Morgunblaðið - 25.03.1930, Side 2
2
Dagbók.
Veðrið (mánudagskvöld kl. 5):
1 dag hefir komið alldjúp lægð
euðvestan úr hafi uppundir Reykja
nes, en hjeðan af virðist lægðin
ætla að hreyfast austur með suður-
ströndinni. Kl. 5 í kvöld var snarp
iir austanvindur og snjókomá með
0 st. hita Á SV-landi en stilt veður
og yfirleitt úrkomulaust fyrir norð
an og austan.
Veðurútlit í Rvík í dag: All-
hvass NA. Urkomulaust. Kaldara.
Hafís. Á sunnudagskvöldið fekk
veðurstofan fregnir frá Grímsey
tun ísbreiðu, sem stefndi að landi
með hálfrar sjómílu hraða á klst.
A Húnaflóa var ísinn kominn inn
fyrir Kálfshamarsvík, en sást ó-
gerla vegna þokumóðu. Úti fyrir
Aðalvik var einnig sagður íshroði
á reki - austur eftir. í gærmorgun
(mánud.) var ísinn snúinn við hjá
Grímsey og rak til hafs með 1
sjóm. hraða á vöku og var því nær
horfinn sjónum í gærkvöldi. Á
Húnaflóa hafði ísinn ekki færst
innar, en jakastangl var uppi und-
ir landi við Kalfshamarsvík. Úti
fyrir ísafjarðardjúpi var íshroði
og jakastangl inn undir Bolungar-
vík. —
Kristileg samkoma á Njálsgötu 1
í kvöld kl. 8. Allir velkomnir.
Heimdallur, fjelag ungra Sjálf-
stæðismanna he'ldur fund í kvöld
kl. 8y2 í Varðarhúsinu. Sjá nánar
í augl. í blaðinu í dag. '
Athygli skal vakin á auglýsingu
frá Upplýsingaskrifstofu stúdenta-
ráðsins í blaðinu í dag um útvegun
kenslu fyrir prófin í vor. '
Danisskóli Rigmor Hanson.
Skenítidansæfing i kvöld fyrir nem
endur og ge'sti þeirra á vanaleg-
um stað og tíma. Laugardaginn 12.
apríl verður lokadansleikur fyrir
nemendur þá í vetur og undan-
farna vetur, börn unglinga og full
■orðna og gesti þeirra. Áskrifenda-
listi liggur frammi á æfingum og
tekið á móti pöntun í síma 159
eins og auglýst var í sunnudags-
blaðinu. Dansskólinn heldur áfram
fram i miðjan apríl.
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sína ungfrú Jenny Jónsdóttir og
Páll B. Oddsson trjesmiður.
ísland erlendis. í febrúarheftinu
af tímaritinu „Flyv“ sem er gefið
út af konunglega danska flugfje-
laginu birtist alllöng grein um flug
ferðir á íslandi. Hefir blaðið feng-
ð upplýsingar hjá sendiherra vor-
nm, Sveini Bjömssyni, en sumt er
tekið upp úr íslenskum blöðum. í
viðtali við dr. Alexander Jóhann-
esson segir frá gerðum Flugfje-
lagsins, gagnsemi þess^og framtíð-
aráætlunum. Greininni fylgja
íiokkrar myndir.
Aflinn, sem Belgaum hafði þegar
■Ægir tók hann, var ekki seldur á
uppboði, heldur afhentur útgerðar
fjelaginu. Voru þeir skipstjóramir
Geir Sigurðsson og Hjalti Jónsson
fengnir til að meta hann. Var mat
þeirra um 11.700 krónur, en það
þótti of lágt, svo að ríkisstjómin
skipaði nýja matsnefnd, til að gera
yfirmat. Voru i henni Júlíus Guð-
mundsson kaupm., Sigurjón Ólafs-
son alþm., Kristján Bergsson for-
stjóri Fiskifjelagsins og Hafsteinn
Bergþórsson skipstj. Mun mat
þeirra hafa verið eitthvað á 5. þús.
kr. hærra en hinna.
Einax E. Maxkan köngvari fór
á sunnudaginn suður til Vífilsstaða
og söng fyrir sjúklinga. Var hann
öllum aufúsugestur og voru menn
MORGUNBLAÐIÐ
afarhrifnir af söng hans. — Á
morgun ætlar Markan að syngja
opinberlega hjer • í Reykjavík.
Verður það í seinasta sinni, nú um
skeið, að hann, lætur til sín heyra.
A söngskránni verða eingöngu ís-
lensk lög.
Dronning Alexandrine kom frá
útlöndum í gærmorgun. Meðal far
þega voru: Ben. S. Þórarinsson
kaupm., John Fenger aðalræðism.,
Eiríkur S. Beck verksmiðjustj. og
frú, Svavar Guðmundsson fulltrúi,
Guðm. Bergsson póstm., Axel Ket-
ilsson vCrslunarstj., Soffía Jóhann-
esdóttir, ungfrú Unnur Briem,
Maja Ólafsson, V. Ólafsson, Fr.
Vathan stórkaupm., ungfrú Ástríð-
ur Faaberg, Haraldur Ólafsson,
Theodór Johnsson fyrv. bryti o. fl.
Skipið fer í kvöld kl. 6 til Norð-
urlandsins.
Gamlax bækur. Nokkrar bækur,
sem nú eru á þrotum, auglýsir
ísafoldarprentsmiðja hjer í blað-
inu í dag. Sjá auglýsingu.
Togararnir. Þessir togarar komu
af veiðum um helgina og í gær:
Otur með 115 tunnur, Baldur 114,
Maí 104, Snorri goði 120, Max
Pemberton 100 og Sindri með 60
tunnur.
Botnía kom hingað frá Leith á
sunnudagskvöld/ Með henni kom
síra Rögnvaldur Pjetursson, frá
Vesturheimi.
Skipaferðir. Brúarfoss kom að
vestan í gærkvöldi og fer hjeðan
til útlanda á fimtudaginn. Ytra
fer h'ann í þurkví til þess að rann-
sakað verði hvort nokkrar skemd-
ir hafi orðið á hónum við strandið.
— Goðafoss kom til Hamborgar í
gærmorgun og Lagarfoss til Kaup-
mannahafnar á sunnudaginn, Gull-
foss fór frá Leith á laugardag á-
lciðis til Kaupmannahafnar.
Iðnaðaxmaimafjeiagið heldur
fund í kvöld kl. 8% og flytur Vig-
fils Grænlandsfari þar erindi og
sýnir skuggamyndir.
Dámaxfregn. Nýlátinn er, eftir
langa vanheilsu, Páll Vigfússon,
Hjörleifssonar prests, sem lengi
þjónaði Skinnastað í Öxarfirði og
Tjörn í Svarfaðardal. Vigfús faðir
Páls heitins bjó lengi á Ferju-
bakka í Öxarfirði, og ferjaði yfir
Tökulsá, þangað til hún var brúúð.
Gunnlaugur Blöndai málari hefir
nýskeð haft málverkasýningu hjá
Johansen & Jæger í Vesterbrogade
70 í Kaupmannahöfn. He'fir hann
fengið góða dóma í blöðunum.
Heiðursmerki. Kammerherrafrú
Astrid Stampe Feddersen hefir ný-
lega verið sæmd riddarakrossi
Fálkaorðunnar, í viðurkenningar-
skyni fyrir það, sem hún hefir
skrifað um ísland og fyrir það að
hún hefir altaf te'kið málstað ís-
lendinga.
Sambandsþing Verslunarmanna-
fjelaga fslands hefir staðið yfir
hjer í bænum undanfama daga, og
var því slitið í gær. Hefir það rætt
ýms mál stjettarinnar, og samþykt
Ijiokkrar tillögur til Alþingis þeim
viðvíkjandi. f stjórn Sambandsins
fyrir næsta ár voru kosnir, forseti
Egill Guttormsson og meðstjórn-
endur Frímann Ólafsson verslunar-
stjóri og Ásgeir Ásgeirsson full-
trúi.
Hjónaband. Á laugardaginn
voru gefin saman í hjónaband ung.
frú Gyða Hermannsson (Jóns Her-
mannssonar tollstjóra) og LorCntz
Thors.
Vonda samvilsku hafa Sigurjón
Ólafsson og Alþýðublaðið út af því
hvernig farið var með farþegana á
Esju og skipið tafið að óþörfu
hálfan sólarhring hj,er í höfn. Sig-
urjón kemur með heillangt yfir-
klór í Alþbl. í gær, og blaðið sjálft
með tvær smágreinir í sama anda.
En hvergi er minst á það, hvernig
á því stóð, að skipverjar á Esju
fengu ekki leyfi til þess að koma
um borð póstinum og þeim fáu olíu
tunnum, sem alt stóð á. Vill ekki
þerra „afgreiðslumaðurinn“ Sigur-
jón alþm. skýra frá hvernig á því
stóð? Annars ber þeim Sigurjóni
og Alþbl. ekki saman. Sigurjón
segir, að svo litlu hafi munað að
alt yrði komið um borð kl. 10 að
hann hafi ekki treyst sjer að gera
farþegum aðvart með nægum fyrir
vara, að för skipsins yrði frestað,
En Alþbl. se'gir að það hafi að
minsta kosti verið klukkutíma
verk eftir við skipið — og þá að
sjálfsögðu miðað við þann vinnu-
kraft, sem var um daginn. Hjer
mun Sigurjón fara með rjettara
mál, enda ólíklegt, þótt Alþbl. vilji
klína því á hann, að hann sje svo
skyni skroppinn að hann geti ekki
sjeð hvort nokkurra mínútna verk
hafi verið eftir, eða klukkutíma-
verk. Nei, það munaði sama sem
engu að alt kæmist um borð fyrir
kl. 10. Og vegna þess að þá voru
eftir nokkrir póstpokar á vagni
við skipshlið og nokkrar olíutunn-
ur, sem líka voru við skipshlið, og
skipverjum var bannað að flytja
það um borð, voru hundruð farþega
rekin í land úr skipinu og það
tafið um hálfan sólarhring.
Skíðafjelagið fór skemtiferð á
sunnudaginn upp að Skálafelli.
Veðrið var afbragðsgott og förin
hin ánægjulegasta. Milli 70 og 80
manns voru í hópnum, karlar og
konur. Skíðafærið var betra en það
hafði ve'rið tvo seinustu sunnudaga
á undan, því að nýsnævi var víðast
á leiðinni. Ýmsar stúlkur, sem
aldrei höfðu stigið á skíði fyr, voru
með í förinni. Voru þær fyrst í
stað heldur hugdeigar og sem á
nálum, en er komið var til bílanna
aftur eftir 5 stunda göngu, voru
þær eins og þaulvanir skíðamenn
og gátu ekki nógsamlega dáðst að
þessari ágætu og skemtilegu íþrótt.
Alt skíðafólkið ge'kk í fylkingu
gegnum bæinn er heim kom, og
varð bæjarbúum heldur en ekki
starsýnt á þann fríða hóp, en
mesta undrun vakti það þó er
margir streymdu inn í veitingasal-
inn á Hótel ísland og tóku þar
þátt í dansinum, í skíðafötum sín-
um og skíðastígvjelum.
Árshátíð K.R. fór fram í Iþrótta-
húsi fjelagsins síðastliðið laugar-
dagskvöld. Fjelagar K.R., bæði
karlar og konur, fjölmentu og var
hvert sæti fullskipað. Ræður fluttu
Erlendur Pjetursson, fyrir minni
fjelagsins, Guðm. Björnson land-
læknir, fyrir minni íslands og
Hjalti Jónsson framkvstj., fyrir
minni kvenna. Kristján L. Gests-
son form. fjelagsins hjelt ræðu fyr-
ir minni ritara fjelagsins Erlendar
Pjeturssonar, sem átti 15 ára rit-
araafmæli í fjelaginu. Þakkaði for-
maður honum fyrir hans marg-
bætta starf í þágu K.R. um 15 ára
skeið og afhenti'Erlendi frá fjelag-
inu heiðurspening úr gulli í viður-
kenningarskyni. Að því loknu söng
Erlingur Ólafsson nokkur lög, sem
tókst ágætlega, þá fór fram fim-
'eikasýning nokkurra smámeyja og
var mjög ánægjulegt að sjá þenn-
an yngsta fimleikaflokk borgarinn
ar. Ungfrú Unnur Jónsdóttir fim-
leikakennari stjórnaði sýningunni
og .sýndi á eftir nokkrar fimleika-
æf'ingar kvenna. Þessu næst var
leikin ný K.R. „re'vy“ sem heitir
SCOTTS’s heimsfræga
ávaxtasulta
jatnan fyrirliggjandi.
I. Brynjólfsson & Kvaran.
Húseign mei bygglnoaHfið
tii sölu á ágætum stað i Austurbænum. Útborgun um 11 þús. kr. Upp-
lýsingar hjá Jóni Þorlákssyni verkfr., Bankastr. 11, sími 2383. Við-
staddur venjulega kl. 11—12 árdegis.
Tiboð óskast
í brotnar marmaragrindur (grátur). Þær verða til sýnis í kvöld kl. 5
hjá Landakotskirkju. Tilboð óskast send til Friðriks Gunnarssonar,
Skólavörðustíg 16, fyrir hádegi á morgun (26. mars).
Kensla fyrir prófin i vor.
Þegar vorprófin í skólunum fara að nálgast, þurfa fleiri og færri
nemendur að fá sjer aukatíma í ýmsum námsgreinum. Getur Upplýs-
ingaskrifstofa stúdentaráðsins (Kirkjutorg 4 kl, 6—7 síðd. sími 1292)
í vor eins og að undanförnu bent Iskólanemendum á ódýra og góða
kenslu í öllum helstu námsgreinum.
Þakpappi.
Höfum fyrirliggjandi margar teg. af þakpappa frá
A/S Tagpapfabriken Phonix.
Afgreiðum einnig beinar pantanir.
Verðið hvergi lægra.
Eggert Kristiánsson & Co.
„Húsið þitt“ og samið hefir Er-
ler.dur Pjetursson. Voru leikend-
srnir, höfundurinn sjálfur, Harald-
ur Á. Sigurðsson og kona hans
Magnea Sigurðsson, Guðjón Einars
:on-, ungfrú Fríða Gísladóttir, Jón
ms og Guðni Guðbjartsson (12
ára). Haraldur var leiðbeinandi og
lcikstjóri. „Revyan“ var mjög
ikemtileg og vel leikin og þökkuðu
áhorfendur le'ikurunum og höfundi
með dynjandi lófaklappi. Að lok-
um var dans stiginn til kl. 4. Á
sunnudagsk-völdið var skemtun fyr
ir yngri flokka fjelagsins og var
)ar einnig mjög fjölment.
Morgunblaðið er 6 síður í dag.
Esperantistafjelagið heldur fund
í K.R.-húsinu kl. 8y2 í kvöld.
Eldhúsumræður hjeldu áfram í
gær og fram á nótt. Fyrst notuðu
ráðherrarnir þrír nál. þrjár klst.
og nokkru betur til þess að svara
ræðu Magmisar Jónssonar er hann
hjelt á laugardaginn var. Hjeðinn.
Valdimarsson hjelt stutta ræðu, og
sagði m. a. að landsstjórnin væri
farin að svæfa áhugamál sósíalista,
m. ö. o. orðin „þyngri í tauminn“,
en í upphafi. En Tryggvi Þórhalls-
son vildi ekki viðurke'nna að svo
væri; lofaði því þó að athuga mál-
ið, því ef ásökun H. Vald. væri á
rökum bygð, þá væri sannarlega á-
stæða til þéss fyrir jstjórnina að
gefa henni gaum. — Ýmislegt kom
fram í ræðrpn ráðherranna, sem
eft.irtektarvert var, og ástæða til
að athuga við tækifæri. Kl. 5 byrj-
aði Pjetur Otteseú á fyrstu ræðu
sinni. Hjelt hann langa ræðu og
snjalla. Að henni lokinni tóku ráð-
herrarnir til máls og glímdu við að
svara Pjetri fram á nótt. Eldhús-
umræður halda áfram í dag. —•
Hefir aldrei á noklirum eldhúsdegi
verið annað eins úrval af allskon-
ar umræðuefni eins og nú. —