Morgunblaðið - 16.04.1930, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 16.04.1930, Blaðsíða 5
Miðvikudag 16. apríl 1930. Tollmálainndnrinn í Geni. Vaxandi fjármálayfirráð Banda ríkjanna og barátta Asíuþjóða ge'gn erlendu valdi hefir haft gagngerð áhrif á alt ástand • heiminum undanfarin ár. Bvrópu- þjóðir sökkva dýpra og dýpra í þotnlausar skuldir við Banda- rikjamenn og verða víða að lúta í lægra haldi fyrir Bandaríkja- mönnum í samkepninni um mark- aðina — og í Asíulöndum tapa Evrópuþjóðir stöðugt fleiri mörkuðum eftir því sem iðnaður Asíuþjóða færist í vöxt. Engum getur dulist, að barátta Asíu- þjóða gegn erlendu valdi getur o.rðið valdi og áhrifum Bvrópu- Þjóða kættuleg. Þannig er Evrópuþjóðum hætta búin úr tveimur áttum, og það því fremur, þar sem sundrung Og barátta milli Evrópuþjóða hef- ir veikt mátt þeirra, og stríðs- skuldir og hernaðarútgjöld eru að verða þeim óbærilegar byrðar. Mörgum Evrópumönnum er því orðið það ljóst, að Evrópuþjóðir verða að bindast samtökum, vinna saman og fulltryggja friðinn inn- ar: áifunnar og leita samvinnu í stað baráttu við aðrar þjóðir. En engum dettur þó í liug, að " ta sje framkvæmanlegt í fljótu bragði. Framkvæmdanna verður vafalaust mjög langt að bíða. En það væri strax sliref í rjetta átt, ef hægt væri að gera byrjunina að samtökum milli Evrópuþjóð- anna. Tollmálafundurinn í' Genf átti að vera fyrsti áfanginn á þeirri leið. Fundurinn hófst þann 17. febrúar og var slitið þ. 24. mara. Öll Evrópuríki, sem í þjóðabanda- laginu eru, að Albaníu undan- gkilinni, sendu fulltrúa á fund- inn. Fundurinn átti að re'yna að koma á tveggja ára tollfriði. Það var ætlast til, að þjóðirnar skuld- bindi sig til að hækka ekki vernd- artollana í tvö ár. Ennfremur átti fundurinn að undirbúa samninga- tilraun m|illi þjóðanna um a!ð draga smátt og smátt úr verndar- f-ollunum og koma hagkvæmara- skipulagi á atvinnulíf Evrópú- þjóða. Þannig á að stefna að því, að gera Evrópu að einni viðskifta heild. Bandarikin í Ameríku eru eiu viðskiftaheild. Bandaríkja- menn hafa því stórt viðskiftasvið 'nnanlands, og er það ein af or- aökunum til þess að atvinnulíf Bandaríkjamanna ste'ndur betur að v’gi en atvinnulíf Evrópuþjóða. í Evrópu eru um 30 viðskiftasvæði, og mörg þeirra eru lukt háum Tollmúraír Evrópu. tollmúrum. Evrópuþjóðir gætu skapað atvinnulífi sínu langtum beri aðstöðu, ef þær vildu afnema verndartollana og önnur viðskifta höft og gera álfuna að einu við- skiftasviði. Undanfarin ár hafa margar þjóðir hækkað verndartollana. — Höftin á milliþjóðaverslun verða því stöðugt tilfinnanlegri og leiða oft af sjer deilur og óvináttu milli þjóðanna. Hagur margra Ev- rópuþjóða lie'fir versnað undan- farin ár, atvinnuleysið aukist í mörgum löndum. Verndartollarnir eiga vafalaust töluverðan þátt í þessu. Margir líta því svo á, að afnám verndartollanna sje eitt fyrsta skilyi'ði fyrir friði og*vel- megun í álfunni. Afnám þeirra myndi gera framleiðslu og við- iskifti örari og lieilbrigðari, og minka atvinnuleysi og dýrtíð. En aðrir álíta, að verndartoll- arnir sjcu nauðsynle'gir til þess að vernda innlendar vörur gegn útlendri samkepni. — Það var því fyrirsjáanlegt að samkomulag á tollmálafundinum mundi vera miklurn vandkvæðum bundið. Þjóðabandalagið liafði látið semja uppkast að samningi um 2 ára tollfrið, og', var uppkastið lagt fyrir fundinn. Fulltrúar flestra ríkja gátu fallist á upp- kastið, ef ýmsar undantekningar væru leyfðar. En fulltrúar Frakka og ítala vildu ekki fallast á uppkastið; leit því út fyrir, að þeir myndu spreugja fundinn. — En svo var byrjað að se'mja á nýjum grundvelli. Tollar sumra ríkja ei’u á- kveðnir í verslunarsamningum þeirra, en tollar annara ríltja eru eklci samningsbundnir. — Frakkar lögðu til, að ríkin undir- skrifi samning þess efnis, að all- ir núgildandi verslunarsamning- ar skuli vera óuppsegjanlegir þangað til 1. airníl 1931. og að ríki. sem hafa ekki samnings- bundna tolla, skuldbindi sig til þess, að liækka ekki núgildandi verndartolla og lögleiða ekki nýja fyrir 1. apríl 1931. Fundurinn samþykti þessa til- lögu og samningur þessi er kall- aður verslunarsáttmálinn. Fulltrúar margra þjóða vildu láta heimila ýmsar undantekning- ar frá ákvæðum sáttmálans. T. d. vildi fulltrúi Svía láta heimila Svíum að hækka verndartolla á kornvörum. Og Portúgalar vildu á- skilja sjer rjett til þess að hækka toll á saltfiski. Fulltrúi Norð- manna lýsti því yfir, að Norð- menn gætu.ekki undirskrifað versl unarsáttmálann, ef kröfur Portti- gala vrðu teknar til greina. — Undantekningakröfur Svía, Portu- gala o. fl. þjóða voru svo feldar, |en hinsvegar er heimilað að hækka j verndartolla, ef sjerstakar ástæðUr geri það nauðsynlegt. Fulltrúar 11 ríkja undirskrifuðu svo verslunarsáttmálann áður eU fundinum var slitið. Það voru full- trúar Þýskalands, Austurríkis, Belgíu, Englands, Italíu, Luxem- bourgs, Hollands og Sviss. Búist er við að Norðmenn, Danir og Svíar og ef til vill fleiri Evrópuþjóðir muni bráðlega undirskrifa sáttmál- ann. Fundurinn ákvað að senda ríkis stjórnunum fyrirspurnir, þar sem spurt verður um álit þeirra við- víkjandi lækkun tollanna, og Þjóðabandalaginu var falið að boða til nýrrar ráðstefnu um málið fyrir 1. ajiríl 1931. Því verður ekki neitað, að versl- unarsáttmálinn er ófullkominn. En menn hugga sig við það að liann er fet í rjetta átt, og að lengra Ncrði komist á seinni ráðstefnum. Khöfn. 25. mars. 1930. P. Stiðrnmálaflokhur ensku blaðakónganna. Undanfarið hefir verið óróasamt innan stjórnmálaflokkanna í Eng- landi, og jafnvel verið búist við að sumir þeirra myndu klofna. Lloyd George foringi frjálslynda flokksins á stöðugt við sundur- lyndi innan flokksins að stríða. Kom það m. a. greinilega í ljós við atkvæðagreiðsluna í neðri málstofunni um kolafrumvarp stjórnarinnar. íhaldsmenn og flest- ir þingmenn frjálslynda flokksins greiddu atkvæði á móti ltolafrum- varpi stjórnarinnar, en nokkrir þingmenn frjálslynda flokksins óhlýðnuðust Lloyd George og studdu frumvarp stjórnarinnar. — Annars liefði liún orðið í minni hluta í þinginu. Nokkru seinna var atkvæðagreiðsla þessara þing- manna til umræðu á flokksfundi þingmanna frjálslynda flokksins. Glengu bylgjurnar hátt á fund- inum. Að lokum var samþykt traustsyfirlýsing til Lloyd George, en hann fekk því þó ekki fram- gengt, að allir þingmenn flokksins skuli framvegis fylgjast að við atkvæðagre'iðslur í þinginu. Innan verkamannaflokksins hafa H pðskahorðlð þurfa allir að hafa íslenskt smjör. Verslnnin Viðir selur nú ágætt smjör á aðeins 1.75 pr. */2 kg. Kemið eða símið strax í síma 2320. Eggert Claessen hæstarjettarmálaflutningsmaður. Skrifstofa p Lækjargötu 2, Reykjavík. Sími 871. öll venjuleg málaflutningsmannastörf. Viðtalstími venjulega k. 10—12. iMinufalpaður. Nankinsföt, allar stærðir fyrir börn og fullorðna Khakifatnaður, allar stærðir. Samfestingar, bláar, brúnar, hvítar, dökkgrænar. Sloppar, hvítir, brúnir, bláir. Hvítir jakkar, margar gerðir. Hvítar buxur, margar gerðir. Vinnuskyrtur, fjöldi lita. Nærfatnaður, fjöldi tegunda. Leðurbelti — Gúmmíbelti Strigaskór, brúnir og hvítir, með hrágúmmí- botnum. Gúmmískór, fjöldi tegunda. Maskínuskór — Klossar Oíufatnaður fyrir börn og fullorðna. Sokkar alskonar, fínir og grófir. Axlabönd, fjöldi tegunda. Ermabönd — Sokkabönd. Vasaklútar, margar tegundlir. Olíukápur, svartar, síðar. Gúmmíkápur, fjöldi tegunda. Peysur alskonar. Veiðarfæraverslunfnl',.Geysir“. bylgjurnar og gengið hátt. Rót- tækir verkamenn undir forustu Maxtons, róa að því öllum árum, að stefna jafnaðarmanna verði framkvæmd á vorum tímum. Ein- kunnarorð þeirra er: „Soeialism iu*our time“. En Mae Donakl er hægfara og gætinn stjórnmála- maður, og undirróður róttækra verkamanna fellur hanum ])ví ekki vel í g'eð. Oft hefir kastast í kekki milli hans og Maxtons. Nýlega kvað svo ramt að, að Mac Donald sagði sig úr óháða verkamanna- flokknum (Independemt Labour Party). Óháði v rkamannaflokk urinn er aðallega skipaður rót- tækum verkamönnum, og er flokk- urinn sjerstök deild innan verka- mannaflokksins enska. — Mac Donald er þó áfram í verkamanna fiokknum enska. En vafalaust verður erfitt að halda verkamanna flokknum sarnan til le'ngdar. Innan íhaldsflokksins hefir lengi borið á sundurlyndi, einkum við- víkjandi tollmálunum, og óánægju með flokksformensku Baldwins, Nýlega stofnaði blaðakóngurinn, Beaverbrook nýjan stjórnmál®* flokk, (The United Empire Party). Leit í byrjuninni út fyrir, að flokk ur hans myndi valda klofningi I- haldsflokksins. — Stefna nýja flokksins er í stuttu máli þessi: Frjáls verslun milli allra Ianda Bietaveldis innbyrðis, samefiginleg tollvernd gagnvart öðrum löndum. Hið mikla og sívaxandi atvinnu- leysi í Englandi hefir leitt Beaver- brook inn á þessa braut. Núver- ai di atvinnuleysi í Englandi er al- varlegasta kreppan í sögu landsins, segir Bdaverbrook. „England getur ekki haldið því áfram að borga mönnum alt að 2000 miljónuta króna árlega fyrir það ditt að ganga atvinnulausir“. Beaverbrook álítur því nauðsynlegt, að allar þjóðir hins stóra breska heimsveld I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.