um manna hjer í bænum — og þá ekki síst bæjarstjórnarkosning- in í Hafnarifirði, sýnir það glögg- lega, að æskumennirnir, og „nýju kjósendurnir“ yfirleitt, fylkja sjer um Sjálfstæðismennina —eins og eðlilegt er. Æskan vill athafnafrelsi; þolir ekki kúgunaranda sósíalista. Æskumenn Reykjavíkur kjósa C-listann. C-listi er listi Sjálfstæðismanna. Þar sem sósíalistar ráöa. Þegar sósíalistabroddarnir bera fram sín gullnu loforð, um það hve alt fari ágætlega, ef þeir ein- hverntíma komist í meirihluta í bæjarstjórn, þá bæta þeir þvi oft við, að í öðrum höfuðborgum Norð urlanda sjen flokksmenn þeirra mikils ráðandi. Á fundi sósíalista á sunnudag- inn var, mintnst þe'ir á þetta, t. d. hve sósíalistar í O&ló færu vel með verkamenn þá sem atvinnulausir væru. — Það væri svo sein munur eða hjerna í Reykjavik. Það kemur nefnilega vatn í munninn á sósíalistnm hjerna, þeg ar þeir hugsa til þe'irra staða, þar sem þúsundir og tugir þúsunda verkamanna ganga atvinnulausir. Það væri matur fyrir þá Jón Bald., Hjeðinn og Co., að geta skattlagt þá sem eitthvað hefðn að gera, til þess að greiða þeim sem enga atvinnn hafa, og með því trygt sjálfum sjer atkvæði at- vinnule'ysingjanna. Með þ\ú að koma því til leiðar, að framtak manria dafni og sofni, og helst eng in atvinnurekstur beri sig, vona þessir lierrar, að þeim megi takast að koma atvinnuleysi hjer á, í stórum stíl. ' En stefnumunur Sjálfstæðis- mann og sósíalista er þessi. Sjálf- stæðismenn vilja blómlegt og fjöl- skrúðugt atvinnulíf, og spórna ge'gn atvinnnleysi. Sósíalistar vilja 4rtvinnnleysið, til þess að geta flek að þá sem í vandræðin rata til fylgis við sig. ------------------- Kosningaskrifstofa Sjálfstæðis- manna er í Varðarhúsinu við Kalk ofnsveg, sími 2339. Kjósið C-listann!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.